Tíminn - 13.05.1989, Side 15
Laugardágur i 3.’ maf 1989
lllllllllllllllllllllllllll TÓNLIST llllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllll
Magnaður píanóleikari
Efnisskrá:
Leif Ove Andsnes, píanó:
Chopin: Sónata nr. 2 í b-moli, op. 35
Grieg: Lyriske Stykker VIII, op. 65
Schubert: Moments Musicaux, op. 94
nr. 1, 2 og 4
Schubert: Sónata í a-moll, op posth.
143.
Nú orðið eru flestir tónleikar hér
í bænum nokkuð góðir, og stundum
ágætir, og ekki margt um þá að segja
annað en það, að tónlistarlífið er í
sífelldri framför. Og það þökkum
við ekki síst 2ja áratuga gamalli
löggjöf um tónlistarskóla, sem skilað
hefur dæmalaust góðum árangri. En
svo kemur nítján ára Norðmaður,
Leif Ove Andsnes, og heillar styrkt-
arfélaga Tónlistarfélagsins í Reykja-
vík upp úr skónum með leik sínum
í íslensku óperunni 2. maí. Margir
telja Norðmenn fremsta sem fjall-
göngumenn og þrefara um heima-
trúboð o.þ.h., og gleyma því þá
gjarnan, að frægustu listamenn
Norðurlanda á sviði bókmennta,
málverks og tónlistar voru
Norðmenn: Ibsen, Munch og Grieg.
Enda hefur Leif Ove Andsnes lík-
lega lítið með löggjöf um tónlistar-
skóla að gera: hann er snillingur af
því tagi sem 17 sinnum meiri líkur
eru til að fæðist í Noregi en hér,
vegna þess að Norðmenn eru 17
sinnum fleiri en við.
Tónleikaskráin segir stuttlega frá
æviferli hins unga snillings: Hann
fæddist 1970 í Karmðy, skammt frá
Haugasundi í V-Noregi, og hóf pí-
anónám 5 ára hjá foreldrum sínum,
sem bæði eru tónlistarkennarar.
Átta ára hóf hann nám í tónlistar-
skólanum í Karmóy og þaðan fór
hann í Tónlistarkonservatoríið í
Bergen. Frá 9 ára aldri hefur hann
oft unnið til verðlauna fyrir leik
sinn. Hann vakti mikla hrifningu
allra sem heyrðu hann leika á Tón-
listarhátíð ungra norrænna ein-
leikara í Reykjavík í október sl.
Verkin fjögur á efnisskránni gefa
tilefni til margvíslegra tilþrifa og
hughrifa, frá sorgarmarsi til brúð-
kaupsdags á Tröllahaugi, frá An-
dante til Allegro giusto til Presto:
Og allt þetta gerði píanóleikarinn
ungi dæmalaust vel, með þroskuðu
innsæi í tónlistina, fölskvalausri
tækni og óvenjulegri Ieikgleði. Auk
þess hefur hann eðlilega en vingjarn-
lega framkomu - í einu orði sagt,
heillandi listamaður. í lokin lék
hann Chaconnu eftir Carl Nielsen,
og þáði blómvönd að launum, líkt
og Egill Skallagrímsson andaregg og
þrjá „brimrótar gagra“ á sinni tíð.
Vonandi eigum við eftir að heyra
Leif Ove Andsnes oft í framtíðinni.
Sig.St.
DAGVIST BARNA
t
Forstöðumaður
Dagheimilið Laugaborg óskar eftir forstöðumanni
frá og með 1. ágúst n.k.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dag-
vistar barna í síma 27277.
NORDSTEN Turbo-matic
Áburðardreifarar - 500 og 800 lítra
Nordsten Turbo-Matic áburðardreifararnir eru há-
gæðavara á mjög góðu verði. Þeir sameina frábæra
dreifingu, einstaka nýtni og lága hleðsluhæð.
Berðu saman verð og gæði, þá
endar þú örugglega á
NORDSTEN
• Dreifibúnaður úr ryðfrfu stáli. - Dreifibreldd er 12 metrar.
• Kögglasigti hindrar að kögglar stffli og valdi öjafnrl dreifingu.
• Hleðsluhæð er aðeins 82 cm á Nordsten 500.
• úli stýring frá ekilshúsi á áburðarmagnl og drelflngu til hllðar
með skurðum.
• Reiknistokkur til nákvæmra útreikninga á áburðarmagni pr.
hektara.
• Áburðartrekt er á hjörum, sem auðveldar þrif á dreifibúnaði.
• Álagsöryggl á drifskafti.
Fyrir utan áburðardrelfarana útvegum
við með stuttum fyrirvara sáðvélar og
sláttutætara frá sama framleiðanda. Rétt
er að geta þess að sama fyrlrtækið
stendur að framleiðslu á Nordsten
vörunnl og Veto moksturstækjum.
NORDSTEN: Viöurkennd vara fyrir gæði og nákvæmni.
Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn
Umboðsmenn
DieselverkAkureyri Sími 96-25700 Kaupf. Þingeyinga - 96-41444
Vélaval Varmahlíð - 95-6118 B.T.B. Borgarnesi - 93-71218
Kaupf. Húnvetninga - 95-4198 Hjólbarðav. Björns, Hellu - 98-75960
Vélar og Þjónusta M. Jámhálsi 2, Reykjavík. Sími 91-83266
AMAZONE dreifarinn er með tveim dreifiskífum,
sem þú getur treyst til að gefa jafna og örugga
áburðardreifingu.
Vinnslubreidd er stillanleg á 9,10,12 og 15 m.
Einnig hægt að dreifa aðeins til annarrar hliðarinn-
ar, t.d. meðfram skurðum og girðingu.
Auðveldur í áfyllingu vegna þess hve lágbyggður
dreifarinn er.
Bútæknideildarprófaður sumarið 1988, sem stað-
festi þessa eiginleika.
ARMULA 11 SIMI 651500
Tíminn 27
Viltu kenna við
fámennan skóla?
í fámennum skólum:
- eru bekkjardeildir færri en árgangar. Því er
samkennsla ríkjandi fyrirkomulag.
- eru nánari tengsl skóla við umhverfi og atvinnu-
líf.
- er hver einstaklingur stór hluti af skólaheildinni.
- eru möguleikar á fjölbreyttu félags- og tóm-
stundastarfi.
- getur frumkvæði kennara notið sín.
- er vaxandi samvinna milli skóla um land allt.
- er hafið sameiginlegt þróunarstarf um námsefni,
kennsluhætti og skólanámskrárgerð.
★ Á landinu eru um 100 skólar með nemenda-
fjölda 100 eða færri.
* Stefnt er að því að starf þessara skóla njóti
fullrar virðingar og möguleikar þeirra umfram
stóra skóla nýtist sem best.
★ Við viljum hvetja áhugasama kennara til þess
að starfa með okkur að þessum markmiðum og
koma til starfa á landsbyggðinni.
* Nánari upplýsingar má fá hjá undirrituðum:
Fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis
Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis
Fræðslustjóri Norðurlands vestra
Fræðslustjóri Norðurlands eystra
Fræðslustjóri Austfjarðarumdæmis
Fræðslustjóri Suðurlandsumdæmis
FORKÖNNUN VEGNA
ÚTBOÐS Á PÖKKUN OG
ÚTKEYRSLU DAGBLAÐA
Leitað er eftir aðilum sem áhuga hafa á að bjóða
í pökkun og útkeyrslu dagblaða. Útgáfudagar eru
5 í viku þriðjudag til laugardags.
Pökkun hefst um miðnætti og þarf útkeyrslu að
vera lokið fyrir kl. 6.00 að morgni.
Þeir sem áhuga hafa á frekari upplýsingum leggi
inn upplýsingar um nafn, heimili og símanúmer í
afgreiðslu blaðsins fyrir 25. maí 1989, merkt
Blaðdreifing 1989.
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Bólstaðarhlíð
Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögu að
breytingum Bóistaðarhlíðar.
íbúum Bólstaðarhlíðar og öðrum sem áhuga hafa
á bættu umferðaröryggi í götunni er bent á að
kynna sér tillöguna og greinargerð á Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur, Borgartúni 3,105 Reykjavík, alla
virka daga milli kl. 8.30-16.00 frá þriðjudegi 16.
maí til miðvikudags 31. maí 1989.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila skrif-
lega á sama stað innan tilskilins tíma.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða. Fast verð. Afsláttur
ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 kl. 10-12 á kvöldin.
Geymið auglýsinguna.