Tíminn - 09.03.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 9. mars 1989
Auglýsing
um rannsóknastyrki frá J.E. Fogarty
International Research Foundation
J.E. Fogarthy-stofnunin í Bandaríkjunum býöur fram styrki handa
erlendum visindamönnum til rannsóknastarfa við vísindastofnanir í
Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boönir fram á alþjóðavettvangi til
rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical or
behavioral sciences), þar með talin hjúkrunarfræði. Hver styrkur er
veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1990-91 og á að standa
straum af dvalarkostnaði styrkþega (18.000 til 22.000 bandaríkjadal-
ir), auk ferðakostnaðar til og frá Bandaríkjunum. Einnig er greiddur
ferðakostnaður innan Bandaríkjanna.
Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækjendur að
leggja fram rannsóknaáætfun í samráði við stofnun þá í Bandaríkjun-
um sem þeir hyggjast starfa við.
Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dagbjartsson, læknir,
barnadeild Landspítalans (s. 91-601000). - Umsóknir þurfa að hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
15. júlf n.k.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1989.
LEKUR ER HEDDIÐ
BL0KKIN? SPRUNGIÐ?
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum -járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks R Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
BLIKKFORM
Smiðjuveqi 52 - Sími 71234
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stái); og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt land
(Ekið niður með Landvélum).
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmíðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðír eyðublaða fyrir tölvuvínnslu.
PRENTSMIÐIAN
Smíðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
í umræðunni
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, verð-
ur gestur Félags ungra framsóknarmanna á
hádegisveröarfundinum í umræðunni sem
haldinn verður á Gauki á Stöng mánudaginn
13. mars klukkan 12.00.
Ögmundur mun ræða og svara spurningum
um horfurnar í samningamálunum og fleira
sem ofarlega er á baugi í verkalýðsmálum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Ath.l Súpa, fiskréttur og kaffi á aðeins kr.
530,-.
Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík
(
Akranes - Bæjarmál
Almennur fundur um bæjarmálefnin verður haldinn laugardaginn 11.
mars kl. 10.30 I Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Bæjarfulltrúarnir.
Tveir brunar
í Eyjafirði
Töluvert tjón varð í bruna að Óseyri 20 á Akureyri í
fyrrakvöld, þar sem Fiskverkunin Skutull, Bátaverkstæði
Birgis Þórhalissonar og bifreiðaverkstæði eru til húsa. Líkiegt
er talið að eldurinn hafí komið upp á bifreiðaverkstæðinu, en
eldsupptök eru ókunn.
Slökkviliði Akureyrar var tilkynnt
um mikinn eld í húsinu aðóseyri 20,
klukkari 19.56 í fyrrakvöld, en þá
var vinnu lokið í húsinu og enginn á
staðnum. Allt tiltækt lið slökkviliðs-
ins var kallað út. Mestar skemmdir
urðu á bílaverkstæðinu, þar sem
talið er að eldurinn hafi komið upp,
en þar voru fjórir bílar inni, m.a.
einn húsbíll. Fiskverkunin og báta-
verkstæðið skemmdust einnig nokk-
uð af sóti og reyk.
Að sögn Gísla Lorenzsonar vara-
slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf
mjög vel og höfðu þeir náð tökum á
eldinum eftir tæpan hálftíma og var
að mestu búið að ráða niðurlögum
hans um klukkan níu. Rjúfa þurfti
gat á þak bílaverkstæðisins til að
létta á hitanum. Vakt var höfð við
húsið í fyrrinótt.
Sex gastæki voru í húsinu og voru
þau orðin mjög heit þegar að var
komið og þurfti að draga þau út og
kæla í snjónum.
Skömmu áður en tilkynnt var um
brunann á Óseyrinni, barst tilkynn-
ing um eld í bænum Hjarðarhaga í
öngulstaðahreppi, en þar hafði
kviknað í feitipotti á eldavél. Bíll frá
Brunavörnum Eyjafjarðar var send-
ur á staðinn, en húsfreyjunni tókst
að slökkva eldinn með handslökkvi-
tæki áður en slökkviliðið kom á
staðinn.
- ABÓ
'
y X £ hJm 1% .m\ Æ&.
\ Kf "v-' r
\
m % \
„Vinnuvika í Hólmavíkurskóla
Nemendur og kennarar Hólmavíkurskóla gerðu nýlega hlé á hinu hefðbundna skólastarfi og efndu til sérstakrar
vinnuyiku. Nemendur skiptust þá í fjóra hópa, og fékkst hver hópur við tiltekin verkefni. Einn hópurinn lagði stund
á leiklist, annar á myndlist, þriðji íþróttir og þjóðdansa, og sá fjórði gerði ýmsar tilraunir á sviði raun vísinda. Nemendur
í hverjum hópi voru á ýmsum aldri, þar sem bekkjaskipting var lögð niður þessa viku.
í vikulok var lialdin sýning á árangri starfsins og er meðfyigjandi mynd af hópnum sem fékkst við leiklist.
Stefán Gíslason.
Áfengissalan stóri munurinn á íslenskri og danskri matvöruverslun:
Bjór og vín 20%
af sölu kjörbúða
Af hverju fáum við ekki að kaupa
borðvín og bjór í búðinni um leið og
við kaupum í matinn? Spurningar í
þessum dúr er ekki ósjaldan að sjá í
íesendabréfum dagblaða. Ef slíkt
yrði heimilað, og þróunin yrði
eitthvað svipuð og hjá grönnum
okkar Dönum, gæti það aukið veltu
matvöruverslana um allt að fimmt-
ung frá því sem nú er. Svo virðist t.d.
að venjulegur danskur Hansen verji
í kringum þrefalt hærri upphæð til
kaupa á „brauði í fljótandi formi“,
eins og bjórinn er stundum nefndur,
heldur en til kaupa á raunverulegu
brauði.
í fréttabréfi Kaupmannasamtak-
anna segir m.a. frá hópi íslenskra
kaupmanna sem í nóvember s.l.
heimsótti danska starfsbræður til að
fræðast um hvernig kaupin gerast á
eyrinni hjá Dönum - m.a. í dæmi-
gerðri matvöruverslun hjá Martin
nokkrum Jensen í versluninni Favör
í Lyngby sem hefur um 190 millj.íkr.
króna veltu á ári með söluskatti.
Það er áfengissalan sem hvað
mestan mun gerir á verslun Martins
og samsvarandi verslun á íslandi. Af
heildarveltunni eru 7% borðvín, 4%
sterk vín og 10,3% bjór og gos, eða
samtals 21,3%. Má því áætla að hátt
í fimmtungur allrar veltu búðarinnar
sé vegna áfengissölu. Þetta er t.d.
nær tvöfalt meira heldur en sala allra
mjólkurvara og osta, sem er rúmlega
10% af heildarveltunni hjá Martin
Jensen.
Miðað við veltuna í Favör ver
venjulegur danskur „Hansen" jafn
miklum peningum til kaupa á áfengi,
tóbaki, gosi og sælgæti (31% af
heildarveltunni) eins og til kaupa á
öllum mjólkurafurðum, kjötvörum,
áleggi og brauði.
Annað sem athygli vekur í rekstr-
inum hjá Martin Jensen er, að
launakostnaður í verslun hans er
aðeins 8% af veltu, sem ec um
fjórðungi til fimmtungi lægra hlutfall
heldur en algengast mun hjá íslensk-
um starfsbræðrum hans, en þar mun
algengt að 10-11% veltu fari til
beinna launagreiðslna, auk launa-
tengdra gjalda. Miðað við veltu 1988
var launakostnaður á 17 ársverk í
Favör tæpar 11,5 milljónir ísl. króna
miðað við meðalgengi ársins 1988 -
eða sem svarar til 674 þús. króna
launakostnaðar (56 þús. á mánuði)
að meðaltali á hvert ársverk 1988.
Til samanburðar má t.d. benda á
að beinar launagreiðslur hjá Hag-
kaupi voru 879 þús. á ársverk að
meðaltali árið áður (1987), í Víði
766 þús., í Kostakaupi 732 þús. og í
Miklagarði og Kjötmiðstöðinni 547
þús., samkvæmt upplýsingum
Frjálsrar verslunar. Þær launatölur
má hækka í kringum 20% til að fá
líkleg meðallaun fyrir 1988 - sem
gætu þá verið á bilinu 1.050 þús. og
niður í 656 þús., sem er svipað og
meðallaunakostnaðurinn (að launa-
tengdum gjöldum meðtöldum) á
mann í búð Martins Jensens.
Þá mun ýmsum íslensku kaup-
mannanna hafa þótt Martin öfunds-
verður af því að þuffa ekki að eyða
mestum hluta tíma síns í að gera
pantanir og ræða við þann aragrúa
heildsala og sölufólks sem algengast
er hérlendis. Martin skiptir við 20
heildsölur og gerir mikið af pöntun-
um sínum með póstfaxi eða tölvu-
boðum beint til heildsala.
Enn þótti athygliverð reynsla
Martins af mikilli endurskipulagn-
ingu sem hann gerði á rekstri sínum
fyrir sex árum. Hún fólst m.a. í því
að fækka vörutegundum í búðinni
um meira en helming, úr 4.600 niður
í um 2.000. Síðan hefur þeim að vísu
fjölgað á ný upp í um 3.300 um
þessar mundir. A sama tíma hefur
hann meira en þrefaldað heildarvelt-
una. - HEI