Tíminn - 29.11.1989, Qupperneq 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, ..S.29922 ... SAMVINNUBANKINN l í BYGGÐUM LANDSINS bðá PÓSTFAX TÍMANS 687691 ÞRttSTUR 68 50 60 VANIR MENN
Tíniimi
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1989
Framkvæmdastjóri Sauðfjárveikivarna sendir, í nafni landbúnaðarráðuneytisins,
bæjarfógeta á Siglufirði og sýslumanni í Skagafirði tilskipanir um valdboð:
Embættismaður skipar
fógetum fyrir verkum
Samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins hafa Sauð-
fjárveikivarnir ekki heimild til þess að fyrirskipa bæjarfóg-
etum og sýslumönnum að framkvæma niðurskurð vegna
riðuveiki. Eftir því sem Tíminn kemst næst var í haust
ósamið við átta bændur er skera átti niður hjá vegna riðu
á þessu ári. Að minnsta kosti tvær tilskipanir um
valdbeitingu voru gefnar út, til sýslumannsins í Skagafjarð-
arsýslu og bæjarfógetans á Siglufirði, af Kjartani Blöndal
framkvæmdastjóra Sauðfjárveikivarna.
Um er að ræða fyrirskipanir um undir og sendi handhöfum dóms-
valds í héraði fyrirskipanir. Um-
boðsmaður Alþingis sendi þessa
spurningu til dómsmálaráðuneytis-
ins en ráðuneytið sendi fyrir
skömmu frá sér álitsgerð með svari
við spurningunni.
í álitsgerð ráðuneytisins er vitn-
að til laga um dómsvald í héraði,
nr. 74 frá 1972. Segir í álitsgerðinni
valdniðurskurð á bæjunum Flata-
tungu í Akrahreppi og Sauðanesi
við Siglufjörð. Þetta kom í ljós er
spurningar um ýmis vafaatriði voru
sendar, af öðrum bóndanum til
umboðsmanns Alþingis. Þeirra á
meðal var spurt hvort eðlilegt og
löglegt væri að embættismaður í
landbúnaðarráðuneytinu skrifaði
„að telja verði ljóst að dómsmála-
ráðherra fari með ákvörðun á því
hver störf verði lögð til sýslumanna
og bæjarfógeta, að því leyti sem
lög mæla ekki fyrir um það efni.“
Jafnframt eru tekin af tvímæli um
að hvorki framkvæmdastjóra
Sauðfjárveikivarna, né landbúnað-
arráðherra, er ekki heimilt að fyrir-
skipa sýslumönnum og bæjarfóget-
um að skera niður fé með valdi.
Orðrétt segir í ályktuninni.
„Lög um varnir gegn útbreiðsiu
næmra sauðfjársjúkdóma og út-
rýmingu þeirra nr. 23 frá 1956,
kveða eigi sérstakiega á um hlut-
verk sýslumanna um framkvæmd
þeirra. Verður því ekki talið að
Sauðfjárveikivarnir geti „falið“
þeim að framkvæma niðurskurð
sauðfjár. Til atbeina sýslumanna
af þessu tilefni getur hins vegar
komið með öðrum hætti vegna
hlutverks þeirra sem lögreglustjóra
og dómara."
Kjartan Blöndal, framkvæmda-
stjóri Sauðfjárveikivarna, vildi er
Tíminn hafði samband við hann í
gær, ekki láta hafa neitt eftir sér
um þetta mál. Að sögn Kjartans er
verið að vinna að lausn á þeim
deilumálum sem eftir er að útkljá
á milli einstakra bænda og Sauð-
fjárveikivarna, vegna riðufargana.
Haft var samband við Haildór Þ.
Jónsson sýslumann á Sauðárkróki,
en ekki náðist í gær í Erling
Óskarson bæjarfógeta á Siglufirði.
Halldór staðfesti að hann hefði
fengið tilmæli frá landbúnaðar-
ráðuneytinu, undirrituð af Kjart-
ani Blöndal, þar sem farið var fram
á að hann annaðist framkvæmd
niðurskurðar á fé Gunnars Odds-
sonar bónda í Flatatungu. Sýslu-
maðurinn sagði jafnframt að hon-
um hefði ekki borist álitsgerð
dómsmálaráðuneytisins í hendur,
en kvaðst hafa frétt af því að málið
hefði verið sent til umboðsmanns
Alþingis.
Þess má svo geta að á næstu
dögum verður skorið niður fé á
tveimur bæjum í Húnavatnssýslu,
hjá bændunum Hauki Magnússyni
í Brekku og Hjaita Jósefssyni Urð-
arbaki. Ekki náðust samningar á
milli þessara bænda og Sauðfjár-
veikivarna og verður því tjón
þeirra bætt samkvæmt metnu eign-
anámstjóni. -BG/ES
■BBBmraHBBBnnHHmn
George Bush forseti Bandaríkjanna hringdi í
Steingrím Hermannsson forsætisráðherra í fyrrakvöld:
Áttu símafund
í tíu mínútur
George Bush forseti Bandaríkj-
anna átti á mánudagskvöld „síma-
fund“ með Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra. Erindið var
að kynna væntanlegan fund leiðtoga
stórveldanna tveggja, Bandaríkj-
Innbrot
Brotist var inn í verslun að
Fosshóli í Ljósavatnshreppi og
þaðan stolið um 20 til 30 þúsund
krónum í peningum og einhverju
af sígarettum. Að sögn lögregl-
unnar á Húsavík hefur innbrotið
verið framið á tímabilinu frá um
22 á laugardagskvöld til 14 á
sunnudag. Litlar skemmdir voru
unnar, fyrir utan að gluggi var
spenntur upp. Ekki hefur tekist
að hafa hendur í hári þess sem
var að verki en Iögreglan á Húsa-
vík fer með rannsókn málsins.
-ABÓ
anna og Sovétríkjanna, sem fram fer
í tveimur herskipum utan við eyna
Möltu um helgina. Bandaríkjafor-
seti náði tali af Steingrími á Alþingi
þar sem stóðu yfir kvöldfundir, en
áður hafði Hvíta húsið reynt að ná í
forsætisráðherra á heimili hans.
Að sögn Steingríms var samtal
þeirra Bush gagnlegt, en Banda-
ríkjaforseti mun hafa haft samband
við alla forsvarsmenn aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins til þess að
kynna þeim væntanlegar viðræður
og leita eftir sjónarmiðum þeirra.
„Bandaríkjaforseti tjáði mér það
að hann vildi fullvissa samstarfsþjóð-
irnar um það að þarna yrðu engir
samningar gerðir, eingöngu yrði um
upplýsingafund að ræða,“ sagði
Steingrímur í samtali við Tímann í
gær. „Bush spurði hvort það væri
eitthvað sem ég hefði sérstakan
áhuga á að þarna yrði rætt. Ég sagði
honum að eins og kunnugt væri
hefðum við mikinn áhuga á að vel
miðaði í alhliða afvopnun. Hann
kvaðst ekki efast um að þau mál
yrðu tekin fyrir á fundi þeirra, en
sagðist telja mjög líklegt að aðal
umræðuefnið yrði breytingarnar í
Austur-Evrópu ogþeir erfiðleikar sem
fylgia í kjölfar þeirra.“
Forsætisráðherra sagðist hafa tjáð
Bandaríkjaforseta viðhorf íslend-
inga til þeirra breytinga sem nú ættu
sér stað í lýðræðisátt austan járn-
tjalds og vilja okkar til þess að gera
það sem í okkar valdi stæði til þess
að þróunin þar yrði sem jákvæðust.
„Ég skýrði frá því að við hefðum
meðal annars lagt smávegis'til þeirra
mála, með því að ákveða að taka
þátt í þeim sjóði sem vestræn ríki
hafa stofnað til að aðstoða Pólverja.
Mér finnst þessi nýbreytni Banda-
ríkjaforseta út af fyrir sig mjög
jákvæð,“ sagði Steingrímur. „Hann
sýnir með þessu að hann vill hafa
samband við sína samstarfsaðila og
gefur mönnum tækifæri til að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri.
Þetta eru ný vinnubrögð sem mér
finnast jákvæð og jafnvel talað við
þá minnstu.
Steingrímur mun halda utan til
Brussel í byrjun næstu viku, en þar
verður fundur aðildarríkja NATO
næstkomandi mánudag. -ÁG
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
George Bush,
forseti Bandaríkjanna.
I