Tíminn - 05.08.1989, Qupperneq 9

Tíminn - 05.08.1989, Qupperneq 9
Laugardagur 5. ágúst 1989 Tíminn 9 Sigurður Viggósson stjórnarformaður Hraðfrystihúss Patreksfjarðar: Ekki spurning um aðstoð heldur það sem okkur ber Fyrir viku ákvað stjórn Hraðfrystihúss Patreksjarðar hf. að lýsa fyrirtækið gjaldþrota. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að Hlutafjársjóður hafnaði beiðni for- svarsmanna fyrirtækisins um aðstoð. Ljóst er að gjald- þrot þessa fyrirtækis, sem á eina frystihús staðarins og tvö skip sem samtals hafa yfir að ráða rúmum helmingi kvótans á staðnum, getur skipt sköpum fyrir byggðar- iagið. Sigurður Viggósson stjórnarformaður Hraðfrystihúss Patreksfjarðar og oddviti hreppsnefndar Patrekshrepps er í helgarvið- tali Tímans að þessu sinni. Sigurður hefur verið í sviðsljósinu undanfarna daga, nú síðast vegna þess að hann ásamt fleiri forsvarsmönnum sveitarfélagsins og fyrir- tækja í útgerð og fiskvinnslu á Patreksfirði gerðu sér ferð til Reykjavíkur til að funda með stjómvöldum og fulltrúum opinberra stofnana. Á þeim fundum hefur verið leitað leiða til að halda skipum og kvóta í heima- byggð þrátt fyrir gjaldþrot hraðfrystihússins. - Nú var tap á frystihúsinu þegar það tók til starfa á árinu 1980 vegna langs byggingar- tima og mikils ijármagnskostnaðar. Hafið þið verið í stöðugum taprekstri? „Nei, það hefur komið eitt og eitt ár þar sem hefur verið hagnaður en þegar frystingin er rekin næstum alltaf að meðaltali með halla um allt land þá hljóta þau fyrirtæki sem skulda mest að tapa mestu. Þetta fyrirtæki skuldaði og skuldar enn mikið fé. Ein ástæðan fyrir þessu öllu er sú að það er hefð á íslandi að sjávarútvegsgreinamar skuli reknar með tapi. Stjómvöld ráða flestum þáttum í umhverfi rekstrarins eins og til dæmis genginu sem segir til um það hvort tekjur em nægilega miklar í fyrirtækj- unum. Stjómvöld ráða einnig vöxtunum og það em í rauninni stjómvaldsákvarðanir á hverj- um tíma sem segja mest til um það hvemig afkoman er í þeim greinum atvinnulífsins sem oft em nefndar undirstöðugreinar. Það er semsagt orðið viðurkennt af hálfu stjóm- valda að það skuli alltaf vera neikvæð rekstrarafkoma að meðaltali í rekstri sjávar- útvegsfyrirtækja og það virðist sem að þessu eigi ekki að breyta.“ Offjárffesting? - Nú hljóta einhverjir að álykta sem svo að það hafi verið um oMjárfestingu eða óstjóm að ræða í fyrirtækinu úr því að svona fór. Hvað viltu segja um þetta? „Miðað við aðstæður í dag þá verður það að viðurkennast að það er offjárfesting í húsnæði frystihússins. Aftur á móti þegar ákveðið var að byggja frystihúsið var það gert með tilliti til þeirra aðstæðna sem þá vom og menn héldu að væm að skapast. Á þessum tíma var verið að færa út landhelgina og þá var spáð vemlegri aukningu í afla. í framhaldi af því var frystihúsaáætlun stjóm- valda gerð til að taka við og fullvinna allan þann afla sem bættist við. Ég held að það hafi því í sjálfu sér verið rétt ákvörðun á þeim tíma að reisa frystihúsið. Það er með þetta eins og svo margt annað að íslendingar em stundum stórtækir í öllu sem þeir gera. Varðandi óstjóm í fyrirtækinu þá er það erfitt fyrir mig sem stjómarformaður í fyrirtækinu að dæma um það. Aftur á móti veit ég af reynslu þessara fjögurra ára sem ég hef verið f stjóm og stjómarformaður að það er mjög erfitt að stjóma fyrirtæki svo vel sé sem ekki er í rekstrarhæfu ástandi, þ.e. hefur ekki nægilega sterka rekstrar- stöðu. Það er ljóst að það hafa oft verið famar dýrar leiðir þegar vantað hefur pen- inga. Það er dýrt að vera fátækur eins og máltækið segir.“ - Hvemig hefur þá fyrirtækinu verið haldið gangandi á undanförnum áram? „Taprekstrinum hefur annars vegar verið mætt með lántökum og auknu hlutafé og á sfðasta eina og hálfa ári þar sem hefur verið langmesta tapið frá upphafi þá hafa menn hreinlega tekið sjálfir lán. Eigendumir hafa lánað fyrirtækinu þar á meðal Sambandið." - Hvert var tapið á þessu mikla taptímabili sem þú talar um að hafi verið frá hausti 1987 og út árið ’88? „Fastgengisárið slæma, sem var ein mestu mistök í stjórnun á atvinnumálum lands- byggðarinnar, var yfir 150 milljóna króna tap hjá fyrirtækinu. - Þetta var banabiti fyrirtækisins." - Þegar Hlutafjársjóður gaf ykkur nei- kvætt svar sem í raun var rothöggið fyrir ykkur, hver vora þá rök sjóðsins fyrir þeirri ákvörðun? „Það komu ekki fram nein rök fyrir neituninni. Rökin em þó þau að það em þrír aðilar sem hafa um það að segja hvort hlutafé verður lagt fram í fyrirtæki eða ekki. Þeir em Byggðastofnun sem gaf jákvætt svar í júní, það er Fiskveiðasjóður sem hafnaði þátttöku 11. júlí og það held ég að hafi ráðið úrslitum varðandi ákvörðun Hlutafjársjóðs því Landsbankinn mun ekki hafa viljað fara aðra leið en Fiskveiðasjóður. Eftir að þessi staða var komin upp hafði Hlutafjársjóður enga aðra möguleika í stöðunni en að hafna málaleitan okkar þar sem hann hefur ekkert eigið fé. Þessi sjóður virkar ekki almennilega nema hann fái eigið fé til að spila úr. Þar kemur ríkisvaldið inn í og það má segja að við séum óbeint að stuðla að því með þeim viðræðum sem við höfum átt við ráðamenn. Einn tilgangur sjóðsins er að koma inn í fyrirtæki eftir gjaldþrot en það ákvæði virkar ekki vegna peningaleysis sjóðsins." - Hver er þá reynsla ykkar af þessum sjóðum, sem kallaðir hafa verið björgunar- aðgerðir, nú biðu þið í tíu mánuði eftir að fá úrlausn ykkar mála? „Það var orðið ljóst síðla hausts 1987 hvert stefndi í rekstri fyrirtækisins. Þá strax vöktum við athygli á því hvað var að gerast og fórum fram á að gripið yrði til ráðstafana. Sú ríkisstjóm sem þá var, fastgengisríkis- stjómin, var alltaf með yfirlýsingar um það að nú ætti að fara að grípa til ráðstafana. Það var þó ekki fýrr en um haustið, eftir stjórnarskiptin, að við fáum harðari afstöðu stjómmálamanna um að það muni verða gripið til ráðstafana. Það kemur meðal annars fram í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar að settir skuli á fót fyrmefndir sjóðir til að bæta fyrirtækjum í útflutningi það mikla tap sem þau urðu fyrir vegna stefnu fyrrverandi ríkisstjórnar m.a. í gengismálum. Síðan leið bara svo langur tími þar til þessir sjóðir tóku til starfa." Tíu mánaða bið „Þegar það er orðið neyðarástand í grein- inni þá þýðir ekki að bíða í tíu mánuði eftir lausn. Það hlýtur að þýða að einhverjirfalla. Menn hafa spurt sig hvort það hafi verið ætlunin að þjóna einhverjum hagfræðikenn- ingum með því að láta einhver fyrirtæki fara á hausinn. Ég hef grun um það að sú hafi verið raunin. Samkvæmt ákveðnum hagfræðikenning- um þurfa fyrirtæki að fara á hausinn reglu- lega og menn hafa viljað sjá í þessari grein eitt til þrjú fyrirtæki fara á hausinn, með því væri búið að fullnægja þeirri reglu sem hagfræðikenningar kveða á um. Þetta er gert til að þjóna hagsmunum hagspekinga sem em áskrifendur að launum sínum og hafa væntanlega aldrei unnið við útflutning eða við framleiðslugreinar og þessvegna aldrei áttað sig á því að til þess að reka fyrirtæki þá þurfa skilyrðin að vera í lagi.“ - Hvar eru þessir hagspekingar í þjóðfé- laginu? „Það em þeir sem ráðleggja ríkisstjómum það að hægt sé að skera tekjur af útflutnings- greinunum. Sú hagfræðikenning er uppi að markaðurinn skuli ráða og ég get alveg fallist á slík sjónarmið. Það þýðir þó ekki að segja okkur sem búum út á landi að markaðurinn skuli ráða á einn veg. Við þurfum ekki einhvem Seðlabanka til að segja okkur það að krónan skuli skráð á einhverju tilteknu verði þegar við vitum að hún er minna virði en þar stendur. Það kostar ákveðið að framleiða útflutnings- vömna og menn verða að fá það framleiðslu- verð fyrir hana. Frelsið á íslandi í dag felst í því að þeir sem eyða fjármunum hafa frelsi en hinir ekki. Hér gildir frelsið til að eyða. Vandamál þessarar þjóðar byggist á því að menn eyða alltof miklu. Þeim er hampað sem stuðla að eyðslu en ekki þeim sem stuðla að spamaði og öflun tekna.“ - Staðan ■ málefnum Patreksljarðar í dag? „í þessari ferð til Reykjavíkur höfum við rætt við ýmsa aðila í stjómkerfinu. í fyrsta lagi var könnunarfundur með þremur ráð- herrum ríkisstjórnarinnar. í framhaldi af honum áttum við fund með þingmönnum Vestfjarðakjördæmis. Einnig ræddum við við stjómarformann og forstjóra Byggða- stofnunar, einnig forsvarsmenn Atvinnu- tryggingasjóðs. Það sem er framundan er að tryggja það að skipin þrjú sem við emm að missa eða höfum misst haidist í heimabyggð. Sveitarstjómin hefur staðið að stofnun hlutafélags sem hefur þetta að markmiði og hefur leitað eftir samvinnu við fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki á staðnum. Við munum reyna að safna nægilegu eigin fé til kaupa á skipunum. Þetta er stórt dæmi en ég vil að það komi fram að sú fyrirgreiðsla sem við förum fram á er ekki meiri en sambærileg byggðarlög hafa fengið úr þessum opinbem sjóðum. Fyrsta skrefið er að kaupa skipin og síðan verður tíminn að leiða í ljós hvort hægt verður að opna frystihúsið aftur. Við teljum að það sé hægt að vinna afla þessara skipa á staðnum án þess að opna frystihúsið aftur fyrst í stað.“ - Hvað þurfið þið að safna miklu fjár- magni? „Það er erfitt að segja til um það. Skipamarkaðurinn er harður f dag vegna kvótakerfisins. Tryggingaverð þessara þriggja skipa sem em, Sigurey og Þrymur sem eru í eigu frystihússins og Patrekur sem seldur var Fiskveiðasjóði á nauðungarsölu 22.júní, er um 500 milljónir. Ef við gefum okkur að það þurfi 30% eigið fé í útgerð í dag til að hún beri sig þá þýðir það að við þurfum að safna 150 milljónum króna. Annars er erfitt að negla niður ákveðna tölur í þessu sambandi.“ Reykvíkingar ráða íslandi - Af hverju á að veita byggðarlagi eins og Patreksfirði einhverja aðstoð eins og málum er nú orðið háttað? „í fyrsta lagi teljum við að það sé verið að skila okkur aftur því sem af okkur var tekið, meðal annars með rangri gengisskráningu og okurvaxtastefnu. Við tókum ekki ákvörð- un um frystihúsaáætlunina, gengisstöðvun- ina eða okurvaxtastefnuna. Þjóðin hlýtur að skulda okkur eitthvað af því sem tekið hefur verið af okkur. Ég held líka að Patreksfjörð- ur sem hefur verið mjög stór útgerðarstaður frá því um aldamót sé búinn að skila margfalt því verðmæti sem við erum að reyna að fá lánað í dag. Þannig að þetta er ekki spurning um það hvort verið er að aðstoða okkur, heldur það hvað þjóðin ætlar að skila miklu af því sem er búið að eyða í steinsteypu og aðra eyðslu í fleiri ár. íbúar Patreksfjarðar eru eitt þúsund tals- ins og þar er mikil þekking á sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða og þar er búið að byggja upp vinnslutæki, íbúðarhúsnæði og þjónustustarfsemi. Það hlýtur að vera ódýr- ara fyrir þjóðfélagið að veita örlitlu af fjármagninu til baka heldur en að segja íbúuum Patreksfjarðar að flytja á mölina. Meginhluti þess fólks sem býr þama vill vera þar áfram og elur ekki með sér þann draum að fara til Reykjavíkur. í framhaldi af þeim vandamálum sem við erum að glíma við núna verður hugsanlega eitthvað rólegra yfir atvinnulífi á Patreksfirði í eitt eða tvö ár. En vegna þess hve staðurinn hefur marga möguleika þá mun hann halda sínu og vel það. Best af öllu væri ef við fengjum að vera sjálfstæðari og fengjum að vera í friði með það sem við öflum. Að það séu ekki einhverjir háir herrar, eintómir Reykvíking- ar, sem ákveða hver lífskjör okkar eru. Hvort við skulum settir af eða ekki. Það er alveg orðið ljóst að íslandi er stjómað af Reykvíkingum en ekki landsbyggðarfólki. Fjölmiðlar segja sumir hverjir að við höfum farið til Reykjavíkur til að sníkja peninga hjá ríkisvaldinu. Ferðin var farin til að kanna hvort stjómvöld ætla að stjórna þessu eður ei. Þegar við leitum til Reykja- vfkur emm við að fara þangað sem valdið er og þangað sem fjármagnið hefur streymt undanfarna áratugi. Vissulega er verið að reyna að setja okkur á kné og þess vegna verðum við að fara þessar hungurgöngur til Reykjavíkur. Éf ekki fer að rétta við hagur landsbyggð- arinnar á flestum sviðum mannlffsins þá er ljóst að það verður að grípa til ráða sem menn skilja. Það er mikil þreyta í forsvars- mönnum bæði sveitarfélaga og fyrirtækja víða um land að þurfa alltaf að ganga á fund ráðamanna suður í Reykjavík. Ég held að krafan hljóti að vera sú að við fáum meira um okkar mál segja og að afskipti misviturra manna ráði ekki lífi eða dauða sjávarþorp- anna. Það þarf að koma til stjórnskipuleg breyt- ing með auknu sjálfræði sveitarfélaga eða landshluta. Fólk sem býr út á landi veit hvað er því fyrir bestu.“ Sigrún S. Hafstein L

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.