Tíminn - 22.06.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 22. júní 1989
Tímamynd: Áml Bjama
Nokkrir lögregluþjónar þustu að Bimu og handjámuðu hana uppi á varnarvirkinu.
Hluti Heimavarnarliðs herstöðvarandstæðinga stökk inn á varnarsvæðið og hitti þar fyrir fjölmennt lið lögreglu:
Lögreglan hélt fimmtíu
úr heimavörn í skefjum
Tíl átaka kom á milli Heimavarnarliðs herstöðvaandstæð-
inga og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli í gær. Herstöðva-
andstæðingar stukku yfir girðingar varnarliðsins og lögreglan
vísaði fólkinu út fyrir vamarsvæðið aftur. í Heimavarnarlið-
inu vora á milli fjörutíu og fimmtíu manns, eða um það bil
einn á hvem lögregluþjón.
Bima Þórðardóttir, frægur her-
stöðvaandstæðingur, stökk fyrst inn
á vamarsvæðið með islenska fánann.
íslenskir lögregluþjónar þustu að
henni og gerðu tilraun til að ná af
henni fánanum. Birna tók á rás
undan ofureflinu og leitaði skjóls f
sandpokavirki hlöðnu af bandarísk-
um dátum. Bima stökk síðan upp á
virkið með íslenska fánann í hönd.
Að lokum fór þó svo að sjö íslenskir
lögregluþjónar höfðu betur í viður-
eign sinni við Bimu og handjárnuðu
hana. Lögregluþjónarnir gerðu til-
raun til að færa hana í varðskýli
innan girðingarinnar en hún mót-
mælti því hástöfum, sagðist ekki
vilja vera færð inn á erlenda
varðstöð. Ekki tókst heldur að koma
Birnu handjárnaðri inn í lögreglubíl,
því félagar hennar vörnuðu lögreglu
leið. Voru þá tekin af henni járnin
og henni leyft að fara.
Fleiri Heimavarnarliðsmenn voru
ekki handteknir og þeir veittu ekki
mótspyrnu þegar þeim <var vísað út
af svæðinu. Herlögreglan lét ekki á
sér kræla á meðan þessu fór fram.
Heimavarnarliðið safnaðist saman
við Umferðarmiðstöðina og hélt út
á Reykjanes upp úr klukkan sjö í
gærkvöldi. Þar mætti liðið fjöl-
mennri lögreglusveit sem gætti þess
að enginn færi inn á það svæði sem
lagt er undir heræfingarnar.
„Þetta var allt saman ósköp sak-
laust til að byrja með og fór friðsam-
lega fram. Herstöðvaandstæðing-
arnir fóm fyrst út að flugstöðinni og
voru að spranga þar eitthvað i
kring,“ sagði vakthafandi lögreglu-
þjónn í samtali við Tímann.
Herstöðvaandstæðingarnir héldu
því næst út að radarstöðinni Roc-
kville, sem er á hægri hönd þegar
farið er út að Sandgerði. Eins og
áður sagði stukku þar nokkrir Heim-
avarnarliðsmanna yfir girðingar og
lögreglan skarst í leikinn.
Formaður herstöðvaandstæðinga
Ingibjörg Haraldsdóttir varaði við
því, í samtali viðTímann, að Heima-
varnarliðið myndi láta reyna á hvort
væri sterkara, íslensk náttúruvernd-
arlög eða bandarísk herlög. Þeir
myndu því ekki hlíta tilmælum þar
sem farið væri fram á að óviðkom-
andi heræfingunum héldu sig fjarri
því svæði sem þær fara fram á.
Sævar Lýðsson fulltrúi lögreglu-
stjórans á Keflavíkurflugvelli varaði
aftur á móti við þvi, einnig í samtali
við Tímann, að fólk sem ekki hlýddi
tilmælum lögreglu mætti alltaf búast
við handtöku.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
tók ummæli Ingibjargar greinilega
alvarlega, þar sem allt tiltækt lið
lögregluþjóna þar, um 35 manns, og
aukaliðstyrkur, sem meðal annars
hafði á að skipa fjölda tollvarða, var
sendur út til að gæta þess að enginn
færi inn fyrir afmarkað svæði. Voru
lögregluþjónamir á milli fjörutíu og
fimmtíu talsins.
Ekki virtist veita af öllum þeim
mannskap þar sem Heimavamarlið-
ið var ekki á þeim buxunum að láta
vama sér aðgangs að svæðinu. Vakt-
hafandi lögregluþjónn á Keflavík-
urflugvelli sagðist aðspurður telja að
þama hefði verið maður á mann, að
Heimavamarliðið hefði verið á að
giska jafn fjölmennt og lögreglulið-
ið. jkb/-ES