Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 24
26. febrúar 2009 4
Um sex hundruð myndir af
fallegum og fyndnum dýrum
verða til sýnis í Dýraríkinu að
Miðhrauni um helgina.
Myndir af fallegum og skemmti-
legum gæludýrum eru tilvalin til
að prýða veggi heimilisins enda
eru þær oft litríkar, líflegar og
vekja upp samræður meðal gesta.
Þeir sem leggja leið sína í Dýra-
ríkið í Miðhrauni 2 um helgina geta
skoðað um sex hundruð myndir af
dýrum sem hengdar hafa verið upp
um alla verslun.
Þar stendur nú yfir ljósmynda-
samkeppni þar sem gestir Dýra-
ríkisins kjósa tuttugu bestu
myndirnar en dómnefnd mun
velja þrjár bestu sem hljóta verð-
laun í formi úttekta í Dýraríkinu.
Gunnar Vilhelmsson hjá Dýra-
ríkinu segir hugmyndina hafa
vaknað út frá öllum þeim mynd-
um sem fólk hefur verið að setja
inn á heimasíðu verslunarinnar.
„Við ákváðum því að leyfa fólki
að sjá skemmtilegar myndir af
dýrum til að létta andann í sam-
félaginu,“ segir Gunnar. -sg
Innbrotaalda ríður nú yfir höf-
uðborgarsvæðið og hafa margir
orðið fyrir fjárhagslegum og til-
finningalegum skaða. Sumir reyna
að sjá við innbrotsþrjótunum með
því að setja upp öryggiskerfi á
heimilum sínum en auk þess hafa
íbúar í ákveðnum götum og jafn-
vel heilu hverfunum komið sér upp
nágrannavörslu.
Það verkefni hefur verið í mótun
í Reykjavík frá árinu 2006 og er nú
á hraðri siglingu. „Við byrjuðum
með eina götu í hverju umdæmi
þeirra sex þjónustumiðstöðva
sem eru í borginni en síðan hefur
verkefnið undið upp á sig og sífellt
bætast nýjar götur við,“ segir Erna
Guðmundsdóttir, deildarstjóri hjá
Þjónustumiðstöðinni Miðgarði.
Markmiðið með verkefninu, sem
er samstarfsverkefni lögreglunn-
ar, þjónustumiðstöðva og íbúa, er
að aðstoða borgarbúa við að stuðla
að öryggi eigin eigna og taka hönd-
um saman um að sporna gegn inn-
brotum og eignartjóni í sínu nán-
asta umhverfi. „Sérstöku skilti er
komið fyrir í þeim götum þar sem
íbúar hafa komið sér saman um að
taka upp nágrannavörslu en auk
þess fá þeir límmiða inn í útidyra-
hurðir og glugga þar sem kemur
fram að nágrannar fylgist með
húsinu í fjarveru íbúa,“ útskýrir
Erna.
Misjafnt er hvernig nágranna-
varslan er útfærð en þurfi íbúar
að bregða sér frá um tíma láta þeir
nágrannana yfirleitt vita og beita
þeir ýmsum brögðum til að hafa
líflegt í kringum húsið og fylgjast
með. „Þetta snýst um að kveikja
ákveðna hugsun í huga fólks en
misjafnt er hvernig það ber sig
að og fer það eftir samkomulagi.
Sumir skilja eftir lykla að hús-
inu en aðrir biðja nágranna um að
leggja til dæmis bílum í heimreið,
kveikja ljós, setja rusl í ruslatunnu
og hafa vakandi auga fyrir grun-
samlegum mannaferðum.“
Erna segir verkefnið hafa gef-
ist vel þó ekki hafi verið gerð
nákvæm úttekt á innbrotafjölda
í þeim götum þar sem nágranna-
vörslu hefur verið komið á fót. „Við
byrjuðum með verkefnið í Dverg-
hömrum og þar hefur ekki verið
brotist inn síðan 2006,“ segir Erna.
„Nú er svo komið að heilt hverfi
á Kjalarnesi, sem heyrir undir
okkur, hefur tekið upp nágranna-
vörslu og veit ég til þess að æ fleiri
íbúar í öðrum hverfum borgarinn-
ar gera slíkt hið sama. Þá hefur
Samband íslenskra sveitarfélaga
samið um notkun á skiltunum utan
Reykjavíkur.“ vera@frettabladid.is
Nágrannar á vaktinni
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu koma sér í auknum mæli saman um nágrannavörslu en henni er ætlað að
stemma stigu við innbrotum og eignatjóni. Verkefnið fór af stað árið 2006 og er á hraðri siglingu.
Erna segir nágrannavörslu snúast um að kveikja ákveðna hugsun í huga fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVARTUR BORÐBÚNAÐUR á ekki upp á pallborðið
hjá öllum en er óneitanlega töff. Sumir skreyta jafnvel heim-
kynni sín með svörtum munum og þó um afgerandi lit sé að
ræða eru dæmi um skothelda útkomu.
Nokkrar af þeim fallegu myndum sem til sýnis verða í Dýraríkinu að Miðhrauni 2.
Myndir sem
létta andann
!""# $%
&!''(%#)*+
,
-. /00-#0*
,
-. Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki