Tíminn - 12.08.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn 23
Endurminningar böðuls
nýkomnar út
Annaðist fullnægingu 322 dauðadóma 1921-1976
Að undanförnu hefur þess mikið verið minnst að 200 ár
eru iiðin frá upphafí frönsku byltingarinnar. Minna hefur
verið rætt um eftirleikinn þegar Frakkar fylltust slíkum
blóðþorsta, einkum á ógnartímabilinu 1793-’94, að þegar
upp var staðið höfðu 17000 verið dæmdir til dauða og
líflátnir og enn fleiri dáið í fangelsi eða verið drepnir án
réttarhalda. TU að svo mörgum mætti koma fyrir kattarnef
varð auðvitað að finna upp fljótvirkt aftökutæki og þá varð
fallöxin til, sem reyndar annaði ekki öllum aftökunum.
Þetta var fyrir 200 árum, en það
er ekki víst að allir geri sér ljóst að
fallöxinni var haldið í góðu lagi og
notkun allt til ársins 1981 og gekk
böðulsstarfið í París í arf innan
sömu ættarinnar. Nú eru komnar
út endurminningar næstsíðasta
böðulsins, sem alls tók þátt í 322
aftökum á starfsævi sinni og lét
ekki af störfum fyrr en eftir 1970,
þegar frændi hans tók við. Þetta er
auðvitað blóðug lesning, en þó er
kannski undarlegast að fá aðeins
að kynnast hugarheimi manns sem
lifði og hrærðist í þessu starfi í
svona langan tíma og ekki lengra
um liðið.
Tók örskamma stund að skilja
höfuðið frá búknum
Hann sagðist ætti að fá að deyja
fallega, Landru, meinti fjölda-
morðinginn sem engin iðrunar-
merki lét í ljós áður en dómur var
felldur yfir honum. 25. febrúar
1922 var stundaklukka hans út-
runnin. Kl. 5.25 var hann vakinn
með þeim orðum sem komandi
athöfn fylgdu: „Sýndu kjark,
Landru, eftir nokkrar mínútur
verðurðu dauður“. Verjendurhans
báðu hann innilega að segja a.m.k.
sannleikann á þessari stundu. En ■
dæmdi maðurinn tók leyndarmál
sitt með sér í gröfina - „svona eins
og hvem annan farangur" spaugaði
hann.
Þar sem hann hafði aldrei látið
áfengi inn fyrir sínar varir né sogað
að sér tóbaksreyk afþakkaði hann
líka báðar þessar hefðbundnu síð-
ustu veitingar og kvaddi í þess stað
lögmennina með orðunum
„Sjáumst aftur herrar mínir“. Þá
bað hann aðstoðarmann böðulsins
að binda sig ekki of fast.
„Maðurinn var fisléttur," segir
einn aðstoðarmaður böðulsins,
André Obrecht, sem stóð við hlið
þáverandi böðuls Parísarborgar,
Anatole Deibler í morgunskímunni.
Það sem vakti mesta athygli aðstoð-
armannsins var hve örskamma stund
það tók að skilja höfuðið frá búk
Landrus. Yfirleitt höfðu aftökumar
tekið 10-12 sekúndur.
höggvarinn Obrecht í dagbókunum
sínum. En hann sagði við Ker í
einlægni undir lok samvinnunnar:
„Ég er búinn að fá nóg“.
Obrecht var viðstaddur alls 322
aftökur á ámnum 1921-1976, fyrst
sem aðstoðarmaður frænda síns
inni. Því næst spurði hann hvers
vegna hendur hans væm bundnar.
Skalf ekki. Engin viðbrögð. Mitt
eigið álit: Eins og fígúra úr leikriti
sem hann trúði að hann léki aðal-
hlutverkið í... að sjálfsögðu það
síðasta."
Aðrir urðu ósvífnir eða klúrir,
eins og barnamorðinginn Ranucci,
sem tók á móti böðli sínum með
opna buxnaklauf og úti liggjandi Iim.
Alla sína ævi safnaði Obrecht eins
og vitlaus maður öllu sem hann
komst yfir um glæpi og glæpamenn,
fréttum af réttarhöldum og blaða-
greinum. Athugasemdir frá hans
eigin brjósti vom afleiðing hans
eigin eftirtektar og tilfinningar. Á
árinu 1929 sagði hann einfaldlega:
Aftaka á hverjum degi.
Fallöxin var í notkun í Frakklandi ailt til ársins 1981.
um
að höggva af eigin fingur
Við aftöku þýska kvennamorð-
ingjans Eugens Weidmann fyrir 50
ámm átti böðullinn hins vegar í
mestu vandræðum með að háls-
höggva hann og samræma handa-
hreyfingar sínar við verkið. Hann
var hræddur um að höggva af sína
eigin fingur - og það þótt, að sögn
aðstoðarmanns böðulsins, hinn
dæmdi væri hinn meðfærilegasti.
Fjómm ámm eftir að næstsíðasti
franski böðullinn, André Obrecht
gaf upp öndina hafa minningar hans
nú verið gefnar út í Frakklandi. Þar
em hryllingssögur framsettar í slétt-
um og felldum spjalltón, sem jafn-
framt er eins konar bænarsöngur um
réttlætingu. Franski blaðamaðurinn
Jean Ker hefur annast útgáfu skelf-
ingarsagna böðulsins fyrrverandi.
„Ég er búinn að fá nóg“
„Það er hægt að vera böðull og
jafnframt viðkvæmur,“ segir háls-
Deiblers, en frá 1951 sem hæst setti
böðull franska lýðveldisins. Hann
hlaut í laun fyrstu árin 13000 franska
franka og undir það síðasta vom þau
komin upp í 46000 franka fyrir að
hálshöggva m.a. fræga menn eins og
glæpamennina Buffet og Bontems
og bamamorðingjann Christians
Ranucci, sem tekinn var af lífi 1976.
Obrecht aðstoðaði líka við aftöku
þriggja kvenna og yfir 30 fanga sem
dæmdir vom til dauða af stjórn-
málaástæðum meðan á þýska her-
náminu stóð. „Það vom skítaverk,"
segir hann.
Eftir að komið var fram á miðjan
sjötta áratuginn skýrir böðullinn frá
því í þessum blóði drifnu minningum
að heili, ným, lifur, hjarta og slagæð-
ur hinna dauðadæmdu hafi verið
tekið til handargagns til læknisfræði-
legra rannsókna eða ígræðslu.
Eftir að André Obrecht var orðinn
yfirmaður færði hann um sérhvert
tilfelli „tæknilega dagbók“. f þessa
bók í rauða bandinu skráði hann
dagsetningar og framkomu þeirra
sem í hans návist áttu sín síðustu
spor, nöfn þeirra, aldur, fyrri dóma,
aftökustað og hegðun.
Nutu sakamennirnir
aftökunnar?
Þannig segir hann af mikilli ná-
kvæmni frá því að aftöku hins 63 ára
morðingja Marcels Petiot, sem kall-
aður var „Dr. Satan“ hafi verið
frestað frá fyrirfram ákveðnum degi,
17. maí 1946, vegna þess að ekki
tókst að ljúka viðgerð á stríðsskað-
aðri fallöxinni á tilsettum tíma. “Ég
hlæ mig ekki til dauða,“ segir böð-
ullinn hinn dæmda hafa sagt vegna
níu daga frestunarinnar.
Obrecht segist oft hafa haft á
tilfinningunni að margir saka-
mennirnir hafi fengið sína síðustu
miklu fullnægingu á leiðinni á af-
tökupallinn. Hann skráði t.d. hjá sér
28. apríl 1954 þegar hann var að
undirbúa dæmda manninn René Pet-
er í Nancy undir fallöxina: „Mjög
rólegur. Messan er hluti af athöfn-
En honum líkaði vel að ferðast
um landið þvert og endilangt í
embættiserindum þar sem hann gætti
þess að gista á góðum hótelum. Einu
sinni leiddi starfið hann m.a.s. alla
leið til Martinique. f starfi hans fólst
líka að annast og sjá til að alltaf væri
í lagi „ekkjan" eins og fallöxin var
kölluð í daglegu máli.
En böðullinn minnist með skelf-
ingu kvalafullra endaloka þriggja
kvenna og hann var kominn á
fremsta hlunn með að yfirgefa starf
sitt eftir að hann hafði gert þeim skil.
Sérlega skelfilega gekk aftaka ekkj-
unnar og eiturbyrlarans Ducourneau
fyrir sig. Þegar hún var leidd á
aftökupallinn, trylltist hún svo að
skyrtan hennar rifnaði og aðstoðar-
menn böðuls fóru hjá sér. Þegar
öxin féll datt á slíkt dúnalogn, að
böðullinn segist aldrei hafa komist í
kynni við slíka þögn.
Fékk embættið í arf
Það voru örlögin sem leiddu hann
til starfsins, þar kom engin „köllun"
til. Obrecht kom úr gamalgróinni
böðlafjölskyldu.
Hann sagði blaðamanninum Ker
á viðkvæmri stundu frá algengri
martröð bemskuáranna. Hún er sú
að fölur maður er bundinn á höndum
og fótum og búinn undir dauða sinn.
Skyrtukraginn hefur verið klipptur
frá. Síðan segist hann alltaf hafa séð
frænda sinn, Anatole Deibler, hafa
beygt sig yfir „eitthvað blóðugt“.
Eftir að Obrecht veiktist af Park-
inson-sjúkdómi rétt eftir 1970 yfirgaf
hann ævistarf sitt og samkvæmt venj-
unni arfleiddi hann frænda sinn,
Marcel Chevalier, að embættinu. Sá
gegndi því til 1981, þegar dauðarefs-
ing var afnumin í Frakklandi.
Þegar Chevalier varð að ganga frá
fallöxinni í síðasta sinni kvartaði
hann við frænda sinn yfir ruddalegri
framkomu þessa nýja sósíaliska rétt-
lætis. „Við vomm bara reknir þama
frá eins og hverjir aðrir fúskarar.“
Þetta „áfall“ segist Oberecht í
minningum sínum aldrei hafa komist
yfir.
REYKJMIIKURBORG
Listasafn Reykjavíkurborgar
Kjarvalsstöðum
óskar að ráða skrifstofumann. Um er að ræða
almenn skrifstofustörf. Kynni af tölvum og góð
tungumálakunnátta æskileg. Laun skv. kjara-
samningum Starfsmannafélags Reykjavíkurborg-
ar og Reykjavíkurborgar.
Umsóknum ber að skila Listasafninu á eyðublöð-
um sem þar fást fyrir 18. ágúst næstkomandi.
Nánari upplýsingar veittar í síma 26131.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
- stjórnunarstaða
Staða deildarstjóra á Skurðdeild F.S.A. er laus til
umsóknar. Staðan veitist frá 1. október 1989.
Umsækjendur skulu hafa lokið sérnámi í skurð-
hjúkrun og æskileg er reynsla og/eða nám í
stjórnun.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst n.k.
Upplýsingar gefur Svava Aradóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri alla virka daga kl. 13.00-14.00.
Aðstoðarmaður
sjúkraþjálfara
Viljum ráða aðstoðarmann sjúkraþjálfara í 50%
starf frá 1. september n.k. Vinnutími er frá kl.
08-12.
Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra F.S.A. fyrir 19.
ágúst n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-22100.
Fyrirliggjandi