Tíminn - 13.05.1989, Síða 4
Deilt um hvort Kjarvalsstaóir þjóni tilgangi sínum:
4 Tíminn.
^ygar^^gur, 1^-piaíJ989
„Utnýsa Kjarval vegna
ómerkilegra sýninga“
Uppi hafa verið raddir sem segja Kjarvalsstaði ekki
standa undir nafni þar sem verk Kjarvals eru næsta
sjaldséðir gestir í sýningarsölunum. Nú er verið að athuga
möguleika á viðbyggingu tengdri Kjarvalsstöðum með
undirgangi.
Jóhannes Kjarval. Úlfar Þormóðsson segir viðbygginguna óþarfa ef ekki
kæmi til samviskubit vegna þess að upphaflega ætlunarhlutverkið hefði
þegar verið brotið.
„Upphaflega var húsið byggt
sem Kjarvalsstaðir og í öðrum
stóru salanna áttu ávallt að vera
uppi hangandi verk eftir Kjarval
og af og til sýningar á fleiri af
málverkum hans. Nú stendur til að
úthýsa honum endanlega með
þeim hætti að byggja einhverskon-
ar Kjarvalsrannsóknarstofu neð-
anjarðar en þá verður ekkert orðið
eftir af málaranum í húsinu sjálfu.
Húsið er ætlað til að sýna verk
Kjarvals en ekki hefur verið staðið
við þau fyrirheit," sagði Úlfar
Þormóðsson í Gallerí Borg í sam-
tali við Tímann. Hann sagði við-
bygginguna vera óþarfa ef ekki
kæmi til að samviskubit vegna þess
að upphaflega ætlunarverkið hefur
þegar verið brotið.
„Hvað varðar aðrar sýningar
sem settar eru upp í húsinu mætti
alveg sleppa helmingnum af þeim.
Margar þeirra eru svo ómerkilegar
að þær eru húsinu og aðstandend-
um þess til skammar. Við eigum
margt ágætra listamanna en það er
ekki þar með sagt að þeir og aðrir
eigi að vera að sýna allt sem þeir
eru að gera. Það væri til bóta fyrir
íslenskt menningarlíf ef sýningum
fækkaði. Þegar fólk kemur aftur og
aftur á listsýningar og verður fyrir
vonbrigðum í hvert skipti, hættir
það smám saman að koma,“ sagði
Úlfar.
Sýningarhúsnæðið yrði að meg-
inhluta neðanjarðar og ýmsum
munum Kjarvals komið fyrir í
ganginum milli bygginganna. „Það
er almennt mjög lítið til af sýning-
arhúsnæði í Reykjavík. Tiltölulega
fljótt kom því í Ijós að eftirspurn
listamanna eftir húsnæðinu var
mjög mikil. Við þessu þurfti að
bregðast og var sú ákvörðun tekin
að fastar Kjarvalssýningar yrðu
aðeins ákveðinn tíma ársins. Það
þurfti einfaldlega að velja á milli
þess að geta haldið fleiri sýningar
og gefið fleiri listamönnum tæki-
færi eða vera með Kjarval allan
ársins hring,“ sagði Eiríkur Þor-
láksson aðstoðarforstöðumaður
Kjarvalsstaða í samtali við
Tímann.
Hann sagði viðbygginguna vera
einföldustu lausnina til að hægt
væri að hafa verk Kjarvals til sýnis
allt árið. „Þarna er nákvæmlega
vitað yfir hvað við erum að byggja
og hægt að hanna húsnæðið með
það í huga.“
Við byggingu Kjarvalsstaða var
markmiðið að húsnæðið gæti hýst
fleiri myndlistasýningar og aðra
listviðburði og eru því salirnir það
sem kalla má almennir sýningarsal-
ir. Með viðbyggingunni sagði Ei-
ríkur að komið gæti endanlegur
sýningasalur fyrir málverk Kjarvals
og ekki væri hætta á að óskir
bærust þess efnis að aðstaðan yrði
notuð undir annað.
„En það hefur engin endanleg
ákvörðun verið tekin í þessu efni.
Við höfum verið í mikilli samvinnu
við Menningarmálanefnd, bygg-
ingardeild Reykjavíkurborgar og
fleiri sem hafa fylgst með verkum
Kjarvals og þekkja vel til þeirra.
Guðmundur Jónsson arkitekt, sá
sami og teiknaði tónlistarhúsið,
hefur unnið teikningar vegna
þessa. Næsta skref er síðan að
leggja þessar teikningar fyrir borg-
arkerfið sem kemur til með að taka
ákvarðanir varðandi framhaldið,"
sagði Eiríkur. jkb
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir eðlilegt að
nýta hrefnustofninn eins og aðrar auðlindir í framtíðinni:
Vill veiða
hrefnu á ný
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðaherra segist þeirrar
skoðunar að það tjón sem hrefnuveiðimenn urðu fyrir, er þeir
voru skyldaðir til að hætta hrefnuveiðum 1985, verði aldrei
að fullu bætt, nema að hefnuveiðar verði teknar upp að nýju
með eðlilegum hætti í framtíðinni.
„Við hljótum að vinna að því að
þessi auðlind sé nýtt eins og aðrar
auðlindir í framtíðinni og þá eðlilegt
að þeir aðilar sem þessar veiðar
stunduðu njóti þar forgangs," sagði
sjávarútvegsráðherra.
Þetta kom fram er ráðherrann
svaraði fyrirspurn frá Karvel Pálma-
syni á fimmtudag. Karvel spurði
m.a. hvort ekki væri ástæða til þess
að athuga það sérstakiega hvort ekki
væri kominn tími til að leyfa hrefnu-
veiðar að nýju, í ljósi þess að
hrefnustofninn hér við land væri
mun stærri en nokkurn hefði órað
fyrir.
Matthías Bjarnason varpaði fram
þcirri spurningu til sjávarútvegsráð-
herra, hversu lengi stöðvun hrefnu-
veiða ætti að vara. Matthías sagði að
það sem skipti höfuðmáli að sínum
dómi, væri að herfnustofninn um-
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra telur eðlilegt að stefna að
því að skynsamleg nýting hrefnu-
stofnsins verði tekin upp í framtíð-
inni.
hverfis landið teldi um 20.000 dýr.
Það væri ekki réttlætanlegt fyrir
þeim mönnum sem þessar veiðar
hefðu stundað, að banna veiðar úr
svo gífurlega stórum stofni. -ÁG
Búist við lít-
illi umferð
um helgina
Hvítasunnuhelgin hefur jafnan
verið fyrsta stóra ferðamannahelgi
sumarsins, en búast má við að svo
verði ekki í ár. Ástæður þessa eru
m.a. þær að ennþá er snjór víða á
' láglendi og því ekki fýsilegur kostur
að leggjast í tjald, auk þess sem
ástand og færð á vegum er víða
bágborin. Þá má geta þess að engin
skipulögð útihátíð verður um helg-
ina og allir hálendisvegir eru lokaðir.
Á fréttamannafundi sem Umferð-
arráð efndi til í gær, kom fram að
gróður væri mjög viðkvæmur og er
hvatt til þess að menn sýni aðgæslu
og fari ekki á ökutækjum yfir við-
kvæmt land, enda er það ekki undir
það búið. Þáttur vegalögreglu verð-
ur með öðrum hætti þessa helgi þar
sem vegir gefa ekki tilefni til mikilla
ferðalaga og ennþá frost á næturnar.
Að sögn lögreglu er búist við að
rnesta umferðin verði í kring um
skíðasvæðin, enda ákjósanlegt færi
til skíðaiðkana og kemur lögreglan
til með að beina athygli sinni að
þeim stöðum þar sem umferðar-
þunginn er mestur.
Umferðarráð hvetur ökumenn til
að fara varlega og hafa í huga, sem
endranær að áfengi og akstur fer
ekki saman. -ABÓ
NISSAN VANETTE
VÆNLEGUR KOSTUR
Nissan Vanette er vænlegur kostur fyrir sendibílstjóra og
verktaka.
Ef borið er saman verðið á Nissan Vanette og öðrum sambæri-
legum þá hefur Nissan Vanette vinninginn eins og á öðrum
sviðum.
Okkar verð: 840.000.-
Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum. Sýningarbíll á staðnum.
3ja ára ábyrgð.
Sýningarsalurinn v/Sævarhöfða opinn frá kl. 14-17
laugardag og sunnudag
Ingvar
Helgason hf
Sævarhöföa 2, sími 67-4000