Tíminn - 02.06.1989, Side 12

Tíminn - 02.06.1989, Side 12
12 Tíminn Föstudagur 2. júní 1989 FRÉTTAYFIRLIT MOSKVA - Fulltrúi á hinu nýja fulltrúaþingi Sovétríkj- anna réðst mjög harkalega að íhaldsmanninum Jegor Liga- chev fyrrum hugmyndafræð- ingi kommúnistaflokksins og sagði fulltrúinn að Ligachev hafi mistekist starf sitt sem hugmyndafræðingur oo að hann væri gersamlega omeð- vitaður um það starf sem hann hefur haft með höndum undan- farið sem yfirmaður landbún- aðarmála. MOSKVA - Mikhaíl Gorba- tsjof samþykkti að setja á fót serstaka nefnd til að kanna hvort Sovétríkin hafi innlimað Eystrasaltsrikin með valdi eftir griðasamning við Hitler árið 1939. BONN - Helmut Kohl kansl- ari Vestur-Þýskalands sagði að afvopnunaráætlun NATO væri í anda Vestur-Þjóðverja og neitaði því að erfiðleikar ríktu í samkiptum NATO-ríkja. PEKING - Kínversk stjórn- völd hertu á herlöqum sem nú rikja f Peking með því að lýsa yfir nær algeru fréttabanni er- lendra fréttstofa og hafa bann- að erlendum fréttamönnum að ræða við kínverska alþýðu. VARSJÁ - Mieczyslaw Rakowski forsætisráðherra Póllands sendi Samstöðu við- vörun um að breytingar í lýð- ræðisátt sem ekki yrði haft stjórn á gæti komið á ójaf nvægi í landinu og jafnvel aukið á afturhaldsöm öfl í landinu. TOKYO -Sosuke Uno utan- ríkisráðherra Japan flaug heim frá Evrópu til að taka við for- sætisráðherraembættinu af Takeshita sem fer frá vegna fjármálahneykslis. LONDON - George Bush forseti Bandaríkjanna sagðist myndu áfram halda uppi „sér- stöku sambandi" sem ríkt hef- ur milli Bandaríkjanna og Bretlands, en sagði að slíkt gæti aldrei orðið á kostnað annarra aðildarríkja NATO. PARÍS - Háttsettur sovéskur embættismaður á mannrétt- indaráðstefnunni i París skýrði frá því að Sovétríkin muni með nýrri löggjöf afnema útlegðar- dóma til Síberiu sem verið hefurvinsæl refsing. Hins veg- ar munu ferðalög Sovétmanna til útlanda áfram vera háð leyfi rikisvaldsins. Friðarsamkomulag stjórnvalda á Sri Lanka og skæruliðaTamíla í augsýn? Premadasa vill hermenn Indverja f rá Sri Lanka Ríkisstjórn Sri Lanka vill hersveitir Indverja burt af eynni fyrir júlílok, en indverskar hersveitir hafa barist við skæru- liðasveitir aðskilnaðarsinna Tamíla á norðurhluta Sri Lanka undanfarna mánuði. Indverskur hermaður á varðbergi gegn árás skæruliða Tamfla á Sri Lanka. Nú vill forseti Sri Lanka að Indverjar kalli 45 þúsund manna herlið sitt heim. - Ég vil sjá síðasta indverska hermanninn farinn frá Sri Lanka fyrir lok júlímánaðar, sagði Ranas- inghe Premadasa forseti Sri Lanka á búddahátíð sem haldin var í gær. Þessi yfirlýsing forsetans kom mjög á óvart, en indverskar hersveit- ir voru sendar til Sri Lanka fyrir tveimur árum í samræmi við sam- komulag ríkisstjórnar beggja ríkj- anna um vissa sjálfstjórn til handa Tamílum. Samkomulagið gerði ráð fyrir að indverskar hersveitir sjái til þess að við ákvæði samkomulagsins yrði staðið og til að stöðva skærur Tamíla og Shinalesa. En herlið Ind- verja lenti strax í blóðugum bardög- um við öfgafulla aðskilnaðarsinna Tamíla í þeim tveimur héruðum þar sem Tamílar eru í miklum meirih- luta. Á sama tíma hefur herlið Sri Lanka barist við vinstri sinnaða skæruliða Shinalesa í suðurhluta landsins. Stjórnmálaskýrendur telja að yfir- lýsing Premadasa gefi vísbendingu um að ríkisstjórn Sri Lanka hafi náð samkomulagi við hina öfgafullu skæruliða Tamíla sem enn berjast gegn Indverjum, en fimm af sex skæruliðahreyfingum hafa hætt bar- dögum og sætt sig við þá sjálfstjórn sem upp á var boðið í samkomulagi Sri Lanka og Indlands. Þrátt fyrir að Indverjar hafi verið með 45 þúsund manna herlið á Sri Lanka í tvö ár, þá hefur mikill meirihluti þingmanna verið á móti dvöl þeirra. Premadasa hefur oft tekið í sama streng, en ætíð sagt að fyrst yrði að ríkja sæmilegt öryggi og friður í héruðum Tamíla. Þegar Premadasa skýrði frá ósk sinn um að indverskt herlið héldi frá Sri Lanka sagðist hann ætla að fara fram á það við Rajiv Gandhi forsæt- isráðherra Indlands innan fáeinná daga að Indverjar kalli heim herlið sitt. - Þeir komu hér er við báðum um aðstoð og þeir hafa hjálpað okkur verulega. Við erum þakklátir fyrir það. Þegar við biðjum þá að fara, þá hljóta þeir að fara. Með því myndu þeir einnig hjálpa okkur verulega, sagði Premadasa. Vestrænir embættismenn í Nýju Dehli á Indlandi segjast vantrúaðir á að Indverjar muni kalla herlið sitt heim frá Sri Lanka fyrir júlílok og efast meira að segja um að þeir verði farnir fyrir áramót, þrátt fyrir beiðni Premadasa. Telja þeir að Indverjar muni einungis kalla hluta herliðsins heim fyrst um sinn. Fulltrúar frá Tígur skæruliðahrey- fingunni sem berst einna harðast gegn Indverjum áttu um helgina í viðræðum við stjórn Sri Lanka og héldu síðan að nýju til felustaða sinna í frumskógum Sri Lanka til skrafs og ráðagerða við leiðtoga sinn Velupillal Prahakaran. Nýir fundir gafa verið ákveðnir eftir þrj ár vikur. Er jafnvel talið að Premadasa hafi boðið Tígurskæruliðunum hlutdeild í stjórnun héraðanna þar sem Tamíl- ar eru fjölmennastir. Rúmlega áttahundruð indverskir hermenn hafa fallið í átökum við skæruliða Tamíla þessi tvö ár. Það kann að hljóma undarlega, en sumar skæruliðasveitir Tamíla sem barist hafa gegn ríkisstjórn Sri Lanka og síðar börðust gegn Ind- verjum voru þjálfaðar í vopnaburði á Indlandi í byrjun þessa áratugar allt til ársins 1987. Indverjar stóðu við bakið á sjálfstæðishreyfingu Ta- míla eftir að slettist upp á vinskap ríkisstjórnar Sri Lanka og Indlands í kjölfar forsetakosninga á Sri Lanka árið 1977. Sá beini stuðningur var ekki úr sögunni fyrr en Indverjar náðu fram samningum við Sri Lanka um sjálfstjórn Tamíla árið 1987 og indverskt herlið var sent til eyjarinn- ar. Eins kaldhæðnislegt sem það er lenti herlið Indverja í blóðugum átökum við skæruliða Tamíla sem vildu ganga enn lengra og hefur barist gegn þeim síðan. Kúba: Ferðamannaþjónusta gullkálfur Castró Ferðaþjónusta á að verða helsti gullkálfur Castró og Kúbumanna á næstu árum ef marka má yfirlýsingar yfirmanna ferðamálaþjónustunnar á Kúbu. Hann segir að árið 1992 muni ferðamannaþjónusta á Kúbu hala inn 500 milljónir dollara á ári og einungis sykurútflutningur Kúbu- manna afla þeim meiri gjaldeyris- tekjur. Það mun ekki af veita fyrir Kúbu- menn að auka gjaldeyristekjur sínar, því þrátt fyrir byltinguna á sínum tíma og sósíalisma í þrjátíu ár eru lífskjör ekki sem skyldi. Því var það að Castró ákvað að byggja upp ferðamannaþjónustu á Kúbu og munu Kúbumenn verja 70 milljón- um dollara í að byggja ný hótel og gera upp þau gömlu sem mörg eru í niðurníðslu. Fyrir byltinguna var Kúba vinsæll ferðamannastaður fyrir Bandaríkja- menn sem þyrptust þar í spilavítin og sumarsæluna. Nú eftir þrjátíu ár hyggst Castró róa á sömu mið. Á síðasta ári komu 225 þúsund ferða- menn til Kúbu, en áætlanir Castrós miða að því að rúmar tvær milljónir ferðamanna komi árið 2000. Jim Wright segirafsér Jim Wright forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings sem sak- aður hefur verið um að hafa brotið gegn siðareglum þingsins, sagði af sér í gær. Því mun sérstök rannsóknamefnd sem sett var á fót til að fara ofan í kjölinn á meintum brotum Wright hætta rannsókn. Wright sem er demókrati var sem þingforseti þriðji valdamesti embættismaður Bandaríkjanna á eftir forsetanum og varaforsetan- um. Cristianitekurviðforsetaembættinu í El Salvador: Mótmælendur hand- teknir í Washington Lögreglan í Washington hand- tók fjömtíu og fjóra mótmælendur sem settust á tröppur stjórnarráðs Bandaríkjanna til að mótmæla áframhaldandi stuðningi Banda- ríkjastjórnar við E1 Salvador. Mót- mælendumir hyggjast koma af stað bylgju mótmæía í Bandaríkjunum gegn fyrrgreindum stuðningi eftir að hinn hægri sinnaði Alfredo Cristiani hefur tekið við embætti forseta E1 Salvador. Cristiani tók við embættinu í gær og er ljóst að róðurinn verður .erfiður. hjá.hopum, því skæruliðar Farabundo Marti þjóðfrelsishreyf- ingarinnar í E1 Salvador hefur sagst ætla að herða enn á baráttu sinni gegn stjómvöldum. Þá er þrýstingur öfgafullra hægrimanna í Arena flokki mikill á Cristiani um að herða mjög aðgerðir gegn vinstrimönnum í landinu. Cristiani hefur verið bendlaður við illræmdar dauðasveitir hægri- manna í E1 Salvador. Bandaríkjastjórn veitir E1 Salva- dor fjárhagsaðstoð sem nemur rúmlega einni milljón dollara á degi hverjum. . Gullgrafarar grafast undir skriðuföllum Þrettán gullgrafarar að minnsta kosti grófust undir aurskriðu í gullnámu á Filipseyjum í gær og hundruð námamanna lokuðust inni. Björgunarmenn eru vongóðir um að allir náist heilir á höldnu úr námunum, en tala látinna gæti hækkað verulega. Slysið varð í hlíðum fjalllendis í Davao del Norte héraði. Rúmlega hundrað manns komust strax út úr námunum, en talið er að á milli þrjúhundruð og fjögur hundruð gullgrafarar séu lokaðir inni í ná- munum. Þá urðu skriðuföllin til þess að eldur braust út í þorpi gullgrafar- anna eftir að olíutunna sprakk í loft upp á verkstæði jámsmiðs og brunnu hundrað og fimmtíu hús námamanna. Alls bjuggu um tvö- þúsund manns í þeim húsum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.