Tíminn - 02.06.1989, Blaðsíða 20
f
k
0001
0lB.UASr0 PÓSTFAX
ÞRÖSTUR TÍMANS
685060 687691 /
VANIR MENN
FÖSTUDAGUR 2. JÚNI 1989
Hlýjasti vetur Skandinavíu í 100 ár veldur vandamálum á Sauðárkróki:
Vantar frostavetur
Norðurlöndunum
Eindæma hlý vetrarveður í Skandinavíu hefur leitt til
mikillar birgðasöfnunar á mokkaskinnum hjá Loðskinni
á Sauðárkróki, sem aftur hefur valdið miklum fjármagns-
kostnaði og þar með rekstrarhalla hjá fyrirtækinu, sem
nú hefur gripið til þeirra ráða að segja upp nær fimmtíu
manna starfsiiði sínu. Flestir eiga þeir þó von um vinnu
á ný að aflokinni endurskipulagningu sem ákveðin er í
sumarleyfismánuðinum, júlí til ágúst.
Að sögn Margcirs Friðriksson-
ar skrifstofustjóra hjá Loðskinni
er meiningin að leita aðstoðar
ráðgjafa og nota þann mánuð
sem lokað verður vegna sumar-
leyfa til endurskipulagningar á
framleiðslulínu og fjárhag verk-
smiðjunnar. Eftir sumarleyfi um
miðjan ágúst ætti því að liggja
ljóst fyrir hverjir fá vinnu á ný og
hverjir ekki. Margeir sagði ekki
ekki stefnt að samdrætti í fram-
leiðslu - fremur að meiri afköst-
um með sama mannskap og nán-
ast sama vélakosti. .
Framleiðsla verksmiðjunnar er
fullvinnsla á gærum (mokka-
skinnum). Salan hefur verið beint
til saumastofa, aðallega í Skandi-
navíu til þessa. „Nú hefur okkur
hins vegar tekist að fóta okkur
aðeins á Ítalíumarkaði. Þangað
erum við að senda núna og hann
virðist iofa góðu. Skandinavía
virðist líka vera aðeins að vakna
á ný,“ sagði Margeir.
Ffann sagði hlýja veðráttu s.l.
þrjá vetur hafa komið afar illa við
rekstur Loðskinns. Nýliðinn vet-
ur hafi t.d. verið sá hlýjasti í
Skandinavíu í heila öld, sem
eðlilega dragi stórlega úr kaupum
manna á mokkafatnaði. Vegna
þessa hafi orðið gífurleg birgða-
söfnun hjá verksmiðjunni, sem
vitanlega hafi leitt til mikils
fjármagnskostnaðar, m.a. af
afurðalánum.
„Upp á síðkastið hefur aðeins
birt til, því við erum að fá pantan-
ir sem við höfum lengi beðið
eftir.“
Hvað verðþróun snertir hefur
það fremur lækkað en hitt vegna
minni eftirspurnar. Margeir sagði
hafa verið samið um verð í er-
lendri mynt sem gilti fyrir 1-2
árum síðan. -HEI
Á morgun kemur Jóhannes Páll
páfi II til landsins og er nú verið að
leggja lokahönd á allan undirbúning
fyrir heimsóknina.
Bílarnir sem páfinn og fylgdarlið
hans munu ferðast í komu til lands-
ins í gær. Þeir eru af Volvo gerð og
fengnir að láni frá Svíþjóð, en bera
íslensk númer. Bílarnir eru fjórir,
tveir af lengri gerðinni, sem eru
einungis ætlaðir fyrir þjóðhöfðingja
og aðra fyrirmenn, og tveir “venju-
legir" bílar af minni gerðinni.
Að sögn Magnúsar Einarssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns, komu
bílarnir til landsins í gær og verða í
vörslu lögreglunnar.
Mikil öryggisgæsla verður í kring-
um páfann og verður öllum vegum
lokað á meðan páfinn ferðast um þá.
T.d. verður Pingvallaveginum lokað
í heild sinni á meðan páfinn fer þar
um. Gera má ráð fyrir að umferð á
Reykjavíkursvæðinu verði fyrir ein-
hverjum skakkaföllum um helgina.
Það er bílstjóri úr forsætisráðuneyt- páfa á meðan hann dvelur hér á
inu sem kemur til með að keyra bíl landi. -gs
Við Landakot hefur verið komið fyrir stórum járnkrossi fyrir tilstuðlan
skátahreyfingarinnar. Honum verður komið fyrir við Úlfljótsvatn eftir messu
páfa. Tímamyndir Pjelur
Flugvél Arnarflugs kyrrsett vegna misskilnings:
Greiðsla
misfórst
í kerfinu
Ein flugvéla Arnarflugs var kyrr-
sett nokkra klukkutíma á Schiphol
flugvelli í Amsterdam í gær.
Að sögn framkvæmdastjóra Arn-
arflugs var um misskilning að ræða
vegna töluvert stórrar greiðslu sem
misfórst í kerfinu. „Forráðamenn
flugvallarins héldu að við hefðum
eitthvað verið að plata þá, sem er nú
reyndar óeðlilegt þar sem við leggj-
um ekki slíkt í vana okkar. Nú er
búið að upplýsa þetta allt saman og
greiðslan komin til skila. En það er
auðvitað leiðinlegt að valda farþeg-
unum þessum vandræðum," sagði
framkvæmdastjóri félagsins Kristinn
Sigtryggsson í samtali við Tímann.
Vélin átti að lenda um tvö leytið
en kom ekki fyrr en um hálf átta í
gærkvöldi til landsins. jkb
Fyrirmyndar-
skip heiðrað
I tilefni sjómannadagsins 1989
mun Siglingamálastofnun rfkisins
veita áhöfnum og eigendum sjö
fiskiskipa víðsvegar á landinu viður-
kenningu. Viðurkenningar þessar
eru veittar fyrir góða umhirðu og
árverkni að því er varðar almennt
ástand skipsins og öryggisbúnáð
þess. , ,
Skipin eru: Farsæll SH-30, Guð-
björg RE-21, Tálknfirðingur BA-
325, Sjöfn ÞH-142, Kaldbakur EA-
301, Baldur VE-24, Sæljón SU-104.
Þetta er í fyrsta sinn sem stofnunin
veitir slíkar viðurkenningar og vill
hún vekja athygli á því að þessi
atriði eru mikilvæg í bættu öryggi
sjómanna og um leið hvatning til
útgerðarmanna og sjómanna að hafa
skip sín jafnan í góðu lagi. -gs