Tíminn - 12.08.1989, Side 3
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn 3
„Undanfarið ár hafa verð-
Iagsforsendur fjárlaga brugð-
ist og teknar hafa verið
ákvarðanir um útgjöld án
samþykkis Alþingis á fjár-
hagsárinu, sem leitt hafa til
þess að meginmarkmið fjár-
Iaga hafa ekki náð fram að
ganga.“
Þessi orð standa í nýrri skýrslu
Ríkisendurskoðunar um fram-
kvæmd fjárlaga frá 1. janúar til 30.
júní á þessu ári. Ríkisendurskoðun
telur að nú stefni í tæplega fimm
milljarða rekstrarhalla á A-hluta
ríkissjóðs á árinu að öllu óbreyttu og
það þótt tillit sé tekið til aðgerða
sem ríkisstjórnin greip til í júlímán-
uði.
„Þetta er ekki fjarri því sem
fjármálaráðuneytið sjálft hefur áætl-
að. Þannig koma þessar niðurstöður
ekkert á óvart. Þetta staðfestir enn
einu sinni að tekjurnar eru of litlar
til að þær standi undir velferðarkerfi
okkar og svo hefur verið allan þenn-
an áratug,“ sagði Steingrxmur Her-
mannsson forsætisráðherra í gær.
Forsætisráðherra sagði að útgjöld
ríkissjóðs hefðu einkanlega aukist
verulega umfram það sem fjárlög
gerðu ráð fyrir við samningana í vor
og um það bil helmingur af halla
ríkissjóðs tengdist beint eða óbeint
kjarasamningunum. Bæði hefðu
beinar launahækkanir verið meiri en
ráð var fyrir gert í fjárlögum og
jafnframt hefðu tryggingaútgjöld
farið fram úr því sem þar var gert ráð
fyrir.
í fjárlögunum er gert ráð fyrir 636
milljóna króna rekstrarafgangi
þannig að um er að ræða verulega
breytingu. Ríkisendurskoðun hefur
komist að raun um að ástæður þessa
eru eftirfarandi helstar:
1. Nýjar útgjaldaákvarðanir sem
komið hafa til á árinu munu nema
um 2,5 milljörðum króna.
2. Útgjaldaaukning vegna gjalda
sem ekki voru fyrirsjáanleg þegar
fjárlög voru gerð og sparnaður í
ríkisrekstri sem gert var ráð fyrir í
fjárlögunum og ekki mun ná fram að
ganga nemur samanlagt 1,8 milljörð-
um króna.
3. Aukin útgjöld vegna ákvarðana
Alþingis sem ekki voru séðar fyrix
við samþykkt fjárlaga. Þessi útgjöld
munu kosta 500 milljónir.
Verðlagsforsendur fjárlaga ársins
byggðu á þvf að almennt verðlag
hækkaði að meðaltali um 14% milli
áranna 1988 og 1989, lánskjaravísi-
tala hækkaði að meðaltali um 13%
árið 1988, meðalverð erlends gjald-
eyris hækkaði um 12% á árinu 1988
og launahækkanir milli áranna í
fyna og nú yrðu á bilinu 8-9%
Nú hefur það hins vegar gerst að
áætla má að mati Ríkisendurskoðun-
ar að almennt verðlag hækki um
21% að meðaltali, sömuleiðis hækki
meðalverð á erlendum gjaldeyri frá
því sem var í fyrra um 21% og
atvinnutekjur á mann hækki um
11-12% frá fyrra ári.
Forsætisráðherra sagði að ríkis-
stjómin hefði á sínum tíma boðað
4% samdrátt í launakostnaði ríkisins
og að sönnu hefði tekist upp og
niður með framkvæmdina. Stað-
reynd væri að þótt vel hefði í þessu
tekist til á einu sviði, þá væri tilhneig-
ing til að útgjöld vildu aukast annars
staðar á móti.
Dæmi um slíkt mætti nefna sparn-
að í heilbrigðiskerfinu. Á móti hon-
um hefðu komið aukin útgjöld vegna
starfsemi lækna á einkastofum vegna
þess að fólk hefði leitað í auknum
mæli þangað. „Ég tel að í raun og
vem sé málið afar einfalt: Við ís-
lendingar höfum reist okkur hurðar-
ás um öxl, það er staðreyndin,“
sagði Steingrímur Hermannsson.
-sá
Drýgið iekjurnarí
Endurvinnslan hf. tekur við einnota öl- og
gosdrykkjaumbúðum gegn skilagjaldi.
Á móttökustöðum er skilagjaldið greitt út í
hönd. Til að flýta fyrir afgreiðslu eru menn beðnir
að flokka umbúðir og setja áldósir í einn poka,
plastdósir og -flöskur í annan og einnota gler-
flöskur í þann þriðja. Móttökustaðir eru opnir
virká daga frá mánudegi til föstudags.
Á söfnunarstöðum er tekið við óflokkuðum
umbúðum. Pær eru merktar og fluttar til Endur-
vinnslunnar í Reykjavík sem sendir eiganda ávísun
fyrir skilagjaldinu í pósti. Miðað er við að menn
safni a.m.k. 100 umbúðum í einn poka áður en
honum er skilað á söfnunarstað. Upplýsingar um
afgreiðslustað og tíma eru auglýstar á hverjum
stað.
Söfnunarstaðir:
Borgarnes
Ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Súðavík
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós
Skagaströnd
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Búðir
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Kirkj ubæj arklaustur
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Hveragerði
Laugarvatn
Stokkseyri
Þorlákshöfn
Grindavík
Endurvinnsla stuðlar að hreinna umhverfí,
heilbrigðara verðmætamati og er auk þess dágóð
búbót fyrir duglega safnara.
[HOmiHHSlAH Hf
Nýtt úr notuðu
Mótlökustaðin
Reykjavík: Dugguvogur 2, opið kl. 13-18.
Við Jaðarsel (hverfisstöð Gatnamálastjóra), opið
kl. 13-18.
í skemmu við Eiðisgranda, opið kl. 13-18.
Kópavogur: Við Fífuhvammsveg, opið kl. 13-18.
Hafnarfjörður: Vinnuskóli við Flatahraun, opið
kl. 13-18.
Akranes: Smiðjuvellir 3, opið kl. 9-12.
ísafjörður: Hjallavegur 11, opið kl. 20-22.
Akureyri: Við KA-heimilið, opið kl. 13-18.
Vestmannaeyjar: Kaupfélag Vestmannaeyja, opið
á verslunartíma.
Selfoss: Vörumóttaka Kaupfélags Árnesinga, opið
kl. 13-17:30.
Keflavík: Iðavellir 9B, opið kl. 14-18.
í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að halli ríkissjóðs verði um fimm milljarðar á
árinu. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Þjóðin hefur reist
sér hurðarás um ðxl