Tíminn - 12.08.1989, Qupperneq 5
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn 5
Verðbólgan í áfengi,
tóbaki og utanferðum
Verðhækkun tóbaks, áfengis og utanlandsferða hafði samanlagt
hehningi meiri áhrif á verðbólguna milli júlí og ágúst heldur en t.d.
samanlagðar verðhækkanir á öUum matvörum. Vísitala framfærslu-
kostnaðar hækkaði um 1,4% miUi júlí og ágúst. Þar af voru 0,4%
vegna verðhækkana á matvörum, en 0,3% vegna tóbaks/áfengis og
0,3% vegna verðhækkana á utanlandsferðum. Hins vegar lækkaði
vísitalan um 0,2% vegna vaxtalækkunar. S.I. tvo mánuði hafa
verðhækkanir verið töluvert minni heldur en á fyrri hehningi þessa
árs.
Síminn ekki hækkað
í heilt ár
Framfærsluvísitalan hefur hækkað
um 17,6% á heilu ári. Það þýðir með
öðrum orðum að verðlag þeirra
vörutegunda og þjónustu sem
mynda vísitölugrundvöllinn hefur
hækkað um 17,6% að meðaltali.
Einstakir liðir hafa aftur á móti
hækkað mjög mismunandi. T.d. hef-
ur verð á sykri hækkað um 110%
þetta eina ár, á kartöflum um 51%,
rekstur einkabílsins um 29% en
símagjöldin hafa ekkert hækkað á
heilu ári.
„Ódýru" innfluttu
kartöflurnar?
Verð á matvörum hefur hækkað
aðeins minna en vísitalan í heild,
16,9% á einu ári, en aftur á móti
mjög mismunandi. Metið er 110%
hækkun á sykri. Þá er athyglisvert að
innfluttar kartöflur eru nú 51% dýr-
ari heldur en þær íslensku voru í
ágúst í fyrra. T.d. hefur kartöfluverð
hækkað um rúmlega 12% bara s.l.
mánuð.
Það er meiri hækkun heldur en
orðið hefur á kjöti á heilu ári. Kjöt
og kjötvörur hækkuðu ekkert s.l.
mánuð og eru nú aðeins 11,7%
dýrari að meðaltali heldur en í ágúst
í fyrra. Og svipað má segja um
grænmeti og ávexti sem nú eru á
10,5% hærra meðalverði en fyrir ári
(skýrir kannski minnkaða kartöflu-
sölu?). Verð annarra matvæla hefur
hækkað á bilinu 14-19% á ári.
Þá kemur það kannski einhverjum
á óvart að búvörur háðar verðlags-
grundvelli hafa hækkað talsvert
minna í verði (14,4%) undanfarið ár
heldur en aðrar innlendar matvörur
(17,6%) og sömuleiðis heldur en
innfluttar (21,6%), samkvæmt mæl-
ingum Hagstofunnar.
Útgjöld nautnamanna á tóbak og
áfengi hafa hækkað töluvert meira,
undanfarið ár (27-28%) heldur en
útgjöld matmannanna.
Um 175.500 kr. á mánuði
Ársútgj öld „vísitölufjölskyldunn-
ar“ mælast 2.105.400 kr. miðað við
verðlag í ágústmánuði og mánaðar-
útgjöldin þar með 175.450 krónur.
Þau hafa hækkað úr 149.250 kr. í
ágúst í fyrra. Vegna útbreidds mis-
skilnings er rétt að taka fram að með
útreikningum á vísitölugrundvellin-
um er Hagstofan ekki að reikna út
hvað meðalfjölskyldan þarf sér til
framfæris á mánuði. Heldur aðeins
að núna í ágúst kostar rúmar 175
þús.kr. að kaupa allar þær vörur og
þjónustu sem meðalfjölskyldan
reyndist kaupa samkvæmt neyslu-
könnun sem Hagstofan gekkst fyrir
árið 1986.
í hvað fara peningarnir?
Þær sömu vörur og þjónusta sem
meðalfjölskyldan keypti í könnun
Hagstofunnar að meðaltali á mánuði
fyrri þrem árum kosta nú í ágúst sem
hér segir:____________________
Matvörur 35.600 kr.
Drykkir/tóbak 8.100 kr.
Heimilisb./bílar 30.200 kr.
Húsnæðiórka 26.100 kr.
Fatnaður 13.000 kr.
Húsmunir/tæki 13.000 kr.
Fjölmiðlar/sport 17.000 kr.
Veitingah./hótel 11.100 kr.
Póstur/sími 2.600 kr.
Heilsuvemd 5.300 kr.
Fargjöld innanl. 2.800 kr.
Skólaganga 2.300 kr.
Snyrting 3.900 kr.
Annað 4.400 kr.
Ólíklegt er að neysla nokkurrar
„alvömfjölskyldu“ skiptist nú ná-
kvæmlega eins og þessi meðaleyðsla
meðalfjölskydlu, oft nefndrar “vfsit-
ölufjölskyldu“ gerði fyrir tveim til
þrem ámm, enda líka neysluvenjur
alltaf að breytast.
Þá var t.d. ekki seldur bjór og
enginn bjórkaup því inni í vísitölu-
gmndvellinum. En nú kaupir þjóðin
um 2,5 milljónir bjóra á mánuði án
þess að hafa minnkað brennivíns-
kaupin að marki. Á móti þeim
þúsundum króna sem meðalfjöl-
skyldan nú notar til bjórkaupa verð-
ur hún því annað hvort að auka
tekjur sínar (sem líklega er mörgum
erfitt um þessar mundir) eða spara
við sig önnur innkaup á móti. Inn-
flutningstölur Hagstofunnar, sem
sýna 20-30% samdrátt í innflutningi
á t.d. húsgögnum og ýmsum raf-
magnstækjum, gætu bent til að
landsmenn hafi tekið síðari kostinn.
- HEI
HÓLA-
HÁTfÐ
Frá GuMormi Óskarssyni, Tíminn, Sauðár-
króki
Hin árlega Hólahátíð verður
haldin á morgun, sunnudag, en
hún hefur verið haldin á 17.
sumarhelgi um langan aldur.
Hólahátíðin hefst klukkan 14:00
á hátíðarguðsþjónustu, þar sem
hr.Ólafur Skúlason, biskup
íslands, prédikar. Prestar úr
Hólastifti hinu foma, sr. Hannes
Öm Blandon, sr. Ingimar Ingi-
marsson og sr. Ólafur Þ. Hall-
grímsson þjóna fyrir altari ásamt
vígslubiskupi, sr. Sigurði Guð-
mundssyni. Kirkjukór Hvamms-
tangakirkju syngur undir stjóm
Helga S. Ólafssonar, organista,
og meðhjálpari verður Valgeir
Bjarnason.
Að messunni lokinni býður
Hólanefnd messugestum öllum
að þiggja veitingar í húsakynnum
Bændaskólans. Klukkan 16:30
hefst hátíðarsamkoma í kirkjunni
með ávarpi vígslubiskups. Sr.
Hjálmar Jónsson, prófastur
Skagfirðinga, flytur hátíðarræðu
í tilefni 400 ára afmælis sálma-
bókar Guðbrandar biskups Þor-
lákssonar. Þýskur ungmennakór
syngur á hátíðinni ásamt kirkju-
kór Hvammstanga og lokaorð
flytur sr. Gísli Gunnarsson.
Unnið hefur verið að viðgerð-
um á Hóladómkirkju að utan og
að umhverfi hennar á undanföm-
um mánuðum og stefnt var að því
að ljúka verkinu fyrir Hólahátíð.
Kirkjan hefur verið múmð að
nýju og hvítmáluð, sem áður var.
Þá hafa verið lagðir stígar um
garðinn og kirkjugarðurinn hefur
verið sléttaður að mestu.
Sérverslun /- . Reióhjólaverslunin .
SS" ORNINNL
Teinaglit ..
Orugg fótbremsa
Spítalastíg 8
við Óðinstorg
Símar: 14661 og
Næstu daga gefst einstakt tækifæri til að
gera reyfarakaup í vestur-þýskum gæðahjól-
um í meirihóttar litum og ýmsum gerðum
fyrir börn og fullorðna.
Öryggishandfang með fingragripi
Vandaður 3-gírabúnaður
Auka handbremsa
DOMU:
Stærð
20“ ón gíra
24“ ón gíra
26“ án gíra
26“ 3 gíra
28“ 3 gíra
HERRA:
20“ BWX
20“ BMX
fyrir 6-9 ára
fyrir 8-12 ára
fyrir 12 ára og eldri
fyrir 12 ára og eldri
fyrir fullorðna
Staíir. xerfi
kr. 10.420,-
kr. 10.960,-
kr. 10.960,-
kr. 13.970,-
kr. 13.970,-
með fótbremsu kr. 10.540,-
með fótbremsu og öllum bún. kr. 11.650,-
Sterkur bögglaberi
20“ fjallahjól með fótbr.(götuhjól) kr. .11.760,-
26“ 3 gíra fyrir 12 ára og eldri kr. 13.970,-
28“ 3 gíra fyrir fullorðna kr. 13.970,-
28“ 10 gíra með öllum búnaði kr. 13.970,-
26“ Í8 gíra fjallahjól (götu) kr. 28.970,-
Breiðari dekk