Tíminn - 12.08.1989, Page 19
Laugardagur 12. ágúst 1989
Tíminn 31
lllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll
Margt smátt
Mönchengladbach. Fast-
lega er nú búist við því að sovéski
landsliðsmaðurinn og stjarna Dy-
namo Kiev, Igor Belanov gangi til
liðs við Borussia Mönchengaldbach
í V-Þýskalandi í nóvember mánuði
n.k. Framkvæmdastjóri v-þýska liðs-
ins segir að Belanov, sem kjörinn
var knattspyrnumaður Evrópu 1986,
muni gera 3 ára samning við liðið.
Belanov verður annar knattspyrnu-
maðurinn frá Sovétríkjunum sem
leika mun í V-Þýskalandi, en fyrr í
þessum mánuði gekk Alexander
Borodyuk til liðs við 2. deildarlið
Schalke 04.
Brussel. Georg Kessler fyrrum
landsliðsþjálfari Hollands í knatt-
spyrnu, sem sagði skilið við knatt-
spyrnu fyrir fullt og allt fyrr á þessu
ári, er nú aftur kominn í eldlínuna
sem þjálfari belgíska liðsins Stand-
ard Liege. Belgíska liðið hafði sam-
band við Kessler eftir að belgíski
þjálfarinn Urbain Braems var látinn
hætta, en honum var alfarið kennt
um að Standard komst ekki í UEFA-
keppnina. Kessler, sem gengur undir
nafninu „Sir Georg“ vegna fágaðrar
framkomu og snyrtilegs klæðnaðar,
hætti sem þjálfari belgíska 1. deild-
arliðsins Antwerpen í maí s.l. og þá
sagðist hann vera hættur afskiptum
af knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa
fengið gott tilboð frá hollenska lið-
inu Feyenoord uppá vasann. Þess í
stað gerði hann 10 ára samning við
v-þýskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
að byggja íþróttaleikvanga. En nú
segir Kessler að ákvörðun sín að
hætta í knattspyrnu hafi verið ótíma-
bær og vinnuveitendur hans hafa
gefið honum tveggja ára leyfi til þess
að hann geti tekið við stjórninni hjá
Standard Liege.
Thredbo Ástralíu. Svíinn
Lars Börje-Eriksson sigraði í gær í
fyrstu stórsvigskeppni heimsbikar-
keppninnar í alpagreinum á þessu
keppnistímabili, en keppnin fór
fram í Ástralíu. Eriksson fékk tím-
ann 2:29,80 mín. í öðru sæti varð
Norðmaðurinn Ole Furuseth á
2:30,05 mín. og Ástralinn Guenther
Mader varð í þriðja sæti á 2:30,17
mín.
Eriksson meiddist illa í fyrra, en
hefur nú yfirunnið sársaukann og
uppskorið laun erfiðisins.
Bonn. V-Þýska sunddrottningin
Kristin Otto, sem vann 6 gullverð-
laun á Ólympíuleikunum í Seoul,
ætlar að einbeita sér að sigri í
tveimur greinum á Evrópumeistara-
mótinu í sundi sem hefst nú um
helgina í Bonn. Það eru 100 m og
200 m baksund sem hún ætlar að
einbeita sér að.
Santiago. Breiddin í brasilíska
landsliðinu í knattspyrnu er slík að
stjarnan Careca, sem leikur með
Maradona hjá Napólí á ftalíu, verð-
ur á varamannabekknum þegar
Brasilía mætir Chile í undankeppni
heimameistarakeppninnar á sunnu-
daginn.
RÓm. Bandaríski körfuknatt-
leiksmaðurinn Bryan Shaw, sem lék
mjög vel með liði Boston Celtics í
NBÁ-deildinni í vetur, hefur gert
samning við ítalska félagið Massag-
gero Roma. Aðeins er vika síðan
háskólaleikmaðurinn Danny Ferry
frá Duke, skifaði undir samning hjá
liðinu, en hann var valinn númer 2 í
fyrstu umferð háskólavalsins í
sumar. Shaw gat ekki hafnað tilboði
ítalska liðsins, svo gott var það, en
hann var orðinn aðalleikstjómandi
Boston liðsins í vetur á undan Denn-
is Johnson. Talið er að ítalska liðið
hafa greitt um 1 milljón dala fyrir
Ferry, þannig að þeir félagar eru
líklega hæst launuðu íþróttamenn á
Ítalíu á eftir Diego Maradona.
Kaupin á þeim Ferry og Shaw marka
tímamót í ítalska körfuknattleikn-
um, hingað til hafa Bandaríkja-
mennirnir sem farið hafa til Ítalíu
verið komnir af léttasta skeiði.
Leikur 3 Uerdingen - Köln_______
Leikur 4 Stuttgart - Mannheim
Leikur 5 Bochum - H.S.V.
Leikur 6 W.Bremen - Dortmund
Leikur 7 St. Pauli - Niirnberg__________
Leikur 8 K.R.______- K.A._______________
Leikur 9 Akranes - Fylkir_____________
Leikur 10 Hveragerði - B. ísafjarðar____
LeikurH Magni_____- Dalvík_____________
Leikur 12 Austri___- ReynirÁ.___________
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN S. 991002
Þrefaldur Sprenqipottur
Laugardagur kl.13:25
32. LEIKVIKÁ^~"f2. águst 1989 1ÍÉ
Leikur 1 Arsenal_______- Liverpool
Leikur 2 Leverkusen - Gladbach
sé fljótastur
- Kanadíski hlauparinn í opinskáu viðtali
við v-þýska blaðið Stern í gær
Ben Johnson, maðurinn sem varð
að hetju með hraða sínum á Ólymp-
íuleikunum í Seoul og síðan með
álíka hraða að svindlara í augum
fólks eftir að upp komst um lyfja-
notkun hans, er nú staddur í V-
Þýskalandi í boði dagblaðsins Stern.
Samkvæmt nýjum lyfjareglum al-
þj óðafrj álsíþróttasambandsins þá
gæti farið svo að Johnson missti
heimsmetið sem hann setti á Heims-
leikunum í Róm 1987, er hann hljóp
á 9,83 sek. í viðtalinu við Stern
segist Johnson ekki hafa áhyggjur af
Ben Johnson.
„Þó svo kunni að fara að heims-
metið verði tekið af mér þá hef ég
enn næga möguleika á setja annað
heimsmet. Ég ætla að sanna hver sé
besti spretthlaupari heims. Ég get
enn tekið framförum."
Johnson segist í viðtalinu trúa því
að hann geti bætt 7,79 sek. heims-
metið sett í Seoul, um nokkur sek-
úndubrot. „Ég er viss um að ég get
enn hlaupið 100 m á undir 10 sek. og
jafnvel hraðar. Líkami minn vill
gera það og hjarta mitt líka, en nú
er ekki rétti tíminn, ég verð áfram í
banni næstu 14 mánuði.
Johnson vonast til þess að geta
snúið aftur á hlaupabrautina 25.
september á næsta ári þegar bannið
rennur út. Hann vonast einnig til
þess að fá tækifæri til þess að keppa
við Carl Lewis, en er ekki viss um
hvort Lewis vilji keppa við sig. Carl
Lewis hefur gagnrýnt Johnson mjög
fyrir lyfjanotkun sína, en Johnson
hefur játað að hafa meira og minna
notað stera sfðan 1981. BL
Ian Rush og félagar í Liverpool mæta Englandsmeisturum Arsenal í opnunarleik ensku knattspyrnunnar á Wembley
í dag. Þá leika liðin um góðgerðarskjöldinn og búast má við hörkuleik þessara frægu liða. Spennandi verður að
fylgjast með hvort Sigurður Jónsson verður í liði Arsenal í leiknum.
Frjálsar íþróttir:
Ben Johnson ætlar
að sanna að hann
íþrótta-
viðburðir
helgarinnar
Knattspyma
Laugardagur:
1. deild karla kl. 14.00.
KR-völlur KR-KA
Akranesvöllur Akranes-Fylkir
1. deild kvenna kl.14.00.
Þórsvöllur Þór-KR
2. deild kvenna kl 14.00.
Tungubakkav. Afturelding-BÍ
3. deild A kl. 14.00.
Grýluvöllur Hveragerði-BÍ
3. deild B kl. 14.00.
Seyðisfj.v. Huginn-Kormákur
Grenivíkurv. Magni-Dalvík
Eskifjarðarv. Austri-Reynir Á.
4. deild B kl. 14.00.
Hvaleyrarholtsv. Haukar-Fjölnir
Selfossvöllur Ernir-Snæfell
4. deild D kl. 14.00.
AkureyrarvöllurTBA-UMSE b
Krossmúlavöllur HSÞ b-SM
Hofsóssvöllur UMF NeLsti-Efling
Blönduóssvöllur Hvöt-Æskan
4. deild E kl. 14.00.
Fáskrúðsfj.v. Leiknir F.-KSH
Egilsstaðavöllur Höttur-Sindri
Sunnudagur:
1. deild karla 20.00.
Víkingsvöllur Víkingur-Valur
1. deild kvenna kl. 20.00.
KA-völlur KA-KR
Mánudagur:
1. deild karla kl. 20.00.
Laugardalsvöllur Fram-FH
1. dcild kvenna kl. 20.00.
Akranesvöllur ÍA-Valur
Stjörnuvöllur Stjarnan-UBK
2. deild karla kl. 20.00.
Ólafsfj.völlur Leiftur-Selfoss
Kópav.völlur UBK-Völsungur
Vopnafj.v. Einherji-Stjarnan
Garðsvöllur Víðir-Tindastóll
2. deild kvenna kl. 20.00.
Selfossvöllur Selfoss-FH
Golf
Fjölmörg golfmót eru á
dagskrá um helgina og má þar
nefna sveitakeppni GSÍ,
keppni í 1. deild fer fram á
Hvaleyrarholtsvelli í Hafnar-
firði en í 2. deild verður keppt
á Strandarvelli við Hellu.