Tíminn - 22.06.1989, Side 18
'18 Tíntinn
Fjmmtudagur 22. júní 1989
VETTVANGUR lllllllllllllllllllllllllB
1FÍH
V - . f
V 4*mm
Hvanneyri.
Alexander Stefánsson, alþingismaður:
Hagþjónusta landbún-
aðarins á Hvanneyri
Á síðustu dögum Alþingis í vor, nánar tiltekið 19. maí,
voru samþykkt lög um Hagþjónustu landbúnaðarins, sem,
að mínu mati, marka þáttaskil fyrir íslenskan landbúnað,
ekki síst félagslega uppbyggingu. Þessi nýju lög hafa bein
áhrif á nýtt skipulag Búnaðarfélags íslands og búnaðarsam-
böndin í landinu, m.a. með því að efla starfsemi búnaðar-
sambandanna og leiðbeiningaþjónustu landbúnaðarins.
Hagþjónusta landbúnaðarins, byggð upp á Hvanneyri,
hefur mikla þýðingu fyrir Bændaskólann, ekki síst Búvís-
indadeildina, þar sem hluti þess sérmenntaða fólks sem
flyst frá Búnaðarfélaginu til Ilagþjónustunnar mun annast
kennslu í landbúnaðarhagfræði við skólann.
Hagþjónustan á að hafa yfírumsjón með búreikningum
bænda, annast gagnaöflun og úrvinnslu, sem m.a. skapa
traustan grunn fyrir opinbera hagskýrslugerð um fram-
leiðslu, rekstur og efnahag einstakra búgreina, ekki síst
fyrir verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða í heild, sem
ekki verður vefengdur.
Síðast en ekki síst er hér um beina tilfærslu á mikilvægri
starfsemi frá Reykjavík til landsbyggðarinnar að ræða, þar
sem slík þjónusta verður í nánari tengslum við alla þætti
landbúnaðarins á heimavettvangi.
Lögin skiptast í þrjá kafla:
Lög um Hagþjónustu
landbúnaðarins
I. KAFLI
Um aðsetur
og hlutverk
1. gr.
Hagþjónusta landbúnaðarins er
ríkisstofnun er lýtur sérstakri
stjóm samkvæmt lögum þessum
undir yfirstjóm landbúnaðarráð-
herra.
Hagþjónusta landbúnaðarins
skal hafa aðsetur á Hvanneyri í
Andakílshreppi og skal rekstur
hennar vera í nánum tengslum við
búvísindadeild Bændaskólans á
Hvanneyri.
Kostnaður af starfi Hagþjónustu
landbúnaðarins greiðist úr ríkis-
sjóði og af sértekjum sem henni er
heimilt að afla sér, m.a. með því
að taka að sér að vinna sérstök
verkefni fyrir stofnanir, félagasam-
tök og einstaklinga.
2. gr.
Hlutverk Hagþjónustu landbún-
aðarins er:
1. Að stuðla að því að bændur færi
bókhald fyrir bú sín, m.a. með
skipulegu fræðslu- og leiðbein-
ingarstarfi um skattskil, bók-
hald og notkun þess til hag-
ræðingar í búrekstri.
2. Að hafa umsjón með gerð og
þróun bókhaldsforrita fyrir
bókhaldsstofur bænda, svo og
forrita fyrir áætlunargerð í bú-
rekstri f samvinnu við bænda-
samtökin.
3. Að hafa fmmkvæði að áætlun-
argerð við búrekstur, útgáfu-
starfsemi og hagrænum leið-
beiningum til bænda í samvinnu
við leiðbeiningarþjónustu land-
búnaðarins og aðra þá sem
sinna fræðslu um landbúnað.
4. Að safna og vinna úr búreikn-
ingum frá bókhaldsstofum
bænda, svo og öðmm upplýs-
ingum og gögnum sem nauðsyn-
leg þykja og tiltæk eru. Gagna-
söfnunin og úrvinnslan skulu
miðast við að nýtast sem best til
opinberrar hagskýrslugerðar
um framleiðslu, rekstur og efna-
hag einstakra búgreina.
5. Að annast hagrannsóknir í
landbúnaði í samvinnu og sam-
starfi við stofnanir sem sinna
sambærilegri starfsemi.
6. Að hafa samstarf við stjórn
búvísindadeildar Bændaskólans
á Hvanneyri um kennslu í land-
búnaðarhagfræði.
7. Að vinna að öðmm skyldum
verkefnum eftir því sem um
semst og við verður komið.
II. KAFLI
Um skipan stjórnar
og hlutverk
3. gr.
3. gr.
Landbúnaðarráðherra skipar
fjóra menn í stjórn Hagþjónustu
landbúnaðarins til fjögurra ára í
senn. Skal einn skipaður eftir til-
nefningu stjórnar búvísindadeildar
Bændaskólans á Hvanneyri, einn
eftir tilnefningu Hagstofu íslands,
einn eftir tilnefningu Þjóðhags-
stofnunar og einn eftir tilnefningu
Búnaðarfélags fslands. Sömu aðil-
ar tilnefna varamenn.
Landbúnaðarráðherra skipar
formann úr röðum stjórnarmanna
og ákveður stjómarlaun.
4. gr.
Hlutverk stjómar er m.a.:
1. Stjóm annast ráðningu for-
stöðumanns stofnunarinnar.
2. Stjórn leggur árlega, í samvinnu
við forstöðumann, fram tillögur
til landbúnaðarráðuneytisins
um fjárþörf stofnunarinnar
vegna undirbúnings fjárlaga.
3. Stjóm tekur ákvarðanir um
mótun á starfsemi stofnunarinn-
ar og hefur eftirlit með að hún
þjóni því hlutverki sem henni er
ætlað.
5. gr.
Hlutverk forstöðumanns er
m.a.:
1. Forstöðumaður annast daglega
stjórn stofnunarinnar sam-
kvæmt ákvörðunum stjómar,
svo og það samstarf við aðrar
stofnanir sem nauðsynlegt er.
talið.
2. Forstöðumaður er ábyrgur fyrir
að stofnunin starfi í samræmi
við gildandi löggjöf og sinni því
hlutverki og þeim skyldum sem
á hana em lagðar.
Alexander Stefánsson.
3. Forstöðumaður hefur umsjón
með mannahaldi við stofnun-
III. KAFLI
Um bókhalds-
stofur bænda
6. gr.
Búnaðarsamböndin f landinu
skulu hvert fyrir sig, eða í samstarfi
sem nær yfir nánar tiltekið svæði,
koma á fót bókhaldsstofum sem
annast gagnaskráningu og uppgjör
búreikninga fyrir bændur. Einnig
skulu þær vera færar um að veita
bændum leiðbeiningar og aðstoð
við skattskil.
Bókhaldsstofum er heimilt að
taka gjald fyrir veitta þjónustu og
skulu þær hafa hliðsjón af viðmið-
unargjaldskrá Hagþjónustu land-
búnaðarins.
Hagþjónusta landbúnaðarins
skal hafa umsjón með að form
eyðublaða, skráning gagna og upp-
gjör reikninga fari fram á sam-
ræmdan hátt þannig að saman-
burður á niðurstöðum sé marktæk-
ur.
Bókhaldsform, sem bókhalds-
stofur bænda bjóða upp á, skal við
það miðað að bændum sé kleift að
halda einkafjárhag sínum uta’n við
bókhald búa sinna.
-*** ■
7. gr.
Heimilt er að greiða fyrir öflun
sérstakra upplýsinga sem nauðsyn-
legar eru vegna verkefna stofnun-
arinnar og skulu greiðslumar vera
samkvæmt viðmiðunargjaldskrá
sem landbúnaðarráðherra setur.
8. gr.
Hagþjónusta landbúnaðarins
skal veita þeim bændum, sem ekki
eiga kost á bókhaldsþjónustu á
vegum bændasamtaka í heimahér-
aði, aðstoð við útvegun á sambæri-
legri þjónustu og bókhaldsstofur
bænda veita í öðrum héruðum
þannig að tryggt sé eftir því sem
unnt er að upplýsingar um rekstur
og afkomu bænda geti borist til
samræmds uppgjörs alls staðar af
landinu.
IY. KAFLI
Ýmis ákvæði
9. gr.
Stjórn og starfsmönnum Hag-
þjónustu landbúnaðarins, svo og
starfsmönnum þeirra bókhalds-
stofa sem sjá um uppgjör búreikn-
inga, er bannað að viðlagðri ábyrgð
eftir ákvæðum almennra hegning-
arlaga um embættis- og sýslunar-
menn að skýra óviðkomandi aðil-
um frá því er þeir komast að
sökum starfa síns um efnahag,
tekjur eða gjöld einstakra manna
eða stofnana. Skulu þeir ætíð gæta
þess að fara með upplýsingar og
gögn frá bændum sem trúnaðar-
mál.
10. gr.
Skylt er að veita Hagþjónustu
landbúnaðarins þær upplýsingar er
hún óskar eftir og þarf á að halda
vegna starfsemi sinnar. Nýtur hún
í þessu efni sömu réttinda og
Hagstofa íslands og sömu viðurlög
liggja við ef út af er brugðið.
11. gr.
Landbúnaðarráðherra setur
með reglugerð nánari ákvæði um
rekstur og tilhögun Hagþjónustu
landbúnaðarins þar sem m.a. er
kveðið á um samstarf og samvinnu
Hagþjónustu landbúnaðarins og
búvísindadeildar Bændaskólans á
Hvanneyri.
12. gr.
Brot á ákvæðum laga þessara
varða sektum, nema þyngri refsing
liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Með mál út af brotum skal fara að
hætti opinberra mála.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Jafnframt eru úr gildi felld lög nr.
20 22. apríl 1967, um Búreikninga-
stofu landbúnaðarins.
Ákvæði tU bráðabirgða
Þar til bókhaldsstofur bænda og
Hagþjónusta landbúnaðarins geta
sinnt því hlutverki sem þeim er
ætlað samkvæmt lögunum skulu
Búreikningastofa landbúnaðarins
og Búnaðarfélag íslands gegna
þeim verkefnum þeirra sem tök
eru á með þeim réttindum og
skyldum sem lög þessi ákveða.