Tíminn - 12.08.1989, Síða 17
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn -29
GLETTUR
- Get ég gert eitthvað fyrir þig...
hringt í leigubíl eða eitthvað
svoleiðis.
- Ég ætlaði að fara að henda
honum í ruslatunnuna, en þá
datt mér þú í hug.
- Það er verið að gera við skóna m ína.
- Auðvitað get ég talað um fleira
en fótbolta. Ég er líka mjög
spenntur fyrir handbolta.
- Ertu viss um að þér finnist hann
klæða mig eða segir þú það bara til
að losna við að stæla við mig.
Fyrsta myndin sem Ijósmyndari náði af þeim
Madonnu og Warren Beatty saman, en þau voru
þá að vinna við myndina „Dick Tracy“
Warren Beatty hefur allt
sitt Iíf verið piparsveinn, en
þótt mikill kvennabósi og ver-
ið kallaður „eftirsóttasti pip-
arsveinn Hollywood". Hann
hefur nú heldur betur breytt
um stefnu og bíður spenntur
eftir að fá á sig hnappheld-
una. Og það er engin önnur
en hin fræga og umtalaða
Madonna sem hann féll fyrir.
Sagt er í Hollywood-blöð-
um að Beatty hafi gengið
með grasið í skónum á eftir
Madonnu í marga mánuði,
en það var fyrst nú nýlega
sem þau tilkynntu trúlofun
sína og að þau ætluðu að
ganga í hjónaband á þessu
ári. Beatty gaf henni dýrindis
sex karata demantshring til
að innsigla trúlofunina.
Enn hefur ekki verið að
fullnustu gengið frá skilnaði
Madonnu við leikarann Sean
Penn, en hún sótti um skilnað
í janúar sl. eftir erfitt og
stormasamt hjónaband í
nokkur ár.
Madonna sagði nýlega í
blaðaviðtali: „Ég get varla
trúað þessu, að ég sé aftur
farin að hugsa til þess að
ganga í hjónaband, eftir það
sem á undan er gengið. En
Warren er ekkert líkur Sean.
Warren er umhyggjusamur,
sterkur og kynþokkafullur.
Hann hefur allt sem ég gæti
óskað mér til að bera sem
eiginmaður."
Warren Beatty er bróðir hinnar frægu leikkonu Shirley MacLaine, en hún er þremur árum
eldri en bróðirinn. Madonna er þrítug en Beatty 52 ára og þau segjast ekki vilja bíða neitt
með giftinguna. Sagan segir líka, að Beatty sé þegar fluttur í hús elskunnar sinnar
aðarmála Madonnu, þá sé
Warren að mestu leyti fluttur
inn til hennar.
Þau eru þegar farin að
ráðgera brúðkaupið, og Mad-
onna hefur beðið bestu vin-
konu sína, Söndru Bernhard,
að vera heiðurs-brúðar-
meyju, en Warren ætlar að fá
vin sinn Jack Nicholson sem
svaramann. Jack, sem hefur
margt brallað hér á árum
áður með brúðgumanum til-
vonandi, segirum hjónavígsl-
una: „Warren veit, að ólíkt
mörgum af fyrri vinkonum
hans, þá er Madonna ekki að
sækjast eftir frægðarnafni
hans eða peningum, - hún
hefur nóg af slíku sjálf.“
Warren Beatty hefur látið
hafa eftir sér, að það sé ekki
það að missa hárið eða fá
hrukkur sem hann óttist mest
þegar hann hugsar til þess að
eldast, - en hann er nú 52 ára.
„Nei, það er einmanaleik-
inn,“ sagði hann. „Það fer
glansinn af skemmtanalífinu,
þegar maður hefur stundað
það árum saman. Það er gott
að hugsa til þess að nú verður
breyting á.“
Warren og Madonna
kynntust um það leyti sem
hún var að sækja um skilnað
við Penn. Þau voru að undir-
búa kvikmyndina „Dick
Tracy“, en þar leikur Beatty
titilhlutverkið en Madonna
aðalkvenhlutverkið. Það var
svo í maí að ástin kom í
spilið. Kunnugir segja, að þó
að brúðkaupið verði að bíða
fram í desember vegna skiln-
Forhertur piparsveinn
fellur fyrir MADONNU
- Þau Madonna og Warren Beatty ætla að ganga í hjónaband