Tíminn - 22.08.1989, Page 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 22. ágúst 1989
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRUT-Sýrlendingarhafa
aukiö þrýsting á herdeildir}
kristinna manna í Líbanon
með því aö senda fjölda skriö-
dreka og langdrægar fallbyss-
ur til herdeilda múslíma í
noröurhluta Líbanon og er víg-
búnaður viö víglínuna norður
af Beirút nú í hámarki. Fyrrum
háttsettur leyniþjónustumaöur
í ísrael sagöi að Sýrlendingar
hyggöu á sókn til aö ganga
milli bols og höfuös á Michel
Aoun leiðtoga kristinna
manna.
PARÍS Frakkar sögðust
vera slegnir af þeirri hótun
múslímskra skæruliöahópa
hliöhollum írönum um aö
bandarískirgíslar í þeirra haldi
veröi teknir af lífi ef franski
flotinn grípi inn í átökin í Líban-
ál on. Hins vegar voru síöur en
svo merki um aö Frakkar hygö-
ust draga úr viðbúnaði sínum
viö strendur landsins.
MOSKVA - Mótmælaverk-
föll hafa brotist út í Bakú höfuö-
borg Azerbaijan og einnig í
Sumgait þar sem blóöug kyn-
þáttaátök uröu milli Azera og
Armen á síöasta ári.
BOGÓTA - Lögreglan í Kól-
umbíu yfirtók þyrlur sem taldar
eru ( eign eitulyfjasmyglara í
herferð sem gerö var gegn
sölumönnum dauöans, en
fjörtíu þúsund manns voru
handteknir.
AUSTUR-BERLÍN - Er
ich Honecker leiðtogi austur-
þýska kommúnistaflokksins er
á batavegi eftir gallsteinaupp-
skurö. Leiðtoginn sem veröur
77 ára á föstudaginn var skor-
inn upp í síðustu viku. Hætt er
viö aö einhver hefur viljað að
aðgerðin á þessum harðlínu-
manni heföi mistekist.
KORA ÞJÓÐGARÐUR-
INN - Vopnaðir menn drápu
breskan náttúrufræðing, Ge-
orge Adamson og tvo kenýska
aðstoðarmenn hans nærri
heimili hans í Kora þjóögarðin-
um í Kenýa. Adamson og kona
hans Joy, sem myrt var í
Kenýa árið 1980, uröu fræg
fyrir að sleppa föngnum Ijónum
í þjóðgarðinn.
ANKARA - Tyrkir skýröu
frá því aö þeir hefðu lokaö
landamærunum aö Búlgaríu til
aö koka í veg fyrir áframhald-
andi flóttamannastraum fólks
af tyrknesku bergi brotnu frá
Búlgaríu.
Illlllllllllllllllllllllll ÚTLÖND ' ................... .......................... ................................. ..................................................................................' ' ....
21 ár liðið frá innrás sovéska hersins í Tékkóslóvakíu:
Óeirðalögregla ræðst
á mótmælendur í Prag
Óeirðalögreglan í Prag réðst af mikill hörku á þúsundir
mótmælenda sem söfnuðust saman á Wenceslas torgi til að
minnast þess að 21 ár er liðið frá innrás sovéska hersins sem
tróð „Vorið í Prag“ í svæðið undir beltum skriðdreka.
Lögregla klædd hjálmum og varin með skjöldum réðst að
mannfjöldanum með kylfurnar á lofti og barði fjölda manns
til óbóta. Mannfjöldinn söng hins vegar „Lengi lifi frelsið“
þar til hann neyddist til að flýja barsmíöina.
Lögreglan girti af miðaldabrú sem
kennd er við Karl þegar mannfjöld-
inn hugðist ganga yfir hans áleiðis til
skrifstofa forsætisráðuneytisins þar
sem mótmælafundur var fyrirhugað-
ur.
Tveimur klukkustundum síðar
héldu um fimmtán hundruð manns á
Wencelastorg að nýju og gerði hróp
að lögreglu samhliða að krefjast
frelsis. Lögreglan handók hundruð
mótmælenda.
Óeirðalögreglan barði nokkra
starfsmenn austuríska sjónvarpsins
sem voru að taka myndir, brutu
myndavélarnar og skáru í sundur
rarfmagnsleiðslur þeirra. Reyndar
höfðu stjórnvöld vara erlend frétta-
mcnn við að vera á ferli um miðborg
Prag í gær vegna hugsanlegra mót-
mæla.
Alþýða Tékkóslóvakíu stendur
ekki ein í mótmælunum gegn innrás
herja Varsjárbandalagsins. í síðustu
viku fordæntdi pólska þingið og
ungverski kommúnistaflokkurinn
innrásina á sínum tíma og hörmuðu
aðild pólskra og ungverskra stjórn-
valda í aðförinni.
Það kom reyndar í ljós að Tékkum
líkar betur við ungverska kommún-
istaflokksins sem er sá frjálslyndasti
í Austur-Evrópu, heldur en við
tékkneska kommúnistaflokkinn sem
hert hefur á tökunum undanfarið.
„Lengi lifi Ungverjaland", „Lengi
lifi Pólland" og „Lengi lifi frelsið"
kallaði ntannfjöldinn eftir að lög-
reglan reif niður borða hóps ung-
verskra mótmælenda þar sem stóð:
„Bolsévikarnir komu með‘ skrið-
dreka, en við komum með blóm“.
Ungverjarnir voru samstundis hand-
teknir.
Óeirðalögreglan í Prag ræðst að
mótmælendum sem minntust þess
að 21 ár er liðið frá því sovéskir
skriðdrekar tróðu „Vorið í Prag“
undir beltum sínum.
Kommúnistar reyna
að kúga Samstöðu
Lech Walesa leiðtogi Samstöðu
hefur sakað pólska kommúnista-
flokkinn um kúgun eftir að komm-
únistaflokkurinn neitaði að vinna
með Samstöðu í ríkisstjórn nema að
flokkurinn fengi mun meiri áhrif í
stjórninni en Samstaða og litlu flokk-
arnir tveir höfðu gert ráð fyrir.
Kommúnistar áttu að fá ráðneyti
varnarmála og innanríkismála til að
tryggja að ekki skapaðist ójafnvægi
í samskiptum Póllands og annarra
ríkja Varsjárbandalagsins þó Sam-
staða tæki við stjórn annarra utan-
ríkismála en þau sem heyra undir
varnarmál, efnahagsmála, atvinnu-
mála og annarra innaríkismála en
þau sem heyra undir innaríkisráðu-
neytið.
Ályktun kommúnistaflokksins var
samþykkt á miðstjórnarfundi hans á
laugardag sama dag og Wojciech
Jaruzelski forseti Póllands fór fram
á það við Tadeusz Mazowiecki einn
helsta ráðgjafa Walesa að hann tæki
að sér að mynda stjórn. Mikil
óánægja ríkti meðal ommúnista með
þá þróun sem verið hefur í þá átt að
kommúnistar missi völd sín, enda
hafa þeir verið alráðir í Póllandi frá
því á árunum eftir stríð.
Kommúnistar vilja að líkindum fá
utanríkisráðuneytið og fjármála-
ráðuneytið í sínar hendur í viðbót
við þau tvö sem þeim hefur verið
boðið.
Pólland:
Prammi siglir á skemmtibát:
Harmleikur
á Thames
Taldar eru líkur á að um sextíu
manns hafí drukknað í ánni Thaines
í London þegar fljótandi dansstaður
sökk á svipstundu eftir að flutninga-
prammi sigldi á skemmtibátinn að-
faranótt sunnudags. Kafarar leituðu
líka allan sunnudaginn og í allan
gærdag og höfðu rúmlega þrjátíu lík
fundist um miðjan dag í gær.
Lögreglan telur að um hundrað og
flmmtíu manns hafí verið í einka-
samkvæmi í bátnum þegar slysið
varð, en eigendur bátsins telja að
einungis hundrað og tíu manns hafí
verið um borð. Vitað er að áttatíu
og fjórir björguðust.
Þeir sem björguðust voru á þilfari
bátsins er hann sökk, en það leið
einungis ein mínúta frá því árekstur-
inn varð og skipið sökk í Thamesána
þar sem hún er breiðust nærri Sout-
hwark Bridge. Aðrir sátu við glaum
og gleði á neðri þilförum skemmti-
bátsins þar sem voru barir og
dansgólf. Flestir samkvæmisgesta
voru á aldrinum tuttugu til þrjátíu
ára.
Sjónarvottar að slysinu segja að
pramminn, sem var mannlaus, hafí
siglt aftan á skemmtibátinn, brotið
hann í tvennt og siglt yfir hann.
- Þetta er eins og skriðdreki æki
yfir Mini, sagði talsmaður félagsins
er gerði skemmtibátinn út og kemur
það heim og saman við lýsingar
sjónarvottanna.
Pramminn er 1500 tonn en
skemmtibáturinn var 90 tonn að
þyngd.
Skipstjóri og fyrsti stýrimaður
prammans er sigldi yfir skemmtibát-
inn voru handteknir eftir slysið og
reyndust þeir báðir hafa neytt áfeng-
is. Er nú verið að kanna hvort hægt
sé að draga þá fyrir rétt sakaða um
fjöldamorð af gáleysi, en talið er
öruggt að pramminn hafí ekki verið
festur við bryggju eins og skyldi.
Súdan:
Friðarviðræður
sigla í strand
Friðarviðræður herforingja-
stjórnarinnar í Súdan og leiðtoga
skæruliða í suðurhluta landsins
sigldu í strand á sunnudag og hafa
vonir um að endir verði bundinn á
blóðugustu borgarastyrjöld Afríku
dvínað í bili. Sem fyrr var það
afstaðan til refsinga í anda ísl-
amskra laga sem var ásteytingar-
steinninn í viðræðunum, en stjórn-
völd í Khartoum fylgja íslam í
blindni á meðan skæruliðar í
suðurhluta landsins eru ýmist
kristnir eða halda enn gamalli trú
forfeðra sinna.
Lam Akol hershöfðingi í Pjóð-
frelsisher Súdan sem berst gegn
stjórnarhernum sagði, að viðræð-
urnar sem fram fóru í Addis Ababa
höfuðborg nágrannaríkisins Eþí-
ópíu, snerust um kröfu skæruliða
um að Sjaria, hegningarlög Kór-
ansins yrðu numin úr gildi, en
herforingjastjórnin hefði hafnað
þeirri kröfu án þess að koma með
móttilboð. Því hafi ekkert haft upp
á sig að ræða málin nánar. Hins
vegar taldi Mohammed al-Amin
Khalifa formaður sendinefndar
herforingjastjórnarinnar að beinar
viðræður gætu haldið áfram eftir
tvær til þrjár vikur.
- Við vonumst til þess að finna
lausn á fyrirkomulaginu með Sjaría
lögin á næsta fundi okkar. Þegar
við höfum náð samkomulagi um
þann hlutann ættu önnur atriði í
kröfugerð Þjóðfrelsishersins að
leysast, sagði al-Amin. Hann sagði
eina lausnina geta orðið þá að
Súdan yrði skipt í tvö ríki sem
mynduðu ríkjasamband, í norð-
urhlutanum ríktu lög Sjariunnar,
enda eru flestir íbúarnir þar músl-
ímar á meðan refsilöggjöfin væri
önnur og mildari í suðurhlutanum.
Herforingjastjórnin hefur þó
ekki boðið þetta fyrirkomulag í
viðræðunum.