Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 17

Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 17
Laugardagur 5. ágúst 1989 GLETTUR - Ég hlýt aö geta megrað mig meö einhverjum öðrum ráöum en að minnka við mig matinn. —Jú, þeimsemurágætlega. - Alltaf þarftu að taka vitlaus- ar túbur, Jónatan. Nú hefur þú makað á þig rakkreminu í staðinn fyrir svitalyktareyði. - Ef þú getur útvegað sjón- varp og myndbandstæki tek ég herbergið. - Ef þú bara vissir hvað ég er montinn af að þú skulir vera hættur að reykja. Tíminn 29 á bílprófinu! Nýlega birtist í fréttum að kvikmyndaleikkonan Zsa Zsa Gabor, - sú frægasta af Gabor-systrunum - hefði bar- ið umferðarlögregluþjón, sem stoppaði hana í fína Rolls-Royce bílnum, vegna þess að skoðunarvottorð voru ekki í lagi, - og ekki heldur ökuskírteini leikkonunnar. Zsa Zsa kom fyrir rétt og tókust sættir í málinu, en ákveðið var að hún þyrfti að endumýja ökuskírteinið ef hún ætti að geta ekið Rollsin- um sínum. Það kostaði hana að taka ökupróf. Þann 19. júní sl. mætti svo Zsa Zsa með 8. eiginmanni sínum, þýska prinsinum Fre- deric von Anhalt, á skrifstof- una þar sem ökuleyfi voru endumýjuð og tekin skrifleg bílpróf. Fólk beið í biðröð eftir að komast að, og segir einn úr þeim hópi, að Zsa Zsa hafi strunsað fram hjá biðröðinni og sagt: „Elskurnar mínar, ég er Zsa Zsa Gabor og mér liggur svo á að endurnýja ökuskírteinið mitt. Má ég ekki bara fara fremst í röð- ina?“ Fólk lét það eftir henni og hún settist niður með prófblað. Hún var nokkuð lengi að skrifa svörin, og tautaði eitthvað um hvað þetta væm fíflalegar spurn- ingar. Stúlka kom og tók við blað- inu og ökukennari fór yfir það, - og var fljótur að fella dóminn. Daman hafði fallið. „Þetta er einhver vitleysa," sagði Zsa Zsa og fékk annað blað, en það fór á sömu leið. í þriðja sinn reyndi hún og kallaði nú á eiginmanninn áttunda sér til aðstoðar. En það var óleyfilegt, og nú fór allt upp í loft. „Ég hef ekið bílum út um allan heim, löngu áður en þú fæddist," sagði Zsa Zsa við afgreiðslu- stúlkuna, og heimtaði að hún endumýjaði skírteinið sitt eins og skot. En þá kom lögregluþjónn og yfirmaðurinn á staðnum og vísaði hjónunum á dyr. „Frúin hefur fallið þrisvar sinnum á skriflega prófinu, og verður því að Iæra betur. Það em vissar reglur sem verður að fara eftir,“ sagði hann. „Ég er ungversk. Ég bara skil ekki nógu vel enskuna, og þess vegna féll ég,“ sagði Zsa Zsa, en henni var bent á að hún hefði í yfir 40 ár búið í enskumælandi landi, svo hún væri þá í meira lagi heimsk ef hún væri ekki enn farin að læra málið, og óvíst væri hvort svo óskynsöm kona ætti að fá bílpróf! Á þessari mynd má sjá heiðursgesti með brúðhjónunum Mandy Smith og BiII Wyman, sem sitja fyrir miðju. Talið f.v. eru: Jo Wood, Shirley Watts, Patti Hansen, Jerry Hall, Keith Richards, Ron Wood, Mick Jagger og Charlie Watts. Skemmtileg mynd fyrir aðdáendur hljómsveitarinnar „The Rolling Stones“ „Rollingur“ gengur í hjónaband Hljómsveitarmeðlimir hinnar góðu og gömlu hljóm- sveitar „The Rolling Stones" voru auðvitað heiðursgestir, ásamt konum sínum, þegar Rollingurinn Bill Wyman gekk að eiga hina barnungu Mandy Smith. Þetta var ann- að hjónaband Wymans, en hjá Mandy var þetta allt nýtt, enda er hún aðeins 19 ára, en hefur þó sl. 5 ár verið kærasta Bills Wyman. Aldursmunur- inn er geysilega mikill (u.þ.b. 30 ár) og voru margir hneykslaðir þegar Bill og Mandy fóru að vera saman þar sem hún var þá aðeins 14 ára. Margir bjuggust við að Mick Jagger, fyrirliði hljóm- sveitarinnar, gengi í það heil- aga með barnsmóður og sam- býliskonu sinni, hinni fögru Jerry Hall, svo þarna yrði tvöfalt „Rolling Stones“- brúðkaup. En það varð ekk- ert af því. Jagger varð víst svo svekktur yfir skilnaðar- málunum við tvær fyrrv. eig- inkonur sínar, að hann hefur ekki lagt í það að gifta sig einu sinni enn. Þó-er sagt að sambúð þeirra Jerry og Micks sé hin besta og þau eiga tvö börn saman. Zsa Zsa við stýrið á Rolls Royce-bflnum sínum. Nú verður hún að fara að læra betur undir bflprófið, eða fá sér einkabflstjóra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.