Tíminn - 22.08.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
DAGBÓK
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
23.-27. ágúst: Landmannalaugar-
Þórsmörk. Gengið á fjórum dögum frá
Landmannalaugum til Þórsmerkur. Gist í
sæluhúsum F.í.
Fararstjóri: Dagbjört Óskarsdóttir.
25.-30. ágúst: Landmannalaugar-
Þórsmörk. Fararstjóri Jóhannes I.
Jónsson.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
Ferðafélagsins, Oldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
IÐNSKÓLINN i REYKJAVfK
Innritun í próf
Próf verða haldin 28. ágúst til 1. september. Þeir
nemendur sem skráðu sig í vor, þurfa að staðfesta
skráninguna með símtali við skrifstofu skólans í
síma 26240 í síðasta lagi föstudaginn 25. ágúst n.k.
Iðnskólinn í Reykjavík
rkv/rvr%uu i Anr
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, aö Nóatúni 21 í Fteykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Reykvíkingar
Guðmundur G. Þórarinsson, alþm. verður til
viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóa-
lúni 21, miðvikudaginn 23. ágúst milli kl. 17 og
19.
Verið velkomin
Fulltrúaráðið
Guðm. Jóhannes Sigrúnog AnnaGuðný
Bjarnason
Héraðsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður í Miðgarði laugardaginn 26. ágúst og hefst kl. 21.00. Ræðu
flytur Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Meðal skemmtiatriða verður einsöngur Sigrúnar Fljálmtýsdóttur, við
hljóðfærið Anna Guðný Guðmundsdóttir. Jóhannes Kristjánsson
verður með gamanmál. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur
fyrir dansi.
Landsþing L.F.K.
verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10. september n.k. Undirbún-
ingsnefnd Landsþingsins starfar nú af fullum krafti.
Guðrún
Margrét
Unnur
í nefndinni eru: Guðrún Jóhannsdóttir, Margrét (varsdóttir og Unnur
Stefánsdóttir.
Málefnaundirbúningur er á lokastigi í öllum kjördæmum landsins.
Konur látið skrá ykkur á þingið sem fyrst í síma 91-24480, milli kl. 10
og 12.
Ath. Þingið er öllum konum opið.
Stjórn L.F.K.
Þriðjudagur 22. ágúst 1989
Sumarleyfisferðir Utivistar
31. ág.-3. sept. Gljúfurleit-Kisubotnar-
Kerlingartjöll. Ný fjögurra daga óbyggða-
ferð. Ekið upp með Þjórsá að vestan og
gist í Gljúfurleitarskála. Þjórsárfossar
skoðaðir. Síðan ekið áfram í Kisubotna
og um Kerlingarfjöll á Kjalveg. Gist í
húsum.
Upplýsingar um sumarleyfisferðir á
skrifstofunni Grófinni 1, símar 14606 og
23732.
Útivist, ferðafélag.
Hallgrímskirkja - Starf aldraðra
Næsta miðvikudag, 23. ágúst, verður
farið að Eyrarbakka og Stokkseyri og
skoðað það helsta sem þessir staðir hafa
upp á að bjóða. T.d. verða skoðaðar
kirkjurnar, og einnig verður litið inn í
verslun Guðlaugs Pálssonar og Sjóminja-
safnið skoðað.
Lagt verður af stað frá kirkjunni kl.
13:00. Þátttakendur láti vita í síma 39965.
Þeir hafi með sér nesti.
Þrjár sýningar að Kjarvalsstöðum
Nú standa yfir þrjár myndlistarsýningar
að Kjarvalsstöðum. í vestursal er „Al-
þjóðleg nútímalist“. Sú sýning kemur frá
Epinal-safninu í Frakklandi. Þar eru til
sýnis verk eftir 27 heimsþekkta listamenn,
s.s. Andy Warhol, Frank Stelia, Tony
Cragg, Donald Judd o.fl.
Hin árlega sumarsýning á verkum
Kjarvals ber að þessu sinni yfirskriftina
„Uppstillingar“ og gefur þar að líta
sýnishorn af kyrralífsmyndum meistarans
frá ýmsum tímum. Kjarvalssýningin er í
austursal.
í austurforsal eru sýndar ljósmyndir
Yosuf Karsh af heimsþekktu fólki; lista-
mönnum, þjóðhöfðingjum og stjórnmál-
amönnum.
Allar þessar sýningar hafa fengið fá-
dæma góða aðsókn og er fólk hvatt til að
láta þær ekki fram hjá sér fara.
KJARVALSSTAÐIR eru opnir dag-
lega kl. 11:00-18:00.
Landslagsmyndir
í Safni Ásgríms Jónssonar
í Safni Ásgríms Jónssonar við Berg-
staðastræti hefur verið opnuð sýning á
landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar
eru 24 myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir. Þar eru nokkrar eldri
vatnslitamynda Ásgríms. svo sem myndin
Brenna í Rútsstaðahverfi í Flóa frá 1909.
Á sýningunni eru einnig nokkrar öræfa-
myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar
eru myndirnar frá Borgarfirði, þar sem
Ásgrímur var langdvölum á efri árum,
einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál-
verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa-
fellsskógi. Eiríksjökull og vatnslitamynd-
irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks-
jökull frá 1948.
Sýningin stendur til septemberloka og
er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema
mánudaga.
Guðrún sýnir í Slunkaríki
á ísafirði
Laugardaginn 12. ágúst kl. 16:00 opnar
Guðrún Guðmundsdóttir sýningu á vegg-
skúlptúrum úr handunnum pappír í
Slunkaríki á Isafirði. Þetta er þriðja
einkasýning Guðrúnar, sem auk þess
hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum
erlendis.
Guðrún er Isfirðingur og lauk hún í vor
prófi frá listadeild háskólans í Iowa City.
Hún heldur til framhaldsnáms í trefjalist-
um við listaakademíuna í Chicago í haust.
Sýning Guðrúnar stendur til 27. ágúst
og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl.
16:00-18:00.
HLH-Flokkurinn 10 ára
f september nk. verða liðin 10 ár síðan
þeir félagarnir í HLH-Flokknum hljóðrit-
uðu sína fyrstu hljómplötu, sem bar
nafnið „í Góðu Lagi“. Þar voru lög eins
og „Riddari Götunnar" o.fl. sem enn eru
vinsæl.
í tilefni afmælisins ætla þeir félagar að
gefa út fimmtu hljómplötuna í haust.
Skífan er útgefandi. Einnig er HLH-
Flokkurinn nú að æfa sönglagapróg-
ramm, sem þeir munu flytja á Hótel
Málverkasýning
Magnúsar Tómassonar í SPR0N
Nú stendur yfir í Sparisjóði Reykjavík-
ur og nágrennis, Álfabakka 14, Breið-
holti, málverkasýning á verkum Magnús-
ar Tómassonar.
Magnús stundaði nám við Det Kgl.
Akademi for de Skdnne Kunster í Kaup-
mannahöfn 1963-69 í málaralist, grafík
og deildinni fyrir „Mur og Rumkunst".
Magnús hefur hlotið ýmis verðlaun
fyrir list sína. Hann hefur haldið fjölda
cinkasýninga, auk þess hefur hann tekið
þátt í mörgum samsýningum hér heima
og erlendis.
Sýningin að Álfabakka 14 stendur til 1.
sept. nk. og er opin frá mánudegi til
fimmtudagskl. 09:15-16:00 og föstudaga
kl. 09:15-18. Sýningin er sölusýning.
BTB í Borgarnesi framleiðir
nýja fiutningakassa
og verksmiðjuhurðir
Bifreiða- og trésmiðja Borgarness hf.
hefur hafið framleiðslu á flutningakössum
og verksmiðjuhurðum úr trefjaplasti með
„póliuritan" einangrun. Helstu kostir
þess efnis er góð einangrun og öll þrif eru
mun þægilegri. Slíkir flutningakassar
henta mjög vel til að flytja viðkvæm
matvæli og annan varning. Hurðir úr
slíku efni hafa meiri einangrun en vana-
legt er. BTB hefur áður framleitt flutn-
ingakassa og verksmiðjuhurðir úr stáli og
áli, sem reynst hafa vel.
Fyrsti flutningakassinn, sem byggður
er hérlendis með nýju aðferðinni er
fullbúinn á nýrri Volvo-bifreið Ármanns
Leifssonar, Bolungarvík.
HLH-Flokkurínn - f.v. Haraldur Sigurðs-
son, Björgvin Haildórsson og Þórhallur
Sigurðsson
Islandi á næstu vikum, og mun hljóm-
sveitin „Sveitin Milli Sanda“ aðstoða. Þá
eru í æfingu 8 leiknir sjónvarpsþættir,
sem HLH mun gera fyrir Stöð 2.
Meðlimir HLH-Flokksins eru þeir
sömu og fyrir 10 árum, þeir Björgvin
Halldórsson, Þórhallur Sigurðsson og
Haraldur Sigurðsson.
Grafíksýning
Ástu Guðrúnar á Mokka
Ásta Guðrún Ey vindardóttir sýnir graf-
íkverk á Mokka-Expresso-Kaffi, Skóla-
vörðustíg 3a, 18. ágúst til 12 september.
1 tilefni af opnun sýningarinnar verður
kynning á verkum Ástu Guðrúnar í þætti
Piu Hansson, Ljáðu mér eyra, á Stöð 2
föstudagskvöldið 18. ágúst.
Ásta Guðrún lærði myndlist í Mynd-
lista- og handíðaskólanum og í Central
School of Art and Design í London, en
grafíkverkin eru frá lokaári hennar þar.
Ásta Guðrún hefur áður haldið sýning-
ar á olíuverkum í Hafnargalleríi, Hótel
íslandi og á Mokkakaffi.
Heymar- og talmeinastöð íslands:
Móttaka á Húsavík 25.-26. ág.
Móttaka verður á vegum Heyrnar- og
talmeinastöðvar íslands í Heilsugæslu-
stöð Húsavíkur dagana 25. og 26. ágúst.
Þar fer fram greining heyrnar- og
talmeina og úthlutun heyrnartækja.
Sömu daga að lokinni móttöku Heyrn-
ar- og talmeinastöðvarinnar verður ai-
menn lækningamóttaka sérfræðings í
háls-, nef- og eyrnalækningum.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum á
Heilsugæslustöð Húsavíkur.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opiö allan sólarhringinn
og aðstoö fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eöa orðiö
fyrir nauögun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hrínginn.
MINNING
1!
Guðmundur Frímann
Kveðja frá Félagi ísl. rithöfunda.
Látinn er á Akureyri Guðmundur
Frímann, skáld, áttatíu og sex ára að
aldri. Hann var sonur hjónanna Guð-
mundar Frímanns Björnssonar og
Valgerðar Guðmundsdóttur, sem
bjuggu að Hvammi í Langadal, þar
sem Guðmundur fæddist 29. júlí
1903.
Guðmundur Frímann varð ungur
þekktur af fyrstu ljóðabók sinni,
Náttsólum, sem kom út 1922,
þegar höfundurinn var nítján ára.
Þrátt fyrir að Náttsólir vektu athygli
og umtal liðu ellefu ár þangað til
næsta ljóðabók kom frá hendi Guð-
mundar. Það var bókin Úlfablóð,
sem gefin var út undir dulnefni.
Fjórum árum síðar kom ljóðabókin
Störin syngur og enn leið langur tími
þangað til Guðmundur kvaddi sér
hljóðs að nýju á skáldaþingi. Þá gaf
hann út ljóðabókina Svört verða
sólskin, en síðasta ljóðabók hans
kom út 1957 og hét Söngvar frá
sumarengjum.
Guðmundur Frímann er þekktast-
skáld
ur fyrir ljóð sín, en þau bera vitni
miklu næmi höfundar fyrir landinu,
gróðri þess og því fólki sem það
byggir. Á sama tíma og margvísleg
kaldhæðni og kaldhyggja ásamt upp-
lausn hrynjandinnar í kvæðum hélt
innreið sína í skáldskapinn, hélt
Guðmundur mildum höndum yfir
stararsundum heimabyggða og lét
mjúkan kliðanda málsins leika um
punt og sóleyjatún. Munu flestir
þeir sem fara um Langadal og eitt-
hvað þekkja til kvæða Guðmundar
minnast hans mitt í þeirri byggð.
Hánn hóf fátæklega og alvanalega
þætti sveitalífs til öndvegis og gerði
þá að gullvægum og upptendruðum
einkennum í skáldskap sínum, sem
rauf þagnarmúra hversdagsins.
Guðmundur bjó lengst af sinnar
ævi á Akureyri. Hann kvæntist
Rögnu Jónasdóttur skipstjóra á Ak-
ureyri 1930 og er hún látin. Þau hjón
eignuðust þrjár dætur.
Guðmundur Frímann var heiðurs-
félagi í Félagi íslenskra rithöfunda.
Með þessum fáu orðum vottar félag-
ið hinum brottgengna virðingu sína
og þakkir fyrir samvistirnar, og að-
standendum samúð.
Félag ísl. rithöfunda.