Tíminn - 09.03.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 9. mars 1989
FRETTAYFIRLIT
JERÚSALEM - ísraelska
lögreglan gerði húsleitir víðs
vegar á heimilum Araba í vest-
urhluta Jerúsalem og leitaði
uppreisnarmanna á sama tíma
og Palestínumenn hófu
tveggja sólarhringa allsherjar-
verkfall á hernumdu svæðun-
um í Gasa og á Vesturbakkan-
um í tilefni þess að 16 mánuðir
eru liönir frá upphafi uppreisn-
ar Palestínumanna.
BODÖ - Talið var að hol-
lenskur kafbátur með 67 menn
innanborðs ætti í alvarlegum
vandræðum norður af Noregi
oa gæti jafnvel hafa farist eftir
ao neyðarkallsbauja kafbáts-
ins fannst á floti 40 km norður
af Bodö í Norður-Noregi, en
neyðarbauja þessi losnar ein-
ungis við eldsvoða í kafbátum
eða þá að henni er sleppt með
handafli ef hættuástand
skapast.
NATO setti af stað allsherjar
leitar- og björgunaraðgerðir,
en þær voru afturkallaðar þeg-
ar kafbáturinn kom heill á húfi
upp á yfirborðið. Baujunni hafði
verið sleppt af misgáningi.
PEKING - Enn ríkir hernað-
arástand í Lhasa höfuðborg
Tíbet, enda óttast kínversk
stjórnvöld mjög að upp úr sjóði
í dag þegar minnst verður
þrítugustu ártíðar uppreisnar
Tíbeta gegn yfirráðum Kín-
verja.
BÚDAPEST - Leiðtogar
Kommúnista í hinu óróasama
Kosovohéraði studdu kollega
sína í Serbíu í því að krefjast
neyðarfundar júgóslavneska
kommúnistaflokksins. Sáfund-
ur gæti gjörþreytt valdahlutföll-
um í Júgóslavíu og stokkað
hressilega upp í flokknum.
DUBLIN - Bæði kaþólska
kirkjan, mótmælendakirkjan og
stjórnmálamenn af báðum trú-
arhópum gagnrýndu liðsmenn
IRA fyrir morð á þremur mót-
mælendum, en morðin voru
framin fyrir augunum á hópi
dauðskefldra skólabarna.
LONDON - Ihaldsflokkur-
inn sem farið hefur með völd á
Bretlandi undanfarin ár hyggst
halda sérstaka ráðstefnu í
Scarborough í næstu viku til
að undirbúa baráttuna á stjórn-
málasviðinu þrátt fyrir að lög-
reglan hafi komist a snoðir um
vopnabúr á þessum slóðum
sem talið er ao hafi verið í eigu
IRA og ætlað til árásar á ráð-
stefnugesti.
TOKYO - Hneykslið í
kringum verðbréfamisferli í
Japan sem mjög hefur skaðað
ríkisstjórn Takeshita heldur
áfram. í gær voru tveir menn
handteknir til viðbótar við þá
tólf sem þegar hafa verið hand-
teknir. Annar maðurinn er fyrr-
verandi aðstoðaratvinnumála-
ráðherra. Stjórnarandstaðan í
Japan hefur undanfarna mán-
uði krafist þess að ríkisstjórn
landsins segði af sér vegna
þessa máls. Þingmenn stjorn-
arandstöðunnar hættu að taka
þátt í þingstörfum í gær til að
leggja áherslu á þessa kröfu
sína.
ÚTLÖND
Varnir afganska stjórnarhersins við borgina Jalalabad virðast nokkuð traustar, því þrátt fyrir harðar árásir skæruliða
halda þær að mestu. Hér eru stjórnarhermenn að treysta varnirnar.
Afganskir skæruliöar leggja nú allt í sölurnar
til að ná stórri borg á sitt vald:
Hörð orrusta
um Jalalabad
Gífurlega harðir bardagar eru nú
um borgina Jalalabad í austurhluta
Afganistan og er greinlegt að skæru-
liðar ætla að leggja allt í sölurnar til
að ná borginni á vald sitt hið allra
fyrsta. Stjórnarherinn segir að hin :
þrefalda varnarlína kringum borgina
hafi haldið og árásum skæruliða hafi
verið hrundið, en skæruliðar segjast
hafa náð á vald sitt lykilvíginu Sam-
arkel sem er í 20 km fjarlægð frá
Jalalabad.
Stjórnarherinn fullyrðir að pakist-
anskir hermenn taki þátt í árásunum
á Jalalabad, en eldflaugum og stór-
skotaliðshríð hefur rignt yfir borgina
og flugvöllinn þar undanfarna daga.
Jalalabad er aðeins í 70 km fjarlægð
frá landamærunum að Pakistan.
Þá hafa harðir bardagar einnig
orðið kringum borgirnar Zaranj,
Lashkargáh og Kandahar þó þeir
jafnist ekki á við orrahríðina við
Jalalabad.
Ljóst er að skæruliðar leggja nú
gífurlega áherslu á að ná stórri borg
á vald sitt til að setja þar upp
höfuðstöðvar bráðabirgðastjórnar
sinnar sem mynduð var í síðasta
mánuði. Ekkert ríki hefur enn viður-
kennt ríkisstjórn skæruliða, en það
kann að breytast nái þeir Jalalabad
á vald sitt.
Um ein milljón manna búa í
Jalalabad.
„Söngvar satans“ enn aö skrattast:
BRESKA LÖGREGLAN
SKOTMARK MÚSLÍMA
Öfgafullir múslímar í Líbanon
sem hafa tvo bandaríska menn í
gíslingu í Beirút hafa nú hótað að
drepa Salman Rushdie höfund bóka-
rinnar „Söngvar satans“ og að auki
hvern þann breska lögregluþjón sem
á vegi þeirra kann að verða á meðan
þeir vinna að ætlunarverki sínu.
- Byltingarsinnuðu réttlætissam-
tökin kunna að neyðast til þess að
ráðast á breskar lögreglustöðvar og
lögreglumenn sem reyna að vernda
Salman Rushdie til að ná taki á
honum og lífláta hann, sagði í hand-
skrifaðri yfirlýsingu samtakanna.
Með yfirlýsingu þessari fylgdi ný-
leg mynd af Bandaríkjamanninum
Edward Austin Tracy sem er í haldi
hjá samtökunum.
- Við lýsum allri ábyrgð á hendur
bresku ríkisstjórninni ef mannfall
verður í röðum bresku lögreglunnar
og eignatjón á lögreglustöðvum
meðan á aðgerðum gegn Rushdie
stendur, sagði einnig í yfirlýsinguni.
Bretar hafa hvatt alla breska ríkis-
borgara í Líbanon til að yfirgefa
landið og varað menn við að ferðast
þangað. Þrír Bretar eru nú í haldi
mannræningja í Líbanon.
Skæruliðar í
Ekvadorbera
klæði á vopn
Helsta skæruliðahreyfing Ek-
vador hefur nú sýnt friðarvilja
eftir níu ára baráttu gcgn stjórn-
völdum. í sameiginlegri yfirlýs
ingu hinna vinstri sinnuðu Alfaro
Vive Carajo skæruliðahreyfingar
og ríkisstjórnar jafnaðarmanna
undir stjórn Rodrigos Borja for-
seta leggja skæruliðar niður vopn
gegn því að ríkisstjórnin virði
borgaralegréttindi skæruliðanna.
- Alfaro Vive Carajo skæru-
liðahreyfingin hyggst nú taka full-
an þátt í stjórnmálum og þjóðlífi
Ekvador með löglegum hætti og
án beitingu vopna, segir í yfirlýs-
ingunni.
Skæruliðahreyfing þessi var
talin hafa um þúsund manns inn-
an sinna vébanda í byrjun ára-
tugarins, en stór skörð voru
höggvin í hana af öryggissveitum
íhaldsmannsins Leons Febres
Corderos fyrrum forseta Ekva-
dor.
Febres Cordero afhenti Ro-
drigos Borja stjórnvölinn í ágúst-
mánuði eftir sigur Borja og jafn-
aðarmanna í kosningum í land-
inu.
Skæruliðahreyfingin var nefnd
eftir framfarasinnuðum forseta
sem myrtur var árið 1912. Hreyf-
ingin rændi banka og tók í gísl-
ingu kaupsýslumenn á fyrri hluta
þessa áratugar og vann þá oft á
tíðum með M-19 skæruliðum í
Kólumbíu.
Kolbrjálaðar
kýr drepa
í Bangladesh
Kolbrjálaðar beljur frá Ind-
landi réðust í gær yfir landamærin
til Bangladesh og drápu tvo
þorpsbúa þar áður en hermenn
náðu að lífláta árásarliðið eftir
klukkustundar baráttu. Sex her-
menn særðust í átökunum.
Kýrnar sem vanar eru almennri
kurteisi mannskepnunnar þar
sem þær voru fæddar og uppaldar
á Indlandi þar sem kýr eru heilag-
ar, röltu yfir landamærin á landa-
mærastöðinni Kharirani. Þar réð-
ust þær á tvo þorpsbúa sem
gerðust svo djarfir að stugga við
þeim, en í Bangladesh er helgi
kúnna ekki virt. Kýrnar létu ekki
staðar numið fyrr en þær höfðu
rekið mennina tvo á hol með
hrikaiegum hornum sínum.
Hermenn sem gættu landa-
mæranna komu þorpsbúum til
hjáipar og reyndu að fæla kýrnar
á brott með skotum út í ioftið, en
kýrnar létu sér ekki segjast heldur
eltu hermennina uppi gegnum
runna og yftr hrísakra. Þá var
toiinmæði hermannanna á þrot-
um og þeir veittu hinum heilögu
kúm náðarskotin.
ísraelar sýna mátt sinn í suöurhluta Líbanon:
Settu norska gæsluliða í herkví
ísraelar héldu norskum friðar-
gæsluliðum Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon í herkví í nokkrar klukku-
stundir á svæði því sem ísraelar hafa
lýst yfir að sé sérstakt öryggissvæði
þeirra. ísraelskt herlið tók á sitt vald
bæinn Ibl As-Saqi en þar eru höfuð-
stöðvar norska friðargæsluliðsins og
lokaði herliðið öllum leiðum til og
. frá-gæslusíöðuju-áöí). uorskta. her.-..
manna sem sjá um friðargæslu á
þessum slóðum.
Friðargæsluliðar höfðu sett upp
farartálma við bæinn svo að ísraelskt
herlið gæti ekki valsað þar unt að
vild eins og það gerir víða á þessum
slóðum í Líbanon.
ísraelsku hermennirnir opnuðu
aftur leiðir að stöðvum friðargæslu-
iiöaatiú.eflir að i'amaiaiálaráðhena- -
ísrael Yitzhak Rabin kom óvænt á
þessar slóðir.
Friðargæslusveitir Sameinuðu
þjóðanna líta mjög alvarlega á þess-
ar aðgerðir ísraela, en ísraelar vilja
nær algerlega hundsa sveitir Samein-
uðu þjóðanna. Á þriðjudag réðust
hermenn ísraela inn á sjúkrahús
Sameinuðu þjóðanna á hinu her-
-numda Gazasvæði-og notuðu jarðýtu
til að brjóta sér leið.
Sumir telja þessar aðgerðir ísraela
nokkurs konar hefndaraðgerðir
vegna ummæla norsks yfirmanns
friðargæsluliða, J.E. Karlsen, en í
síðasta mánuði líkti hann aðförum
ísraela á hernumdu svæðunum við
aðfarir nasista. Norðmenn fóru ekki
varhluta af þeim aðförum í síðari
-heimsstyrjökiinrri.--------