Tíminn - 29.11.1989, Side 2
2 Tíminn
'Miðvikudagúr 29. november T989
Mannlegi þátturinn í samskiptum fólks kenndur föngum á Litla-Hrauni:
Samskipti og tjáning
á fimm daga námskeiði
Þessa dagana er verið að undirbúa námskeið fyrir fanga á
Litla-Hrauni að ósk fangelsisstjórnarinnar og Fangetsismála-
stofnunar ríkisins og mun MFA, eða Menningar og fræðslu-
samtök alþýðu annast námskeiðið. Á námskeiðinu á að
kenna meðal annars mannleg samskipti, að koma fyrir sig
orði, fara í viðtöl og sækja um vinnu og færa rök fyrir máli
sínu auk annars.
Tryggvi Þór Aðalsteinsson for-
stöðumaður MFA sagði að hug-
mynciin að námskeiðinu væri upp-
haflega komin frá föngum á Litla-
Hrauni. Haft hefði verið samband
við MFA um málið, en samtökin
hafa mikla og langa reynslu í nám-
skeiðahaldi af ýmsu tagi.
„Eftir samtöl við forstöðumann
vinnuhælisins á Litla-Hrauni og for-
stöðumann Fangelsismálastofnunar
varð niðurstaðan sú að koma á þessu
námskeiði," sagði Tryggvi Þór í gær.
Hann sagði að námskeiðið yrði í
fimm daga og kennd yrðu samskipti
og tjáning. Þá yrðu veittar leiðbein-
ingar í hagnýtum atriðum eins og að
mæta í viðtöl vegna atvinnuumsókna
og öðru þess háttar.
Hann sagði að föngum yrði ekki
gert skylt að sækja námskeiðið held-
ur væru þeir alveg sjálfráðir um
hvort þeir tækju þátt í því eða ekki.
Ef nægileg þátttaka yrði í námskeið-
inu þá sagðist Tryggvi gera ráð fyrir
því að það hæfist þann níunda næsta
mánaðar.
Kennarar á námskeiðinu verða
Tryggvi Þór Aðalsteinsson forstöðu-
maður MFA, Helgi Baldursson
kennari við Verslunarskóla fslands
og Emil Thoroddsen félagsfræðingur
hjá Iðntæknistofnun.
Harald Johansen forstöðumaður
sagði að sér væri mjög að skapi að
slík námskeið yrðu haldin að Litla-
Hrauni. Spurningin stæði eins og
ævinlega um það hvernig staðið yrði
undir kostnaði. Það léki ekki vafi á
að námskeið af þessu tagi væri hið
þarfasta framtak og ef áhugi vist-
manna, sem eru 55 talsins væri
tvímælalaus og næg þátttaka fengist
yrði námskeiðið haldið. -sá
Skoðunarstöð Bifreiða-
skoðunar íslands hf. í
Reykjavík tilbúin um áramót:
Sex fólks-
bílabrautir
Þessa dagana er verið að leggja
síðustu hönd á byggingu skoðunar-
stöðvar Bifreiðaskoðunar íslands hf.
við Hestháls í Reykjavík. Stöðin
verður tekin í notkun um næstu
áramót og flyst þá öll starfsemi
fyrirtækisins þangað. Þar verða sex
brautir fyrir fólksbíla og ein fyrir
vörubíla, og því hægt að taka sjö
bifreiðar til skoðunar í senn.
í hinni nýju skoðunarstöð mun
aðstaða til skoðunar verða allt önnur
en nú er, auk þess sem aðstaða fyrir
viðskiptavini verður stórbætt.
Fyrirkomulagið verður með þeim
hætti að bílnum er ekið inn á braut
þar sem yfirlitsskoðun fer fram,
m.a. Ijósaskoðun. Að þeirri skoðun
lokinni er bifreiðinni ekið að lyftu
þar sem undirvagn, stýrisbúnaður
og fleira er skoðað og að lokum er
bifreiðin færð á sérstaka braut þar
sem fram fer hemlaskoðun. Öll
skoðunin fer því fram innandyra og
er gert ráð fyrir að skoðun á fólksbíl
taki um það bil 15 mínútur að
meðaltali.
Húsið er um 1650 fermetrar að
stærð og mun kosta fullbúið með
tækjum um 160 milljónir króna..
Flugsaga í fimmtíu ár
Út er komin bókin „Fimmtíu flogin ár“ sem er fyrra bindi atvinnuflugsögu íslendinga. Bókin er eftir þá
Steinar J. Lúðvíksson og Svein Sæmundsson. Bókin er gefln út af Frjálsu framtaki hf. í samvinnu við Flugleiðir
Á árinu 1987 voru liðin flmmtíu ár frá því að Flugfélag Akureyrar, sem var forveri Flugfélags Islands, var
stofnað en frá þeim tíma að það hóf starfsemi sína hefur saga atvinnuflugs á íslandi verið óslitin.
Í formála bókarinnar segir Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða m.a. „Íslensk flugsaga er saga framsýni
og dugnaðar. Hún er saga manna sem áttu hugsjónir og voru tilbúnir til að fóma ýmsu fyrir þær. Starf
frumherjanna verður seint að fullu metið.“
Bókin er 270 blaðsíður í stóru broti. í henni eru 305 Ijósmyndir, margar hverjar í lit.
Menningarferð
til Búlgaríu
í byrjun nóvember fóru Ólöf
Kolbrún Harðardóttir óperusöng-
kona og Margrét Sigþórsdóttir for-
maður Búlgaríufélagsins á íslandi,
til Búlgaríu í boði listadeildar
menntamálaráðuneytisins þar. Til-
efnið var að efla menningartengsl
landanna, t.d. með gagnkvæmum
heimsóknum listamanna. Þær stöllur
voru viðstaddar opnun Varna óperu-
hallarinnar, og á myndinni eru þær
með Kamburov forstjóra óperunn-
ar. Vonir standa til að í náinni
framtíð muni Varna óperan heim-
sækja ísland.
Viðskipti Álafoss við
Sovétríkin:
Ný tegund
vöruskipta
Síðastliðinn föstudag gerði Ála-
foss vöruskiptasamning við Sovét-
ríkin um að lítið unnin olía fyrir
rúmar 90 milljónir króna komi sem
greiðsla fyrir ullarvörur frá Álafoss.
Sænskt fyrirtæki kaupir olíuna og
fjármagnar þannig ullarkaup Sovét-
manna. Er það nýjung í íslensku
viðskiptalífi að varan sem greitt er
með sé seld erlendis.
Undirbúningur þessa samnings
hefur staðið í rúmt ár eða allt frá því
að skrifað var undir rammasamning
við nýtt sovéskt fyrirtæki, „Rúss-
nesku utanríkisverslunina." Þessi
tegund vöruskipta hefur orðið
æ algengari í ríkjum Austur-Evr-
ópu vegna gjaldeyrisskorts. Hafa
fyrirtæki á Vesturlöndum sérhæft sig
í að selja sovéska vöru þriðja aðila
og fjármagna þannig kaup Sovét-
manna á vestrænum vörum.
SSH
Tillögur til aðstoðar skipasmíðaiðnaðinum:
Sama fyrirgreiðsla verði
vegna verkefna innanlands
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn-
inni tillögur um ráðstafanir til þess að bæta samkeppnisað-
stöðu innlendra skipasmíðastöðva og stuðla þannig að því að
þær hafi næg verkefni við nýsmíðar og viðgerðir á næstu
misserum. Meðal tillagna má nefna að stjórnvöld gangi eftir
því að lánastofnanir veiti samskonar ábyrgðir vegna verkefna
hjá innlendum skipasmíðastöðvum og þær veita vegna
verkefna erlendis.
Aðrar tillögur sem iðnaðarráð-
herra hefur lagt fram eru þær að
lánafyrirgreiðsla vegna verkefna hjá
innlendum skipasmíðastöðvum
verði bætt meðal annars með breyting-
um á lánareglum Fiskveiðasjóðs
íslands, þannig að lánsumsóknir
verði afgreiddar eftir því sem þær
berast en ekki einu sinni á ári eins
og nú er. Þá muni iðnaðarráðuneytið
í samvinnu við samtök fyrirtækja í
greininni stuðla að samstarfi skipa-
smíðastöðva um tiltekin stór verk-
efni. Nýsmíða- og viðgerðaverkefn-
um opinberra aðila verði flýtt og
beint til innlendra skipasmíðastöðva
eftir því sem kostur er. Ákvörðun
hefur verið tekin um að viðgerð á
rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni
fari fram hér á landi og stefnt er að
því að smíði mælingaskips fyrir
Landhelgisgæsluna fari fram hér á
landi. Þá er og gerð sú tillaga að
innlendum skipasmíðastöðvum
verði veitt aðstoð við verkefnaleit er-
lendis og til þess útvegað fé. I
samvinnu við fyrirtæki í greininni
mun iðnaðarráðuneytið og lánasjóð-
ir beita sér fyrir kynningarátaki fyrir
skipasmíðaiðnaðinn jafnt innan-
lands sem erlendis. Er útgáfa kynn-
ingarbæklings sem sendur hefur ver-
ið öllum útgerðarmönnum hér á
landi fyrsta skrefið í þá átt.
Tillögurnar sem um ræðir hafa
m.a. verið mótaðar í framhaldi af
samþykkt Alþingis á þingsályktun
um bætta samkeppnisstöðu innlends
skipasmíðaiðnaðar 6. maí sl. Tvær
nefndir starfa nú á vegum ráðuneyt-
isins að þessum málum. Önnur
þeirra, sú sem lengur hefur starfað
hefur því sem næst lokið tillögugerð
um opinberar ráðstafanir til þess að
jafna samkeppnisaðstöðu innlendra
skipasmíðastöðva gagnvart erlend-
um. HÍn nefndin hefur undanfarnar
vikur verið að leita að hugsanlegum
kaupanda á óseldu skipi Slippstöðv-
arinnar á Akureyri og greiða fyrir
kaupunum. Slippstöðin á nú í við-
ræðum við hugsanlegan kaupanda
en Ijóst er að náist samningur þarf
íhlutun stjórnvalda til að hann nái
fram að ganga. í því sambandi hefur
m.a. verið rætt um að breyta reglum
um skipti á notuðum og endurbyggð-
um skipum þannig að innlendum
skipasmíðastöðvum verði auðveld-
ara en nú að taka notuð skip upp í
kaup á endurbyggðum skipum.
-ABÓ
Frá blaðamannafundi þar sem tillögur um aðstoð við
VOru kynntar. límamynd Pjetur
Misferli með kort
Vegna vaxandi misferlis með stolin og glötuð greiðslukort hefur
Visa-Island hvatt verslunareigendur til að brýna fyrir afgreiðslufólki að
huga vel að undirskriftum og gildistíma kortanna. Leita beri úttektarleyfls
og staðfestingar á gildi korts ef eitthvað er tortryggilegt við kortið eða
handhafa þess.
Einnig eru verslunareigendur minntir á að ekki er heimilt að taka við
sölunótum sem hafa verið fyrirfram undirritaðar í heimahúsum og sendlar
koma með í verslanir en nokkur brögð hafa verið að þessu.
Þá er athygli vakin á því að öll frávik frá reglum og ákvæðum almenns
samstarfssamnings eru á áhættu þeirra fyrirtækja eða söluaðila sem hlut
eiga að máli. Sem dæmi um þetta má nefna lengingu úttektartímabUs og
það að dagsetja sölunótur fram í tímann. SSH