Tíminn - 12.08.1989, Qupperneq 14
26 Tíminn
Laugardagur 12. ágúst 1989
Blandað upphengi
í Gallerí BORG
1 Gallerí Borg, Pós,thússtræti 9 hefur að
undanförnu staðið yfir sýning á verkum
„gömlu meistaranna". Nú hafa einnig
verið hengdar upp myndir eftir yngri og
núlifandi höfunda. Má þar t.d. finna
nýjar landslags-vatnslitamyndir eftir
Guðrúnu Svövu, Kristínu Þorkelsdóttur
og nýjar pastel-myndir eftir Jón Reykdal,
Hring Jóhannesson og litlar vatnslita-
myndir eftir Kjartan Guðjónsson, svo
eitthvað sé nefnt.
Þá eru nýkomnar myndir eftir Louisu
Matthfasdóttur og vatnslitamyndir eftir
Karóh'nu Lárusdóttur.
1 kjallaranum í Pósthússtræti er einnig
úrval smámynda eftir núlifandi höfunda,
ásamt fjölda verka gömlu meistaranna.
1 Grafík-Gallerí Borg, Austurstræti 10
(Penninn) er að finna grafík-myndir eftir
helstu íslenska grafík-listamenn, auk
gler-og keramikmuna. Þar er einnig í
„nýja salnum“ fjöldi málverka núlifandi
listamanna.
Gallerí Borg er opið virka daga kl.
10:00-18:00, en lokað um helgar yfir
sumartímann.
Sumarsýning í FÍM-salnum
í FÍM-salnum stendur yfir sumarsýning
á verkum félagsmanna. Félagsmenn FlM
eru yfir 100 talsins og taka fjölmargir
þeirra þátt í sýningunni. Skipt verður um
upphengi vikulega og um þessar mundir
sýna eftirtaldir listamenn: Ágúst Peter-
sen, Amar Herbertsson, Einar G. Bald-
vinsson, Elín Magnúsdóttir, Guðbjörg
Lind, Hafsteinn Austmann, Jón Bene-
diktsson, Margrét Jónsdóttir, Ragnar
Stefánsson, Rúna Gfsladóttir, Sigurður
Þórir, Sigrid Valtingojer, Sjöfn Haralds-
dóttir, Steinþór Sigurðsson, Sara Vil-
bergsdóttir og Örlygur Sigurðsson.
A sýningunni eru til sölu sýningarskrár
og ýmsir bæklingar og einnig liggja
frammi til aflestrar gömul tímarit í eigu
FlM. Mikil aðsókn hefur verið að sýning-
unni, en henni lýkur 15. ágúst og eru öll
verkin á sýningunni til sölu.
1 kjallaranum rekur félagið einnig sölu-
gallerí, þar sem kennir margra grasa.
FlM-salurinn er opinn virka daga kl.
13:00-18:00ogumhelgarkl. 14:00-18:00.
HUNDADAGAR:
Tónleikar í Gerðubergi
á sunnudag
Sunnudaginn 13. ágúst verða tónleikar
í Gerðubergi í Breiðholti. Þar kemur
fram f slenska hljómsveitin og einsöngvar-
amir Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Júlí-
us Vífill Ingvarsson og Anna Magnúsdótt-
ir.
Arngunnur Ýr sýnir í NÝHÓFN
Arngunnur Ýr opnar sýningu í Nýhöfn,
Hafnarstræti 18, föstudaginn 11. ágúst kl.
17:00-19:00.
Á sýningunni eru olíumálverk unnin á
tré með vaxáferð, ásamt ýmsum öðrum
efniviði. Verkin eru unnin í San Francisco
á síðustu tveimur árum.
Arngunnur er fædd í Reykjavík árið
1962. Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1982 og stundaði
nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og
einkanám í Kanada f flautuleik 1968-’84.
Myndlistamám stundaði hún við Mynd-
lista- og handíðaskóla lslands 1982-’84
og við San Francisco Art Institute í málun
1984-’86.
Þetta er sjötta einkasýning Arngunnar,
en hún hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og erlendis.
Þessi sýning Amgunnar er tileinkuð
systur hennar, Gunnhildi Sif, sem lést í
nóvember 1987.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 og kl. 14:00-18:00 um helgar.
Henni lýkur 20. ágúst.
Landslagsmyndir í
Safni Ásgríms Jónssonar
1 Safni Ásgríms Jónssonar við Berg-
staðastræti hefur verið opnuð sýning á
landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar
em 24 myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir. Þar em nokkrar eldri
vatnslitamynda Ásgríms, svo sem myndin
Brenna í Rútsstaðahverfi í Flóa frá 1909.
Á sýningunni em einnig nokkrar öræfa-
myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar
em myndimar frá Borgarfirði, þar sem
Ásgrímur var langdvölum á efri áram,
einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál-
verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa-
fellsskógi, Eiríksjökull og vatnslitamynd-
irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks-
jökull frá 1948.
Sýningin stendur til septemberloka og
er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema
mánudaga.
Myndlist frá Moldavíu
í Hafnarborg
Laugardaginn 12. ágúst kl. 15:00 verð-
ur opnuð sýning ■ Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
„MyndUst frá Moldavíu“.
Sýning þessi er liður í dagskrá Sovéskra
daga MIR 1989, en dagarnir em að þessu
sinni sérstaklega helgaðir kynningu á
þjóðlífi og menningu moldavíska sovét-
lýðveldisins. Verða þeir opnaðir formlega
á tónleikum Ustafólks frá Moldavíu í
Hafnarborg mánudagskvöldið 21. ágúst
kl. 20:30.
Á sýningunni í Hafnarborg em 39
myndverk af ýmsu tagi: 12 olíumálverk,
12 svartlistarmyndir og 15 listmunir, aðal-
lega ofin teppi og klæði, svo og kvenbún-
ingar og þjóðlegur moldavískur fatnaður.
Sýningin „Myndlist í Moldavíu” verður
opin í Hafnarborg næstu vikur, daglega -
nema á þriðjudögum - kl. 14:00-19:00.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Nútímalist að Kjarvalsstöðum
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
opnar sýningu á alþjóðlegri nútímalist frá
listasafninu i Epinal í Frakklandi laugar-
daginn 22. júlí kl. 16:00 að Kjarvalsstöð-
um.
Á sýningunni em verk eftir 27 nútíma
listamenn, þar á meðal hinn nýlátna
Andy Warhol.
Sýningin stendur dagana 22. júlí-20.
ágúst, en opið er daglega kl. 11:00-18:00.
Listasafn íslands:
„Mynd mánaðarins"
Mynd ágústmánaðar f Listasafni ís-
lands er „Ur Þingvallahrauni” eftir Finn
Jónsson listmálara. Hér er um að ræða
olíumálverk frá árinu 1953 og er stærð
þess 108 x 109 sm. Listamaðurinn og
eiginkona hans, Guðný Elíasdóttir, gáfu
Listasafninu málverkið árið 1985 og er
það til sýnis í sal 2.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins” fer
fram í fylgd sérfræðings á fimmtudögum
kl. 13:30-13:45 og er safnast saman í
anddyri safnsins. Leiðsögnin er ókeypis
og öllum opin.
Listasafnið er opið alla daga, - nema
mánudaga - kl. 11:00-17:00 og er veit-
ingastofa safnsins opin á sama tíma.
Uppstillingar Kjarvals
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
stendur fyrir sérstakri sýningu á Kjarvals-
stöðum til 20. ágúst. Sýningin nefnist
Jóhannes S. Kjarval: Uppstillingar. Sýn-
ingin er opin kl. 11:00-18:00 sýningardag-
ana.
Jón í Lambey með
málverkasýningu á Hvolsvelli
Jón Kristinsson, bóndi og listmálari í
Lambey í Fljótshlíð, hefur opnað mál-
verkasýningu í Landsbankaútibúinu á
Hvolsvelli.
Guðrún sýnir í
Slunkaríki á ísafirði
Laugardaginn 12. ágúst kl. 16:00 opnar
Guðrún Guðmundsdóttir sýningu á vegg-
skúlptúmm úr handunnum pappír í
Slunkaríki á ísafirði. Þetta er þriðja
einkasýning Guðrúnar, sem auk þess
hefur tekið þátt í nokkmm samsýningum
erlendis.
Guðrún er ísfirðingur og lauk hún í vor
prófi frá listadeild háskólans í Iowa City.
Hún heldur til framhaldsnáms í trefjalist-
um við listaakademíuna í Chicago í haust.
Sýning Guðrúnar stendur til 27. ágúst
og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl.
16:00-a8:00.
Breyttur opnunartími
á Listasafni Einars Jónssonar
Opnun Listasafns Einars Jónssonar
hefur breyst yfir í sumartíma. Frá l.júní
er safnið opið alla daga kl. 13:30-16,
nema mánudaga.
Höggmyndagarðurinn eropinn allt árið
kl. 11-17.
Norræna húsinu
17. júní vom opnaðar tvær sýningar f
Norræna húsinu. Sýning á málverkum
eftir Jóhann Briem í sýningarsölum. Sýnd
em um 30 málverk öll í eigu einstaklinga
eða stofnana. Verkin em máluð á ámnum
1958 til 1982. Sýningin stendur fram til
24. ágúst og er opin daglega kl. 14:00-
19:00.
JÖRÐ ÚR ÆGI nefnist sýning, sem
opnuð var í anddyri Norræna hússins.
Þessi sýning er haldin í tilefni af 100 ára
afmæli Náttúmfræðistofnunar Islands.
Sýningin lýsir myndun Surtseyjar og ham-
föranum í Heimaey, sem em á margan
hátt táknræn fyrir myndun lslands. Sýndir
em helstu sjófuglar eyjanna og algengar
háplöntur. Einnig er lýst landnámilífvera
í Surtsey.
Sýningin verður opin fram til 24. ágúst
og er opin kl. 09:00-19:00, nema sunnu-
daga kl. 12:00-19:00.
Fyrirlestrar á laugardögum
í Norræna húsinu
Borgþór S. Kjærnested heldur fyrir-
lestra í Norræna húsinu um íslenskt
samfélag á laugardögum í sumar. Kl.
17:00 fer fyrirlesturinn fram á sænsku og
kl. 18:00 verður fyrirlesturinn haldinn á
finnsku.
Borgþór mun svara fyrirspumum fund-
argesta.
rYrrrrrnAi?fr
Guðm.
Bjarnason
Valgerður
Sverrisdóttir
Jóhannes Gelr
Sigurgeirsson
Suður-Þingeyingar
Guðmundur, Valgerður og Jóhannes verða til viðtals og viðræðna við
heimamenn sem hér segir:
Hótel Reynihlíð, mánud. 14. ágúst kl. 21.
Breiðumýri, þriðjud. 15. ágúst kl. 21.
Grunnsk. Bárðardal, miðvikud. 16. ágúst kl. 21.
Grunnsk. Svalbarðsströnd, fimmtud. 17. ágúst kl. 21.
Gamla skólanum Grenivík, föstud. 18. ágúst kl. 21.
Komið í kvöldkaffi með þingmönnunum og spjallið við þá um
þjóðmálin.
Allir velkomnir.
Framsóknarflokkurinn.
*
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
t
Innilegar þakkir fyrir vinarhug og samúð við lát og jarðarför litlu dóttur
okkar og systur
Eddu Guðnýjar Benediktsdóttur
Laugavöllum 6, Egilsstöðum
Benedikt Þórðarson, Jóna Óskarsdóttir og systkinin.
NEW HOLLAND
rúllubindivélar
NEW HOLLAND rúllubindivélin er ein fjölhæfasta rúllubindivélin
sem völ er á í dag. Fastkjarna baggar tryggja betri verkun og
meira fóöur rúmast í hverjum bagga. Fastkjarna baggar tryggja
verulega lægri pökkunarkostnaö. - NEW HOLLAND rúllubindi-
vélarnar eru afkastamiklar og traustbyggöar. - NEW HOLLAND
rúllubindivélar eru til afgreiðslu næstu daga á sérstöku
kynningarveröi.
H
F=
ARMULA 11 SIMI 681500
Tilkynning til
söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanns
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Til leigu eða sölu
Einangrunarplast-
verksmiðja
í Borgarnesi, frá 1. október n.k.
Ef verksmiðjan verður seld, er til leigu 436 ferm. gott
iðnaðarhúsnæði.
Ennfremur er til leigu, í Kópavogi, gott 400 ferm.
iðnaðarhúsnæði. Laust 1. nóvember n.k.
Upplýsingar veittar hjá: Borgarplasti h.f., Seltjarnar-
nesi. Sími 91-612211.
Fósturheimili
Félagsmálastofnun Selfoss óskar eftir fósturheim-
ili fyrir 13 ára dreng.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á Félagsmála-
stofnun Selfoss í síma 98-21408.
Félagsmálastofnun Selfoss.
PÓSTFAX TÍMANS