Tíminn - 27.07.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 27. júlí 1989
llllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
VEGAFRAMKVÆMDIR 1989 - SUÐURLAND
37 Laugarvatnsvegur
(12 m.kr.)
Apá - Snorrastaðir.
Styrking og klæðing 6 km.
35 Biskupstungnabraut
(5 m.kr.) við Reykholt. .
Nýbygging 1 km.
338 Elnholtsvegur
(7 m.kr.) við Tungufljót.
Nýbygging 1 km.
30 Hrunamannavegur
(3 m.kr.) við Brúarhlöð.
Endurbygging 2 km.
35 Biskupstungnabraut
(20 m.kr.)
Laugarvatnsvegur -
Skálholtsvegur
Bundið slitlag 7 km.
Píanótónleikar
Þriðjudaginn 1. ágúst nk. heldur David
Tutt tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar. Þar leikur hann á píanó verk eftir
Schubert, Debussy og Liszt.
Siglingar fyrir almenning
á Rauðavatni
í sumar mun siglingaaðstaða Iþrótta-
og tómstundaráðs á Rauðavatni verða
opin almenningi á eftirfarandi tímum:
þriðjudögum kl. 16:00-16:30, fimmtu-
dögum kl. 16:00-18:30 og á laugardögum
kl. 13:00-17:00.
Afnot af bátum og björgunarvestum
eru ókeypis. Á staðnum verða starfsmenn
til leiðbeiningar.
fþrótta- og tómstundaráð
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfur. Gönguferð Félags
eldri borgara á hverjum laugardegi kl. 10.
Farið frá Nóatúni 17. Opið hús í Goð-
heimum Sigtúni 3 f dag, fimmtudag. Kl.
14: Frjáls spilamennska. Kl. 19.30: Fé-
lagsvist. Kl. 21: Dansað. Ath. Farin
verður 12 daga ferð um Austfirði 8. ágúst
nk. Upplýsingar á skrifstofu félagsins f
sfma 28812.
Ólafur Ámi Bjamason tenór syngur í
kvöld í Hlégarði við undirleik ðlafs
Vignis Albertssonar. Tónleikamir verða
endurteknir í Húsavíkurkirkju nk. mið-
vikudag.
Tónleikar í Hlégarði
1 kvöld kl. 21 heldur Ólafur Árni
Bjamason tenór söngskemmtun í Hlé-
garði, Mosfellsbæ. Við hljóðfærið verður
Ólafur Vignir Albertsson. Þetta eru fyrstu
sjálfstæðu tónleikar Ólafs Áma. Ólafur
nam söng hjá Guðrúnu Tómasdóttur og
Sigurði Demetz Franzsyni, en stundar nú
framhaldsnám við tónlistarháskólann í
Bloomington, Indiana.
Á efnisskránni em fslensk sönglög
m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns, Sigurð
Þórðarson, ítalskar antík aríur m.a. eftir
Giordani, Caccini og ópemaríur m.a.
eftir Wagner, Donizetti og Puccini.
Aðgöngumiðar fást við innganginn.
Tónleikamir verða endurteknir í Húsa-
víkurkirkju miðvikudaginn 2. ágúst nk.
kl. 1989.
ÚTIVIST
Ferðist innanlands með Útivist.
Fjölbreyttar sumarleyfisferðir:
1) 28/7-2/8 Eldgjá - Þórsmörk. Bakpoka-
ferð fyrir þá sem vilja kynnast nýrri leið
til Þórsmerkur. Fararstjóri: Rannveig
Ólafsdóttir.
2) 3.-8. ágúst Hornstrandir - Hornvík. 4
eða 6 dagar. Tjaldbækistöð með göngu-
ferðum. Fararstjóri: Vemharður Guðna-
son.
3) 3.-7. ágúst Laugar - Þórsmörk. Gist f
húsum. Fararstj.
4) 3.-11. ágúst Homstrandir VII: Hom-
vfit - Lónafjörður - Grunnavík. Hom-
bjargsganga. 4 daga bakpokaferð til
Gmnnavíkur. Fararstj. Gísli Hjartarson.
5) 9.-15. ágúst í Fjörðum - Flateyjardal-
ur. Bakpokaferð.
6) 10.-15. ágúst Síðsumarsferð á Norð-
austurlandi. Ný og skemmtileg Útivistar-
ferð. Kjalvegur, Hrísey, Tjömes, Keldu-
hverfi, Jökulsárgljúfur, Melrakkaslétta,
Langanes, Vopnafjörður, Mývatn,
Sprengisandur. Gist í svefnpokaplássi.
7) 18.-27. ágúst Noregsferð. Ferð við
allra hæfi. Gönguferð um Jötunheima,
eitt fjölbreyttasta fjallasvæði Noregs. Gist
tvær nætur á hóteli í Osló og 7 nætur í
velbúnum fjallaskálum. Ódýrt. AUt inni-
falið. Upplýsingablað á skrifst. Pantið
strax. Komið með í sól og sumar í Noregi.
Hægt að framlengja dvölina úti. Uppl. og
farm. á skrifstofunni Grófinni 1, sfmar:
14606 og 23732.
Útivist, ferðafélag
Ferðafélag íslands:
Dagsferðir
Sunnudagur 30. júlf:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
2.000. Athugið afslátt Ferðafélagsins á
sumardvöl f Þórsmörk
Kl. 09.00 Gengið eftir Esju frá Hátindi -
komið niður hjá Ártúni. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00 Blikdalur. Létt gönguferð.
Blikdalurinn kemur á óvart. Hann er
lengsti dalurinn sem inn í Esju skerst.
Verð kr. 800.
Miðvikudagur 2. ágúst:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
2.000.
Kl. 20.00 Hrauntungustígur - Gljásel.
Létt kvöldganga. Verð kr. 600.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
böm. Ferðafélag íslands
Sumarleyfisferðir
28. júb' - 2. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Gönguferð milli sæluhúsa.
Nokkur sæti laus. Fararstjóri: Hreinn
Magnússon.
3.-8. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. UPPSELT!
9.-13. ágúst: Eldgjá - Strútslaug - Álfta-
vatn. Gönguferð með viðleguútbúnað.
Fararstjóri: Páll Ólafsson.
9.-13. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Árni Geir.
11.-17. ágúst: Kirkjubæjarklaustur -
Fljótsdalshérað - Borgarfjörður eystri -
Vopnafjörður - Laugar í Reykjadal -
Sprengisandur. Fararstjóri: Baldur
Sveinsson.
11.-16 ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Árni Sigurðsson.
16. -20 ágúst: Þórsmörk - Landmanna-
laugar. Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson.
Farið til Þórsmerkur á miðvikudegi og
samdægurs á Emstmr. Síðan sem leið
liggur að Álftavatni næsta dag, á þriðja
degi verður komið í Hrafntinnusker og á
fjórða degi til Landmannalauga.
17. -20. ágúst: Núpsstaðarskógur. Gist f
tjöldum. Gönguferðir m.a. á Súlutinda.
Fararstjóri: Hilmar Þór Sigurðsson.
18. -23. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Þráinn Þórisson.
23.-27. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Dagbjört Oskars-
dóttir.
25.-30. ágúst: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Fararstjóri: Jóhannes I.
Jónsson.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
Ferðafélagsins, Oldugötu 3.
Ferðafélag tslands
Sumarsýning FÍM
Nú stendur yfir sumarsýning FlM,
Félags íslenskra myndlistamanna, í FÍM
salnum, Garðastræti 6.
Á sýningunni em verk eftir félagsmenn
FÍM. Sýningin stendur til 15. ágúst og
verður skipt um verk annað veifið á
sýningartfmanum.
FÍM salurinn er opinn virka daga kl.
13:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Sölugallerí er í kjallara salarins.
111111111111111 MINNING lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllll
38 Þorlákshafnarvegur
(5 m.kr.) Suðurlandsvegur
- Þrengslavegur. Styrking
og bundið slitlag 4 km.
33 Gaulverjabæjarvegur
(3 m.kr.) Suðurlandsvegur
- Votmúlavegur. Styrking.
30 Skelða- og Hruna-
mannavegur (7 m.kr.)
Miðfell - Flúðir.
Undirbygging 2,5 km.
36 Þlngvallavegur
(5 m.kr.) Styrking og
bundið slitlag, 2 km.
Helga Jóhannsdóttir þjóðlagasafnari tai-
ar i Opnu húsi Norræna hússins í kvöld.
Opið hús í Norræna húsinn:
íslensk þjóðlög
1 kvöld kl. 20.30 verður haldið áfram
sumardagskrá Norræna hússins. Þá talar
Helga Jóhannsdóttir þjóðlagasafnari um
íslensk þjóðlög fyrr og nú en Helga á
mikið safn af þjóðlögum í fómm sfnum.
Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og
leikin verða tóndæmi af snældum.
Eftir stutt kaffihlé verður sýnd kvik-
myndin Mývatn sem Magnús Magnússon
tók. Myndin er með ensku tali.
Sumardagskráin hefur verið fastur liður
í starfsemi hússins allt frá 1979. Hún er
einkum sett saman með tilliti til norrænna
ferðamanna og flutt á einhverju Norður-
landamálanna. Kaffistofa hússins er opin
og sömuleiðis bókasafnið.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Fyrirlestur um hamingjuna
1 kvöld kl. 20.30 flytur prófessor Phi-
lippa Foot fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki. Fyrirlestur-
inn fjallar um hamingjuna, og nefnist
„Happiness".
Philippa Foot er prófessor í siðfræði
við Háskólann í Los Angeles og Háskól-
ann í Oxford, og hefur nún um árabil
verið meðal þekktustu siðfræðinga sam-
tímans. Eftir hana liggur fjöldi ritgerða
og hafa sumar þeirra valdið straumhvörf-
um í siðfræði samtímans. Prófessor Foot
kom fyrst hingað til lands vorið 1976 og
hélt þá fyrirlestur sem vakti mikla athygli.
Félag áhugamanna um heimspeki
Hundadagar ’89:
TÓNLEIKAR
Tónleikar á Hundadögum ’89 verða
sem hér segir:
1. ágúst kl. 20.30: Píanótónleikar Da-
vids Tutt í Listasafni Sigurjóns Ólafsson-
ar.
13. ágúst kl. 20.30: Píanótónleikar
Martins Berkofskys í Islensku óperunni.
15. ágúst kl. 20.30: Miami Stringquar-
tet í lslcnsku óperunni.
17. ágúst kl. 20.30: Tríó Kauniainen í
íslensku óperunni.
19. ágúst kl. 16: Björn Sólbergsson
heldur orgeltónleika í Kristskirkju.
23. ágúst kl. 20.30: Islenskir tónleikar
í Islensku óperunni.
29. ágúst kl. 20.30: Hljómsveitartón-
leikar í Islensku óperunni.
Aðgangseyrir á hverja tónleika er kr.
900.
Dóróthea Halldórsdóttir
Fædd 19. aprfl 1904
Dáin 19. júlí 1989
Þann 19. júlí s.l. lést á Landspítal-
anum amma okkar, Dóróthea Hall-
dórsdóttir, eftir stutta sjúkdóms-
legu. Amma Dóra, eins og við
vorum vön að kalla hana, bjó í 55 ár
að Hringbraut 116 í Reykjavík. Nú
þegar hún hefur kvatt þennan heim
leita minningarnar frá Hringbraut-
inni á hugann.
Á Hringbrautinni bjuggu amma
og afi sér heimili sem var í raun
annað heimili fyrir okkur bama-
bömin. Þangað sóttum við systkinin
oftar en á nokkurn annan stað utan
heimilis okkar, enda fór það svo að
þrjú okkar dvöldum þar heilu vet-
urna. Þar nutum við þeirrar róar
sem oft fylgir eldra fólki en sjaldnar
er að finna á barnmörgum heimilum.
Þá var rætt um lífíð og tilveruna,
leystar stærðfræðiþrautir hjá afa og
var þá einn af hápunktunum þegar
amma færði okkur sunnudagskaffið
í rúmið.
í gegnum tíðina varð heimili
þeirra einnig athvarf fjölmargra ætt-
maður fékk ekki þá tilfinningu að
vera gestur í húsi hennar né að haft
væri fyrir manni.
Amma var fædd þann 19. apríl
1904 á Húsavík. Þar ólst hún upp hjá
foreldmm sínum í hópi átta systkina,
tveggja bræðra og sex systra. For-
eldrar hennar vom Ingibjörg Stef-
ánsdóttir frá Skáldalæk í Svarfaðar-
dal og Halldór N. Sigurjónsson frá
Hallbjamarstöðum á Tjömesi. Hún
fluttist átján ára gömul tii Reykja-
víkur þar sem hún kynntist síðar
manni sínum, Tryggva Magnússyni
frá Bitm í Eyjafirði. Hann starfaði
lengst af á Pósthúsinu í Reykjavík.
Þau eignuðust þrjú böm: Baldur, f.
1931; Brynju, f. 1932; og Magnús, f.
1943. Þau misstu báða synina snögg-
lega og langt fyrir aldur fram. Magn-
ús dmkknaði tæplega átján ára að
aldri árið 1961, þá einn eftir í
foreldrahúsum. Baldur lést tæplega
38 ára eftir skamma en erfiða sjúk-
dómslegu árið 1969. Brynja er því
ein eftirlifandi bama þeirra. Tryggvi
maður hennar lést 1971.
Þótt amma væri ekki langskóla-
gengin þá var hún góðum gáfum
gædd og bjó yfír góðri dómgreind.
Eins og margir íslendingar af hennar
kynslóð nýtti hún sér þá menntun
sem stóð til boða og ber þar hátt
kveðskap Stephans G. Stephansson-
ar. Óhætt er að fullyrða að margt í
lífsskoðun hennar hafi átt rætur í
ljóðum hans. Þannig endurspeglað-
ist sýn hennar á manneskjuna í
þessum ljóðlínum sem hún vísaði oft
til:
Pitt er menntað aíl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Amma var okkur bamabörnunum
alltaf góð. Sjálf kenndi hún ekki
með útásetningum eða athugasemd-
um. Hún kenndi með góðu fordæmi.
Sú mikia alúð við heimilisverk, elda-
mennsku, garðvinnu og raunar allt
það sem hún tók sér fyrir hendur
verður okkur bamabörnunum án
efa til leiðsagnar í Iífi okkar.
Lífíð gaf henni mikið, þ.e.a.s.
góðan mann og böm. Hún missti
líka mikið. Hún fylltist þó aldrei
sjálfsvorkunn eða beiskju út í lífið
en tókst að draga jákvæðan lærdóm
af erfíðri reynslu. Amma trúði því
að jarðvist einstaklingsins væri að-
eins þrep í þroskasögu hans og að
framundan væm mörg æðri tilvist-
arstig. Því varð henni tíðrætt, eink-
um síðustu árin, um þá endurfundi
sem hún ætti í vændum við manninn
sinn og drengina sem famir vom á
undan. Hún var ekki í nokkmm vafa
um að þeir endurfundir yrðu ánægju-
legir.
Amma mín. Við óskum þér góðr-
ar ferðar með þökk fyrir samfylgd-
ina.
Tryggvi, Valgerður, Stefán
Haraldur og Magnús.
ingja og annarra um lengri eða
skemmri tíma. Þannig hafa margir
notið þeirrar gestrisni og umhyggju
sem ömmu var svo eðlilegt og sjálf-
gefið að veita. Henni var lagið að
taka á móti, matreiða og bera fram
fyrir gesti sína svo áreynslulaust, að