Tíminn - 13.05.1989, Page 12
r«: r.» í
PSPf irm ‘rt ^linr<h* r r»i« • i
24 Tíminn
Laus staða
Við Kennaraháskóla íslands er laus til umsóknar
lektorsstaða í handmenntum. Staðan er veitt til
tveggja ára. Megin verkefni eru hönnun, hannyrðir
og saumar ásamt kennslu þessara og skyldra
þátta á grunnskólastigi.
Auk framhaldsmenntunar við háskóla eða sérskóla
skulu umsækjendur hafa viðurkennd kennslu-
réttindi eða að öðru leyti nægilegan kennslufræði-
legan undirbúning.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst
1989.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilegar upplýsingar um nám og fyrri störf, svo
og um ritsmíðar og rannsóknir eða listiðnað sem
þeir hafa unnið.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 10. júní n.k.
Menntamáiaráðuneytið,
11. maí 1989.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
í Barónsstíg 47
1|f
Sálfræðingur
óskast í 50% starf, sem ætlað er að þjóna
barnadeild heilsuverndarstöðvarinnar og heilsu-
gæslustöðvum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Hansen, yfirlækn-
ir barnadeildar í síma 22400, alla virka daga.
Umsóknum ber að skila til skrifstofu Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur, fyrirkl. 16.00, mánudaginn
22. maí n.k.
Frá starfsþjálfun
fatlaðra
Móttaka umsókna fyrir haustönn 1989 er hafin.
Umsóknarfrestur til 10. júní.
Forstöðumaður veitir nánari upplýsingar og tekur
á móti umsóknum í síma 29380 milli kl. 10-12,
virka daga.
Skriflegar umsóknir sendist:
Starfsþjálfun fatlaðra
Hátúni 10a, 105 Reykjavík.
W Útboð
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í
viðgerðir og ýmsa þætti viðgerða ásamt sílanböð-
un og málun utanhúss á Félagsheimilinu Fannborg
2.
Útboðsgögn eru afhent á tæknideild Fannborg 2,
3. hæð, frá og með þriðjudeginum 16. maí gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðstryggingu kr. 300.000 þarf að leggja fram
með tilboðum sem opnuð verða miðvikudaginn
24. maí á tæknideild, Fannborg 2, 3. hæð, kl.
11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Bæjarverkfræðingur.
Til sölu
MENGELE fjölhnífavagn 24 rúmm.
KRONE sjálfhleðsluvagn 24 rúmm.
WILD heydreifikerfi.
Sími 98-76520.
Laugardagur 13. maí 1989
ARNAÐ HEILLA
lllllllillllllllllllllllllllllllllllllll
illlllllllllllllllllllllliuilllllllllllllllll
80 ára:
Jóhann Þorvaldsson
fyrrverandi skólastjóri
Fyrir nokkrum árum var einu
sinni sem oftar hringt frá Reykjavík
í Jóhann Þorvaldsson, fyrrum skóla-
stjóra á Siglufirði. Erindið var að
biðja hann að skreppa suður um
miðjan júní og vera þar þjóðhátíðar-
daginn. Röddin úr Reykjavík kvaðst
tala frá skrifstofu forseta íslands;
hefði hann í hyggju að sæma skóla-
stjórann gamla fálkaorðu þann dag.
„Ég get alls ekki kornið," svaraði
Jóhann.
Þá var spurst fyrir um hvað haml-
aði för þessa þegns á vit höfðingja.
Jóhann Þorvaldsson kvaðst bundinn
af skógræktarstörfum þær vikur er
sól væri hæst á lofti yfir Norðurlandi.
Með ýtni reyndi röddin úr Reykjavík
að fá Jóhann til að slá störfum á frest
nokkra daga kringum þjóðhátíð. En
hann var ósveigjanlegur, kvað plönt-
ur best komnar í jörð sem fyrst og
starfslið sitt, siglfirsk börn, gera ráð
fyrir vinnu í Skógræktinni einmitt
um þær mundir sem málmfuglum
væri úthlutað við Faxaflóa. Endaði
hann ræðu sína með þessum orðum:
„Ég get ekki brugðist börnunum,“
... og fór hvergi.
Þessi saga af Jóhanni, vini mínum,
Þorvaldssyni og svar hans minnir á
ýmsa göfugustu menn íslendinga-
sagna - og lýsa mannkostum hans
vel. í engu vildi hann bregðast.
Lifandi börnin skiptu hann meira
Davíð Sigurðsson
níræður 6. maí ’89.
Lítið stef í tilefni dagsins.
Enn kvakar vorfugl við mel og mó
á Mýrunum okkar, vestur,
þarfinnur sér langþráðan frið og ró
hinn ferðlúni sumargestur.
Hann man eftir hlýlegri mosató,
hvar munaðinn aldrei brestur.
Og enn eru fjöllin fagurblá
sem fyrrum í cesku þinni
og gróðurilmur - ég giska á -
þig glatt hafi mörgu sinni.
Sá ilmur nú til þín andi frá
afmceliskveðjunni minni.
Lóa Þorkelsdóttir
Auglýsing frá menntamálaráðuneytinu:
Hátíðardagskrá
í Þjóðleikhúsinu í tilefni af aldarafmæli Gunn-
ars Gunnarssonar skálds.
Fimmtudaginn 18. maí n.k. kl. 17.30
Ávörp flytja Svavar Gestsson, menntamálaráð-
herra og Steinunn Sigurðardóttir, varaformaður
Rithöfundasambands íslands, Sveinn Skorri
Höskuldsson, prófessor flytur erindi um skáldskap
Gunnars Gunnarssonar.
Leiklestur úr Svartfugli: Þorsteinn Gunnarsson,
Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson og Gísli
Rúnar Jónsson flytja.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Arnar Jónsson les kafla úr Fjallkirkjunni.
Þorsteinn Ö. Stephensen flytur Ijóð eftir Guðmund
Böðvarsson.
Bríet Héðinsdóttir flytur Ijóð eftir Hannes Péturs-
son.
Gunnar Kvaran leikur einleik á selló.
Kynnir verður Kristbjörg Kjeld.
Dagskráin er öllum opin. Aðgangur er ókeypis.
Menntamálaráðuneytið 11. maí 1989.
t
máli en dauður málmfugl fyrir
sunnan.
Jóhann Þorvaldsson verður átt-
ræður á þriðjudaginn kemur. í>ó er
hann enn ungur, enn að störfum,
enn hiklaus og traustur í baráttunni
fyrir þær hugsjónir sem hann vígðist
ungur. Hann er það ungur að maður
blygðaðist sín fyrir að fara að rekja
æviferil hans. Hann stendur enn í
orrahríð lífsins miðri og lætur hvergi
deigan síga. í meira en fjóra áratugi
hefur hann verið ritstjóri Regins á
Siglufirði. Það segir nokkuð um
trúmennsku hans og þrautseigju að
ekkert blað bindindishreyfingarinn-
ar á íslandi hefur komið út jafnlengi
og Reginn - að Æskunni einni
undanskilinni.
Jóhann Þorvaldsson er skýr maður
og skemmtilegur eins og margur
Svarfdælingurinn. Þó hygg ég að
ýmsar gerðir manna um þessar
mundir eigi hann erfitt með að
skilja. Mig grunar til að mynda að
hann botni lítið í sálarlífi þess lýðs
sem telur sér sæma að raka saman fé
á að selja fólki - jafnvel óvitum -
efni sem breytir því í afglapa eða
ófreskjur. Og enn síður mun hann
skilja það fjölmiðlafólk sem vinnur
„það fyrir vinskap“ ölsölulýðs að
ljúga til um gífurlega aukningu
áfengissölu síðustu vikurnar til að
slá ryki í augu þeirra sem fátækastir
eru í andanum.
Þegar dimmir fyrir sjónum, þegar
auðhyggja og framapot, sýndargljái
og gervigleði, kokhreysti og óheil-
indi virðast standa föstum fótum,
þegar fjárplógslýður ryðst um fast
og vill stjóma þeim sem löndum
ráða - þá rennur upp ljós í svartnætt-
inu við að hugsa til orða Jóhanns
Þorvaldssonar:
„Ég get ekki brugðist börnunum. “
Heill honum áttræðum. Megi hug-
sjónir hans um fagurt mannlíf,
manngildi ofar auðgildi, allsgáða
þjóð rætast. „Þá mun aftur morgna.“
Ólafur Haukur Árnason
Fjölskylda Jóhanns tekur á móti
gestum í safnaðarheimili Langholts-
kirkju í Reykjavík milli klukkan 16
og 19 afmælisdaginn.
Leiguflug
Útsýnisflug
Flugskóli
Viðskiptafólk athugið
að oft er hagkvæmara
að leigja vél í ferðina -
innanlands eða til útlanda.
4-10 sæta vélar til reiðu.
• FLUGTAK
fl Gamta Flugturnlnum
' Reykjavlkurflugvelli
101 Reykjavik
Simi 28122
Telex ir ice is 2337
Fax 91-888663
Möldursf.