Tíminn - 05.08.1989, Page 13

Tíminn - 05.08.1989, Page 13
Laugardagur 5. ágúst 1989 Tíminn 25 II MINNINS II.11.. Jóhann Lárus Jóhannesson Fæddur 20. maí 1914 Dáinn 31. maí 1989 Hryggur í huga vegna hins skyndi- lega fráfalls Jóhanns á Silfrastöðum set ég hér á blað nokkur minningar- korn úr hans lífi. Nokkrum dögum áður en Jóhann dó átti ég samtal við hann. Hann var glaður og hress að vanda. Andlát hans var því fullkomið reiðarslag allra er þekktu hinn vin- sæla sveitarhöfðingja. Enn sannaðist hér sem fyrr, „að hvenær sem kallið kemur, kaupir sér enginn frí“. Það er mín trú að hér sé að verki æðri hönd er stýri okkar fetum meir en margur hyggur. Árið 1923, að mig minnir, er ég staddur í Silfrastaðarétt við að hirða kindur mínar úr fyrstu göngum. Allt í einu sé ég á bakið á frekar háum og grönnum manni, er leiðir dréngi sitt við hvora hönd. Ég hafði ekki séð þessa þrenningu áður, en skyndi- lega snýr maðurinn sér við og dreng- imir líka, og þykist ég þá vita að þetta muni vera Jóhannes í Uppsöl- um og synir hans Jóhann Láms og Broddi. En hvað var einkennilégt við þessa sýn, sem varð til þess að ég hætti um stund að draga mitt fé og starði sem bergnuminn á þessa þrenningu? Augnablikið lifir enn í huga mínum þótt 66 ár séu liðin síðan þetta var. Það sem vakti athygli mína, var hinn glæsilegi og traustvekjandi faðir er leiddi litlu drengina sína. Föðurástin skein úr augum hans og tillit drengjanna er litu upp til pabba síns, úr augum þeirra skein öryggiskennd og bams- leg gleði. Vegna þessa augnabliks, sem aldrei hefir farið úr huga mínum, hefir oft vaknað sú spurning, hvað valdið hafi þessari geymd hugans öll þessi ár. Svarið hefir aðeins orðið eitt, sameining þriggja sálna, sem sýndi kærleika þeirra allra hver til annars. Það er meir en margur hyggur, hvað eitt hlýtt augnatillit og traustvekjandi handtak getur skilið eftir í hugum ungra sem aldna. Skyldi kærleiks- streymið úr augum föðurins og hönd kannski hafa fylgt Jóhanni til síðustu stundar og gert hann að því göfug- menni sem hann var. „Aldrei deyr þótt allt um þrotni, endurminning þess sem var.“ En það var ekki lengi sem föðurhöndin leiddi þessa litlu drengi. Faðir þeirra deyr, þegar þeir em sjö og níu ára gamlir. Hættir þá Ingibjörg móðir þeirra búskap á Upp- sölum. Jóhann fylgdi móður sinni, en Broddi fór til Helgu Sigtryggsdóttur á Framnesi og undirritaðs. Ingibjörg stundaði bamakennslu all lengi og Jóhann naut kennslu hennar til ferm- ingar. Eftir það fór hann á Mennta- skólann á Akureyri og varð stúdent þaðan 1935. Eftir stúdentsprófið fer Jóhann til Danmerkur og stundar nám f Hafnarháskóla í 4 ár og las stærðfræði. Jóhann var frábær náms- maður. Er Jóhann kom heim gerðist hann kennari við Menntaskólann á Akureyri. Þann 25. júní 1948 giftist Jóhann Helgu Kristjánsdóttur frá Fremsta- felli í Köldukinn, glæsilegri gáfu- konu. Ég held að þeirra sambúð hafi verið, frá fyrstu stund til þeirrar síðustu, samfelld sólarganga. Er hér var komið gerðist það að Jóhannes Steingrímsson bóndi og oddviti á Silfrastöðum vill hætta búskap. Mun hann hafa leitað til Jóhanns að taka við jörð og búi á Silfrastöðum. Jóhann hafði verið öll sumur kaupamaður á Silfrastöðum á meðan hann var í skólaog því öllum hnútum kunnugur þar. Jóhann og Helga flytja að Silfrastöðum og hafa búið þar síðan, nú síðast ásamt syni þeirra Jóhannesi. Jóhannes Steingrímsson var oddviti og hreppstjóri Akrahrepps í mörg ár. Gegndi hann þeim störfum í Skagafirði með þeim ágætum að vart var á betra kosið. Jóhannes var frábær sómamaður á alla lund. Nú tók Jóhannes að eldast og vildi fara að losa sig við hin erfiðu sveitarstjóm- armál. Pá vöknuðu Akrahreppsbúar upp við vondan draum. Hver skyldi vera fær um að setjast í sæti Jóhann- esar? Ég var búinn að vinna með Jóhannesi svolítið að sveitarstjórn- armálum, og mér var ljós sá vandi sem var fyrir höndum, að velja mann til slíkra starfa. Við nánari athugun, að öllum hreppsbúum ólöstuðum, sá ég engan sem líklegri væri til að setjast í sæti Jóhannesar en Jóhann Lárus. Til þess lágu ýmsar ástæður. Fyrst og fremst var Jóhann betur menntaður en nokkur annar hreppsbúi. í annan stað gáfað prúðmenni sem ég treysti fyllilega til að leysa þessi störf vel úr hendi. Ég fór því fram á það við Jóhann að hann tæki sæti í hreppsnefnd, með það fyrir augum að verða oddviti. Jóhann var í fyrstu tregur til þessara starfa, en lét þó tilleiðast að lokum. í meira en aldarfjórðung var Jó- hann oddviti Akrahrepps, með þeim ágætum að vart verður á betra kosið. í Jóhanni var sameinað flest það er einn mann má prýða. Glæsilegt útlit, er geislaði af góðvild og hlýju. Strangheiðarlegur maður, traustur sem bjargið og friðelskandi góð- menni. Þannig var Jóhann ætíð í mínum huga og ég held allra sem þekktu hann best. Nú ertu horfinn yfír móðuna miklu. „Vantar nú í vinahóp, völt er lífsins glíma. Þann sem yndi og unað skóp, oss fyrir skemmstum tíma.“ Akrahreppsbúar lúta höfði í söknuði og í virðingu fyrir hinu látna göfugmenni. í mín- um huga mætti segja um Jóhann, þótt í smærri stíl sé, og sagt var um Jón Sigurðsson: „Jóhann var sómi Akrahrepps, sverð hans og skjöldur. í sorg þinni Helga mín, áttu að minnast allra þeirra sólskinsstunda, sem þú áttir með Jóhanni. Slíkar stundir hljóta að eyða döprum skuggum. Ég held að allir Ákra- hreppsbúar hljóti að sameinast um að senda þér hlýjar hugsanir, með þakklæti fyrir stuðning þinn við Jóhann í erfiðu starfi, og framlag þitt til menningarmála. Kraftur slíkrar hugsunar ætti að geta lyft þér yfir hinn erfiða þröskuld, sem þú stendur við nú. Ég kveð þig svo Jóhann, með þakklæti fyrir alla þá fyrirmynd sem þú varst bæði mér og öðrum, og fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína. Kannski föðurhöndin sem leiddi litla drenginn í réttinni forðum, leiði þig nú í landi þar sem kærleikurinn einn ríkir, í Guðs friði. Bjöms Sigtryggsson, Framnesi. Hey til sölu Nýtt vélbundið hey til sölu. Upplýsingar í síma 93-41550, á kvöldin. Launaskrifstofa ríkisins Nýtt símanúmer Launaskrifstofa ríkisins fær nýtt símanúmer. 60 93 00 frá og með þriðjudeginum 6. ágúst n.k. t Eiginmaður minn Óskar Guðmundsson fyrrum bóndi á Brú, Biskupstungum, siðast til heimilis aö Traðarkotssundi 3 sem andaðist 29. júlí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 9. ágúst kl. 13,30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Gufunesi. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Landakotsspítala. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarna- barna, Marta Einarsdóttir. Auglýsing frá Menningarsjóði útvarpstöðva um styrki úr sjóðnum í reglugerð sjóðsins, nr. 69/1986, segir: „Hlutverk Menningarsjóðs útvarpsstöðva er að veita íslenskum útvarpsstöðvum framlög til efling- ar innlendri dagskrárgerð, þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu. Það telst innlend dagskrárgerð ef íslenskur aðili hefur forræði á gerð dagskrár og dagskrá er gerð til flutnings í útvarpi, hljóðvarpi eða sjónvarpi, hér á landi.“ „Framlög úr Menningarsjóði útvarpsstöðva skulu einvörðungu veitt útvarpsstöðvum. Framlög má bæði veita vegna dagskrárgerðar viðkomandi útvarpsstöðvar sjálfrar og vegna kaupa útvarps- stöðvar á efni til flutnings frá öðrum innlendum aðilum sem annast dagskrárgerð.“ Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum fyrir 28. ágúst 1989 til ritara sjóðsins, Baldvins Jónssonar, hrl., Kirkjutorgi 6. 101 Reykjavík. Stjórn Menningarsjóðs útvarpsstöðva. Sumartími: Skrifstofa Framsóknarflokksins, aö Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Framsóknarflokkurinn. Reykvíkingar Guðmundur G. Þórarinsson, alþm. veröur til viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóa- túni 21, miðvikudaginn 9. ágúst n.k., milli kl. 17 og 19. Verið velkomin. Fulltrúaráðið Kerlingarfjöll - Hveravellir Sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík Hin árlega sumarferð framsóknarfélaganna ( Reykjavík verður farin laugardaginn 12. ágúst nk. kl. 08.00 Lagt af stað frá BSÍ. Ekið um Óseyrarbrún, og upp Grímsnes að Geysi í Haukadal, þar sem ferðalöngum gefst kostur á að narta í nesti sitt. kl. 12.00 Verður lagt af stað frá Geysi. Stoppað verður við Gullfoss á leið inn Kjöl. Áætlað er að koma inná Hveravelli kl: 16.30. Þar mun forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson flytja stutt ávarp og fólki gefst tækifæri til þess að komast á snyrtingu og kíkja í nestispakkann sinn. kl. 17.30 Lagt af stað frá Hveravöllum til Kerlingarfjalla. kl. 19.00 Lagt af stað frá Kerlingarfjöllum til kl. 24.00 Áætlað að koma til Reykjavíkur. Leiðsögumenn verða í öllum bílum. Framsóknarfélögin í Reykjavík. Landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10. september n.k. Mætum allar. Stjórn L.F.K.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.