Fréttablaðið - 26.02.2009, Síða 6
6 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
á hluta sjúklings af verði lyfseðilsskyldra lyfja í Apótekinu Skeifunni
Febrúartilboð
til elli- og örorkulífeyrisþega
10 daga
verðsprengja
Gildir frá 19. febrúar – 1. mars
*gildir ekki með
öðrum tilboðum
30%
afsláttur
*
Öll ljós
DÓMSMÁL Karlmaður sem grunaður
er um að hafa ráðist heiftarlega að
litháískum landa sínum í sumarbú-
stað í Grímsnesi, með þeim afleið-
ingum að hinn síðarnefndi lést,
gæti átt yfir höfði sér allt að sex-
tán ára fangelsi. Hæstiréttur stað-
festi í gær gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir manninum til 18. mars.
Ríkissaksóknari hefur höfðað
sakamál á hendur hinum meinta
árásarmanni. Honum er gefið að
sök að hafa 7. nóvember slegið
fórnarlambið hnefahögg í höfuð-
ið. Skömmu síðar greip hann um
manninn, ýtti honum svo hann féll
á gólfið af stól. Árásarmaðurinn
hafi þá ítrekað sparkað í og stigið
á höfuð hans og efri hluta líkama
hans á meðan hann lá á gólfinu, svo
hann hlaut höggáverka víðs vegar
á höfði og líkama.
Jafnframt miklar blæðingar í
heilastofni, dreifðar blæðingar í
heila með bjúg aðallega við hægra
heilahvel og blæðingar milli heila-
himna, með þeim afleiðingum að
hann lést stuttu síðar af völdum
atlögunnar.
Árásarmaðurinn hefur setið inni
frá 8. nóvember.
Tveir samlandar hans eru
ákærðir fyrir brot gegn lífi og lík-
ama þar sem þeir létu fyrir far-
ast að koma fórnarlambinu undir
læknishendur.
SUMARBÚSTAÐURINN Í þessum bústað
réðst maður á annan með alvarlegum
afleiðingum.
Karlmaður, grunaður um stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða, áfram inni:
Allt að sextán ára fangelsi
LÖGREGLUMÁL Nokkur mál eru
komin í rannsóknarfarveg hjá
embætti sérstaks saksóknara
vegna bankahrunsins, en enginn
hefur fengið stöðu grunaðs manns
vegna þeirra rannsókna.
Embættið, sem tók til starfa um
síðustu mánaðamót, bíður eftir
upplýsingum frá Fjármálaeftirlit-
inu (FME) úr skýrslum endurskoð-
unarfyrirtækja um bankana.
Talsvert magn ábendinga hefur
borist embættinu, bæði hugleið-
ingar og upplýsingar um einstök
atvik, segir Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari vegna
bankahrunsins.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
fullyrti að fjölmörg einkahluta-
félög hafi fengið sérstaka fyrir-
greiðslu í bönkunum í Kastljósi
Ríkissjónvarpsins á þriðjudag.
Hann sagðist enn fremur fá fjölda
ábendinga vegna bankahrunsins.
Ólafur segir að ekki sé ástæða til
að kalla Davíð til fundar, eða biðja
hann að upplýsa hvaða mál hann
eigi við, að svo komnu máli. Mörg
þeirra mála gætu skýrst þegar
FME lýkur yfirferð yfir skýrslur
endurskoðunarfyrirtækja um við-
skipti bankanna fyrir hrun.
Ólafur hvetur þó alla, opinbera
starfsmenn jafnt sem aðra, til að
koma ábendingum um möguleg
lögbrot í aðdraganda bankahruns-
ins til sín. Það megi til dæmis gera
í gegnum vefsíðu embættisins, ser-
stakursaksoknari.is. - bj
Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins bíður eftir niðurstöðum frá FME:
Nokkur mál til rannsóknar
RANNSÓKN Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari, sér ekki ástæðu til að
kalla Davíð Oddsson seðlabankastjóra á
sinn fund. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANKAMÁL Gunnar Örn Kristj-
ánsson endurskoðandi, sem sagði
af sér stjórnarformennsku Nýja
Kaupþings í gær, stendur í mála-
ferlum við íslenska ríkið sem hann
krefur um 449 milljónir króna í
skaðabætur. Gunnar Örn hefur
einungis setið fáeina daga í stjórn-
inni.
„Skipan Gunnars bar brátt að og
við nánari skoðun taldi hann starf-
ið viðameira og fela í sér meiri
bindingu en hann hefur aðstöðu til
að inna af hendi,“ segir í tilkynn-
ingu frá fjármálaráðherra.
Þegar Fréttablaðið spurði Stein-
grím J. Sigfússon hvort þessi
ákvörðun tengdist yfirstandandi
málaferlum Gunnars Arnar eða
þeirri staðreynd að hann hefði
verið ákærður fyrir vanrækslu í
starfi í apríl 2004 sem endurskoð-
andi Tryggingasjóðs lækna, kveð-
ur fjármálaráðherra svo ekki
vera.
„Það er eitthvert einkamál sem
hann er með út af einhverri máls-
meðferð sem er algjörlega óskylt
þessum verkefnum, þannig að
það blandaðist ekkert inn í þetta,“
segir ráðherra.
Það var ríkislögreglustjóri sem
lagði fram ákæruna sem vísað er
til á hendur Gunnari Erni í apríl
2004. Þar var honum meðal annars
gefið að sök að hafa vanrækt skyld-
ur sínar sem löggiltur endurskoð-
andi ársreikninga Tryggingasjóðs
lækna. Ákæran var gefin út í fram-
haldi af því að framkvæmdastjóri
Tryggingasjóðs lækna hafði orðið
uppvís að því að draga sér um 75
milljónir króna úr sjóðnum.
Héraðsdómur sýknaði Gunnar
Örn af ákærunni en ríkissaksókn-
ari áfrýjaði til Hæstaréttar.
Hæstiréttur vísði málinu frá
dómi meðal annars vegna þess
að verknaðarlýsing í ákæru væri
verulegum annmörkum háð. Í lok
maí 2005 gaf ríkissaksóknari efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
fyrirmæli um að hefja rannsókn á
máli Gunnars Arnar að nýju.
Unnið var að því að fá tvo lög-
gilta endurskoðendur að málinu en
það gekk ekki þrautalaust. Í nóv-
ember 2006 féll málið svo á tíma
samkvæmt stjórnarskránni og
mannréttindasáttmála Evrópu og
ríkissaksóknari fyrirskipaði að
það skyldi látið niður falla.
Niðurstaða dómstóla fékkst því
ekki.
Gunnar Örn höfðaði mál á
hendur íslenska ríkinu þar sem
hann krafðist 449 milljóna króna
í skaðabætur, eins og áður sagði.
Héraðsdómur sýknaði íslenska
ríkið. Gunnar Örn áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar þar sem það verð-
ur tekið fyrir á næstu mánuðum.
jss@frettabladid.is
Krefur ríkið um 449
milljónir í bætur
Stjórnarformaður Nýja Kaupþings, Gunnar Örn Kristjánsson endurskoðandi,
sem sagði af sér í gær eftir tveggja daga setu í stjórninni, stendur í málaferlum
við íslenska ríkið. Hann krefur það um 449 milljónir króna í skaðabætur.
FRÁFARANDI FORMAÐUR BANKASTJÓRNAR Gunnar Örn Kristjánsson sem sat fáeina
daga á stóli formanns bankastjórnar Nýja Kauþings stendur í málaferlum og vill
tæpar 500 milljónir frá íslenska ríkinu.
GRIKKLAND, AP Fjórum fangavörð-
um og þyrluflugmanni var í gær
stefnt á ný fyrir rétt til að svara
ásökunum um afglöp í starfi fyrir
að hafa ekki getað hindrað flótta
tveggja fanga í þyrlu úr öryggis-
fangelsi í Aþenu fyrr í vikunni.
Tveir verjendur sakborning-
anna sögðu sig frá málinu í kjöl-
far þess að þeir sögðust telja
hallað á skjólstæðingana í öllum
málatilbúnaðinum. Tveir aðrir
lögmenn verða útnefndir til að
verja sakborningana. Víðtæk leit
að flóttaföngunum, sem sátu inni
fyrir vopnað rán, hefur engan
árangur borið. Þeir flúðu með
sama hætti fyrir þremur árum. - aa
Fangaflótti í Grikklandi:
Fangavörðum
stefnt fyrir rétt
Var Davíð Oddsson sannfær-
andi í Kastljóssviðtalinu?
Já 49%
Nei 51%
TELUR ÞÚ AÐ JÓN BALDVIN HANNI-
BALSSON VERÐI NÆSTI FORMAÐUR
SAMFYLKINGARINNAR?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN