Tíminn - 12.08.1989, Blaðsíða 13
Tíminn 25
Laugardagur 12. ágúst 1989
MINNING
Ingimunda Gestsdóttir
Fædd 23. júlí 1904
Dáin 13. júlí 1989
Ingimunda Þorbjörg fæddist á
Hafnarhólmi í Steingrímsfirði þar
sem foreldrar hennar, Gestur Krist-
jánsson og kona hans, Guðrún
Árnadóttir, bjuggu þá ásamt Árna
föður Guðrúnar. Foreldrar Ingi-
mundu slitu samvistir og ólst hún
upp hjá móður sinni og stjúpföður,
Ingimundi Guðmundssyni hrepp-
stjóra á Hellu. Ung að árum giftist
hún Guðmundi Jóhannssyni bónda
á Kleifum, næsta bæ. Ingimunda var
þá lærð ljósmóðir og starfandi ljós-
móðir í hreppnum. Guðmundur
erfði Kleifar eftir foreldra sína og
bjó með móður sinni, ekkju, þegar
hann kvæntist. Hann fæddist 17.
júní 1903, d. 26. október 1977, var
þá staddur á Spáni. Foreldrar Guð-
mundar voru Jóhann Jónsson bóndi
á Svanshóli og svo Kleifum og kona
hans, Guðrún Guðmundsdóttir frá
Drangsnesi, Guðmundssonar. Guð-
mundur var við trésmíðanám vestur
á ísafirði þegar faðir hans lést, hætti
hann þá námi og tók við búinu með
móður sinni. Guðmundur og Ingi-
munda bjuggu yfir tuttugu ár á
Kleifum en fluttu til Hólmavíkur
1943. Þar var Guðmundur frystihús-
stjóri til 1948 er flutt var til Reykja-
víkur. Eftir það vann Guðmundur
lengi sem fiskmatsmaður hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna. Síðast
bjuggu hjónin í Kópavogi, eða þar
til Guðmundur lést. Eftir það var
Ingimunda mest hjá Guðrúnu dóttur
sinni á Hólmavík, en þó stundum
hjá öðrum börnum sínum.
Ég var svo heppinn að kynnast
þessum góðu og elskulegu hjónum á
fjórða áratugnum þegar ég var að
kenna börnum í Kaldrananeshreppi,
kenndi þar bömum þeirra og var hjá
þeim í heyskap. Það verð ég að segja
að betri húsmóður en Ingimundu
hef ég ekki þekkt. Hún var ávallt í
sólskinsskapi og svo nærgætin að
lengra verður ekki komist. Það var
oft glatt á hjalla í eldhúsinu á
Kleifum. Þar var mikil gestrisni eins
og raunar alls staðar þar um slóðir.
Sama alúðin og gestrisnin var hjá
þeim hjónum hér syðra enda var
Ingimunda í alla staði fyrirmyndar
húsmóðir, kona og móðir og þarf
ekki að fjölyrða þar um. Handlagin
var hún sem margt af hennar fólki
og fékkst talsvert við að mála
myndir, einnig stundaði hún mikið
saumaskap eftir að börnin vom farin
að heiman.
Þeim hjónum varð fjögurra bama
auðið, lifa þau öll við góða heilsu,
myndarfólk og vinsæit. Elst bama
þeirra er Jóhann rennismíðameistari
á Hólmavík, kvæntur Soffíu Þor-
kelsdóttur frá Seyðisfirði eystra; þá
Ingimundur vélfræðingur í Kópa-
vogi, kvæntur Ásdísi Ólafsdóttur frá
frá Kleifum
Flateyri, af Amardalsætt; þá Hall-
dór rafvirkjameistari í Reykjavík,
kvæntur Sóleyju Tómasdóttur frá
Djúpavogi. Yngst er Guðrún, gift
Guðmundi Ragnari Jóhannssyni
múrarameistara á Hólmavík, af
Bæjarætt.
Að nokkm skal hér getið ætta
Ingimundu. Foreldrar hennar vom,
sem áður var sagt, Gestur Kristjáns-
son bóndi á Hafnarhólmi 1896 til
1910, f. 15. apríl 1866, d. í Reykjavík
hjá Ólöfu dóttur sinni 1. júlí 1953,
og Guðrún Árnadóttir frá Hafnar-
hólmi. Gestur var vel hagmæltur og
fljótur að kasta fram vísu ef svo bar
til. Kristján Jóhannesson faðir hans,
fæddur í Fremri-Arnardal 3. sept.
1825, sonur hjóna þar, Jóhannesar
Guðmundssonar frá Hól í Önundar-
fírði og Ingibjargar Jónsdóttur er
fæddist á Hanhóli í Bolungarvík.
Ingibjörg lést í Engidal 3. ágúst
1833. Fædd var hún 1. júlí 1789.
Foreldrar hennar vom Jón Guð-
mundsson hreppstjóri á Hanhóli
1789, d. fyrir 1801, og kona hans,
Gróa Jónsdóttir, d. 1814. Jóhannes
og Ingibjörg vom hjú á Ósi í Bol-
ungavík er þau giftu sig 22. des.
1821. Þau eignuðust fjóra syni.
Kristján fermdist í Kálfanesi í
Steingrímsfirði 1839, sagður vel að
sér og vel gáfaður. Fermdur frá
húsbændum þar, Guðbrandi Hjalta-
syni hreppstjóra og konu hans, Petr-
ínu Eyjólfsdóttur prests á Eyri í
Skutulsfirði, Kolbeinssonar. Má
vera að Petrína hafi tekið Kristján
þegar Ingibjörg móðir hans dó.
Kristján er vinnumaður hjá Þorsteini
Snæbjömssyni frá Hnífsdal, í
Hraundal við Djúp 1845 en 1850 er
hann á Ósi í Steingrímsfirði og eftir
það vinnumaður hjá Torfa Einars-
syni alþingismanni á Kleifum til
1870 eða lengur. Kristján eignaðist
fjögur böm eða fleiri en giftist ekki.
Ekki er mér kunnugt um hin bömin.
Faðir Jóhannesar og afi Kristjáns
var Guðmundur Guðmundsson
hreppstjóri á Hól í Önundarfirði
1801 og 1816. Kona hans var Elísa-
bet Bjamadóttir.
Barnsmóðir Kristjáns og móðir
Gests var Margrét Pálsdóttir frá
Reykjarvík í Bjarnarfirði. Foreldrar
hennar vom Páll Jónsson bóndi þar
og kona hans Margrét Bjarnadóttir,
d. 3. jan. 1864, bónda á Svanshóli,
Sveinssonar frá Þúfum í Vatnsfirði.
Þriðja kona Bjama Sveinssonar og
móðir Margrétar var Guðrún, f. um
1755, Magnúsdóttir bónda í Lágadal
við Djúp, Pálssonar. Foreldrar Páls
í Reykjarvík vom Jón Þorleifsson á
Fremri-Brekku í Saurbæ í Dölum og
kona hans, Guðrún Ólafsdóttir, d.
1823, frá Fremri-Brekku Sturlaugs-
sonar. Fyrri kona Magnúsar í Lága-
dal og móðir Guðrúnar var Guðríð-
ur Eyjólfsdóttir bónda frá Kálfavík
í Skötufirði, Sveinbjömssonar.
Kona Eyjólfs var Guðrún Hafliða-
dóttir frá Ármúla Árnasonar. Kona
Hafliða var Guðríður Jónsdóttir
eldra Tómassonar prests á Snæfjöll-
um, Þórðarsonar. Fyrri kona síra
Tómasar var Margrét Gísladóttir
prests í Vatnsfirði, bróður Odds
Skálholtsbiskups Einarssonar Ey-
dalaskálds, Sigurðssonar.
Guðrún Árnadóttir kona Gests
var glæsifríð og fönguleg. Hún var
ung í föðurgarði þegar Gestur var
þar kaupamaður, skáldmæltur og
fjömgur ungur piltur. Guðrún
hreifst strax af kaupamanninum
unga og varð brátt hjónaband af
kynnum þeirra. Þau hófu búskap á
Hafnarhólmi þar sem Gestur var
upp alinn hjá Jömndi Gíslasyni sem
mun hafa reynst honum vel því
Jömndur sonur þeirra Guðrúnar bar
hans nafn. Bjuggu þau á móti Áma
föður Guðrúnar. Ámi var mikill
söngmaður og myndarlegur á velli.
1910 slitu hjónin samvistir og gekk
Guðrún að eiga Ingimund Guð-
mundsson hreppstjóra á Hellu.
Þangað fór Guðrún með flest böm
sín og ólust þau þar upp eftir það.
Það var því ekki langt að fara fyrir
Guðmund til kvonbæna því skammt
er milli Hellu og Kleifa. Þau Kleifa-
hjón vom einstaklega samhent og
ekki kom það að sök að Guðrún
móðir Guðmundar var hjá þeim
meðan hún lifði. Ingimunda var
einstaklega lipur og þægileg í allri
umgengni og sama mátti segja um
Guðmund mann hennar.
Árni faðir Guðrúnar var sonur
Jóns Hannessonar á Fitjum og Guð-
rúnar Jónsdóttur frá Skeljavík.
Kona Árna Jónssonar var Hildur
Guðbrandsdóttir frá Kálfanesi (þess
er Kristján fermdist frá 1839) Hjalta-
sonar prófasts á Stað í Staðardal
Jónssonar. Hildur átti áður Þórólf
Magnússon á Hrófá. Kona síra
Bændur!
Plastpokar fyrir votheysrúllur,
- á gamla verðinu -
Fyrir rúllur 90 X 120 cm kr. 268,-
Fyrir rúllur 120 X 120 cm kr. 355,-
Fyrir rúllur 150 X 120 cm kr. 530,-
Verið forsjálir - Góð greiðslukjör
Staðgreiðsluafsláttur
Hjalta Jónssonar var Sigríður Guð-
brandsdóttir prests á Brjánslæk Sig-
urðssonar. Hildur dó 1880 aðeins 38
ára að aldri’.
Ingimunda átti tólf systkini, þrjú
dóu böm: Guðbrandur, Ingibjörg
og Benedikt. Hin voru: Guðbjörg,
átti Jón Konráðsson bónda og smið
á Hafnarhólmi, síðast í Reykjavík;
Hildur, átti Loft Torfason í Vík á
Hafnarhólmi; Árni, var lengst af á
Hellu, óg. bl.; Jömndur skáld og
hreppstjóri á Hellu, átti Elínu Lárus-
dóttur frá Vík í Mýrdal; Guðbrand-
ur á Drangsnesi og síðar í Reykja-
vík, átti Margréti Guðmundsdóttur
frá Drangsnesi; Þorvaldur á Hellu,
átti hús við sjóinn, átti Sólveigu
Jónsdóttur, Þorvaldur dó ungur en
átti þrjú börn; Ólöf, átti Sigurgeir
Áskelsson frá Bassastöðum, voru
síðast í Reykjavík; Magndís, átti
Svein Guðmundsson í Hveravík frá
Byrgisvík. Magndís var yngst af
þrettán bömum Gests Kristjánsson-
ar og Guðrúnar Árnadóttur. Magn-
dís er búsett ekkja í Keflavík, Ólöf
ekkja í Reykjavík og Jömndur hjá
Ragnari syni sínum á Hellu. Hin em
dáin.
Að lokum, stef úr ljóði úr bók
Jömndar bróður Ingimundu:
Hug hefjum
hæða til.
Yljar
sólarsýn
Ódáins
akurlönd
rósar
rót hlúir.
Guðm. Guðni
Guðmundsson
Frá Bæjarskipulagi Kópavogs
Deiliskipulag íþrótta- og
stofnanasvæðis í Kópavogsdal
Tillaga að deiliskipulagi íþrótta- og stofnanasvæð-
is í Kópavogsdal auglýsist hér með skv. gr. 4.4. í
skipulagsreglugerð nr. 318/1985. Svæðið afmark-
ast af fyrirhuguðum Fífuhvammsvegi að sunnan,
Hafnarfjarðarvegi að vestan, útivistarsvæði við
Kópavogslæk að norðan og fyrirhuguðu íbúða-
svæði í Kópavogsdal að austan.
Skipulagsuppdráttur og skýringarmyndir verða til
sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 2, 3.
hæð, frá kl. 9-15 alla virka daga frá 14. ágúst til
11. september 1989.
Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar
eru, skal skila skriflega til Bæjarskipulags innan
auglýsts kynningartíma.
Bæjarskipulag Kópavogs,
Fannborg 2, 3. hæð
Kópavogi.
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskáttsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní
er 15. ágúst n.k. Sé launaskattur greiddur eftir
eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því
sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
íbúð til sölu
Mjög vönduð 35 fm. einstaklingsíbúð á jarðhæð
við Grettisgötu.
Upplýsingar í síma 74008 á kvöldin.
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
Ragnars Ágústs Sigurðssonar
Kolbrún Ágústsdóttir
Slgurður Ragnarsson Inga Stefánsdóttir
Kristrún Sigurðardóttir
Funi og Dagur Sigurðssynir
Kristín Ólafsdóttir
Ágúst Nathanaelsson Ásta Þorkelsdóttir
RagnarSigurðsson Kristrún Níelsdóttir