Tíminn - 12.08.1989, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR:
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Holnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
s
o _
'PPIAL^ta
#
SAMVINNUBANKI ÍSLANOS HF.
ilflfcfe^ðltgPQÍÍlll
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Sverrir Hermannsson segir að verði T exaco hluthafi
í Olís geti það ráðið úrslitum um framvindu mála:
Samningar
í augsýn?
Óstaðfestar fregnir herma að úti- kaupa 28% hlutafjár í Olíuverslun
bú Bandaríska olíufyrirtækisins íslands hf. Ekki náðist í Óla Kr.
Texaco í Danmörku hafi ákveðið að Sigurðsson forstjóra Olís, en haft
Rannsóknir á veiðinni í laxveiðiám síð-
asta sumar sýna að eldisfiski fer fjölgandi:
Allt að 70%
var eldislax
Samkvæmt nýlegum upplýsing-
um. Veiðimálastofnunar veiddist
óvenju mikið 'af eldislaxi í íslensk-
um stangaveiðiám síðástliðið
sumar. Til eru dæmi þess að að-
komufiskur hafi verið verulegur
hluti veiðinnar og jafnvel uppistað-
an í veiðinni. Mest bar á auknum
fjölda á eldislaxi í ám við Faxaflóa ■
og þá helst í grennd við Reykjavík.
Rannsðknirnar byggjast á hreist-
ursýnum, sem tekin voru úr veidd-
um löxum þetta sumar. Niðurstöð-
ur rannsóknanna sýna, að 17%
veiðinnar í Elliðaánum var ættuð
úr fiskeldi, 21,5% laxa í Úlfarsá,
31,7% í Leirvogsá og þess eru
dæmi, að eldislax hafi verið allt að
2/3 af heildarveiði - í Botnsá var
hlutfallið 69%. Einnig varð vart
við eldisfisk í Laxá í Kjós en fjöldi
rannsakaðs hreisturs var ekki nægi-
legur til að ákvarða heildarfjölda.
Ef fekið er tillit til þessara niður-
staðna var fjöldi veiddrá laxa í
viðkomandi ám 1.665 í Elliðaán-
um, 577 í Úlfarsá, 664 í Leirvogsá
ög 65 í Botnsá.
Ljóst er að aflaaukning af völd-
um aðkomufiska skekkir þær upp-
lýsingar sem safnað hefur verið um
veiði úr náttúrulegum stofnum
undanfarin ár. Breytingar á skrán-
ingu og veiðiaðferðum hafa verið
litlar allt frá 1970 og því háfa
aflatölur í höfuðdráttum gefið til
kynna stærð laxagangna í árnar.
„En til þess að geta fylgst með
náttúrulegri framleiðslu íslenskra
áa er nauðsynlegt að geta ákvarðað
hluta aðkomufiska í veiðinni" segir
í riti frá Veiðimálastofnun.
GS
Málningu var skvett á glugga og
veggi nýju lögreglustöðvarinnar í
Breiðholti í nótt. Ekki er vitað
hverjir voru þar að verki. Unglingar
seni unnu við að mála og fegra
umhverfi lögreglustöðvarinnar voru
óhressir með tiltæki skemmdarvarg-
anna. Þeir létu þó ekki deigan síga
en þrifu málninguna í burtu. Unglin-
garnir, sem hafa unnið þarna af
krafti í 5 vikur, eru nú að störfum í
nágrenni stöðvarinnar. Að sögn lög-
reglu var fyrsti dagur nýju lögregiu-
stöðvarinnar friðsæll en erilsamur
því að margir hafa viljað koma og
líta á stöðina og lýsa ánægju með að
fá hana í hverfið. -EÓ
var eftir honum í gær að ekkert
samkomulag væri í höfn, en viðræð-
ur hans við fulltrúa Texaco hafi
verið mjög gagnlegar.
Sverrir Hermannsson bankastjóri
Landsbankans sagði í gær að ef það
væri Fétt að jafn sterkur aðili og
Texaco gerðist stór eignaraðili að
Olís, þá gerði hann ráð fyrir því að
það gæti ráðið nokkrum úrslitum um
framvindu mála hjá Olíuverslun
tslands. Sverrir boðaði forsvars-
menn Olís á sinn fund strax í gær-
morgun eftir að fréttir höfðu heyrst
af samningáviðræðuip, þeirra við
Texaco. „Ég boðaði þá til fundartiér
til þess að vita hvort sá flötur væri
hugsanlega komin upp að unnt væri
að gera nýjan samstarfssamning á
milli Landsbankans og’ Olíuverslun- '
arinnar, því að þau viðskipti hafa
áuðvitað ekki verið með heilli há um
hálfs árs skeið,“ sagði Sverrir. Hann
sagði að engin niðurstaða hefði feng-
ist á fundinum, heldur hefði verið
ákveðið að safna uppjýsingum um
stöðu vanskila, tryggingamála og
annarra atriða.
Svérrir sagði ekkert hafa verið
ákveðið um annan fund á milli Olís
og La'ndsbankans. „Við ætlum að
sjá til hvernig okkur v'innst í söfnun
þessara gagna, þannig að menn séu
viðbúnir að ræða saman ef nýr aðili
kemur að málinu," sagði Sverrir.
Þessa dagana er unnið að viðgerðum við aðveitustöðina á Barónstíg. Á
myndinni sjást strengirnir sem koma í stað þeirra sem eyðilögðust í
brunanum. Tímamynd: Pjeíur
Aðveitustöðin við Barónstíg:
20 metrar á
5-7 milljónir
Vextir á almennum óverðtryggðum
skuldabréfum eru um 30%:
Vextir lækka
Málningu skvett á
lögreglustöðina
Vextir af almennum óverðtryggð-
um skuldabréfum lækkuðu í gær hjá
flestum bönkum. Vaxtalækkunin er
í samræmi við minnkandi verðbólgu-
hraða en verðbólga síðustu þriggja
mánaða mældist 22% á ársgrund-
velli. Innlánsvextir breytast ekki
nema hjá sparisjóðunum og Versl-
unarbankanum þar sem þeir lækka
einnig. Engin breyting verður á
vöxtum hjá Búnaðarbanka og Út-
vegsbanka en þeir lækkuðu sína
vexti um síðustu mánaðamót.
Vaxtalækkunin er almennt á bil-
inu 1,5 til 4%. Mest er lækkunin hjá
Alþýðubankanum sem lækkar vexti
á almennum skuldabréfum úr 31% í
27%. Eftir vaxtalækkun eru vextir á
óverðtryggðum skuldabréfum í Bún-
aðarbankanum 29%, Samvinnu-
bankanum 30%, Útvegsbankanum
30%, hjá sparisjóðunum 30%,
Landsbankanum 30,75%, Verslun-
arbankanum 31% og Iðnaðarbank-
anum 33,5%. Lánskjaravísitala
hækkaði um aðeins 0,67% frá júlí til
ágúst en hækkaði um 2,63% mánuð-
ina þar á undan. Þetta er minnsta
hækkun milli mánaða frá því í janú-
ar. Lánskjaravísitala hefur sveiflast
mikið upp og niður það sem af er
þessu ári. Bankarnir horfa einkum á
lánskjaravísitölu og spá um verð-
bólgu þegar þeir ákveða vexti.
Nokkur óvissa ríkir um þróun vaxta
á næstu misserum en að sögn hag-
fræðinga Seðlabankans er ólíklegt
að bankarnir fari sér hratt í vaxta-
lækkunum á næstunni. Almennt
hafa bankarnir verið nokkuð tregir
til að lækka nafnvexti til samræmis
við minnkandi verðbólgu. Þrátt fyrir
þessa vaxtalækkun er nokkurt ósam-
ræmi milli vaxta og verðbólgustigs.
-EÓ
Vinna er hafin við að tengja nýja
strengi í stað þeirra sem eyðilögðust
í bruna í aðveitustöð Rafmagnsveitu
Reykjavíkur við Barónstíg sem tveir
sjö ára strákar urðu valdir að um
síðustu helgi. Haukur Pálmason að-
stoðarrafveitustjóri sagði í samtali
við Tímann að kostnaðurinn vegna
viðgerðanna næmi á bilinu 5-7 millj-
ónum króna en þá væri ótalinn sá
kostnaður sem hlytist af hreinsun
stöðvarinnar sem var öll þakin sóti
innanhúss. Ráðgert er að viðgerð-
inni verið lokið í kringum 25. þessa
mánaðar.
Tveir strengir eyðilögðust í eldin-
um, aðalstrengur frá Elliðaánum og
strengur sem liggur frá Barónstíg að
Meistaravöllum. Taka þurfti um 20
metra af strengjunum vegna
skemmdanna og er nú unnið að því
að skeyta nýjum strengjum inn í.
Tveir Danir og einn Þjóðverji hafa
unnið að tengingu strengjanna sem
er á ábyrgð framleiðandans. Að
auki eru átta starfsmenn frá Raf-
magnsveitunni að störfum við teng-
inguna.
Haukur sagði að hreinsun stöðvar-
innar væri að mestu lokið en eftir
væri að hreinsa betur innviði tækja-
búnaðarins, einnig þyrfti að mála sal
stöðvarinnar. SSH