Tíminn - 12.08.1989, Page 7
bakkans dregist upp með bygg-
ingunni, vatnið situr eftir á syll-
um og seytlar niður hrjúfa veggi
ráðhússins. Hluti tjarnarinnar
hefur brotist inn fyrir bygging-
una, inn í borgarvefinn og
endurheimt það sem af henni
var tekið við byggingu ráðhúss-
ins.
Á horni Tjarnargötu og Von-
arstrætis myndast kyrrlátt torg
við aðalinngang ráðhússins,
gengt fyrirhugaðri nýbyggingu
Alþingis. Byggingin þrengir því
hvorki að þessu mikilvæga
horni, né varpar yfir það dimm-
um skugga.
Fyrirgreiðsla og
erindisleysa
Ráðhúsið skiptist í 3 sjálf-
stæða byggingarhluta: Bíla-
geymslu neðanjarðar, Borgar-
stjómarhús í norðri og skrif-
stofubyggingu í suðri, sem aftur
er skipt í fernt. Pessir meginhlut-
ar tengjast innbyrðis um göngu-
ás. Ráðhúsið er þannig brotið
niður í mælikvarða Kvosar-
byggðar.
Bílageymsla fyrir 92 bíla er
neðanjarðar. Innangengt er í
ráðhúsið ýr bílageymslu, fyrir
þau stæði sem tilheyra því. Aðrir
útgangar eru um 2 stiga í austur-
og vesturenda hússins. Inn-
keyrsla í bílageymslu er frá
Tjarnargötu.
Aðalinngangur er frá Vonar-
stræti, úr norðri. Þar eru bygg-
ingaform öguð og halda vatns-
pollinum föngnum í norðvestur
horni. Borgarstjórnarbyggingin
svífur yfir aðkomu og sveigir sig
í átt að inngangi. Þak hennar
verður pergóla, sem stöðvar á
súlum í vatni. Er nær dregur
vatnsveggnum við inngang, hall-
ar undan fæti og vatnsborðið á
hægri hönd rís. Byggingin sogar
aðvífandi undir vatnsborðið og
slengir um sjálfvirka glerhurð
inn í lífæð hússins, gönguásinn.
Þar opnast víð sýn yfir tjöm-
ina, sem hrapar framundan og
sokkna sýningarsali, sem geyma
líkan af Islandi í vatnsborðshæð
tjarnarinnar. Líkanið er geymt
undir gangstétt við Tjarnargötu-
inngang. Sýningarvélar og
skermur tengdur því falla inn í
loftklæðningu. Úr lofti falla ein-
nig myrkvunartjöld yfir glugga.
Skilrúm eru milli sýningarsala,
svo þeir nýtast aðskildir. Gólf
sokkna svæðisins og gönguáss
eru lögð íslensku grjóti.
Frá gönguás sést um bygging-
una þvera og endilanga og þaðan
eru allar leiðir greiðar í aðra
hluta ráðhússins. Þar eiga uppt-
ök sín 4 stigar, sem svífa yfir
sokkna sali og tengjast fjór-
skiptri skrifstofubyggingu í
suðri.
Neðri hæð skrifstofubygging-
ar er afgreiðslusalir og fyrir-
greiðsla almennings. Efri hæðin
er rólegri og þangað leitar eng-
inn án erindis.
Uppspretta lífsins
leikur frjálst
Skrifstofubygging ber blæ létt-
leika og er opin milli deilda.
Skrifstofur liggja að útvegg með
opnanlegum hurðum. Glugga-
skipting stjórnar staðsetningu
hvítmálaðs veggeiningakerfis.
Gólf, loft, borðplötur, stiga-
þrep, handfang stigahandriðs,
hurðir og hillur í hurðarvegg eru
úr timbri. Ofanljós, stigi og
grind afgreiðsluborðs mynda
samruna heild úr lituðu stáli.
Borgarstjórnarhús tengist
gönguásnum, lífæð ráðhússins, í
norðri. Við rætur þeirrar teng-
ingar er móttökuaðstaða Borg-
arstjórnar, í náinni snertingu
við vatnið, spölkorn frá eldhúsi.
Borgarstjórnarsalur er látlaus
en virðulegur. Vesturveggur er
allur úr gleri. Gólf, loft, borð-
plötur og áheyrendasæti Borgar-
stjórnarsalar eru úr timbri.
Áheyrendasvæði úr steypu, stól-
og borðgrindur borgarfulltrúa
úr stáli. Á borðum borgarfull-
trúa er ljóskastarastilling á hvert
borð, innstunga, tölvu- og hljóð-
nema- og hlustunartækjatenging
fyrir fundi sem slíks krefjast.
Sæti eru uppstoppuð og leður-
klædd.
Austurhluti Borgarstjórnar-
húss er athafnasvæði Borgarráðs
og Borgarstjórnar. Þar eru fund-
arherbergi og salur Borgarráðs
útbúinn sýningartækjum. Húsið
er allt varanlegra og þyngra en
skrifstofubyggingin í suðri. Út-
veggir eru steyptir í stálplötu-
mót, með innfellda lista á sam-
skeytum. Ryðfríir stálboltar eru
notaðir sem holufylling. Kýr-
augu í andlitshæð eru steypt í
vegg.
Eldhús og mötuneyti kúra á
jarðhæð Borgarstjórnarhúss.
Vörumóttaka er frá Vonar-
stræti. Mötuneyti opnast mót
suðri, yfir vatnsrennu við aðal-
inngang. Yfir borð í vatnsborðs-
hæð gnæfir hrjúfur mosagróinn
steinveggur, sem vatn seytlar
niður. Rakt og loftblásið yfir-
borð veggjarins auðveldar rót-
festu gróðurs og samruna bygg-
ingar við tjarnargróður.
Öguð byggingarform í norðri
glæðast þannig lífi í nálægð
vatnsins, hverfa í jarðargróður
eða fljúga frjáls yfir suðurhlið
skrifstofubyggingar. Þar breiðir
úr sér mikill þakvængur, yfir
endilanga bygginguna og brotn-
ar upp í pergólu yfir pöllum mót
suðri. Sléttformaðar steyptar
súlur halda uppi bogalaga þak-
bitum úr límtré, sem klæddir
eru sléttáli eins og þakið.
Gluggaveggur rís sem gróður-
flétta úr vatninu og er borinn af
lóðréttum stálbitum, sem taka
við veggjum að innanverðu.
Gluggakerfið og vírnet yfir
því er úr áli.
Gönguás ráðhússins er ofan-
lýstur að endilöngu um gang-
stéttargler í steyptri grind.
Ráðhúsið er ofið úr þráðum
ólíkra byggingarefna, andstæðra
eiginleika. Náttúra hvers og eins
er löðuð fram, svo byggingin
verði eðlilegt framhald náttúru-
lífs tjarnarinnar. Vatnið, upp-
spretta alls lífs, leikur frjálst um
húsið og er forsenda þess að það
fái þrifist.“
Meðferð máls
og rökræn hugsun
Þessi texti er lagður til grund-
vallar byggingar sem á að standa
um aldur og æfi og milljarðar
eru lagðir í.
Það er ekki laust við að maður
verði dálítið „speisaður" þegar
verið er að reyna að komast til
botns í því hvert blessað fólkið,
sem er að búa til ráðhúsbákn, er
að fara með lýsingum sínum á
verkinu.
Engin ástæða er til að fara að
rýna í einn hluta verklýsingar
öðrum fremur. Meðferð máls er
með þeim hætti að erfitt er að
gera sér í hugarlund að rökræn
hugsun sé að baki textanum.
Samt má vera að svo sé og að
álfur úr hól skilji mæta vel hvert
verið er að fara.
Svo eru heilu bæirnir og borg-
irnar reistar af fólki sem vart
getur komið frá sér heilli hugsun
svo að öðrum en sveitarstjórn-
armönnum sé hún skiljanleg.
Ekki nema von að rifist sé um
ráðhús og fossvogsbrautir.
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn 7
✓ __ x
LAUGARDAGURINN 12. AGUST 1989