Tíminn - 12.08.1989, Side 10
10 Tíminn
Laugardagur 12. ágúst 1989
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT — Sýrlenskt herlið
hóf kröftuga skothríð yfir hverfi
kristinna manna í Beirút eftir
að átök höfðu legið niðri í
nokkrar klukkustundir. Þá
höfðu stórskotaliðsbardagar
staðið á milli Sýrlendinga og
hersveita múslíma annars
vegar og kristinna manna hins
vegar í 14 klukkustundir. Að
venju bitnaði djöfulgangurinn
mest á óbreyttum borgurum.
Að minnsta kosti 35 manns
féllu.
TEHERAN — Mikil ólqa er
nú í trúarlífi írana, en harolínu-'
menn í íran reyna nú af öllum
mætti að beita trúarhita múgs-
ins fyrir sig gegn Rafsanjani
forseta sem hyggst koma harð-
línumönnum út úr ríkisstjórn
sinni.
JÓHANNESARBORG-
Átök urðu milli mismunandi
fylkinga blökkumanna í tengsl-
um við mótmælaaðgerðir
vegna kosninga sem nú fara
fram [ Suður- Afríku, en
blökkumenn hafa ekki kosn-
ingarétt.
TOKYO — Óprúttnir fjöl-
miðlamenn hafa reynt að troða
hneykslismáli upp á hinn nýja
forsætisráðherra Japans, Tos-
hiki Kaifu. Kjaftasögur eru
komnar á kreik um að Kaifu
eigi lausaleikskróa.
JERÚSALEM — ísraelar
hafa nú enn hert eftirlit sitt á
hinum hernumdu svæðum á
Vesturbakkanum oa í Gaza.
Þeir hafa nú léyfi tiT að halda
Palestínumönnum I haldi án
dóms i eitt ár í stað sex
mánaða áður.
NAIRÓBÍ — Eitthvað virðist
ganga í rétta átt í óbeinum
friðarviðræðum skæruliða og
stjórnvalda ( Mósambík eftir
14 ára borgarastyrjöld.
Leiðtogar kirkjunnar ræða nú
við leiðtoga skæruliða og
munu bera boð þeirra heim.
WASHINGTON - Verð-
bólga hjaðnar nú í Bandaríld-
unum. Hefur hún minnkað síó-
ustu tvo mánuði.
PEKING — Þrfr menn sem
máluðu yfir andlitsmynd af
Mao Tse Tung fyrrum leiðtoga
Kínveria voru dæmdir í 20 ára
og 16 ára fangelsi fyrir ódæðið.
Þeir máluðu Maó í maímánuði
á meðan stúdentar stóðu fyrir
andófi s(nu.
Illlllllllllllllllllllllll I ITIÓNO ..........................................................Illlllllllllllllllllllllllll.................. . ...............I.....Illllllllllllllllllll........ ........................................... ............................................................ '............................................... ...................................
Josep Cicippio, Bandaríkjamaðurinn sem öfgafullir Shítar hafa hótað að taka af lífi, ásamt nokkrum vestrænum
gíslum sem eru í haldi í Líbanon. Nú hefur æðsti andlegi leiðtogi Hizbollah-samtakanna lofað að hjálpa til við lausn
Undur gerast enn í Líbanon:
Amhem:
Tösku-
gleypi illa
bumbult
Henni Quimba er orðið illilega
bumbult vegna töskuáts og eru
læknar nú farnir að óttast mjög
um heilsu hennar. Quimba hefur
hrifsað til sín þrjár handtöskur á
þessu ári og gleypt þær í einu lagi.
Var. Ijósmyndavél í einni tösk-
unni.
-Þetta er ekki gott fyrir heilsu
hennar og fólkið sem tapar tösk-
um sínum er heldur ekki alltof
ánægt, segir Anton van Hooff
framkvæmdasttjóri Burges dýra-
garðsins í Arnhem, en Quimba á
heima þar. Quimba er fíll.
Dýragarðsyfirvöld hafa nú sett
upp sérstök skilti þar sem varað
er við handtöskuhnupli Quimba,
en hún rífur töskurnar af gestun-
um með sterkum rana sínum.
Leiðtogi Hizbollah vill
hjálpa við lausn gisla
Það gerast enn undarlegir
hlutir í Líbanon. Æðsti and-
legur leiðtogi HizboIIah sam-
takanna í Líbanon Sjeik Mo-
hammed Hussein Fadallah
skýrði frá því í föstudags-
bænagjörð í gær að hann
væri reiðubúinn til að hjálpa
til við frelsun vestrænna gísla
sem í haldi eru í landinu.
Talið er að flestir gíslanna
séu einmitt í haldi hjá Hiz-
bollah samtökunum, svo hæg
ættu heimatökin að vera hjá
Hussein FadaUah.
-Náum samkomulagi og vinnum í
sameiningu að því hver með sínu
lagi og sínum áhrifum að binda endi
á gíslamálin. Allir gíslar ættu að fá
frelsi ásamt öllum arabískum
föngum, sagði Sjeikinn í bænagjörð-
inni á hvíldardegi múslíma.
Fadallah er talinn hafa einna mest
áhrif andlegra Ieiðtoga shítamúslima
á liðsmenn í Hizbollahsamtökunum.
Hann ítrekaði vilja sinn til hjálpar
vestrænum ríkjum við að fá gíslana
lausa, en um leið að fá Palestínu-
menn leysta úr haldi í ísrael.
Fadallah notaði þó tækifærið til að
fordæma Bandaríkjamenn fyrir að
hafa sent herskip upp að ströndum
Líbanon og íran eftir að bandaríski
landgönguliðinn William Higgins
var myrtur, en hann var í gíslingu
hjá hryðjuverkahóp nátengdum ír-
önum og eftir að annar hópur hótaði
að myrða Bandaríkjamanninn Jos-
eph Cicippio.
Fyrirhugaður fundur Kenneth
Kaunda forseta Zambíu og De Klerk
Fadallah sagði að það ætti ekki að
gera neinn mun á vestrænum og
ísraelskum gíslum í Líbanon og
palestínskum pólitískum föngum og
gíslum í ísrael.
-Það eru margir Bandaríkjamenn
í haldi í Líbanon og líf þeirra eru í
hættu og það eru margir ísraelar f
haldi í Líbanon. Bandaríkjamenn
hafa í samvinnu við ísrael beitt
öllum sínum mætti til að fá þá leysta
úr haldi og tryggja að gíslunum verði
formanns Þjóðarflokksins, sem að
líkindum verður næsti forseti Suður-
Afríku, hefur orðið til opinbers
hnútukasts innan hins ráðandi Þjóð-
arflokks. P.W. Botha núverandi
forseti Suður-Afríku er æfareiður
yfir því tiltæki De Klerks að hitta
Kaunda sem er einn harðasti gagn-
rýnadi aðskilnaðarstefnunnar og
ræða við hann hvemig auka megi
réttindi blökkumanna í Suður-Afr-
íku.
P.W. Botha sagðist ekki hafa
gefið De Klerk nokkurt leyfi til að
ræða við Kaunda og hefur neitað að
veita De Klerk áheym um þetta mál.
Reyndar hefur hinn 73 ára forseti
Suður-Afríku verið eins og snúið
roð í hund eftir að Þjóðarflokkurinn
ýtti honum til hliðar í vetur eftir
hjartaáfall hans og kaus De Klerk
formann flokksins. Hefur Botha
vægast sagt ekki verið hlýtt til eftir-
manns síns.
De Klerk hefur heitið því að beita
sér fyrir róttækum breytingum á
aðskilnaðarstefnunni og auka rétt-
indi blökkumanna eftir að hann
tekur við völdum sem forseti, en
næsta vfst er að hann verður kjörinn
í forsetaembættið þar sem Þjóðar-
flokkurinn hefur útnefnt hann fram-
bjóðanda sinn. Þjóðarflokkurinn
hefur farið með völd í Suður-Afríku
ekki mein gert, sagði Fadallah.
-En Bandaríkjamenn hafa látið
hjá líða að fordæma ránið á Obeid.
Við styðjum málstað mannréttinda
hvað arabíska og vestræna gísla
áhrærir, án þess að gera á þeim
greinarmun. Við viljum að hinir
saklausu gfslar verði leystir úr haldi,
en við verðum að Iíta á vandamálið
með báðum augum, ekki öðru, bætti
hinn andlegi leiðtogi Hizbollah öfga-
samtakanna við.
um áratugaskeið. Botha er hins
vegar ósammála þessu frjálslyndis-
rausi De Klerks.
Samstöðumenn
í skyndiverkfall
Tugþúsundir verkamanna í verka-
lýðssamtökunum Samstöðu tóku
þátt í klukkustundar langri vinnu-
stöðvum í Póllandi í gær til að
mótmæla hinum miklu verðhækkun-
um sem urðu á matvælum í kjölfar
þess að niðurgreiðslum var hætt. Á
sama tíma skýrði Bonislaw Gerem-
ek, einn Ieiðtoga Samstöðu frá því
að Samstaða væri reiðubúin til að
mynda ríkisstjóm með þátttöku
Sameinaða bændaflokksins, Lýð-
ræðisflokksins og umbótasinnaðra
kommúnista, ef málefnasamningur
næðist.
Talið er að um áttatíu þúsund
verkamenn hafi tekið þátt í verkfalli
Samstöðu á Gdansk svæðinu og
mátti sjá hinn rauða og hvíta fána
Samstöðu víða við hún. Það er ekki
að undra að verkalýðurinn sé óhress
því verð á brauði, sykri og skinku
hækkaði um allt að 500% á einni
nóttu.
Magga Thatcher
tapar fylgi í
skoðanakönnun
Sól virðist vera að hníga yfir
valdaferli Margaret Thatcher for-
sætisráðherra Bretlands eftir lang-
ar valdasetur. Þrátt fyrir að Thatc-
her hafi hrist all ærlega upp í
ríkisstjórn sinni með því að skipta
um eða færa til helming ráðherra
sinna í von um að fylgi íhalds-
flokksins ykist að nýju, þá sýna
nýjustu skoðanakannanir að
Verkamannaflokkurinn hefur
stungið Möggu af í fylgi.
í nýrri skoðanaicönnum sem
gerð var meðal 9000 kjósenda á
dögunum kemur fram að Verka-
mannaflokkurinn nýtur stuðnings
43% kjósenda, en íhaldsflokkur-
inn einungis 35% kjósenda. Er
þetta mesta fylgi sem Verka-
mannaflokkurinn hefur hlotið í
skoðanakönnunum og kosningum
frá því í janúar árið 1981.
Verkamannaflokkurinn bætir
við sig tveimur af hundraði frá því
í síðasta mánuði á meðan íhalds-
flokkurinn tapar þremu’r prósentu-
stigum. Græningjar vinna á og eru
nú með um 8% fylgi.
Ríkisstjórn Thatchers er nú sér-
staklega óvinsæl vegna harkalegra
efnahagsaðgerða sem ekkert duga,
aðgerða í heilbrigðismálum og
vegna áætlana um að færa vatns-
veitur og rafmagnsveitur frá ríkinu
yfir í einkageirann.
Suður-Afríka:
Aðskilnaðarstefnan að-
skilur De Klerk og Botha