Tíminn - 22.06.1989, Qupperneq 20
AUGLÝSINGASÍ MAR: 680001 — 686300
--------------------- ....----
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagötu,
_____S 28822
% $
mBF SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.
,e^,BILASToh
PÓSTFAX
ÞRttSTIlR - TÍMANS
68 50 60 VANIR MENN 687691
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ1989
Presta*
stefna
Óvenju mikil flóð hafa verid í Þjórsá undanfarið
TímamyndrPjetur
Vorflóð með seinna móti í ár:
„Fardagaflan" á Suðurlandi
Næstu daga kólnar á hálendinu og má þá búast við að fari
ið sjatna í jökulám sem síðustu daga hafa geyst fram
Lolmórauðar. Ástandið hefur verið sérstaklega slæmt á
iuðurlandi og hefur vatnsmagn Þjórsár sjaldan mælst meira.
„í fyrradag fór vatnsmagnið í ánni
ir tvö þúsund rúmmetra á sek-
idu. í gær var hún komin niður í
n 1600 en eðlilegt vorflóð er um
d hundruð rúmmetrar á sekúndu,“
gði Árni Benediktsson stöðvar-
jóri Búrfellsvirkjunar í samtali við
imann. Þetta er eitt mesta flóð
ðan virkjunin var byggð og mæling-
hófust.
Hann taldi ástæðu þessa gífurlega
itnsmagns einkum mega rekja til
ikilla snjóþyngsla í vetur. „Á
Hveravöllum mældist til dæmis
snjódýptin tuttugu sentimetrar í
byrjun júní ’88 en 120 sentimetrar á
sama tíma í ár. Mannvirki á svæðinu
eru hönnuð til að þola töluvert
meira flóð en þetta. Aftur á móti
komum við til með að þurfa að eyða
nokkrum milljónum í að gera við
verulegar skemmdir á görðum í
ánni, sem eru til þess að minnka
yfirborð hennar á veturna," sagði
Árni.
Veiði í ánni er útilokuð á meðan
þetta ástand varir en Árni bjóst við
að bráðlega hlyti að sjá fyrir endann
á flóðinu. „Yfirleitt standa þessi flóð
ekki nema í viku. En áin gæti þó
verið töluvert vatnsmikil í allt
sumar," sagði hann.
Þjórsá hefúr víða flætt yfir bakka
sína og má nefna sem dæmi að á
bænum Skeiðháholti eru eyrar sem
liggja meðfram ánni svo gott sem
alveg í kafi. Sömuleiðis er flugvöllur,
sem tilheyrir bænum, í kafi. Ekki
verður hægt að gera sér grein fyrir
skemmdum af þessum völdum fyrr
en sjatnar í ánni en gera má ráð fyrir
að flugvöllurinn sé allavega í heldur
bágbornu ásigkomulagi.
Vatnsmagn Hvítár í Árnessýslu er
einnig töluvert meira en venjulega á
þessum árstíma. „Við gömlu
mennirnir tölum um fardagaflan í
vötnum og það er venjulega nálægt
mánaðamótum maí og júní, en nú er
það heldur seinna á ferðinni. Hvítáin
hefur flætt hér inn á öll flæðengi og
allar lægri eyrar. Auk þess hef ég
heyrt að hún hafi flætt inn í kartöflu-
garða í Auðsholti. Þessu fylgja
margskonar óþægindi, til dæmis er
ófært út í Tunguey sem er allstórt
land,“ sagði Sveinn Skúlason í
Bræðratungu.
Ár á Norður- og Austurlandi hafa
sömuleiðis verið óvenju vatnsmikl-
ar. Þær hafa þó ekki valdið umtals-
verðum skemmdum að því er vitað
er. jkb
Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup
íslands, kallar presta landsins til
prestastefnu á þriðjudag 27. júní.
Stefnan stendur í 3 daga og verður
haldin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili
Garðasóknar í Garðabæ. Þetta er
síðasta prestastefna sem Pétur bisk-
up stýrir, en hann lætur af embætti
1. júlí n.k.
Aðalmál prestastefnunnar fjalla
um safnaðaruppbyggingu. Fram-
sögumenn eru dr. Gunnar Kristjáns-
son, sr. Bernharður Guðmundsson
fræðslustjóri, sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson og Ragnheiður Sverrisdóttir
djákni.
Þá mun prestastefnan fjalla um
frumvarp það um skipan prestakalla
og prófastdæma, sem hinir ýmsu
kirkjulegu aðilar hafa rætt að undan-
förnu og mun væntanlega verða lagt
fyrir Alþingi innan tíðar. Framsögu-
maður er sr. Jón Einarsson, prófast-
ur. - LDH
Grænland:
10 ára afmæli
heimastjórnar
Grænlendingar héldu í gær upp
á 10 ára afmæli heimastjórnar
sinnar. Mikið var um að vera í
bæjum og þorpum landsins í
allan gærdag, en aðalhátíðar-
höldin fóru þó fram í Nuuk,
höfuðstað Grænlands.
Margrét Danadrottning var við
hátíðarhöldin. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og
kona hans Guðlaug Edda Guð-
mundsdóttir voru viðstödd hátíð-
arhöldin ásamt Jóni Sigurðssyni
samstarfsráðherra Norðurlanda
og konu hans, Steingrími J. Sig-
fússyni landbúnaðarráðherra og
konu hans, Páli Péturssyni al-
þingismanni og Jóni Sveinssyni
aðstoðarmanni forsætisráðherra.
Er hlutafé Olís aðeins
16 milljóna kr. virði?
Lögmenn Olís bentu í gær, fyrir
fógetarétti, á eignir til tryggingar á
vanskilaskuldum fyrirtækisins við
Landsbanka íslands. Mat Olís-
manna á þessum eignum nemur um
800 milljónum króna. Lögmaður
Landsbankans mótmælti þeim trygg-
ingum sem lagðar voru fram og tók
borgarfógeti sér frest fram á þriðju-
dag til að úrskurða hvort tryggingar
Olís væru góðar og gildar.
Þegar kyrrsetningarmálið hófst
fyrir nokkru, námu vanskilaskuldir
Olís við Landsbankann 438 milljón-
um króna, en í dag nálgast skuldin
hálfan milljarð króna, samkvæmt
heimildum Tímans.
í fyrstu bentu Olísmenn á eignir
sem þeir mátu á 540 milljónir króna.
Fengnir voru til sérstakir matsmenn
og mátu þeir eignirnar á 215 milljón-
ir króna og úrskurðaði borgarfógeti
í fyrradag að eftir því mati skyldi
farið. Þann úrskurð kærðu lögmenn
Olís til Hæstaréttar. Þá var af hálfu
Landsbankans þess krafist að eignir
Olís yrðu kyrrsettar fyrir mismun á
þeirri upphæð og skuldinni, eða sem
svarar liðlega 223 milljónum króna.
■ Þá hefur fógeti undir höndum
28% hlutabréfa í Olís sem tryggingu
vegna málarekstursins. Lögmenn
Olís kröfðust þess í fyrradag að fá
þau afhent, en því hafnaði fógeti og
var sá úrskurður einnig kærður til
Hæstaréttar. Mikið ber á milli í mati
Olísmanna og matsmanna fógeta-
réttar um hversu mikils virði þau
séu. Olís segir þau virði 120 mill-
jóna, en matsmennirnir meta þau á
aðeins 5 milljónir króna. Munurinn
þarnaámillieru 115 milljónir króna. >
Þar sem þarna er um að ræða rétt
tæpan þriðjung hlutabréfa í Olís, þá
gæti virst sem öll hlutabréf félagsins
væru aðeins um 16 milljón króna
virði.
f gær bentu Olísmenn fyrir fógeta-
rétti á eignir sem þeir mátu á um 800
milljónir króna, sem lögmaður
Landsbanka íslands mótmælti og
krafðist þess að bent yrði á hæfari
tryggingar.
Dómkvaddir matsmenn koma nú
til með að meta þær eignir sem OIís
hefur bent á, áður en borgarfógeti
kveður upp úrskurð sinn í málinu,
sem ætlunin er að hann geri á
þriðjudag. - ABÓ/SÁ