Fréttablaðið - 26.02.2009, Page 37
FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 13fermingar ● fréttablaðið ●
www.jswatch.com / www.gilbert.is
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur.
Ég er djásn og dýrmæti,
Dro ni sjálfum líkur.
- Solon Islandus 1820-1895
einfaldlega betri kostur
Úrval frábærra fermingargjafa
Hjá ILVA á Korputorgi fást margar sniðugar lausnir fyrir unglingaherbergið,
frá litlum náttborðslömpum til fataskápa og allt þar á milli. Nýi FREDSACK
grjónapúðinn hefur algjörlega hitt í mark hjá ungu kynslóðinni. Hann býður upp á
ótal notkunarmöguleika og hægt er að fá hann í mörgum björtum og
skemmtilegum litum.
Sjón er sögu ríkari - komdu í verslun okkar á Korputorgi og kynntu þér úrvalið!
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500 www.ilva.is
mánudaga - föstudaga 11-19 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
Fredsack. Grjónapúði.
165x135 cm. Ýmsir litir.
14.900,-
sendum um allt land
Bjóðum uppá
vaxtalaust
lán til 6 mánaða
Þegar boðið er til fermingarveislu
er viðeigandi að útbúa boðskort.
Skemmtilegt getur verið að vera
með mynd af fermingarbarninu á
kortinu, til dæmis úr barnæsku.
Boðskortin má búa til á ýmsan
máta. Nokkur fyrirtæki á borð við
Hans Petersen og fleiri bjóða upp
á að búa til boðskort og er þá oft
á tíðum hægt að panta þau beint
í gegnum netið með því að skrifa
texta og senda mynd.
Einnig má virkja hugmyndaflug-
ið og búa til boðskortið í tölvunni
heima sem prenta má út á heimilis-
prentarann.
Nýstárleg hugmynd er að senda
boðskort í formi geisladisks. Þetta
er sérstaklega gott ef koma þarf
fleiri upplýsingum til gesta. Til
dæmis varðandi staðsetningu
veislunnar. Þá gæti fermingar-
barnið einnig boðið til veislunnar „í
eigin persónu“ í stuttu myndbroti.
Skynsamlegt er að mælast til
þess að boðsgestir láti vita hvort
þeir komi eða ekki, þá er hægt
að reikna út veitingarnar með ná-
kvæmum hætti. -sg
Boðið til veislu
„Það var spennandi kostur að
sækja ýmis námskeið hjá Siðmennt
og ég var mjög ánægður með þau,
miðað við það sem vinir mínir
fengu annars staðar,“ segir Þor-
varður Tjörvi Ólafsson hagfræð-
ingur.
Hann fermdist borgaralegri
fermingu árið 1991 ásamt um
fimmtán öðrum. Í borgaralegri
fermingu er ekki lögð áhersla á
kristna trú, heldur ýmsa jarð-
bundnari þætti tilverunnar. Þor-
varður Tjörvi rifjar upp að í undir-
búningnum hafi hann hlýtt á fjölda
fyrirlesara fjalla um siðfræði og
kynfræðslu og um hvernig ætti
að takast á við missi, svo dæmi sé
nefnt.
Með honum fermdust nokkr-
ir sem síðar urðu nafnkunnir, svo
sem Erpur Eyvindarson rappari og
Andrés Jónsson almannatengill.
„Ég man að Andrés hélt ræðu og
pabbi Erps flutti ljóð,“ segir Þor-
varður Tjörvi. „Þetta var huggu-
leg athöfn í Hafnarborg.“
Þá hafi fáir fermst hjá Sið-
mennt. „Og maður var því mjög
meðvitaður um að maður væri að
velja þetta og fannst það svolítið
sérstakt, á jákvæðan hátt,“ segir
hann. Það er til marks um auknar
vinsældir borgaralegrar ferming-
ar að 2002 var Þorvarður Tjörvi
fenginn til að ræða við fermingar-
börn ársins. Þá var fermt í troð-
fullum sal í Háskólabíói. - kóþ
Meðvitaður um eigið val
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur hjá Seðlabankanum, kaus að fermast hjá
Siðmennt árið 1991 og ber því vel söguna.