Tíminn - 05.08.1989, Page 5

Tíminn - 05.08.1989, Page 5
.1 '.i .1 i > i Laugardagurör agúáf 1989 -f.f.f* I.V t.t * «.*.«««* * •*•••«•#.* 9 9 9 9 9 '» 9 9 9 9.9.9.9.99 -T-.l ímw.h , rrmírírt -5 AÐ UTAN Sviss á Evrópumet í eyðni nærri því í eiturlyfjaneyslu Sviss er í augum flestra í umheiminum flekklaust, hreint, auðugt og siðavant. Þar er allt í rótgrónum skorðum og engan skortir neitt. Eða hvað? Þar er nú eyðniplágan hvað skæðust í Evrópu og eiturlyfjasjúklingum fjölgar svo hratt að sums staðar hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að úthluta nýjum sprautum og nálum til neytenda. Hvenær hófst þessi eyðileggingarher- ferð og hvað fór úrskeiðis 1 fyrirmyndarþjóðfélaginu? Margir Svisslendingar spyrja sig þessara spurninga. Blaða- maður The Sunday Times kynnti sér ástandið. Sprautuherbergið í Bern Ferðamennirnir í hestvögnunum fara fram hjá Miinstergasse 12 við fallega dómkirkjutorgið í Bem án þess að líta á húsið tvisvar. Pað sker sig lítið frá öðmm mörg hundmð ódýrra kaffihúsa í sviss- nesku höfuðborginni. En yfir útidymnum er skilti þar sem á stendur „No deals“, og á tilkynningu stendur að ekki sé hleypt fLeiri en fimm inn í bakher- bergið í einu. í þessu litla herbergi liggja frammi í röð og reglu einnota sprautur, nálar, sótthreinsuð bómull, skeiðar og vatnsbikarar, allt það sem heróínsjúklingur þarf til að fullnægja þörf sinni. Á kvöldin stendur hópur æsts fólks í biðröð til að fá aðgang að þessu „fíxerraum“, sprautuher- berginu þar sem það veit að það á ekki á hættu að lögreglan ryðjist inn óvænt. Það em svissnesk stjómvöld sem kosta rekstur stað- arins í örvæntingarfullri tilraun til að berjast gegn sívaxandi eitur- lyfja- og sjúkdómsplágu í landinu. Svo ótrúlegt sem mörgum kann að virðast er Sviss, sem fyrst og fremst er þekkt sem land gauks- klukkna, leynilegra bankareikn- inga og stundvísra lesta, líka það land þar sem finna má eitthvert hæsta hlutfall heróínsjúklinga í Evrópu. Og nú er Sviss líka komið í efsta sæti í Evrópu hvað fjölda eyðnitilfella varðar. Ný eyðnitilfelli tvöfalt fleiri en í fyrra íbúar landsins eru innan við 7 milljónir, en Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin (WHO) hefur tilkynnt að við síðustu talningu hefðu eyðnitilfelli þar reynst 847, tvöfalt fleiri en á síðasta ári. Embættismenn WHO segja að mælikvarðinn sem gildir sé fjöldi nýrra eyðnitilfella miðað við 100.000 íbúa á ári. Sú tala var í Bretlandi á síðasta ári 1,1. í Sviss var hún 4,8. Þar með var Sviss komið í annað sæti meðal þróunar- landa, næst á eftir Bandaríkjunum þar sem talan er 11. Fjöldi nýrra eyðnitilfella í Sviss á þessu ári er búist við að samsvari 6 á hver 100.000 íbúa. Álitið er að upp undir helmingur þeirra 10.000 til 15.000 heróínsjúk- linga sem í landinu em séu smitaðir af HIV veimnni. í huga fiestra þeirra er hluti af félagslífinu að deila með sér nálum. Það er þessi siður sem verið er að gera tilraun til að kveða niður með sprautuher- berginu. Nýjar nálar em aðeins afhentar í skiptum fyrir gamlar. Hjúkmnarfólk er oft viðstatt. Símanúmer meðferðarstofnana em auðfengin. Er árangur af sprautu- og nálaafhendingunni? Gestir sprautuherbergisins í Munstergasse em lítið fúsir til að segja álit sitt á því hvort þessi hugmynd hafí gefist vel. Augnaráð þeirra er sljótt og handleggimir máttvana og þeir em annað hvort of æstir áður en þeir fá sprautuna sína eða of tunguheftir á eftir til að tala skiljanlega. Stúlka ein sem situr einsömul á gangstéttinni er þó nokkum veginn viss um að það hafi bjargað lífi hennar. Hún heitir Yvonne, er 22ja ára og hefur verið háð heróíni í sex ár. Hún segist hafa verið svo hrædd um að smitast af eyðni að ef hún hefði ekki getað fengið ókeyp- is nálar hefði hún farið að taka heróín í nefið. Hins vegar væri miklu erfiðara að taka „réttan" skammt þannig og hættan á því að skammturinn yrði of stór sagði hún að væri mikil. „Fólk afskrifar okkur vegna þess að við emm fíkniefnasjúklingar. En við höfum líka tilfinningar og við emm hrædd,“ sagði hún. Margir fyrirmenn borgarinnar hafa bmgðist ókvæða við þessari opinbem viðurkenningu á eitur- lyfjaneyslunni og em þó borgarar í Bem álitnir frjálslyndir og for- dómalitlir á svissneskan mæli- kvarða. En tilraunir til að loka kaffihúsinu í Múnstergasse eftir lagalegum leiðum hafa mistekist. Nýlega felldu dómstólar þann úr- skurð að starfsemi þess væri lögleg svo framarlega sem þar fæm ekki fram viðskipti með eiturlyf. Og nú Eiturlyfjaneysla og eyðni herjar nú á Svisslendinga. Sums staðar í landinu gera yfirvöld tilraun til að stemma stigu við notkun óhreinna sprautunála með því að afhenda ókeypis nálar. Sumir eiturlyfja- neytendur taka því fegins hendi og segjast annars myndu taka heróín- íð í nefið af eyðnihræðsiu, en þá sé miklu meiri hætta á því að skammt- urinn verði of stór. er búið að opna annað sprautuher- bergi í Basel. I Zúrich er hins vegar „garður hinna fordæmdu“ í Ztirich, auðugustu og íhalds- sömustu borg Sviss, er snúist gegn hugmyndinni um sprautuherbergi. Talsmenn heilbrigðismála fengu menn á sitt band þar í desember sl. um að fylgja fordæmi Bemar og úthluta ókeypis sprautum og nálum til fíkniefnasjúklinga, en borgarráð utvegaði ekki húsnæði. Afleiðingin er martröð líkust. Félagsráðgjafar og Rauði krossinn settu á fót dreifingarstöðvar á þeim stöðum sem fíkniefnaneytendur eru vanir að safnast saman, í garði í miðborginni. Hann liggur sam- hliða ríkmannlegustu verslunar- götu Evrópu, Bahnhofstrasse, þar sem er fjöldinn allur af skartgripa- búðum og alþjóðlegum bönkum. Garðurinn, Am Platzpitz, geng- ur undir nafninu „garður hinna fordæmdu“. Á hverjum degi safn- ast hundruð dópista saman þar sem einu sinni var vinsæll útivistar- staður fjölskyldunnar, til að ná sér í ókeypis nálar, og leita síðan að bekk eða horni þar sem þeir geta sprautað sig. Þegar kvöldar er grasflötin útöt- uð af blóði drifnum pappírsserví- ettum og notuðum nálum. Sumir eiturlyfjaneytendanna sofa þar um nóttina. Þegar morgnar og farið er að útdeila nýjum nálum, allt að 4.000 á dag, liggur kannski einn og einn þar líflaus eftir nóttina, enn eitt fórnarlamb of stórs skammts. Lögreglan ræður ekki við neitt Lögreglan, sem má ekki við margnum, hefst lítið annað að en að fylgjast með og lætur ekki til sín taka nema viðskipti eigi sér stað fyrir opnum tjöldum. Aðalverkefni lögreglunnar er að hindra ferða- menn í að ráfa inn í garðinn. Það hefur gerst að dópistamir hafa hótað að stinga ókunnuga með óhreinum nálum. „Ef dópistamir vilja drepa sig er best að leyfa þeim að gera það,“ var álit eins lögreglumannsins á vakt við garðinn. „Það er betra að þeir geri það á einum stað.“ Þetta ástand hefur orðið til þess að nú velta margir Svisslendingar því fyrir sér hvað hafi farið úrskeið- is. Sviss er land þar sem gamaldags siðferði og efnisleg velgengni er í hávegum haft. Svisslendingar vinna að meðaltali lengri vinnudag en nokkur önnur þjóð í Evrópu og ákváðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrra að stytta ekki vinnuvikuna hjá sér. Atvinnuleysi nemur innan við 0,5%. í Sviss em einhverjar hæstu tekjur á mann í heimi þó að landið búi yfir fáum náttúruauðlindum. En margir sérfræðingar heilbrigðis- þjónustunnar kenna vinnuást þjóð- arinnar um hvað unga fólkið er orðið afhuga hefðbundnu lífsgæða- kapphlaúpi. „Það hefur ríkt of mikil sér- hyggja,“ sagði dr. Jean-Bemard Ramelet hjá heilbrigðisráðuneyt- inu í Bem. „Fólk hefur unnið of mikið í þeim tilgangi að fylla eigin vasa peningum. Það hefur látið fjölskylduna afskiptalausa. Unga fólkinu finnst það gleymt. Það vill nýjan lífsmáta en veit ekki hvert það á að snúa sér svo að það snýr sér að eiturlyfjum.“ Hins vegar kennir Marcel Bert- schi, ríkissaksóknari í Zúrich því um hvað Svisslendingar eru auðug- ir. „Eiturlyfjasalar koma til Sviss vegna þess að íbúar hér geta leyft sér að stunda rándýran ósið,“ segir hann. „Nú er ástandið orðið stjórn- laust." Spánverjar vilja blóð úr Bretum: Mikill fjöldi breskra sumar- leyfisgesta þarfnast blóðgjafa Nú á að fara þess á leit við breska sólarlandafara á Costa del Sol að þeir gefí blóð svo að sjúkrahús þar séu betur fær um að fást við mikla aukningu á umferðarslysum og neyðaraðgerðum þar sem ferðamenn eiga hlut að máli. Spænsk yfirvöld hafa dreift auglýsingaspjöldum og bæklingum á ensku á hótel, í ferðamannaíbúðir og íbúðarhverfi. „Blóðbflum“ er komið fyrir þar sem mest er um ferðamenn. Það er álit spænskra lækna áð sumarleyfis- gestum beri siðferðileg skylda til að gefa blóð vegna jþess hversu mikilla blóðgjafa þeir þarfnast. Mest af blóðinu fer í neyðaraðgerðir á ferðamönnum Yfirlæknir blóðbankans í Ma- laga segir að mest af því blóði sem þar er notað að sumarlagi fari í neyðaraðgerðir á ferðamönnum og að of fáir Spánverjar séu reiðubún- ir að gefa blóð svo að það nægi. Að sögn yfirlæknisins gefa að- eins 20 af hverju 1000 Malagabúa blóð, sem er eitthvert lægsta hlut- fallið á Spáni. Til samanburðar má geta þess að að meðaltali gefa 50 af 1000 Breta blóð. Það dró úr blóð- gjöfum eftir að blóðgjafar í Barce- lona smituðust af eyðniveirunni. Fjórir læknar hafa verið kærðir fyrir glæpsamlega vanrækslu. Að meðaltali þarfnast 18 breskir ferðamenn læknismeðferðar á degi hverjum yfir sumarið á þrem stór- um sjúkrahúsum á Costa del Sol, tvö þeirra eru í Malaga og eitt í Marbella. Talsmaður háskóla- sjúkrahússins í Malaga, þar sem flestir bresku ferðamannanna fá aðhlynningu, segir að a.m.k. einu sinni á viku komi Breti á sjúkrahús- ið sem þarfnist blóðgjafar. Það getur verið vegna umferðarslyss, innvortis blæðinga eða bráðaupp- skurðar. Á síðustu þrem mánuðum hafa 18 Bretar slasast alvarlega og 5 verið drepnir á hinum alræmda Dauðavegi á Costa del Sol, sem bugðast 110 km leið meðfram ströndinni milli Malaga og Gíbralt- Blóðþörfin 112,5 lítrar á dag yfir sumarið Læknar gera sér vonir um að fá 2000 lítra af blóði hjá erlendum Á Costa del Sol eykst fólksfjöldi úr 1,2 milljónum í yfir fjórar milijónir yfir sumarið. Margir ferðamann- anna lenda í slysum eða þarfnast bráðra læknisaðgerða og þess vegna er mikil þörf fyrir blóðgjafir. ferðamönnum í sumar, en blóð- þörfin á Costa del Sol yfir sumarið er 112,5 lítrar dag hvem. í ágúst 1987 urðu sjúkrahús á Costa del Sol uppiskroppa með blóð og varði það ástand í viku, Úr því rættist ekki fyrr en útvarpað var neyðar- kalli til blóðgjafa. 1 júlí og ágúst eykst fólksfjöldi á Costa del Sol úr 1,2 milljón í nærri fjórar milljónir. 25.000 Bretar eru þar f frfi dag hvem yfir sumarið og tæp 100.000 þeirra búa þar að staðaldri. Á árinu 1988 komu yfir 7 milljónir ferðalanga á þessar slóðir. Blóðið sem læknamir gera sér vonir um að safna í sumar ætla þeir að geta líka notað í vetur þar sem mikill fjöldi eldra fólks af erlendu þjóðemi sem þar er búsett allt árið getur ekki gefið blóð. En læknamir taka það fram að þeir sem nota Spánarferðina fyrst og fremst til að liggja í ódým áfengi þurfi ekki að ómaka sig í „blóðbílana". „Besta blóðið fáum við úr þeim sem slappa af og njóta lífsins," segir yfirlæknir blóðbankans f Ma- laga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.