Fréttablaðið - 26.02.2009, Síða 12
12 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Þingmenn og viðskipti
Sænska bílaverksmiðjan Saab hefur farið fram á greiðslustöðvun eftir að
móðurfélagið General Motors í Bandaríkjunum tilkynnti að það myndi ekki
leggja Saab til meira fé og sænsk stjórnvöld höfnuðu beiðni um að leggja til
fé eða ábyrgðir til að rekstur Saab stöðvaðist ekki. Þar sem ekki þykir líklegt
að í núverandi heimskreppu finnist fjárfestir sem geti bjargað fyrirtækinu
stendur það sennilega frammi fyrir endalokunum.
■ Verkefnaauki fyrir flugvélasmiði
Saab-bílaverksmiðjurnar voru stofnaðar sem deild í flugvélasmiðjunni
Svenska Aeroplan-Aktiebolag (þess vegna skammstöfunin SAAB). Árið 1944
var hafist handa við þróun fyrsta Saab-bílsins, sem fimm árum síðar var hafin
framleiðsla á í Trollhättan norður af Gautaborg undir heitinu Saab 92. Hann
var tæknilega framúrstefnulegur, framdrifinn og straumlínulagaðri en nokkur
annar bíll sem í boði var á þessum tíma. Árið 1955 var Saab 92 uppfærður
í Saab 93 og hann átti síðar eftir að þróast í Saab 95 og 96. Hann hélst í
framleiðslu fram til 1980. Árið 1967 var hafin framleiðsla á Saab 99, stærri og
„venjulegri“ bíl. Saab var frumkvöðull í túrbótækninni, þ.e. að útbúa bílvélar
með forþjöppu, er Saab 99 Turbo kom á markað árið 1976. Túrbótæknin
hefur fylgt Saab-bílum allar götur síðan. Meðal annarra hefða sem áunnu
Saab sérviskuímynd var að hafa svissinn í gólfstokknum á milli framsætanna.
■ Grafið undan sérstöðunni
Árið 1970 var 500.000. Saabinn framleiddur, 1976 sá milljónasti. Heildarfram-
leiðslan náði tveimur milljónum árið 1987. Fjárhagskröggur leiddu til þess að
árið 1990 keypti GM 50% í Saab-bílaverksmiðjunum og eignaðist félagið að
fullu árið 2000. Árið 1993 stóð GM fyrir því að nýr Saab 900 yrði framleiddur
á undirvagni Opel Vectra, sem Saab-aðdáendum þótti mikil goðgá. Síðan
þá hafa allir Saabar deilt tækni með öðrum bílum úr GM-samsteypunni. Á
síðustu árum hefur sala Saab dalað stöðugt og mikið tap verið á rekstrinum.
Árið 2007 voru alls 137.000 Saab-bílar framleiddir og á síðasta ári var ársfram-
leiðslan komin niður undir 100.000.
FBL-GREINING: SAAB-BÍLAVERKSMIÐJURNAR Í SVÍÞJÓÐ
Endalok frumkvöðuls
TAP Unnið við Saab 9-3 í verksmiðjunni í Trollhättan. Um 300.000 króna tap hefur
verið á hverjum bíl sem farið hefur af færibandinu síðustu tíu árin. NORDICPHOTOS/AFP
Fregnir í véfréttarstíl
berast um að þekktir menn
úr stjórnmálalífinu hafi
fengið sérfyrirgreiðslu hjá
bönkunum. Á sama tíma
vex krafan um að málin
verði rannsökuð og menn
dregnir til ábyrgðar. En
hver eru tengsl þingmanna
við fyrirtæki og félög?
Fréttablaðið spurði en að-
eins 22 af 63 þingmönnum
svöruðu.
Þeir verða sífellt fleiri sem eru
komnir að mörkum þolinmæði
sinnar þar sem ekkert virðist
þokast í rannsókn á viðskiptum
og viðskiptahegðun bankanna og
stórra viðskiptavina þeirra fyrir
og skömmu eftir bankahrun. Nú
síðast var Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri að undrast aðgerðar-
leysi í þessum efnum. Hverjir eru
þessir þekktu menn úr þjóðlíf-
inu og stjórnmálalífinu sem hann
sagði að hefðu fengið sérfyrir-
greiðslu í bönkunum?
Þ i ng men n h a fa ei n n ig
endurómað þennan óþolinmæðis-
tón. Fréttablaðið hefur óskað eftir
svörum frá þeim um það hvort
þeir sitji í stjórnum fyrirtækja
eða félaga og þá hverra.
Eins hvort þeir hafi látið af
slíkri stjórnarsetu á síðasta ári
eða hvort þeir hafi prókúru ein-
hvers staðar.
Spurt var fyrir um mánuði síðan
og hafa 22 þingmenn svarað. Þing-
menn Vinstri grænna bentu einn-
ig á vefsíðu sína þar sem upplýs-
ingar um stjórnarsetu þingmanna
flokksins liggja fyrir og eru svör
þriggja þingmanna flokksins feng-
in þaðan. Einn þingmanna Frjáls-
lynda flokksins svaraði, það er Jón
Magnússon sem nú hefur gengið
til liðs við Sjálfstæðismenn.
Fáir segja frá tengslum
við fyrirtæki eða félög
SVÖR ÞINGMANNA UM TENGSL SÍN VIÐ FYRIRTÆKI OG FÉLÖG
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
4 SVARA, 22 SVARA EKKI
Ásta Möller
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Var formaður stjórnar Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga til ársloka
2008.
Prókúra:
Nei
Kjartan Ólafsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Er í stjórn Skógræktarfélags Árnesinga
Prókúra:
Nei
Ólöf Nordal
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Ekki í neinni stjórn
Prókúra:
Nei
Jón Magnússon
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
„Engum nema í tengslum við þjóðmál“
Prókúra:
„Nei, ekki frá því að ég settist á Alþingi.“
SAMFYLKING
7 SVARA, 11 SVARA EKKI
Ágúst Ólafur Ágústsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
Ásta R. Jóhannesdóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
Björgvin G. Sigurðsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
Ellert B. Schram
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
Einar Már Sigurðsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Í stjórn útgáfufélags Austurgluggans
Prókúra:
Nei
Gunnar Svavarsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Í stjórn HS orku sem var áður Hitaveita Suðurnesja
Prókúra:
Nei
Katrín Júlíusdóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
VINSTRI GRÆNIR
6 SVARA - SVÖR ÞRIGGJA
FENGIN AF VEF FLOKKSINS
Álfheiður Ingadóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Var stjórnarformaður í Framfarafélagi Flateyjar í 4 ár, fram í
október síðastliðinn.
Prókúra:
Nei
Árni Þór Sigurðsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Er varamaður í stjórn Heimssýnar, hreyfingu sjálfstæðissinna
í Evrópumálum. Stjórnarmaður í Sjóminjasafninu Víkinni,
Reykjavík. Var í hafnarstjórn Faxaflóahafna sem kjörinn fulltrúi
Reykjavíkur, hætti í janúar 2008, stjórnarmaður í Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, hætti þar 1. október 2007 og stjórnar-
maður í Frjálsa fjárfestingarbankanum, hætti í mars 2007.
Prókúra:
Nei
Atli Gíslason
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Er helmingseigandi í lögfræðiskrifstofunni LAG - Lögmenn sf.
sem hann hefur rekið frá árinu 1980. Lét af störfum þar eftir að
hann settist á þing árið 2007.
Prókúra:
Hefur prókúru á móti meðeiganda sínum.
Jón Bjarnason
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
„Seta í stjórnum, nefndum eða ráðum utan þings: engin“ (Svar
fengið af vef Vinstri grænna).
Pófkúra:
Nei
Katrín Jakobsdóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Prókúra:
Nei
Kolbrún Halldórsdóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Situr í Þjóðleikhúsráði og er varamaður í stjórn félagsins Ísland-
Panorama.
Prókúra:
Nei
Steingrímur J. Sigfússon
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
„Ég er í engum stjórnum fyrirtækja né félagasamtaka svo ég
muni, nema stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.“
Prókúra:
„Heldur engar prókúrur þar sem framkvæmdastjóri flokksins fer
með þá prókúru.“
Ögmundur Jónasson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Á sæti í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB)
og er formaður þess en þiggur ekki laun fyrir störf sín í þágu
þess. Er í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Launað,
99.323 þúsund kr. Er formaður fjölskyldu- og styrktarsjóðs
Bandalags háskólamanna (BHM), BSRB og Kennarasambands
Íslands (KÍ). Ólaunað. Á sæti í stjórn HASLA, Hagrannsóknar-
stofnunar samtaka launafólks í almannaþjónustu. Ólaunað.
Situr í aðskiljanlegum nefndum og ráðum á vegum verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þessi störf eru ólaunuð.
Prókúra:
Svarið er fengið af vefsíðu VG svo ekki fékkst svar um prókúru.
Eygló Þóra Harðardóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Situr í stjórn Þorsks á þurru landi ehf. og IceCod á Íslandi ehf. Er
í stjórn Visku – fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar.
Prókúra:
Prókúruhafi hjá Þorski á þurru landi.
FRAMSÓKNARFLOKKUR
4 SVARA, 3 SVARA EKKI
Helga Sigrún Harðardóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
„Er varamaður í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar, hef einu
sinni mætt á fund á síðastliðnum fimm árum.“
Prókúra:
Nei
Magnús Stefánsson
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
„Ég er hvergi í stjórn fyrirtækis.“
Prókúra:
Nei
Valgerður Sverrisdóttir
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Engri
Pófkúra:
Nei
FRÉTTASKÝRING
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
jse@frettabladid.is
Þuríður Backman
Í stjórn fyrirtækis eða félags:
Nei (Svar fengið af vef vinstri grænna).
Prókúra:
Nei