Tíminn - 09.11.1989, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 9. nóvember 1989
Tíminn 3
Auður Bjarnadóttir:
Nýr list-
dansstjóri
Nýlega tók Auður Bjarnadóttir
við starfi listdanssjóra Þjóöleikhúss-
ins, sem Hlíf Svavarsdóttir gegndi
sl. tvö ár.
Auður Bjarnadóttir stundaði nám
við Listdansskóla Þjóðleikhússins og
framhaldsnám í Kaupmannahöfn og
Lundúnum. Hún varð fastráðinn
dansari við íslenska dansflokkinn
frá stofnun hans 1973 til ársins 1978,
en þá var hún ráðin sólóisti við
ballettflokk Bæheimsku ríkisóper-
unnar í Munchen. Þar stundaði hún
sólóhlutverk í mörgum helstu klass-
ísku ballettunum í 4 ár. Árið 1979
hlaut Auður fyrstu verðlaun í sam-
keppni ungra norræna dansara á
móti í Kuopio í Finnlandi. Árið
1982-83 var hún ráðin við ballettinn
í Basel í Sviss (Basler Ballet). Hún
kom heim haustið 1983 og dansaði
þá aftur með íslenska dansflokknum
í tvö ár. Árið 1985 var hún fastráðinn
listdansari við Konunglega ballett-
inn í Stokkhólmi og dansaði þar í
öllum sýningum til ársins 1987 er
hún fluttist heim á ný.
Af hlutverkum Auðar erlendis má
nefna sólóhlutverk í Hnotubrjótn-
um, Svanavatninu, Þyrnirósu, Ser-
enada eftir Balanchine, Symphonie
in D eftir Jiri Kylian og Paganini
eftir Vamos. Auður hefur dansað
tæplega þrjátíu hlutverk með ís-
lenska dansflokknum, þ. á m. sóló-
dansari Elds á Listahátíð 1974, Svan-
hildi og vinkonu Svanhildar í
Coppelíu, Odette/Odile í Svana-
vatninu, Hero f Ys og þys út af engu,
Blómavalsinn í Hnotubrjótnum, Pas
de Deux úr le Corsair og Paganini
með Dinko Bogdanic í gestaleik,
Sumdris í öskubusku, Skógardís í
Dafnis og Klói og Candy í Chicago.
Þorsteinn Guðmundsson, Skálpa-
stöðum
Myndabrengl
Þorsteinn Guðmundsson á Skálpa-
stöðum ritaði grein í blaðið þann
26.10 sl. og birtist með henni mynd
af röngum manni. Tíminn biður
hutaðeigandi velvirðingar á þessu og
birtum við hér með réttum Þorsteini.
Fjölgun í
Framsókn
A sfðustu dögum hafa tveir af
forystumönnum Framsóknarflokks-
ins eignast börn. Valgerður Sverris-
dóttir þingmaður Framsóknar-
flokksins á Norðurlandi eystra eign-
aðist stúlku síðast liðið laugardags-
kvöld. Stúlkan var 13 merkur og 52
cm löng. Eiginmaður Valgerðar er
Arvid Kro.
Á mánudaginn eignaðist Kristín
Vigfúsdóttir stúlku. Kristín er eigin-
kona Finns Ingólfssonar varaþing-
manns í Reykjavík og gjaldkera
Framsóknarflokksins. Mæðrum og
bömum heilsast vel.
Tíminn óskar foreldrunum til
hamingju og börnunum velfarnaðar
í lífinu. -EÓ
Auður Bjarnadóttir.
Lýðræðisleg félagsstörf
Fræðslurit dr. Hannesar Jónsson-
ar um lýðræðisleg félagsstörf er kom-
ið út í annarri útgáfu. Með henni eru
einnig fáanlegar hljóðsnældur með
10 fræðsluerindum höfundar í sam-
ræmi við verkefnaskrá 10 málfunda,
en dagskrár þeirra og þjálfunarverk-
efni er að finna í lok bókarinnar.
Á kápu bókarinnar segir að þetta
sér heilsteypt og yfirgripsmikil hand-
bók fyrir þá, sem vilja taka ábyrgan
þátt í félagsstarfi og ná árangri í
fundarstörfum og mælsku. Bókin er
304 blaðsíður og skiptist í þrjá hluta,
með yfir 20 skýringamyndum, sem
sýna m.a. heppilega sætaskipan í
fundarsal smærri og stærri funda.
í formála segir að það sé einlæg
von höfundar að bókin verði að
gagni fyrir eldri sem yngri áhuga-
menn um lýðræðisskipulagið og fé-
lags- og fundarstörf á grundvelli
þess, sama hvar í flokki þeir standa.
Bókin var fyrst gefin 1969, þá
áttunda bókin í bókasafni Félags-
málastofnunar. -ABÓ
Dr. Hannes Jónsson.
FJÓRFALDUR
POnUR!
a
lauga
Nú stefnir í einn stærsta vinning í Getraunum
frá upphafi þeirra hérlendis!
Það er svo sannarlega til mikils að vinna
í íslenskum Getraunum.
Á síðustu þremur vikum hefur engin röð
komið fram með 12 réttum.
Þess vegna er fjórfaldur pottur núna
- og fjórföld ástæða til að vera með!
Auk þess kostar röðin aðeins 10 kr.
Láttu nú ekkert stöðva þig.
Getraunaseðillinn er líka fyrir þig.
verð
urfh
a/9Ui
'9ara»9inn.
-ekkibaraheppni