Tíminn - 22.06.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 22. júní 1989
rtvixrviið i nnr
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið var í Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 9. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur númer 17477
2. vinningur númer 36272
3. vinningur númer 33471
4. vinningur númer 37116
5. vinningur númer 38156
6. vinningur númer 27174
7. vinningur númer 8313
Vinningsmiðum skal framvísa á skrifstofu Framsóknarflokksins í
Nóatúni 21, Reykjavík.
Ógreiddir miðar eru ógildir.
Vinninga skal vitja innan árs frá útdrætti.
Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480.
Framsóknarflokkurinn
Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður verður til viðtals á
skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, föstudaginn 23. júní milli
kl. 10 og 12.
Landsþing L.F.K. á Hvanneyri
8.-10. september 1989.
4. landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10.
september n.k.
Dagskrá þingsins verður tilkynnt síðar.
Framsóknarkonur eru hvattar til að fjöimenna eins og á undanfarin
þing.
Stjórn L.F.K.
Jón Kristjánsson, alþingismaður, verður með
viðtalstima og fundi, og situr fyrir svörum um
stjórnmálaviðhorfið og þingstörfin.
Á Vopnafirði, viðtalstími í Miklagarði kl.
17.00-19.00 og almennur fundur á sama stað
kl. 20.30 miðvikudaginn 21. júní.
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavfk, verðurfrá.
og með 1. júnf n.k. opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
GARÐTRAKTORAR
SLÁ f GEGN
Balens
ÞORf
ÁRMÚLA11
Samningaviðræður milli flugfreyja, flugvirkja og flugvélstjóra
og Flugleiða enn árangurslitlar:
Störf flugfreyja og
flugvirkja boðin út?
Ósamið er enn við flugvirkja, flugfreyjur og flugvélstjóra
hjá Flugleiðum og í gær var fundur deiluaðila hjá Ríkissátta-
semjara og bar mikið í milli. í fyrradag voru fundir með
flugvirkjum og af þeim var sömu sögu að segja. Mikið bar í
milli.
Verkfall hefur ekki enn verið
boðað hjá neinu þessara félaga en
búist er við að það verði gert í
þessari viku ef ekki semst áður.
Hugmyndir hafa verið uppi hjá
stjómendum Flugleiða að bjóða út
störf flugvirkja og flugfreyja og í
frétt um þetta mál í einu dagblað-
anna fyrir skömmu var þetta tengt
yfirstandandi samningaviðræðum
við flugfreyjur.
Eftir því sem næst verður komist
tengjast slíkar hugmyndir ekki beint
yfirstandandi kjarasamningum held-
ur eru þær hluti af hugmyndum sem
upp hafa komið í sambandi við
langtímastefnumótun í rekstri fé-
lagsins.
Flugleiðir telja sig geta lækkað
viðhaldskostnað sinn umtalsvert ef
viðhald færi fram að einhverju eða
öllu leyti fram erlendis hjá tilboðsað-
ilum. t>á telja margir að hægt væri að
lækka reksturskostnað nokkuð ef
störf flugfreyja yrðu boðin út eða
falin verktökum á svipaðan hátt og
hefur gerst með hleðslu og losun
vélanna við það að hlaðdeildin var
lögð niður. Þá annast einnig verktak-
ar þrif á hótelum Flugleiða.
Einar Sigurðsson blaðafulltrúi
Flugleiða sagði í gær að þetta verk-
takafyrirkomulag hefði reynst afar
vel þar sem það hefði verið tekið
upp og sparað félaginu umtalsverðar
fjárhæðir. Hann sagði ýmsar hug-
myndir uppi um framtíðarfyrir-
komulag ýmissa rekstrarþátta félags-
ins en vildi þó ekki staðfesta að
flugfreyjustörfin eða viðhaldið yrði
rekið af verktökum í náinni framtíð.
Einar sagði að hugmyndin hefði
komið upp, en hún tengdist ekki á
nokkum hátt yfirstandandi kjara-
samningum enda mun eldri en svo.
-sá
Ttmamynd Tómas Helgason
FLJÓTANDI STÓRMARKAÐUR
High heat, skipið sem einkum hefur verið við miðlínuna milli ísiands og Græniands og boðið skipum að kaupa
vistir var á dögunum út af Breiðafirði, nokkuð utan 12 milnanna. Skipið hefur undanfarna mánuði aðallega selt
flota sldpa ýmsan varning sem er við veiðar við Grænland.
F.ftir því sem Tíminn kemst næst býður High heat til sölu, veiðarfæri, oliu, matvöru ýmiskonar, áfengi og tóbak
svo eitthvað sé nefnt. Verðlagið er sagt í lægra Iagi og kostar t.a.m. kartonið af sígarettum 800 krónur.
Skipið er skrásett í Singapore, en yfirmenn á þvi eru norskir. Eins og sjá má á myndinni hefur skipið verið
sérstaklega útbúið til geymslu á vörum og eru m.a. tveir frystigámar á þilfarinu.
Búnaðarsamband Suðurlands
gengst fyrir árlegri
skemmtiferð:
Fimm hundr-
uð manns
ferðast um
Suðurland
Þessa dagana standa yfir
kynnis- og skemmtiferðir Bún-
aðarsambands Suðurlands.
Þátttaka hefur verið mjög góð
og var því gripið til þess ráðs að
fara fjórar ferðir með ferðalang-
ana á jafn mörgum dögum. Stef-
án Jasonarson Vorsabæ, frétta-
ritari Tímans var í fyrstu ferð-
inni, sem farin var þann 19.
Stefán lét vel af ferðinni og sagði
í samtali við Tímann að hún hefði
verið hin ánægjulegasta. Rúturnar
hittust að Þorvaldseyri undir Eyja-
fjöllum og var haldið þaðan að
Skógum, þar sem byggðasafnið, og
fossinn frægi voru skoðuð. f félags-
heimilinu Skógum var veittur léttur
hádegisverður, súpa með brauði og
að sjálfsögðu kaffi á eftir. Því næst
lá leiðin að Sólheimajökli og ferða-
Fyrsti hópurinn er ferðaðist um Suðuriand þann 19. Myndin er tekin við einn
af áningarstöðunum, Dverghamra á Síðu.
Tíraamynd Guðfínna Guðmundsdóttir
fólkið virti fyrir sér landslagið þar
sem stutt er milli sjávar og jökuls.
í Víkurskála keyptu menn helstu
nauðsynjar ferðamannsins. Því næst
var ekið austur yfir Mýrdalssand,
um Meðalland og þar var tekið upp
nesti á vegum Búnaðarsambandsins,
sem var „alveg til fyrirmyndar", að
sögn Stefáns.
Prestbakkakirkja var skoðuð og
rakin 120 ára saga hennar. Sungnir
voru þrír sálmar áður en haldið var
að Dverghömrum og nátt rufyrir-
bærið skoðað. í félagsheimilinu
Tunguseli í Skaftártungu snæddu
Stefán og ferðafélagar hans, hundr-
að talsins, kvöldverð og var að
sjálfsögðu fjallalamb á boðstólum.
Þetta er sjöunda árið sem Búnað-
arsamband Suðurlands stendur fyrir
slíkum ferðum og er ljóst að þátttak-
endur í ár eru hátt í fimm hundruð.
Fjórði og síðasti hópurinn fer um
Suðurland í dag og verður á ferðinni
fólk frá Hraungerðishreppi, Vill-
ingaholtshreppi, Gnúpverjahreppi,
Hrunamannahreppi og öllum hrepp-
um V-Skaftafellssýslu.