Tíminn - 09.11.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 9. nóvember 1989
ÚTLÖND
HÖFÐABORG - Nelson
Mandela leiðtogi Afrlska þjóð-
arráðsins hefur boðið fyrrum
fangelsisklefafélaga slnum, en
pólitísks andstæoings Japtha
Masemola til stofufangelsis
síns, en Japtha er nýlega laus
úr fanqelsi. Er talið að þetta sé
fyrirboði samkomulags milli
tveggja fjölmennustu baráttu-
samtaka blökkumanna í Suð-
ur-Afríku.
FRÉTTAYFIRLIT
0
AUSTUR-BERLÍ
Austur-Þjóðverjar munu taka
skref ( átt til frjálsra kosninga
ef marka má orð Guenters
Schabowski nýkjörins stjórn-
arnefndarmanns kommúnista-
flokksins, en hann sér nú um
málefni fjölmiðla. Hann sagði
að miðstjórn kommúnista-
flokksins væri nú með í undir-
búningi frumvarp að nýjum
kosninqalögum sem gera ráð
fyrir að allir stjórnmáTaflokkar
sem uppfylla ákveðnum
skilyrðum fái að bjóða sig fram.
Þetta þýðir (raun að kommún-
istaflokkurinn mun gefa frá sér
algert forræði sitt.
BONN - Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands hefur
heitið Austur-Þjóðverjum
dyggri efnahagsaðstoð ef þeir
taki skrefið til lýðræðis til fulls.
Reszo Nyers formaður sósíal-
istaflokksins í Ungverjalandi
sagði að forráðamenn komm-
únistaflokksins hefðu breytt of
litlu of lítið og of seint. Því sjái
þeir fram á hræðilega erfiðleika
í efnahagslífi landsins. Fidel
Castro forseti Kúbu sagði að
breytingarnar í Austur-Evrópu
væru sorglegar.
AMMAN -Jórdanirfá nú að
bragða á málfrelsi (fyrsta sinn
(tvo áratugi, en fyrstu kosning-
arnar í Jórdaníu fóru þar fram
í aær. Hussein konungur saqði
ao kosningarnar mörkuðu
þáttaskil í sögu landsins.
WASHINGTON - George
Bush forseti Bandaríkjanna
undirritaði lög sem hækka
skuldaþak Bandaríkjastjórnar
I 3120 milljarða Bandaríkja-
dala. Með þessu getur fjár-
málaráðuneýtið tekið 40 millj-
aröadollaraíán (þessari viku.
Áfram halda hræringarnar í A-Þýskalandi og hefur gömlu harðlínumönnunum
verið sparkað úr stjórnarnefnd kommúnistaflokksins:
Þekktur umbótasinni til-
nefndur forsætisráðherra
Hans Modrov borgarstjóri í Dresden og einn helsti
umbótasinni innan austurþýska kommúnistaflokksina var
tilnefndur sem forsætisráðherraefni flokksins eftir sögulegar
hræringar í stjórnarnefnd flokksins á fundi miðstjórnar í gær.
Umbótasinninn Hans Modrow hefur verið tilnefnur sem nýr forsætisráðherra
Austur-Þýskalands eftir söguiegar hræringar í stjórnmálanefnd kommúnista-
flokksins.
Egon Krenz hinn nýi leiðtogi
kommúnistaflokksins hafði kallað
saman miðstjórn flokksins til að
ræða þá hröðu stjórnmálaþróun sem
orðið hefur í Austur-Þýskalandi að
undanförnu. Hann hóf fund mið-
stjómar með því að tilkynna að öll
átján manna stjórnarnefnd komm-
únistaflokksins segði af sér og að
miðstjómin yrði að kjósa nýja
stjómmálanefnd. Var þetta önnur
óvænta afsögnin í Austur-Þýska-
landi á einum sólarhring, því í
fyrradag sagði ríkisstjórn landsins af
sér.
Fækkað var í stjórnamefndinni og
fengu þeir gömlu harðlínumenn sem
þar vom enn innanborðs að taka
pokann sinn. Fjórir nýir menn tóku
sæti í stjórnarnefndinni, þar á meðal
Hans Modrov. Er nú svo komið að
flestir stjórnarnefndarmennimir
teljast til umbótasinna auk þess sem
meðalaldur hennar lækkaði til mik-
illa rauna.
Egon Krenz heldur enn um stjóm-
artaumanna í kommúnistaflokkn-
um. Hann var endurkjörinn leiðtogi
flokksins í annað sinn á þremur
viðburðríkum vikum.
Hans Modrov sem mun nokkuð
ömgglega verða kjörinn forsætisráð-
herra á næsta þingfundi Volkskam-
mer, þjóðþingi Austur-Þýskalands,
er mjög vinsæll meðal almennings.
Hefur honum að verið líkt við
Mikhaíl Gorbatsjof forseta Sovét-
ríkjanna og vitað er að Modrov
hefur tekið hann að mörgu leyti til
fyrirmyndar.
Modrov hefur ekki verið í innsta
hring kommúnistaflokksins heldur
einbeitt sér að borgarstjóraembætt-
inu í Dresden. Má segja að hann hafi
leikið lykilhlutverk í þeirri stefnu-
breytingu austurþýskra stjómvalda
að taka mildilegar á mótmælagöng-
um almennings, því hann lét við
fyrsta tækifæri sleppa því fólki úr
haldi sem lögreglan hafði handtekið
vegna ólöglegra mótmælaaðgerða í
Dresden. Modrov bætti um betur
með því að skipa sér í forystusveit
þeirra er kröfðust aukinna lýðrétt-
inda og frelsis í Austur-Þýskalandi
og tók þáttí kröfugöngu Dresdenbúa
á mánudaginn.
Með hinum róttæku breytingum
er Egon Krenz greinilega að freista
þess að ná tökum á þjóðlífinu í
Austur-Þýskalandi, en flóttamanna-
straumurinn þaðan hefur verið
gegndarlaus undanfama daga auk
þess sem fjölmennar mótmælagöng-
ur almennings em daglegt brauð.
Hvort það tekst verður tíminn að
leiða í ljós.
Helmut Kohl kanslari Vestur-
Þýskalands fagnaði mjög afsögn
ríkisstjómar Austur-Þýskalands, og
ekki minnkaði fögnuðurinn þegar
stjómamefndin sagði af sérembætti.
Hann hefur heitið Austur-Þjóðverj-
um dyggilegri efnahagsaðstoð ef
leyfðar verða frjálsar kosningar á
vestræna vísu í landinu.
Bandaríkin:
Tímamótakosningar
fyrir blökkumenn
Það fór eins og spáð var hér á
síðunni fyrr í þessari viku. Það varð
„svartur“ kosningadagur í Banda-
ríkjunum ■ fyrradag. Blökkumenn
unnu mikinn stjórnmálasigur þar
sem tvö stjómmálavígi hvíta manns-
ins féllu.
í Virginíuríki þar sem blökku-
menn hafa átt mjög erfitt uppdráttar
í stjómmálum var Douglas Wilder
kjörinn ríkisstjóri. Er Douglas fyrsti
blökkumaðurinn sem nær kjöri í
embætti ríkisstjóra í sögu Bandaríkj-
anna. Afi Wilders var þræll.
í New York sigraði demókratinn
David Dinkins örugglega í borgar-
stjómarkosningunum og er hann
fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir
embætti borgarstjóra í New York.
Sigur blökkumannanna er einnig
sigur demókrataflokksins og and-
stæðinga þeirra er vilja banna fóstur-
eyðingar í Bandaríkjunum. James
FÍorio frambjóðandi demókrata var
kjörinn borgarstjóri í New Jersey
þrátt fyrir það að George Bush
forseti Bandaríkjanna hafi lagt mik-
ið á sig í kosningabaráttu James
Courter, frambjóðanda demókrata.
Það sama var reyndar upp á
tengnum í New York. Þar hafði
George Bush stutt dyggilega við bak
hins vinsæla fyrmm ríkissaksóknara
Rudolph Giuliani.
Það sem einkenndi kosningabar-
áttuna á þessum stöðum var annars
vegar baráttan um fóstureyðingar,
þar sem demókratar leggjast gegn
því að fóstureyðingar verði algerlega
bannaðar, en repúblikanar eru harð-
ir á móti fóstureyðingum. Hins vegar
var ótrúlega sóðaleg kosningabar-
átta einkennandi og fannst mönnum
nóg um þó Bandaríkjamenn séu
ýmsu vanir í slíkum málum.
Sandínistar bjóða vopnahlé
Sandínistastjórnin í Níkaragva
hefur boðist til þess að endumýja
vopnahlé í landinu ef Kontraliðar
fallast á að undirrita friðarsamkomu-
lag sem fimm forsetar Mið-Amer-
íkuríkja gerðu í ágústmánuði og
tryggir meðal annars frjálsar kosn-
ingar í Níkaragva í febrúarmánuði.
Daniel Ortega forseti Níkaragva
skýrði frá þessari ákvörðun Sandín-
istastjómarinnar og sagði að tilboðið
verði lagt fyrir fulltrúa Kontraliða í
dag, en Kontrar og of fulltrúar
Níkaragvastjórnar munu ræða málin
hjá Sameinuðu þjóðunum í dag og á
morgun.
Um mánaðarmótin síðustu hóf
stjómarherinn í Níkaragva herför
gegn skæmliðum Kontra eftir að
sandínistar ákváðu að framlengja
ekki vopnahlé sem ríkt hafði í nítján
mánuði. Ástæðan var sögð síauknar
árásir Kontra á saklausa bændur í
Níkaragva. Kontrar féllust hins veg-
ar á friðarviðræður þær sem hefjast
hjá Sameinuðu þjóðunum í dag
þegar þeir sáu hvert stefndi, en
herstyrkur Sandínista er margfaldur
á við Kontraliða eftir að Bandaríkja-
menn hættu hernaðaraðstoð við
Kontra.
Kitty Dukakis á spítala
Ósigur Michael Dukakis, ríkis-
stjóra Massachusetts og fyrmrn
frambjóðanda Demókrataflokks-
ins í síðustu forsetakosningum,
hefur gert eiginkonu hans, Kitty að
áfengissjúklingi. Hún var færð á
sjúkrahús aðfaramótt þriðjudags.
Útvarpsfréttir kváðu hana meðvit-
undarlausa við komuna. Frú Duk-
akis sem er 52 ára gömul sagði í
ræðu sinni á heimsþingi geðlækna
í Aþenu í síðasta mánuði: „Ég er
áfengissjúklingur og fíkniefnaneyt-
andi“. Hún hélt því fram að megr-
unarlyf sem hún tók sem unglingur
haft leitt til 27 ára amfetamínneyslu
og afturhvarfs í áfengi er eiginmað-
ur hennar tapaði fyrir George Bush
í forsetakosningunum í nóvember
síðastliðnum.
VDS/MHÞ - starfskynning
Öflug
sprenging
í Beirút
Öflug sprengja sprakk í hverfi
múslíma í austurhluta Beirút þar
sem Sýrlendingar ráða lögum og
lofum. Tveir féllu og sjö manns
særðust í sprengingunni sem er sú
fyrsta frá því að Rene Muawad
var kjörinn forseti Líbanon á
sunnudaginn var.
Staða Rene Muawad styrktist
mjög í gær þegar leiðtogi SLA,
hersveita kristinna manna í
suðurhluta Líbanon, lýsti stuðn-
ingi sínum við forsetann. Staða
Michel Aouns yfirmanns her-
sveita kristinna manna í líbanska
hemum veiktist að sama skapi og
hefur hann nú mjög einangrast
þar sem flestir aðrir leiðtoga
kristinna manna hafa lýst stuðn-
ingi við kjör hins nýja forseta.
Antoine Lahd yfirmaður SLA
sagði í útvarpsávarpi sínu að þar
sem Muawad væri kjörinn af
réttkjörnum þingmönnum Líb-
ana, þá myndu hersveitir krist-
inna manna í suðurhluta Líbanon
standa að baki honum. Jafnframt
hvatti Lahd Aoun til að segja af
sér sem yfirmaður hersveita krist-
inna manna í tíbanska hemum.
Stuðningur kristinna manna í
suðurhluta Líbanon er Muawad
mjög dýrmætur, en hersveitir
þeirra vinna náið með ísraelum
sem hafa herlið sitt í Suður-Líb-
anon undir því yfirskini að verja
landamæri ísrael fyrir árásum
skæruliða Palestínumanna og
öfgafullra múslíma. Reyndar
harmaði Lahd að forsetinn skyldi
setja brotthvarf fsraela frá Líban-
on á oddinn og sagði nærtækara
að koma 33 þúsund manna herliði
Sýrlendinga úr landi.