Tíminn - 05.08.1989, Page 20
AUGLYSiNGASIMAR: 680001 —686300
RfKISSKK>
NÚTIMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagölu,
S 28822
' 0
SAMVINNUÐANKI ISLANDS HF.
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Tíxninn
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
Aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, fyrrverandi loðdvraræktarráðunautur oq núverandi minkabóndi:
i in kal búið sl kil lar li iál Ifu
skinnaverði upp í laun
Að sögn Álfhildar Ólafsdóttur minkabónda, betur
þekktri sem aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, er
ástandið í loðdýrarækt í Vopnafirði mun betra en sú
mynd sem dregin hefur verið upp af loðdýrarækt í
landinu almennt. Álfhildur býr félagsbúi á jörðunum
Akri og Ljósalandi ásamt manni sínum, tengdaforeldrum
og mági. Að sögn hennar er loðdýrabú þeirra rekið með
hagnaði.
„Þó að við værum með fullt
fóðurverð, án nokkurs jöfnunar-
gjalds, miðað við að skinnaverð
væri óbreytt frá því sem það var
síðasta vetur, myndi fóðurkostn-
aður ekki fara langt yfir helming
af skinnaverði,“ sagði Álfhildur í
samtali við Tímann í gær. „Ég er
ekki að segja að þetta sé neinn
gósen tími núna, þetta eru auð-
vita erfiðir tímar. Launin eru
ekki há á þessu ári og menn búast
við að skinnaverð fari enn lækk-
andi. Fóðurstöðin hjá okkur
stendur þokkalega og bændur
einnig þó að það sé auðvitað
nokkuð misjafnt milli manna.
Pað bara sannast á búum sem eru
í þessari stöðu, það er að segja
hafa forðast bankana eins og
heitan eldinn og ekki tekið
skammtímalán, hvað bankavið-
skiptin eru búin að gera hinurn
loðdýrabændunum. “
En hver er skýringin á því að
betur gengur í loðdýrarækt á
Vopnafirði en annar staðar á
landinu?
Álfhildur segir að á þessu séu
ýmsar skýringar m.a. þær að
bændum hafi aldrei verið hleypt í
neinar skuldir að ráði við fóður-
stöðina og menn hafi verið vandir
á það að borga sitt fóður á
tilsettum tíma. Einnig hafi loð-
dýrabændur í Vopnafirði farið
varlegar í fjárfestingar en víða
annars staðar. Það er undarleg
þversögn að á sama tíma og
bændum í Vopnafirði gengur vel
að búa við mink, er staða loð-
dýraræktarinnar á Héraði mjög
slæm.
Félagsbúið á Akri og Ljósa-
landi er svo kallað blandað bú,
þ.e. sauðfjár-, kúa- og minkabú í
senn. „Ég bý ekki hér fyrir
sunnan, en ég sæki vinnu hingað
og fer á hálfs mánaðar fresti
austur,“ sagði Álfhildur. Hún
bætti því við að það starf sem hún
gegndi nú væri tímabundið og
gæti þess vegna tekið mjög skjót-
an endi og þess vegna ekki grund-
völlur fyrir því að flytja til
Reykjavíkur fyrir svona starf, ef
menn ætluðu sér ekki að búa þar
til frambúðar og á því hefði hún
lítinn áhuga. -ÁG
Alvarlegt
bílslys
rétt við
Blönduós
Mjög harður árekstur tveggja bíla
átti sér stað við Blönduós um hádeg-
isbilið gær. Mikil meiðsl urðu á fólki
og voru fimm manns sendir með
flugvél til Reykjavíkur, þar af voru
þrír taldir alvarlega slasaðir. Einnig
voru nokkrir fluttir á sjúkrahús á
Akureyri. Bílarnir eru báðir gjör-
ónýtir. GS
Komum næst
út þann 9.
Næsta tölublað Tímans kemur út
miðvikudaginn 9. ágúst.
Tíminn
Ljóst er að viðskiptin blómgast hjá ÁTVR fyrir verslunarmannahelgar. Þessir ætluðu ekki að verða af brjóstbirtunni og voru mættir fyrir utan verslunina
við Stuðlabáls í gærmorgun, fyrir opnun, og biðu átekta. Tímamynd: Pjetur
Verslunarmannahelgin gengin í garð:
STRAUMUR ÚR BÆNUM
Mikill straumur ferðalanga á
fólksbílum og öðrum farartækjum lá
út úr borginni í gær og var mikil
umferð á vegum landsins. Umferðin
ágerðist þegar líða tók á daginn og
var mest síðdegis.
Lögreglan reynir að stjórna um-
ferð eins og best verður á kosið um
helgina og fjórir vegaeftirlitsbílar
verða staðsettir víðs vegar um land.
Þá mun lögreglan vcrða á ferðinni
landshorna á milli í þyrlu Landhelg-
isgæslunnar. í samráði við lögreglu
mun Umferðaráð starfrækja upplýs-
ingamiðstöð og verður upplýsingum
um umferð komið á framfæri í
gegnum útvarpsstöðvar.
Mjög margir fóru í rútum frá
B.S.Í. í gær, og þá mest í gærkvöldi.
Flestir fóru í Þórsmörk. Húnaver og
til Vestmannaeyja og fleiri bætast í
hópinn í dag.
Ferðalangar ættu ekki að verða
fyrir vonbrigðum með veður. Spáð
er björtu inn til landsins, hægri
breytilegri átt en súld á annesjum
norðan og vestan lands. Að öllum
líkindum verður hlýjast á Suðaustur-
landi. GS.