Tíminn - 22.08.1989, Síða 13
Þriðjudagur 22. ágúst 1989
GLETTUR
- Það er ekki nema von að þér gangi illa
að koma vélinni fyrir í bílnum, - vélin á að
vera aftur í!
- Flýttu þér út áður en konan mín sér þig
hér. Hún heldur kannski að það sé eitthvað
á milli okkar...
- Nú höfum við talað svo mikið um mína
lítilmótlegu og fátæku persónu. Nú skulum
við tala um hinn stóra og ríka mann sem
þú ert!
- Langatöng þín á hægri hendi lítur ekki
sérstaklega vel út í dag, elskan mín !
Tíminn 13
Elizabeth drottningarmóðir á afmælisdaginn með dóttur sinni, Elizabeth II. Bak við þær mæðgur standa: Linley
lávarður (sonur Margrétar prinsessu), Edward prins, Karl krónprins og kona hans Diana
drottningarmóður
Andrew prins og hertogi af
York og Sarah kona hans
Beatrice
með dótturina
sem varð eins árs 8. ágúst
sl. og hún fékk líka að
koma í afmæli langömmu
Tveir kappar þekktir úr fyrri James Bond-
myndum sjást hér á frumsýningu í Hollywood á
007- myndinni „Licence to Kill“. Þeir eru báðir í
sínu fínasta pússi, dvergurinn Herve Villechaize
og hálftröllið Richard Kiel, og dömur þeirra.
En ef til vill dettur einhverjum í hug, að það
hefði farið betur á því, að þeir hefðu konuskipti,
því að Herve hinn lágvaxni (hann er um 118 sm
á hæð) hefur sér við hlið háa og glæsilega
rauðhærða konu sem nefnist Terri, en Richard
Kiel, sem er um 2,20 m á mjög smávaxna
eiginkonu, Diane, og harm leiðir hana eins og
lítið barn.
Ættu þeir ekki að hafa konuskipti?