Tíminn - 22.06.1989, Blaðsíða 18

Tíminn - 22.06.1989, Blaðsíða 18
'18 Tíntinn Fjmmtudagur 22. júní 1989 VETTVANGUR lllllllllllllllllllllllllB 1FÍH V - . f V 4*mm Hvanneyri. Alexander Stefánsson, alþingismaður: Hagþjónusta landbún- aðarins á Hvanneyri Á síðustu dögum Alþingis í vor, nánar tiltekið 19. maí, voru samþykkt lög um Hagþjónustu landbúnaðarins, sem, að mínu mati, marka þáttaskil fyrir íslenskan landbúnað, ekki síst félagslega uppbyggingu. Þessi nýju lög hafa bein áhrif á nýtt skipulag Búnaðarfélags íslands og búnaðarsam- böndin í landinu, m.a. með því að efla starfsemi búnaðar- sambandanna og leiðbeiningaþjónustu landbúnaðarins. Hagþjónusta landbúnaðarins, byggð upp á Hvanneyri, hefur mikla þýðingu fyrir Bændaskólann, ekki síst Búvís- indadeildina, þar sem hluti þess sérmenntaða fólks sem flyst frá Búnaðarfélaginu til Ilagþjónustunnar mun annast kennslu í landbúnaðarhagfræði við skólann. Hagþjónustan á að hafa yfírumsjón með búreikningum bænda, annast gagnaöflun og úrvinnslu, sem m.a. skapa traustan grunn fyrir opinbera hagskýrslugerð um fram- leiðslu, rekstur og efnahag einstakra búgreina, ekki síst fyrir verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða í heild, sem ekki verður vefengdur. Síðast en ekki síst er hér um beina tilfærslu á mikilvægri starfsemi frá Reykjavík til landsbyggðarinnar að ræða, þar sem slík þjónusta verður í nánari tengslum við alla þætti landbúnaðarins á heimavettvangi. Lögin skiptast í þrjá kafla: Lög um Hagþjónustu landbúnaðarins I. KAFLI Um aðsetur og hlutverk 1. gr. Hagþjónusta landbúnaðarins er ríkisstofnun er lýtur sérstakri stjóm samkvæmt lögum þessum undir yfirstjóm landbúnaðarráð- herra. Hagþjónusta landbúnaðarins skal hafa aðsetur á Hvanneyri í Andakílshreppi og skal rekstur hennar vera í nánum tengslum við búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri. Kostnaður af starfi Hagþjónustu landbúnaðarins greiðist úr ríkis- sjóði og af sértekjum sem henni er heimilt að afla sér, m.a. með því að taka að sér að vinna sérstök verkefni fyrir stofnanir, félagasam- tök og einstaklinga. 2. gr. Hlutverk Hagþjónustu landbún- aðarins er: 1. Að stuðla að því að bændur færi bókhald fyrir bú sín, m.a. með skipulegu fræðslu- og leiðbein- ingarstarfi um skattskil, bók- hald og notkun þess til hag- ræðingar í búrekstri. 2. Að hafa umsjón með gerð og þróun bókhaldsforrita fyrir bókhaldsstofur bænda, svo og forrita fyrir áætlunargerð í bú- rekstri f samvinnu við bænda- samtökin. 3. Að hafa fmmkvæði að áætlun- argerð við búrekstur, útgáfu- starfsemi og hagrænum leið- beiningum til bænda í samvinnu við leiðbeiningarþjónustu land- búnaðarins og aðra þá sem sinna fræðslu um landbúnað. 4. Að safna og vinna úr búreikn- ingum frá bókhaldsstofum bænda, svo og öðmm upplýs- ingum og gögnum sem nauðsyn- leg þykja og tiltæk eru. Gagna- söfnunin og úrvinnslan skulu miðast við að nýtast sem best til opinberrar hagskýrslugerðar um framleiðslu, rekstur og efna- hag einstakra búgreina. 5. Að annast hagrannsóknir í landbúnaði í samvinnu og sam- starfi við stofnanir sem sinna sambærilegri starfsemi. 6. Að hafa samstarf við stjórn búvísindadeildar Bændaskólans á Hvanneyri um kennslu í land- búnaðarhagfræði. 7. Að vinna að öðmm skyldum verkefnum eftir því sem um semst og við verður komið. II. KAFLI Um skipan stjórnar og hlutverk 3. gr. 3. gr. Landbúnaðarráðherra skipar fjóra menn í stjórn Hagþjónustu landbúnaðarins til fjögurra ára í senn. Skal einn skipaður eftir til- nefningu stjórnar búvísindadeildar Bændaskólans á Hvanneyri, einn eftir tilnefningu Hagstofu íslands, einn eftir tilnefningu Þjóðhags- stofnunar og einn eftir tilnefningu Búnaðarfélags fslands. Sömu aðil- ar tilnefna varamenn. Landbúnaðarráðherra skipar formann úr röðum stjórnarmanna og ákveður stjómarlaun. 4. gr. Hlutverk stjómar er m.a.: 1. Stjóm annast ráðningu for- stöðumanns stofnunarinnar. 2. Stjórn leggur árlega, í samvinnu við forstöðumann, fram tillögur til landbúnaðarráðuneytisins um fjárþörf stofnunarinnar vegna undirbúnings fjárlaga. 3. Stjóm tekur ákvarðanir um mótun á starfsemi stofnunarinn- ar og hefur eftirlit með að hún þjóni því hlutverki sem henni er ætlað. 5. gr. Hlutverk forstöðumanns er m.a.: 1. Forstöðumaður annast daglega stjórn stofnunarinnar sam- kvæmt ákvörðunum stjómar, svo og það samstarf við aðrar stofnanir sem nauðsynlegt er. talið. 2. Forstöðumaður er ábyrgur fyrir að stofnunin starfi í samræmi við gildandi löggjöf og sinni því hlutverki og þeim skyldum sem á hana em lagðar. Alexander Stefánsson. 3. Forstöðumaður hefur umsjón með mannahaldi við stofnun- III. KAFLI Um bókhalds- stofur bænda 6. gr. Búnaðarsamböndin f landinu skulu hvert fyrir sig, eða í samstarfi sem nær yfir nánar tiltekið svæði, koma á fót bókhaldsstofum sem annast gagnaskráningu og uppgjör búreikninga fyrir bændur. Einnig skulu þær vera færar um að veita bændum leiðbeiningar og aðstoð við skattskil. Bókhaldsstofum er heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu og skulu þær hafa hliðsjón af viðmið- unargjaldskrá Hagþjónustu land- búnaðarins. Hagþjónusta landbúnaðarins skal hafa umsjón með að form eyðublaða, skráning gagna og upp- gjör reikninga fari fram á sam- ræmdan hátt þannig að saman- burður á niðurstöðum sé marktæk- ur. Bókhaldsform, sem bókhalds- stofur bænda bjóða upp á, skal við það miðað að bændum sé kleift að halda einkafjárhag sínum uta’n við bókhald búa sinna. -*** ■ 7. gr. Heimilt er að greiða fyrir öflun sérstakra upplýsinga sem nauðsyn- legar eru vegna verkefna stofnun- arinnar og skulu greiðslumar vera samkvæmt viðmiðunargjaldskrá sem landbúnaðarráðherra setur. 8. gr. Hagþjónusta landbúnaðarins skal veita þeim bændum, sem ekki eiga kost á bókhaldsþjónustu á vegum bændasamtaka í heimahér- aði, aðstoð við útvegun á sambæri- legri þjónustu og bókhaldsstofur bænda veita í öðrum héruðum þannig að tryggt sé eftir því sem unnt er að upplýsingar um rekstur og afkomu bænda geti borist til samræmds uppgjörs alls staðar af landinu. IY. KAFLI Ýmis ákvæði 9. gr. Stjórn og starfsmönnum Hag- þjónustu landbúnaðarins, svo og starfsmönnum þeirra bókhalds- stofa sem sjá um uppgjör búreikn- inga, er bannað að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegning- arlaga um embættis- og sýslunar- menn að skýra óviðkomandi aðil- um frá því er þeir komast að sökum starfa síns um efnahag, tekjur eða gjöld einstakra manna eða stofnana. Skulu þeir ætíð gæta þess að fara með upplýsingar og gögn frá bændum sem trúnaðar- mál. 10. gr. Skylt er að veita Hagþjónustu landbúnaðarins þær upplýsingar er hún óskar eftir og þarf á að halda vegna starfsemi sinnar. Nýtur hún í þessu efni sömu réttinda og Hagstofa íslands og sömu viðurlög liggja við ef út af er brugðið. 11. gr. Landbúnaðarráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um rekstur og tilhögun Hagþjónustu landbúnaðarins þar sem m.a. er kveðið á um samstarf og samvinnu Hagþjónustu landbúnaðarins og búvísindadeildar Bændaskólans á Hvanneyri. 12. gr. Brot á ákvæðum laga þessara varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Með mál út af brotum skal fara að hætti opinberra mála. Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt eru úr gildi felld lög nr. 20 22. apríl 1967, um Búreikninga- stofu landbúnaðarins. Ákvæði tU bráðabirgða Þar til bókhaldsstofur bænda og Hagþjónusta landbúnaðarins geta sinnt því hlutverki sem þeim er ætlað samkvæmt lögunum skulu Búreikningastofa landbúnaðarins og Búnaðarfélag íslands gegna þeim verkefnum þeirra sem tök eru á með þeim réttindum og skyldum sem lög þessi ákveða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.