Fréttablaðið - 26.02.2009, Side 26

Fréttablaðið - 26.02.2009, Side 26
„Ég fermdist í Neskirkju í apríl 1972 og það var séra Frank M. Halldórsson sem fermdi mig,“ segir Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona. „Ég gekk fremst inn kirkjugólf- ið af því að ég var minnst og kveið mikið fyrir að fara með ritningar- orðin, en athöfnin gekk vel og ég varð mér ekki til skammar,“ út- skýrir Sigrún Edda, sem er nú í óðaönn að æfa fyrir Milljarða- mærina sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu annað kvöld. „Fermingarveislan var haldin í gamla Útvegsbankanum með mikl- um stæl. Það voru margar góðar gjafir sem ég fékk. Skartgripir og peningar, fermingarúr og Passíu- sálmar. Eftirminnilegasta gjöfin var þó sennilega útvarp með inn- byggðu segulbandstæki frá Sony sem ég fékk frá pabba mínum sem þá var búsettur í Ameríku. Þetta tæki var mikið undratæki á þeim tíma. Ég gat tekið upp Lög unga fólksins milliliðalaust. Áður þurfti ég að tengja hljóðnema úr gamla segulbandstækinu og stilla honum upp fyrir framan útvarpstæk- ið heima í stofu til að ná inn vin- sælustu lögunum. Stundum klikk- aði takan af því að síminn hringdi eða litli bróðir minn vildi syngja með,“ segir Sigrún Edda. „Nýja tækið hafði skiljanlega mikil áhrif á hljómgæði laganna sem glumdu í unglingaherberg- inu daginn út og inn. Endalok sæl- unnar urðu þau að tækið bráðnaði einn sólskinsdag þar sem það stóð í suðurglugga. Það var mikill sorg- ardagur.“ - ag 26. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fermingar Sigrún Edda notaði óspart útvarp með innbyggðu segulbandstæki til að taka upp lög unga fólksins á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sony-útvarpstæki stóð upp úr Kristín Haraldsdóttir, nemandi í Hagaskóla, ætlar að fermast í upphlut ömmu sinnar í Dómkirkj- unni 31. maí. Þetta ákvað hún fyrir tveimur árum en amma hennar saumaði upphlutinn og bar hann fyrst á lýðveldishátíðinni 1944 á Þingvöllum þegar hún var 27 ára. „Mig hefur alltaf langað til að fermast í upphlutnum því að amma mín átti hann,“ segir Kristín. „Amma er svo lítil að upphlut- urinn er bara aðeins of stór. Það vantar skyrtu við hann og ég fæ örugglega lánaða skyrtu eða við látum sauma og svo verð ég bara í honum aðeins of stórum,“ segir Kristín og telur að amma sín eigi alla nauðsynlega fylgihluti, skott- húfu og svuntu og skart, belti og nælu. Hún er ekki búin að ákveða með skóna en telur sennilegt að þeir verði svartir. Kristín segist hafa ákveðið að fermast á upphlutnum fyrir tveim- ur árum þegar hún frétti að amma sín ætti hann til. „Amma er rúm- lega níræð og er búin að eiga hann frá 1944 en hann er búinn að vera heima hjá okkur svolítið lengi því að mamma hefur verið í honum.“ Kristín segist hafa fengið frá- bær viðbrögð við ákvörðun sinni, sérstaklega hjá fullorðna fólkinu. Krakkar viti hins vegar oft ekki hvað upphlutur er. Hún segist hafa fengið kjól aukalega í tilefni ferm- ingarinnar en segist ekki ætla að vera í honum í fermingunni eða fermingarveislunni. -ghs Ætlar að fermast í upphlut frá ömmu Kristín Haraldsdóttir, nemandi í Haga- skóla, fermist í upphlut ömmu sinnar í lok maí. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Söngvarinn Friðrik Ómar man vel eftir fermingunni sinni sem var haldin í Dalvíkurkirkju en veislan á eftir var haldin í Freyjulundi sem er félagsheimili Glæsibæjar- hrepps. „Þar voru í gamla daga sett- ar upp leiksýningar og þar var til gömul leikmynd úr Skugga- Sveini. Pabba fannst rosa sniðugt að setja þá leikmynd fyrir aftan mig í myndatökunni. Þetta er við- bjóður að sjá í dag en mjög fynd- ið samt,“ segir Friðrik Ómar. „Það spyrja allir þegar þeir sjá mynd- irnar: „Hvað er málið með þennan bakgrunn?““ Á leikmyndinni var landslags- mynd úr Eyjafirðinum með kulda- legum hvítum fjöllum og bláum sjó, sem að mati Friðriks passaði engan veginn sem bakgrunnur fermingarmyndanna. Pabbi hans aftur á móti var ekki á sama máli. „Pabba fannst þetta mjög snið- ugt og honum finnst þetta enn þá flott,“ segir Friðrik, sem skemmti sér þrátt fyrir allt vel á fermingar- deginum. Fyrir fermingarpening- inn keypti hann sér síðan trommu- sett sem átti eftir að koma að góðum notum næstu árin. Leikmynd úr Skugga- Sveini í bakgrunni Friðrik Ómar fermdist í Dalvíkurkirkju. Hann man vel eftir veislunni sem var haldin í Freyjulundi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þekkingu fermingarbarna á boðskap Jesúm er orðið áfátt eftir litla áherslu hans í skólum. „Fermingarbörn eru einlæg og hafa hugsað meira um ferminguna en fólk gerir sér grein fyrir. Því finnst mér oft gert lítið úr ferm- ingarbörnum með því að fullyrða að þau fermist gjafanna vegna, en slík lítillækkun á okkar eigin börn er fyrst og fremst dómur á okkur sjálf sem uppalendur,“ segir séra Gísli Jónasson, prófastur við Breiðholtskirkju. Hann minnist sjónvarpsviðtals fyrir nokkru. „Þá spurði fréttamaður barn- ið fimm sinnum sömu spurning- ar, því hann fékk ekki svarið sem hann vildi. Ég hef sjálfur mætt í ótal stórafmæli fullorðinna og aldrei rekist á fréttamenn spyrja afmælisbörn um gróða gjafanna, en alltaf skulum við níðast á börn- unum og gera þau grunsamleg,“ segir séra Gísli og bætir við að Ís- lendingum sé eðlislægt að gleðjast yfir áföngum lífsins með samveru, gjöfum og góðum mat. „Vitaskuld er ekkert við það að athuga og auð- vitað eru fermingarbörn spennt fyrir pökkum á fermingardaginn eins og á öðrum tímamótum. Því segi ég stundum við þá sem dæma að þeir ættu að standa mér við hlið og horfa í augu barnanna á ferm- ingarstundinni, því mörg hver eru með tár á hvörmum.“ Að sögn Gísla leitar prófasts- dæmið nú nýrra lausna vegna fermingarfræðslunnar, í samstarfi við Kennaraháskólann. „Kristni- fræðikennslu í skólum hefur hrak- að svo mikið að nú er ómögulegt að nota hefðbundið námskver sem notað var lengst af áður. Þekking barna á dæmisögum Biblíunnar og klassískum sögum úr lífi Jesúm eru ekki lengur til staðar,“ segir séra Gísli, og minnir á að siðfræði fermingarfræðslunnar byggi á boðskap Jesúm Krists. „En ef börnin þekkja ekki boð- skapinn erum við komin í sömu spor og að kenna lestur án þess að kenna fyrst stafrófið. Mörg börn þekkja ekki einu sinni einföldustu nöfn þekktra persóna í Biblíunni, eins og Móse. Mér sýnist því kirkj- an þurfa að taka að sér fræðslu og verið er að skoða danskt módel af fermingarforskóla.“ Fermingarfræðsla byrjar að hausti. Oftast mæta börn vikulega til prests og tvo lengri laugardaga, ásamt því að fara í fermingarbúðir í Vatnaskógi. Að auki þurfa þau að sækja tíu guðsþjónustur og vinna verkefnavinnu tengda þeim. „Börn- in mæta flest spennt í fræðsluna en auðvitað komast sum að þeirri niðurstöðu að vilja ekki láta ferma sig. Það sýnir að þau eru að hugsa, enda í miklum tilvistarhugleiðing- um. Minna er talað um þau mörgu sem koma ári til tveimur seinna að láta ferma sig, eða þau sem létu ekki fermast fyrir ári, en passa nú upp á fermingarbörn eins og unga sína, að þau mæti samviskusam- lega. Því fer fræðslan stundum dýpra en maður heldur og við of fljót að dæma hundinn af hárun- um einum saman.“ - þlg Þekkja ekki Móses Séra Gísli Jónasson er prófastur við Breiðholtskirkju. Hér situr hann keikur í forkunnarfögru kirkjuskipi sinnar sérstæðu kirkju, sem minnir um margt á stórt indjánatjald og er ævintýri að koma inn í. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.