Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 20

Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 20
20 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ísland þarf nú að margra dómi nýja stjórnarskrá, þótt ófull- komleiki stjórnarskrárinnar sé ekki aðalorsök hrunsins. Íslend- ingar búa að stofni til við sömu stjórnarskrá og Danir. Þau ákvæði, sem Danir hafa bætt inn í stjórnarskrá sína og Íslendingar ekki, eru ekki frumorsök þess, að fjármálakerfi Danmerkur stend- ur föstum fótum öndvert banka- hruninu hér. Þau bregða samt birtu á baklandið. Danir hafa breytt stjórnarskrá sinni til að draga úr valdi ráðherra og auka stjórnskipulegt vald þingsins. Þriðjungur þingmanna þar getur krafizt þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvörp önnur en til fjár- laga og skattalaga, en ekki hér. Danir geta ekki sagt öðrum þjóð- um stríð á hendur nema með sam- þykki þingsins; hér heima dugir tveggja manna tal. Óvíst er, hvort sjálfstæðara og sterkara Alþingi hefði tryggt heilbrigða einkavæð- ingu bankanna og dregið úr líkum hruns, en það er hugsanlegt. Bankahrunið kallar á bætur fyrir gamla vanhirðu (úrelt stjórnar- skrá, mannréttindabrot í kvóta- kerfinu, slagsíða í kosningalög- um o.fl.). Rætur hrunsins liggja sumar þar og í veilum í lögum og veikri framfylgd laga. Veilur í lögum Kosningalöggjöfin hefur frá önd- verðu verið rangsnúin. Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands, varaði Alþingi við afleiðingum ójafns kosningarréttar, og það hafa margir aðrir menn gert æ síðan. Breytingar á kosningalög- um hafa þó ævinlega verið of seint á ferðinni og gengið of skammt. Stjórnmálamenn sömdu kosninga- lögin öðrum þræði til að tryggja eigin hag. Nær hefði verið að fela sérstökum dómi – til dæmis Landsdómi með nýrri löggjöf – að semja kosningalög án atbeina stjórnmálaflokkanna. Misvægi atkvæðisréttar í kosningalögun- um á umtalsverðan þátt í brota- lömum kvótakerfisins, sem stjórn- málastéttin notaði til að búa til nýja stétt auðmanna líkt og gert var um svipað leyti í Rússlandi. Kvótakerfið varðaði veginn að misheppnaðri einkavæðingu bank- anna eftir svipaðri forskrift og þá um leið að hruni þeirra fáeinum árum síðar. Þetta hangir saman. Einn angi vandans er lagaheim- ild frá 1997 til að veðsetja veiði- heimildir, þótt sjávarauðlindin eigi að heita sameign þjóðarinn- ar að lögum. Lögin leyfa mönn- um beinlínis að veðsetja eigur annarra. Menn kasta höndun- um til fjárfestingar fyrir lánsfé með veði í eigum annarra, enda ramba skuldum vafin útvegsfyr- irtæki nú mörg á barmi gjald- þrots. Endurbornir ríkisbankar hafa eignazt hluta kvótans, sem er því aftur kominn í eigu almenn- ings. Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna hefur úrskurðað, að kvótakerfið feli í sér mannrétt- indabrot, og skorað á stjórnvöld að breyta kerfinu. Nýja ríkisstjórn- in virðist ekki ætla að taka þeirri áskorun eða setja hana í samhengi við hrunið. Annar angi vandans er önnur lagaheimild frá 1997 til banka og annarra fjármálastofn- ana til að veita lán til að kaupa bréf í bönkunum með veði í bréf- unum sjálfum. Þessi heimild er ígildi skotleyfis á skattgreiðendur. Slík bankaviðskipti eru áhættu- laus fyrir kaupandann. Ef bréfin hækka í verði, hagnast kaupand- inn; ef þau lækka, tekur bankinn skellinn eða skattgreiðendur ef svo ber við. Aðstoðarmaður for- sætisráðherra fékk áhættulaust ofurlán í Kaupþingi og auðgaðist vel á því, en bankinn komst í þrot, og skattgreiðendur þurfa að borga brúsann. Annar fyrrum aðstoðar- maður forsætisráðherra ber sem stjórnarmaður í sjóðum Glitnis ábyrgð á meintum lögbrotum. Enn annar fyrrum aðstoðarmaður for- sætisráðherra fékk óskilorðsbund- inn fangelsisdóm fyrir efnahags- brot eftir að hann hætti störfum í ráðuneytinu. Veik framfylgd laga Lögbrot hafa lengi verið látin við- gangast á Íslandi. Sigurður Nor- dal prófessor vitnar um vandann í Skírni 1925. Bjarni Benediktsson, síðar forsætisráðherra, ber vitni í einkabréfum 1934 og þannig áfram. Margir vissu, en enginn gerði neitt; þess vegna héldu lög- brotin áfram. Brottkast og löndun fram hjá vikt viðgangast í stórum stíl samkvæmt ítrekuðum frásögn- um sjómanna, en lögreglan hefst ekki að. Innherjaviðskipti í bönk- unum voru algeng, svo sem vottar munu trúlega staðfesta við rann- sóknarnefnd Alþingis og sérstak- an saksóknara, en lögreglan horfir í aðrar áttir. Fyrrum bankastjóri Landsbankans hefur árum saman í grein eftir grein í Morgunblaðinu borið þungar sakir á nafngreinda bankamenn, en löggan hrýtur. Atli Gíslason alþingismaður og hæsta- réttarlögmaður hefur lýst lög- brotum á hendur eigendum bank- anna og stjórnendum. Sigurður Einarsson áður stjórnarformaður Kaupþings hefur í Fréttablaðinu sakað bankastjórn Seðlabankans um ólöglegan upplýsingaleka. Í þessu ljósi þarf að skoða kröfuna um rannsókn á aðdraganda hruns- ins og eftirleik af hálfu óvilhallra erlendra manna. Rætur hrunsins Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON Lög og framfylgd laga UMRÆÐAN Sigríður Andersen skrifar um tónlistar- hús og skóla Ríkið og Reykjavíkurborg verða ekki aflögufær næstu árin samdráttar í efnahagslífinu. Tekjutap ríkisins er þegar komið fram að verulegu leyti með miklu falli í neyslusköttum. Sveitarfélögin munu sömuleiðis finna fyrir lægri útsvars- tekjum er fram í sækir. Engu að síður kynntu ríki og borg í síðustu viku samkomulag um að halda áfram byggingu tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn. Talið er að það kosti 13 millj- arða að ljúka byggingu hússins en þegar fram- kvæmdir hófust var sagt að bygging tónlistar- og ráðstefnuhússins myndi kosta 12 milljarða. Nú er búið að reisa húsið en engu að síður mun það kosta 13 milljarða að ljúka því! Hver ætli endan- leg tala verði? Þessa 13 milljarða hafa hvorki ríki né borg til reiðu en ætla engu að síður að eyða þeim. Hafa menn ekki fengið nóg af skuldsettum ævintýrum? Þess má geta að árið 1997 var ætlunin að byggja tónlistarhús í Laugardal fyrir 1.550 milljónir króna, sem er um 5 - 10% af því sem tónlistarhúsið á hafnarbakkan- um mun kosta. Það þótti of dýrt og ekkert varð úr framkvæmdum. Síðan hafa bæst við fínir tónleikasalir, t.d. Salurinn og Ýmir og einnig stór samkomuhús eins og Egilshöll sem Domingo gerði sér að góðu árið 2005 og sagði að tónleikum loknum: „Hljómurinn var mjög góður.“ Rökin sem ríki og borg leggja helst fram til að réttlæta framhald framkvæmda við tónlistarhúsið er að það skapi störf þar til húsið verður opnað 2011. Fallist menn á þau rök að hið opinbera fari í atvinnuskapandi framkvæmdir eru menn þá alveg vissir um að hús á borð við tónlist- arhúsið eigi að njóta þess? Hvað með skóla borgar- innar sem sumir eru enn á framkvæmdastigi? Nú eða þjónustan sem skólarnir veita? Hvernig má það vera að Reykjavíkurborg og nýr menntamálaráðherra setji tónlistarhúsið í forgang við þær erfiðu aðstæður sem nú blasa við þjóðinni? Höfundur er lögmaður og varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Falskur tónn SIGRÍÐUR ANDERSEN                        !          "            $    & '     (   )  *+*,-$  ( ,, !!!    "#$%%          Kosningaskjálfti Margir spá því að Framsóknarflokk- urinn verði aldrei þessu vant í stöðu til að ráða því hverjir fari með stjórn skersins að loknum næstu kosning- um. Bloggarar eru þegar farnir að slúðra um hversu mjög líklegt sam- starf flokksins við sjálfstæðismenn sé að verða. Sumir spenntari en aðrir. Jakobína Ingunn Ólafsdóttir bendir þannig á sameiginlega hagsmuni líklegs formanns Sjálfstæðisflokks, hans Bjarna Benediktssonar, sem einnig er fyrrum stjórnarformaður N1, og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsókn- ar. En hverjir eru hagsmunirnir? Jú, að pabbi Sigmundar sitji í stjórn N1. „Greinilega sameiginlegir hagsmunir,“ segir Jakobína. Nýja Ísland Þá hefur elsti ríkisbankinn selt Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, nokkrum viðskiptamönnum sem flestir hafa kunn tengsl við Sjálfstæðisflokkinn. Söluferl- ið átti víst að vera gegnsætt og opið eins og bók. En nú bregður svo við að farið er með sjálft kaupverðið eins og hern- aðarleyndar- mál innan Íslands- banka. Ekki verður heldur gefið upp hversu mikið bankinn og þar með skattgreiðendur hafa greitt með Morgunblaðinu síðustu mánuði. Nýja Ísland. Sagan af Dabba og Geira Geir Hilmar Haarde er dæmalaust jafnlyndur maður. Hann hefur til dæmis ekki skoðun á því hvað honum finnist um að Davíð Oddsson hafi gagnrýnt hann látlaust í sprengidagsviðtalinu. Það dugar Geir að sér- stök rannsóknarnefnd muni leiða það allt í ljós í nóvember. klemens@frettabladid.isA llt bendir til þess að frumvarp forsætisráðherra um breytta stjórnskipun Seðlabankans verði að lögum í dag. Við það verða merkileg tímamót. Í fyrsta skipti í meira en tvo áratugi verður Davíð Oddsson ekki í lykilihlutverki í íslensku þjóðlífi á landsvísu. Leiðin að því að koma Davíð út úr Seðlabankanum hefur reynst löng og ströng. Í valnum liggur meðal annars eitt stykki ríkis- stjórn. Þetta hefur verið sorgleg sýning, en það er hins vegar fyllilega í takt við feril Davíðs að hann neitar að yfirgefa sviðið hljóðalaust. Í haust þegar krónan féll eins og steinn og verðbólgan rauk upp í tveggja stafa tölu lá fyrir að stjórn Seðlabankans hafði mistekist með öllu að sinna tveimur helstu viðfangsefnum sínum. Banka- stjórarnir þrír höfðu í hendi sér að játa sig sigraða fyrir flóknum verkefnum, sem þeir réðu ekki við, og fara úr bankanum á eigin forsendum. Yfir því hefði verið ákveðin reisn. Það er mannlegt að mistakast. Því miður var þetta ekki sú leið sem bankastjórarnir völdu sér. Undir forystu Davíðs hófst vörn sem byggði á því að Seðla- bankinn, og um fram allt Davíð sjálfur, hefði margsinnis varað við því að viðskiptabankarnir væru á leið í þrot og með þeim íslenskt efnahagslíf. Vandamálið var þó að engar skjalfestar heimildir eru til um þessar viðvaranir aðrar en orð Davíðs sjálfs. Hins vegar eru til fjölmörg dæmi um fullyrðingar Davíðs þess efnis að undirstöður íslensks fjármálalífs væru traustar og bankarnir ættu að þola þau áföll, sem væru framundan vegna versnandi stöðu efnahagsmála á heimsvísu. Orð Davíðs í þessa veru má lesa svart á hvítu í skýrslum Seðla- bankans, í ræðum sem hann flutti á vegum bankans og í viðtölum við innlenda og erlenda fjölmiðla. Að auki má hlusta á hann og horfa fara með sömu yfirlýsingar í viðtölum í sjónvarpi. Í við- tali við bresku sjónvarpsstöðina Channel 4 í mars í fyrra sagði Davíð til dæmis aðspurður að engar líkur væru á því að íslensku bankarnir færu í þrot og þó svo ólíklega færi gæti íslenska ríkið auðveldlega „gleypt“ skuldbindingar þeirra við erlenda inni- stæðueigendur. Þrátt fyrir öll þessi opinberu dæmi, bauð Davíð íslensku þjóð- inni upp á það enn einu sinni í Kastljósi í fyrrakvöld, að hann hefði varað „allan tímann“ við þroti bankanna. Og það þótt ekki nokkur maður kannist við þær viðvaranir. Nema fyrrverandi forsætisráðherra, sem minnist þeirra úr persónulegum samtölum þeirra félaga, en þó ekki á sama tíma og Davíð segist hafa rætt málin. Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá Davíð. Í raun er ómögulegt annað en að líta á vörn hans öðruvísi en að hér sé á ferðinni örvæntingarfull tilraun til að endurskrifa söguna. Það er gamalkunnugt bragð að ef eitthvað er sagt nógu oft er möguleiki á því að það fái smám saman á sig svip sannleikans. Þrátt fyrir að galdur Davíðs geti verið mikill er þetta verkefni honum ofviða. Hann endurreisir ekki arfleifð á því sem hann sagði í tveggja manna tali. Orð á opinberum vettvangi skipta meira máli, en verkin þó mestu. Þar brást hann. Davíð reynir að endurskrifa söguna. Arfleifð í rúst JÓN KALDAL SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.