Tíminn - 22.06.1989, Qupperneq 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 22. júní 1989
Jón Ásbjörnsson í Hagkaupi: „Almenn álagningarprósenta mundi hækka á allar vörur“
„Smá“ reikningsskekkja
DV um 1.800 milljónir
„Það sem mundí gerast - og þýðir
ekkert að vera að fela það - að þessi
almenna álagningarprósenta mundi
þá hækka á allar vörur. Því þetta
(álagningin) eru þær tekjur sem
verslunin hefur og mundi þá jafnast
út yfir fleiri vöruflokka.“
Það er Jón Ásbjömsson fram-
kvæmdastjóri Hagkaups sem hér
svarar. Tíminn spurði Jón hvort
matvöruverslanir gætu - eins og DV
reiknar með - komist af með sömu
(20%) álagningarprósentu á inn-
fluttar landbúnaðarvörur eins og nú
er á innlendum og þannig misst um
1.450 milljónir króna í smásölu-
álagningu, eða í kringum 20% af
tekjum matvöruverslana.
- Versiunin þyrfti sem sagt að
hækka álagningarprósentu þannig
að hún fengi sömu tekjur og áður
þótt velta minnkaði vegna mikillar
lækkunar innkaupsverðs?
„Endanlega já. Nema að svo færi,
sem ef til vill er hugsanlegt, að við
það að svo stór liður í neyslu þjóðar-
innar lækkaði svona mikið í verði,
að þá mundi kaupið lækka á móti
þannig að launakostnaður verslunar-
innar mundi minnka."
Jón tók fram að hann ætti engan
Smásöluverslunin og landbúnaðarvaran _
ÁLAGNINGIN
er fjarri öllum raunveruleika
Fióiw krónur a< hvcrjum tíu uffl Inn koma I kasaa van|u-
lagrar matvðruvwslunar, koma tyrir aðlu á l**«>ún**f*-
afuróum. Marglr, |atnv#t kaupmann, hata tallð aó þMai
velta taarðl þeim nokkuó I aóra hönd. Svo ar þó akkl, lan^
búnaöarvaran er kroaa á matvóruvaralunlnni, og það
þungur kroaa. Landbúnaóarafurftlmar, sam atu 40.7% af
veltu varslunar, skila hannl aóalna 34% al álagnlngartak)-
um hannar. Meóalálagnlng þasaa vðruflokka er aðelr»
17.2%, - en þyrttl að vera 31 J% tll að atanda undlr koatnaðl
og sklla eðlllegri framlegð tll ávðxtunar á aigln fá.
I Kðnrut jon «ú*j
I jnaoi 'sáitwertfvó'V -atn»o» *oru M«g-
1 ' ru 9*röl >a4>. 'kCMng
rv ra*,«6«£>sa. ki.cXtaq Kav
■ wa I rn • ^rrgikPON.faáágflAA
I m u-ajaiðut jgVanáyiEmi
lvmr*. saarvx/ «ð íc Sná' Cva-Saow ásran— WnA
I sjuya*^ á ^Xkritðvrðr- n ■ "'arvCnaS^Í* *•»*
|ye sr >• aSsJC**)* xucanrva a^görv^j arw
I lajrom^v ivo cnag- ara J»*öa i»*n 5“
I «6 -aoor ywaai at <ar -«***•
tiarr ai a( aasj MT* garö ngat-» V.v/artXr"
ar **-að sohirg* v* óðrvyvi
>.&**err*s* h vWtogai'
Af grein þessari ■ riti Kaupmanna-
sanitakanna virðist fremur að ráða
að matvörukaupmenn hafi hug á að
hækka tekjur sínar af sölu búvara
heldur en að þeir stefni að lækkun
þeirra um mörg hundruð milljónir.
þátt í þeim útreikningum sem birtir
hafa verið í DV að undanfömu um
að hægt væri með innflutningi land-
búnaðarafurða að lækka útgjöld
landsmanna vegna matarinnkaupa
um 10,5 milljarða - og þá vitanlega
VEGAFRAMKVÆMDIR
VESTURL I
54 Ólafsvfkurvegur
(12 m.kr.)
Borg - Tungulækur.
Endurbygging, 3,6 km.
Verklok næsta sumar.
54 Ólafsvikurvegur
(14 m.kr.)
Núpá - Skógamesvegur.
Endurbygging, 4,3 km.
Slitlag á næsta ári.
1 Vesturlandsvegur
(60 m.kr.)
Eskiholtslækur - Gljúfurá.
Endurbygging og
klæðning, 7,1 km. Verklok
væntanlega í ágúst.
55 Borgarfjarðarbraut
(vlðhald)
Ferstikla - Stóra Drageyri.
Styrking og lagfæring, 15
km.
1 Vesturlandsvegur
(2 m.kr.) í Hvalfirði.
Til rannsókna vegna
þverunar.
54 Ólafsvfkurvegur
(13 m.kr.)
Vegamót - Reiðhamar.
Lokið við undirbyggingu og
lagt bundið slitlag, 5,8 km.
veltu matvöruverslana um sömu
upphæð.
DV hefur reiknað út að með
innflutningi á öllum kjötvömm,
ostum, smjöri, eggjum og kartöfl-
um, þ.e. öllum landbúnaðarvömm
nema mjólk, mundi samanlagt heild-
söluverð þeirra lækka úr 9.590 millj-
ónum niður í um 2.550 milljónir
króna. Samkvæmt víðtækri könnun
á vegum Kaupmannasamtakanna er
þama um að ræða meira en 30% af
heildarveltu matvöruverslana. En
þrátt fyrir að eigendur matvömversl-
ana telji núverandi álagningu á bú-
vörur allt of lága reiknar DV með
því að smáisöluálagning á þessar
vörur yrði áfram 20% að meðaltali.
Það mundi (miðað við reiknað inn-
kaupsverð DV) þýða að matvöru-
verslanir misstu um 1.440 milljóna
kr. tekjur, án þess að rekstrarkostn-
aður verslana mundi minnka að
marki, nema kannski með kaup-
lækkunum, eins og Jón bendir á hér
að framan.
„Ef það gerist, að álagningar-
gmnnurinn (innkaupsverðið) lækk-
aði svona mikið vegna innflutnings á
ódýmm erlendum landbúnaðarvör-
um, þá mundu kaupmenn verða að
hækka þessa álagningarprósentu, til
að ná upp tekjutapinu. Eg sé ekki að
verslunin geti misst alla þessa álagn-
ingu í krónum talið, hún yrði að ná
henni inn með eitthvað hærri prós-
entuálagningu. En hún mundi ekki
koma öll á þennan vöruflokk," segir
Jón í Hagkaupi hins vegar.
Hafa kaupmenn raunar ekki rök-
stutt að verstunin þyrfti hærri álagn-
ingarprósentu á innlendar búvömr
en nú er?
„Jú, allavega á mjólkurvörur,"
sagði Jón.
Miðað við að verslunin héldi þess-
um 1.440 miltj.kr. verður einnig að
reikna með söluskatti á þessa
upphæð. Þar með væm komnar
„litlar" 1.800 millj.kr. sem DV virð-
ist hafa „misreiknað" sig í dæmi
sínu, eða sem nemur 28.600 kr. að
meðaltali á hverja fjögurra manna
fjölskyldu. Þá upphæð má hún
a.m.k. draga frá þeim gróða sem
DV reiknar henni nær daglega að
undanfömu.
Og ekki nóg með að matvöruversl-
unin telji sig ekki geta misst nær 1,5
milljarða m.v. núverandi álagningu.
í áðumefndri könnun (sem m.a. var
gerð í Hagkaupi) komust Kaup-
mannasamtökin að því að kaup-
menn tapi stómm á sölu búvara.
(T.d. er launakostnaðurinn einn tal-
inn tæp 10% við sölu á kjöti.)
Niðurstaðan var sú að álagning á
búvömm, öðmm en mjólk, þyrfti að
hækka úr að meðaltali 20% í nær
29% aðeins til að standa undir
kostnaði en upp f nær 36% að
meðaltali (27% á osta og smjör og
38% á kjöti) til að standa auk þess
undir eðlilegri framlegð til ávöxtun-
ar eigin fé. í ítarlegri umfjöllun í
Verslunartíðindum Kaupmanna-
samtakanna segir m.a.:
„Smásöludreifing á landbúnaðar-
vömm er afskaplega óhagstæð kaup-
mönnum, svo óhagstæð að þær radd-
ir gerast nú æ háværari að ef eklri
verði gerð bragarbót á álagningar-
málum þessara vara, þá hljóti versl-
animar að grípa tii aðgerða."
- HEI
MJólkurvðnjr Maðat- álagning 11.5% Koatrv aður 16.7% Nauðsynlag álagning 19.8%
0*tar og smjðr 14.0% 22.6% 27.1%
KJðtvðrur 20.7% 30.2% 37.6%
Landbún.v. alls 17.2% 25.6% 31 .3%
Þessi er niðurstaða könnunar kaupmanna á: Núverandi meðaláiagningu,
bcinum kostnaði við sölu á landbúnaðarvörum og hver álagning á þær þyrfti
að vera að mati matvörukaupmanna.
800 manns á
námskeið
Fræðslumiðstöð Rauða kross fs-
lands var formlega stofnuð 1988, en
hóf starfsemi sína í byrjun árs 1989.
Á fyrri helmingi ársins hafa nærri
800 manns sótt námskeið á vegum
Fræðslumiðstöðvarinnar. Haldin
voru 57 námskeið víða um iand í 11
mismunandi námsefnum.
Barnfóstmnámskeiðin hafa notið
mestra vinsælda og þátttaka hefur
einnig verið góð á skyndihjálpar-
námskeiðum, foreidranámskeiðum
og námskeiðum í aðhlynningu aldr-
aðra og sjúkra.
Þá var boðið upp á nokkur nám-
skeið fyrir sjálfboðaliða Rauða
krossins, þar sem þeir hljóta þjálfun
til ýmissa starfa, t.d. í skipulagningu
fjöldahjálparstöðva.
Ennfremur heldur Fræðslumið-
stöð RKÍ sérhæfðari námskeið fyrir
starfshópa, t.d. námskeið fýrir
sjúkraflutningamenn í samvinnu við
Borgarspítala og námskeið fyrir leið-
beinendur í skyndihjálp.