Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 5. ágúst 1989 FRETTAYFIRLIT MOSKVA - Júrí Maslyukov yfirmaður efnahagsáætlana í Sovétríkjunum lofaði stórauk- inni framleiðslu á neysluvörum áárinu 1990 til að mætasíauk- inni óánægju sovéskraralþýðu vegna sffells vöruskorts. HÖFÐABORG - Nelson Mandela leiðtogi Afríska þjóð- arráðsins hefur lýst stuðningi sínum við mikla herferð sem í gangi er í Suður-Afríku, þar sem hvítir menn, Indverjar og litaðir eru hvattir til að greiða ekki atkvæði í þingkosningum sem þar fara fram um þessar mundir. Með því er því mót- mælt að blökkumenn hafa ekki atkvæðisrétt. Þá skýrði daa- blað á vegum stjórnarandstöð- unnar í Suður-Afríku frá því að samningamenn rikistjórn hvítra manna hafi gefist upp við að fá Nelson Mandela til ao láta af stuðningi við vopnaða baráttu gegn hvítum. Hann átti að fá frelsi sitt ef hann gerði það en Mandela hefur verið í fangelsi um áratugaskeið. TOKYO - Akihito keisari segist ekki aeta gefið yfirlýs- ingar um það hvort faðir hans Hirohito hafi borið ábyrgð á þátttöku Japana í síðari heims- styrjöldinni eður ei. Hann sagði hins vegar að þeir sem teldu að Hirohito hefoi borið ábyrgð ættu að njóta þess að málfrelsi rfkir f Japan. MOSKVA - Nærri níu og hálf milljón bænda lét lífið úr hungri og vosbúð þegar Jósef Stalin þröngvaði fram sam- yrkjubúskap í Sovétríkjunum á árunum upp úr 1930. Einn helsti mannfjöldafræðingur Sovétmanna skýrði frá þessu. RANGOON - Ríkisstjórn hersins f Myanmar sagði að Aung San Suu kyi leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem nú er f varðhaldu, væri við góða heilsu, en talsmaður ríkis- stjórnarinnar vildi ekki svara hvort hún væri í hunqurverk- falli. BELGRAD - Stjórnvöld f Júgóslavíu hafa enn einu sinni oroið undir í baráttunni við verðbólguna þrátt fyrir harka- legar efnahagsaðgerðir sínar. Verðbólgan i júlímánuði var 790%. ÚTLÖND Lausn gíslanna í Líbanon: Iranar heita Banda- ríkjamðnnum aðstoð Ali Abar Rafsanjani forseti íran hefur heitið Bandaríkja- mönnum allri þeirri hjálp sem íranar geta veitt þeim til að fá bandaríska gísla í Líbanon leysta úr haldi og til að koma í veg fyrir að gíslarnir verði teknir af lífi í hefndarskyni fyrir rán ísraela á Sjeik Abdel-Karim Obeid, and- legum Ieiðtoga HizboUah sam- takanna. - Það er til lausn fyrir Líbanon, lausn til að frelsa gíslana, sagði Rafsanjani í ræðu eftir bænagjörð í Teheran og beindi hann orðum sín- um til bandarískra stjórnvalda. - Takið skynsamlega afstöðu og við munum veita hjálp til að leysa vandamálin svo að fólk á þessu svæði megi lifa í friði og í vináttu, sagði forsetinn. Rafsanjani sagði í þessari fyrstu ræðu sinni um utanríkismál eftir að hann tók við forsetaembættinu á fimmtudag, að það væri rangt af Rafsanjani, hinn nýi forseti Iran, hefur heitið Bandarikjunum aðstoð við iausn gísla í Líbanon. Á borði hans er mynd af Khomeini erkiklerk, en Hizbollah-samtökin sem halda gíslunum sækja eldkraft sinn í túlkun hans á Kóraninum. Bandaríkjamönnum að reyna hem- aðarlegar lausnir á gíslamálinu í Líbanon. - Þið getið ekki leyst nokkurn skapaðan hlut með ógnunum og hrokafullum tilboðum, sagði Rafs- anjani í ræðunni sem útvarpað var í byltingarútvarpinu í Teheran. Bandarísk herskip em enn í víg- stöðu kringum Líbanon og við íran. Fréttir herma að George Bush hafi verið búinn að ákveða að gera árásir á stöðvar Hizbollah samtakanna í Líbanon ef bandaríski gíslinn Jos- eph Cicippio yrði tekinn af lífi. Hins vegar hafa hinir öfgafullu mannræn- ingjar frestað aftökunni um óákveð- inn tíma á meðan leitað er friðsam- legra leiða í gísladeilunni. Er talið næsta víst að íranar hafi lagt mikla áherslu á að Cicippio yrði ekki tekinn af lífi, því Rafsanjani er það kappsmál að bæta samskiptin við erlend ríki svo íranar geti byggt upp efnahagslíf sitt að nýju úr rústum þeim sem sjö ára stríð við íraka skyldi eftir sig. ísraelskir ráðamenn em nú von- betri en áður um að lausn náist í gíslamálinu. Þeir hafa boðist til að sleppa Obeid og fjölda annarra Shíta sem em í haldi í Israel í staðinn fyrir þrjá ísraelska hermenn og alla vest- ræna gísla sem í haldi em í Líbanon. Sovétríkin: Nýi umhverfis- málaráðherrann ekki kommúnisti Sovéska þingið hefur kosið nýj- an umhverfismálaráðherra og á hann að leiða Umhverfismála- nefnd sovéska ríkisins í baráttunni fyrir mengun, en umhverfismál eru eitt af helstu baráttumálum Gor- batsjofs ef marka má ummæli hans. Það merkilega er að hinn nýi umhverfismálaráðherra Sovétríkj- anna, Nikolai Vorontsoi, er ekki meðlimur í kommúnistaflokknum. Er þetta í fyrsta skipti sem utan- flokksmaður hlýtur svo háa stöðu í Sovétríkjunum. Nikolai Vorontsoi er lfffræðing- ur, meðlimur í sovésku vísindaaka- demíunni og situr á þingi fyrir hönd akademíunnar. í fyrstu ræðu sinni eftir að þingið hafði kjörið Vorontsoi í hina nýju stöðu krafðist hann algerrar pere- strojku, eða enduruppbyggingu efnahagslífsins og að innan þeirrar perestrojku yrðu umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Vorontsoi á fyrir höndum mikið og erfitt starf, því umhverfismál hafa verið vægast sagt í lamasessi í Sovétríkjunum. Undanfarið hafa sovésk dagblöð nær daglega verið að afhjúpa slæmt ástand í umhverf- ismálum í Sovétríkjunum. Sri Lanka: Afram blóðbað Að minnsta kosti tuttugu manns voru drepnir í óöldinni á Sri Lanka síðastliðinn sólarhring. Á meðal hinna látnu er háttsettur búddamunkur. Herinn á Sri Lanka skýrði frá þessu í gær. Talsmaður hersins sagði að vinstri sinnaðir skæruliðar hefði skotið hinn 72 ára gamla búdamunk, Kotikaw- atte Sadhatissa til bana, en hann var æðstiprestur í Kolonnawa hofinu sem er 10 km utan við Colombo höfuðborg Sri Lanka. Þjóðfrelsisfylkingin á Sri Lanka hvatti til allsherjarverkfalls í landinu til að mótmæla því að herlið 45 þúsund manna herlið Indverja skuli ekki hypja sig á brott í samræmi við óskir yfirvalda. Stræti voru auð, verslanir og skrifstofur voru lokaðar og almenningssamgöngur lágu niðri. Annars er þetta í eina skiptið sem hin vinstri sinnaða Þjóðfrelsisfylking tekur afstöðu með ríkisstjóminni því takmarkið er að fella stjórnina og ná völdum. Kennir lögreglan skæmliðum Þjóðfrelssifylkingarinn- ar um morðin tuttugu. Alls hefur Þjóðfrelsisfylkingin drepið um 2750 stjómmálamenn, öryggislögreglumenn, embættis- menn og aðra andstæðinga sína í borgarastyrjöldinni sem ríkt hefur á suðurhluta Sri Lanka undanfarin tvö ár. Indverjar og ríkisstjóm Sri Lanka mistókst að ná samkomulagi um brotthvarf indverska herliðsins frá Sri Lanka og lausn á uppreisn Tam- íla í norðurhluta eyjarinnar. Því virðist áframhaldandi blóðbað ætla að herja á íbúa Sri Lanka. Muammar Gaddafi breytir menningarsögu Bretlands svo um munar: Shakespeare var arabískur sjeik Muammar Gaddafi, hinn sérstæði leiðtogi Líbýu, hefur nú sett fram sérstæða kenningu sem, ef rétt væri, byltir menningarsögu Bretlands. Muammar stendur fast á þeim fótunum að þjóðarleikrita- skáld Englendinga, WiIUam Shakespeare, hafi ekki verið enskur frekar en hottintottarnir í Afríku. Gaddafi staðhæfir að hið raun- vemlega nafn Shakespeares hafi ver- ið Zubayr og að maðurinn hafi verið arabískur sjeik. Sjeik-Zubayr hafi ummyndast í Shakespeare á enskri tungu. Þetta kom fram í viðtalsþætti sem byltingarútvarpið í Teheran út- varpaði um síðustu helgi. - Ég datt nærri út af stólnum mínum, sagði Ron Mall, einn þeirra Englendinga sem heyrðu útvarps-' sendingar írana á ensku þar sem skýrt var frá kenningu Gaddafis. Þessi kenning hefur hleypt hlandi fyrir hjörtu breskra menningarjöfra sem þykir illilega að Englendingum vegið með þessari nýstárlegri kenn- ingu. - Þetta er helber þvættingur, sagði Dr. Leví Fox framkvæmdastjóri „Shakespeare Centre" í Stradford, heimabæjar Shakespeares, nema það hafi verið sjeik Zubayr. Aðstoðarmaður Levís er einnig sármóðgaður: - Þetta er hlægilega vitlaus kespeare var ekki ensk- ur - heldur arabískur sjeik. Það fullyrðir Muammar Gaddafl að minnsta kosti. kenning, sagði Roger Pringle þegar hann frétti af kenningu Gaddafís. Þetta mun reyndar ekki í fyrsta sinn sem Gaddafí setur fram þessa skemmtilegu kenningu sína. Þing- heimur í Túnis fékk að heyra hana í desembermánuði síðastliðnum þeg- ar Gaddafí ávarpaði þingið og lýsti því hvemig Arabar kenndu Evrópu- mönnum læknisfræði og lyfjafræði, almanaksfræði, stjörnufræði og bók- menntir. - Sjeik Zubayr bin Villiam var Shakespeare. Shake kemur af sjeik, sagði Gaddafí og hló þegar þing- heimur í Túnis hló og klappaði fyrir honum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.