Tíminn - 09.11.1989, Qupperneq 17
Fimmtudagur 9. nóvember 1989
Tíminn 17
rkurvrxuu i Mnr
llllllllllllllllllllllllllll SPEGILL llllllllinilllllllllll]llll«IIIIlllllllllllllHllllllllllll]|
Elsa
Þorkelsdóttir
Arnþróður
Karlsdóttir
Unnur Ingibjörg
Stefándsdóttir Pálmadóttir
Konur - Kosningar framundan
Matarspjallsfundur Landssambands Framsóknarkvenna um sveitar-
stjórnarkosningarnar verður haldinn ( Litlu-Brekku í Reykjavík
miðvikudaginn 15. nóvember kl. 18.30.
Umræðurnar leiða þær Unnur Stefánsdóttir formaður LFK, Ingibjörg
Pálmadóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi, Elsa Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs og Arnþrúður Karlsdóttir, fjölmiðla-
fræðingur.
Hollur matur á boðstólnum. Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn LFK
Austur-Skaftfellingar
Árshátíð Framsóknarfélagsins verður ( Hótel Höfn laugardaginn 11.
nóvember og hefst kl. 20.00.
Miðapantanir þurfa að berast Hótel Höfn í síma 81240 fyrir kl. 17.00
föstudaginn 10. nóvember.
Nánar auglýst í Eystra-Horni.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélagið.
34. kjördæmisþing framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi-eystra
Haldið á Hótel KEA, Akureyri 11. nóv. 1989
Dagskrá:
Kl. 9.00 Setning.
■ Skýrsla stjómar og reikningar.
Kl. 10.00 Ræður þingmanna.
Lögð fram stjórnmálaályktun.
Almennar umræður.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Kosningar.
Kl. 13.30 Sér mál þingsins: Umhverfismál og náttúruvernd.
Framsögumenn: Jón Sveinsson aðst.m. forsætisráðh.
Hermann Sveinbjörnsson aðst.m. sjávarútv.ráðh.
Kl. 16.00 Ávörpgesta.
Kl. 16.30 Afgreiðsla mála.
Úrslit kosninga.
Önnur mál.
Kl. 18.30 Þingslit.
Kl. 20.00 Kvöldskemmtun á Hótel KEA.
Jón
Sveinsson
Hermann
Sveinbjörnsson
Guðmundur
Bjarnason
JóhannesGeir
Slgurgelrsson
Slgurður
Gelrdal
Gissur Helga
Pétursson Helgadóttlr
Sunnlendingar
Almennur fundur um umhverfismál verður haldinn fimmtudaginn 9.
nóv. kl. 21.00 í Inghól, Selfossi.
Frummælandi verður Júlíus Sólnes, verðandi umhverfismálaráð-
herra. Hann mun m.a. kynna starf og umfang væntanlegs umhverfis-
ráðuneytis.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Árnessýslu.
Borgnesingar nærsveitir
Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 10.
nóvember kl. 20.30
Fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Selfoss og nágrenni
Félagsvist verður spiluð að Eyrarvegi 15 á þriðjudögum, 14.
nóvember, 21. nóvember og 28. nóvember.
Kvöldverðlaun - Glæsileg heildarverðlaun.
Framsóknarfélag Selfoss.
Ruglingur í
ástalífinu hjá
„ Leðurblökufól ki n u “
Sagt var um Kim Basinger, sem
leikur Vicki, kærustu Leðurblöku-
mannsins (Batman‘s) í samnefndri
bíómynd, að hún hafi heillað svo
karlpeninginn sem vann við mynd-
ina, leikara, hljómlistarmenn og
tæknimenn, að legið hefði við
vandræðum.
Tveir voru þó til nefndir sem
„bestu vinir“ hennar Kim. Það var
sjálfur Michael Keaton sem leikur
titilhlutverkið og svo rokkarinn
Prince, sem sér um músíkina í
myndinni. Þama var á ferðinni
hinn klassíski ástar-þríhyrningur.
Keaton er 37 ára og hefur verið
mikið í sviðsljósinu að undanfömu
og hefur leikið aðalhlutverk í
mörgum myndum sem hafa orðið
vinsælar. Leðurblökumaðurinn
t.d. mokar inn peningum fyrir
kvikmyndafyrirtækið.
Þau Kim Basinger og Keaton
fóru að vera saman sl. sumar í
London meðan verið var að vinna
að Batman-myndinni. Kim leikur
þar Vicki Vale ljósmyndara, sem
verður ástkona Leðurblökumanns-
ins. En sagt var að þau héldu áfram
í ástahlutverkunum þó upptöku-
vélamar væm hættar að snúast.
Michael Keaton er kvæntur maður,
svo þetta varð hálfvandræðalegt
samband. Þá reyndi Kim að hugga
sig við rokkarann Prince, en það
varð lítið úr því. Prince lét sem sér
væri alveg sama. Hann sagði iíka
að Kim væri of gömul (35 ára) fyrir
sig.
Slíkar ástamálaflækjur em víst
ekkert óalgengar þegar verið er að
taka upp kvikmyndir. Stjórnendur,
leikendur, tæknimenn og annað
starfsfólk er allt yfirspennt á taug-
um, þegar verið er að keppast við
tímann og fjármálaáætlunina. Síð-
an er margendurteknar ástarsenur,
þar sem leikarar reyna að vera sem
eðlilegastir og láta sem ástin sé á
suðupunkti. Það er því hætta á að
þarna geti soðið uppúr. En algengt
er víst að ástasamböndin endist
ekki fram yfir fmmsýningu.
Kim Basinger kom á frumsýn-
ingu á Batman-myndinni í gagn-
sæjum, svörtum kjól, sem vakti
mikla athygli og allir Ijósmynd-
arar þyrptust að hennl. Hún fékk
því næga athygli, þó að hún
væri ekki með sjálfan „Leður-
blökumanninn" upp á arminn
Michael Keaton mættl á frumsýninguna með eiginkonunni,
Caroline McWilllams, þrátt fyrir orðróm um að þau væru að skilja
Prince er sagður kominn út úr
Batman-tríóinu og prísar sig
sælan.
Ungfrú Ameríka ’89
(Miss America)
- er dýralæknir
Debbye Tumer, 23 ára fegurðardrottning
frá Missouri (Miss Missouri) varð Ungfrú
Ameríka í hinni árlegu fegurðarsamkeppni í
Atlantic City. Debbye Turner er dýraskurð-
læknir. Ungfrúin sagði í blaðaviðtali eftir
krýninguna, að hún væri vanari því að skera
upp kjölturakka eða bólusetja kynbótanaut
en að ganga eins og sýningarstúlka eftir
mjóum palli milli áhorfenda. En hún sagði
samt að þetta hefði verið dásamlega spenn-
andi, enda sést á myndinni, að spennan er í
hámarki, því fegurðardrottningin grætur af
gleði.
Það er Gretchen Carlson, Ungfrú Ameríka
1988, sem hér krýnir Debbye Turner, sem
hefur tekið við titlinum fyrir árið 1989