Tíminn - 22.06.1989, Qupperneq 9
Fimmtudagur 22. júní 1989
Tíminn 9
FRÉTTAYFIRLIT
JERÚSALEM - Yitzhak
Shamirforsætisráðherra Israel
varaði fsraela við því að láta
tilfinningar sínar hlaupa með
sig í aönur og að mismunandi
afstaoa til uppreisnar Pales-
tínumanna mætti ekki leiða til
borgarastyrjaldar. Shamír
fordæmdi landnema Gyðinga
sem skutu og köstuðu grjóti að
Palestínumönnum eftir jarðar-
för landnema sem myrtur var á
Vesturbakkanum fyrir stuttu.
ISTANBÚL - Tyrkneskur
réttur setti lögbann á öfgafullt
vinstrisinnað timarit sem líkti
flótta Búlgara af tyrknesku
bergi brotnu til Tyrklands við
stöou Kúrda i Tyrklandi.
LONDON - öngþveiti ríkir í
Bretlandi eftir að lestarkerfi og
strætisvagnakerfi í London
lömuðust vegna sólarhrings
verkfalls starfsmanna járn-
brautanna og bílstjóra strætis-
vagnanna. Þeir krefjast hærri
launa.
BANGKOK - Hermenn
skutu á mótmælagöngu um
það bil fimm hundruð manna í
Rangoon höfuðborg Burma.
Einn maður féll. Daw Aung
Suu Kyi leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar var handtekinn í
kjölfarið, en sleppt eftir nokkrar
klukkustundir. Þrír námsmenn
voru handteknir.
BELGRAD - Eining Júgó-
slavíu er nú í meiri hættu en
nokkru sinni eftir að leiðtogar
kommúnistaflokksins ( Slóv-
eníu hótuðu að segja skilið við
kommúnistaflokk Júgóslavíu.
Slóvenía er auðugasti og þró-
aðasti hluti Júgóslavíu.
KHARTOUM - Þúsundir
vopnaðra músKma þrömmuðu
gegnum Khartoum til að mót-
mæla matarskorti og friðarvið-
ræðum stjórnvalda við skæru-
liða f suðurhluta landsins.
Spenna fer vaxandi eftir átök
sem urðu ( byrjun vikunnar.
MOSKVA - Enn ríkir mikil
ólga í Kasakhstan oa Úzbek-
istan. Einn maður fell í kyn-
þáttaátökum f Kasakhstan.
llilllllllllllllllllllll ÚTLÖND lilllllllllllllllllllilllllllllílilllllllllll
Bandaríkjamenn slíta samskiptum háttsettra embættismanna við Kína, vegna
harkalegra aðgerða kínverskra stjórnvalda gegn námsmönnum:
Aftökur andófsmanna
þegar hafnar í Kína
Kínversk stjómvöld hafa þegar tekið þrjá andófsmenn af
lífi vegna þátttöku þeirra í mótmælaaðgerðum gegn stjóm-
völdum á dögunum.
Hæstiréttur í Sjanghæ staðfesti í
gær dauðadóm undirréttar yfir
þremur ungmennum sem tóku þátt í
andófinu gegn stjómvöldum þegar
hermenn réðust að fjöldahreyfingu
námsmanna í Kína. Dauðadómnum
var fullnægt nokkmm klukkustund-
um síðar. Er þetta vísbending um að
blóðbaðinu sem hófst á Torgi hins
himneska friðar muni ekki linna.
Ungmennin þrjú vom dæmd
vegna árásar á herflutningalest sem
kveikt var í eftir að lestin hafði ekið
inn í hóp andófsmanna með þeim
afleiðingum að sex námsmenn
létust.
Alls hafa ellefu manns verið
dæmdir til dauða í Kína fyrir aðild
að andófi gegn stjómvöldum og
miklar líkur taldar á að enn fleiri
muni gjalda fyrir með lífi sínu.
Fjöldi erlendra ríkisstjóma hafa
beðið kínversk stjómvöld um að
sýna miskunn í máli ungmennanna,
en stjórnvöld hyggjast ekki sýna
neina linkind.
-r Aftökur geta einungis ýft upp
sár nýliðinna vikna, sagði Marlin
Fitzwater talsmaður Hvíta hússins
eftir að bandarísk stjómvöld höfðu
beðið þau kínversku um að sýna
miskunn.
Bandaríkjamenn hafa slitið öllum
samskiptum háttsettra embættis-
manna við Kína til að mótmæla
blóðbaðinu mikla á Torgi hins himn-
eska friðar og þeirri hörku sem
kínversk stjómvöld hafa sýnt náms-
mönnum sfðan. George Bush skýrði
frá þessari ákvörðun í fyrrakvöld, en
hann hefur legið undir ámæli ýmissa
þingmanna bandarískra fýrir að sýna
Kínverjum linkind.
Kínverskir námsmenn í Banda-
ríkjunum hafa af heilum hug tekið
þátt í andófi námsmanna heima fyrir
og er ljóst að flestir þeirra muni ekki
snúa heim aftur ef harðlínustefna
Blóðbaðinu sem kínversk stjómvöld hófii á Torgi hins himneska friðar er
ekki lokið. Fyrstu þrír andófsmennirnir sem dæmdir hafa verið til dauða fyrir
þótttöku sina í mótmælaaðgerðum gegn stjómvöldum vora teknir af lífi I
Sjanghæ í gær. Níu aðrír hafa þegar veríð dæmdir og allar líkur era á að enn
fleiri muni falla fyrir hendi böðlanna í Klna á næstunni.
stjómvalda breytist ekki. Á meðal til að taka við Zhao Ziyang sem
virkra kínverskra námsmanna í næsti leiðtogi kínverska kommún-
Bandaríkjunum erXiaoxi Qiao dótt- istaflokksins.
ir Qiao Shi sem talinn er líklegastur
Heilagt stríð múslíma ógnar Sovét
Heilagt stríö múslíma í Sovétríkjunum ógnar nú öðru
fremur einingu þessa volduga ríkjasambands ef marka má orö
háttsetts embættismanns í Úzbekistan þar sem hundrað
manns létust í kynþáttaóeirðum fyrir stuttu. Embættismaður-
inn segir að kynþáttaofsóknimar megi rekja til áætlana
öfgafullra múslima í Úzbekistan sem vUji sameiginlegt heUagt
stríð múslíma á þessum slóðum gegn „guðleysingum“.
- Skipuleggjendur herferðarinnar
vildu „Heilagt stríð" múslíma til
þess að hrekja alla þá sem ekki játa
íslamtrú burtu frá syðstu sovétlýð-
veldunum og stofna allsherjarríki
múslíma á þessum slóðum, sagði
Eduard Diderenko aðstoðarinnan-
ríkisráðherra Úzbekistan í samtali
við dagblaðið Krasnaya Zzezda.
- Herferðin hófst síðastliðið haust
þegar nokkrir aðilar tóku að berja
saman breiðfylkingu múslíma þar
sem meginmarkmiðið er að flæma
fólk af evrópsku bergi brott frá
lýðveldinu. Þegar Mesketíar sem
eru minnihlutahópur múslíma í Úz-
bekistan höfnuðu þátttöku í breið-
fylkingu múslíma braust út ofsókn-
aralda Úzbeka á hendur Mesketíum,
sagði Diderenko.
Mikhaíl Gorbatsjof sagði á dögun-
um að öfgafullir múslímar hafi „sýnt
vígtennurnar“ með ofsóknunum í
Úzbekistan og sovéskir fjölmiðlar
Farþegar á Maxím Gorkí gagnrýna hvernig
sovéska áhöfnin stóð að björgunarstörfum:
Vodka í stað
drykkjarvatns
Farþegar á Maxím Gorkí
hafa gagnrýnt hvernig áhöfn
sovéska skipsins stóð að björg-
unarstörfum eftir að gat kom á
þetta myndarlega skemmti-
ferðaskip eftir að það sigldi á
ísspöng á átján hnúta hraða.
- Sovéska áhöfnin virtist ekki
vera undirbúin að takast á við
neyðarástand, sagði Adolf Kuhn
farþegi með skipinu. Kuhn segir að
björgunarbátur sá er hann hafi
yfirgefið skipið á hafi hangið fullur
af fólki í gálganum í tvo tíma áður
en honum var rennt í sjóinn. Þegar
báturinn var loks sjósettur kom í
ljós að birgðir voru takmarkaðar.
- Það var nægilegt áfengi en
ekkert drykkjarvatn, sagði Kuhn.
íLUjfii.u'r'riniiii'nl>l>iii>ii .fH) i a I ji.i
Maxím Gorkí kom til hafnar á
Spitzbergen í fyrrakvöld. Honum
var siglt með eigin vélarafli eftir að
kraftmiklar vatnsdælur höfðu dælt
mesta sjónum úr skipinu, en þyrlur
fluttu sex afkastamiklar dælur í
skipið í fyrradag eftir að ljóst var
að skipinu mátti bjarga.
Ljóst er að sovéski skipstjórinn
hefur sýnt vítavert gáleysi með því
að láta skemmtiferðaskipið sigla á
fullri ferð á svæði þar sem mikill
hafís var á reki. Með réttu hefði
skipið átt að vera á þriggja til fimm
sjómílna hraða við þær aðstæður
sem voru á slysstað, en þess í stað
keyrði Maxím Gorkí á átján sjó-
mílna hraða. Því fór sem fór er
skipið rakst á 2,5 m þykka ísspöng.
hafa skýrt frá því að græn flögg
Islam hafi verið í fararbroddi í
ofsóknunum og að menn hafi kallað
nafn Ajatollah Khomeinis andlegs
leiðtoga írana.
Hættan á heilögu stríði múslíma
er greinilega alvarleg ógnun að mati
Gorbatsjofs sem hefur þurft að eiga
við kynþáttaátök þar sem múslímar
koma við sögu í Azerbaijan, Arm-
eníu, Georgíu og nú síðast í Úzbek-
istan og Kasakhstan.
Talið er að Gorbatsjof hafi haft
þetta í huga þegar hann bauð Ali
Akbar Hashemi Rafsanjani forseta
íranska þingsins í opinbera heim-
sókn og viljað bæta tengslin við íran
svo íranar kyndi ekki undir heilagt
stríð múslíma í Sovétríkjunum. Slíkt
gæti orðið dýrkeypt því talið er að
milli 30 og 40 milljónir múslíma búi
í Sovétríkjunum.
Á fundi Gorbatsjofs og Rafsan-
janis á þriðjudag sagði Gorbatsjof
að íranar hefðu fullan rétt til að
viðhalda gildum byltingar múslíma í
Iran. Gorbatsjof og Rafsanjani sam-
þykktu á fundi sínum að vinna að
bættum samskiptum ríkjanna
tveggja.
þar sem til bardaga kom milli
sovéskra hermanna sem gættu skrif-
stofu innanríkisráðuneytisins í bæn-
um og öfgafullra múslíma af kyn-
þætti Úzbeka. Öfgamennimir hafa
veríð handteknir og göt eftir byssu-
kúlur em á rúðunni.
Mynd Moscow News
Israelar gera loft-
árásir á Suður-Líbanon
Enn gera ísraelar loftárásir á
stöðvar skæruliðasveita Palestínu-
manna í Suður-Líbanon. Herþotur
gerðu sprengjuárásir á stöðvar
skæruliða í Naamehn og Damour,
en þau svæði eru á valdi Drúza og
Palestínumanna. Ekki er vitað um
mannfall, en ljóst er að skemmdir
urðu miklar.
Sjónarvottar segja að þoturnar
hafi gert þrisvar sinnum árás á
stöðvarnar þrátt fyrir öfluga loft-
varnaskothríð sveita Drúsa og Pal-
estínumanna. Þoturnar urðu ekki
fyrir skoti.
á þessu ári, en alls hafa tuttugu og
tveir fallið í þeim.
Síðustu árásir fsraela voru gerðar
síðastliðinn föstudag og voru stöðvar
Fatha byltingarráðsins, sem erundir
stjóm Palestínumannsins Abu
Nidals, fyrir þeim árásum.
Loftárásir fsraela eru yfirleitt
hefndaraðgerðir fyrir tilraunir Pal-
estínumanna og öfgafullra múslíma
í Líbanon til að komast yfir landa-
mærin til ísrael og vinna þar hermd-
arverk. Alls hafa verið gerðar tíu
slíkar mislukkaðar tilraunir frá því í
desember. Nokkrir ísraelskir her-
menn hafa fallið í þeim aðgerðum og
jmnjlejn gkaerulwffgý^-wr* <_ ■ - •
i