Fréttablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 38
26. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR14 ● fréttablaðið ● fermingar
Dóra Svavarsdóttir matreiðslu-
meistari Á næstu grösum
og Marentza Poulsen smur-
brauðsdama sem rekið hefur
Kaffi Flóru síðastliðin sumur,
kenna fólki að halda veislur á
námskeiði á vegum Iðunnar 9.
og 10. mars.
„Við stílum inná að kenna fólki að
halda allt frá fermingarveislum til
saumaklúbba,“ segir Dóra Svavars-
dóttir sem heldur ásamt Marentzu
Poulsen tveggja kölda námskeið
sem þær kalla „Veisla frá upphafi
til enda“. „Við kennum fólki að
setja upp matseðilinn, áætla magn
og innkaup,“ segir Dóra og telur
mikilvægt fyrir fólk að hugsa út í
fyrir hverja veislan er haldin þar
sem smekkur manna sé jú misjafn.
„Fyrra kvöldið fer í að gera fólk
meðvitað um forvinnu veislunn-
ar. Svo förum við í að elda mat og
undirbúum hann eins og hægt er,“
segir Dóra en matseðillinn er ekki
amalegur. Þar getur að líta tvær
tegundir af snittum að hætti Mar-
entzu. Þá verður búin til froðu-
súpa, léttur austurlenskur kjúkl-
ingaréttur, bakaður sinnepsmarin-
eraður lax og sætkartöflubaka svo
eitthvað sé nefnt. Þá verður einnig
kennt að búa til meðlæti. Punktur-
inn yfir iið verður skreytt frönsk
súkkulaðikaka.
Seinna námskeiðskvöldið verð-
ur farið í uppsetningu á hlaðborði.
„Við förum í skreytingar enda
Marentza mjög fær í því,“ segir
Dóra sem telur mikilvægt að gera
fólk meðvitað um hvernig hægt sé
að skipuleggja veislu án þess að
vera búið á sál og líkama.
En eru einhver algeng mistök
sem fólk gerir við undirbúning?
„Algengustu mistökin sem fólk
gerir er að vera með allt of mikið
af mat og allt of margar tegund-
ir. Svo gleymir fólk oft að gera ráð
fyrir plássi í kringum veisluborð-
ið,“ svarar Dóra og telur ekki að
undra að fólk geri einhver mis-
tök enda fæstir sem haldi stórar
veislur oft um ævina. „Því er gott
að koma til okkar því við gerum
þetta oft og við margs konar að-
stæður,“ segir Dóra glaðlega.
Námskeiðið fer fram 9. og 10.
mars og getur hver sem er skráð
sig. Skráning fer fram í gegnum
Iðuna www.idan.is. -sg
Baka með sætum kartöflum
og gulrótum
Fyrir 8-12 manns
1 kg gulrætur skornar í þunnar
sneiðar.
1/2 kg sætar kartöflur, skrældar og
skornar í teninga
200 g laukur (ca. 2 stk), skorinn í
sneiðar
3 stk. hvítlauksrif, söxuð
400 ml kókosmjólk, (1 dós)
salt
svartur pipar
tímian
1 búnt steinselja, söxuð
5 egg
1-2 blöð smjördeig af þykkustu
gerð
Gulræturnar eru forbakaðar í ofni. Lauk-
urinn er léttsteiktur í potti ásamt piparn-
um, tímianinu og hvítlauknum.
Kartöflunum bætt út í. Smá vatn er sett
í pottinn ásamt kókosmjólkinni. Látið
malla við miðlungs hita þar til kartöfl-
unar eru mjúkar. Takið af hita og látið
kólna eilítið. Kryddið til með salti og
pipar.
Smjördeigið er flatt út þannig að brún-
irnar skarist vel og þeki 28 cm smellu-
form.
Steinseljunni og eggjunum er hrært út
í kartöflublönduna og forelduðu gul-
rótunum og öllu hellt í formið og press-
að létt niður. Bakið við 150°c í 30-40 mín
eða þar til bakan er stíf.
Graskerssúpa
Fyrir 6
2 msk. grænmetisolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
700 g af skrældu graskeri, skorið í
ca. 3 cm bita
200 ml grænmetissoð eða vatn
400 ml kókosmjólk (1 dós)
2 tsk. safi úr lime
sjávarsalt og nýmulinn svartur
pipar eftir smekk
Brúnið lauk, hvítlauk og cumminfræ í
olíunni við meðalháan hita í nokkrar
mínútur eða þar til laukurinn er orðinn
gullbrúnn. Bætið út í graskeri, vatni og
kókosmjólk. Sjóðið við vægan hita í um
það bil 30 mínútur eða þar til grænmet-
ið er meyrt.
Maukið með töfrasprota eða í mat-
vinnsluvél þar til allar örður eru farnar.
Bætið út í limesafa og kryddið til. Setjið í
rjómasprautu og sprautið í vínglas.
Veisluhöld frá
upphafi til enda
Litríkt veisluborð með sætkartöfluböku,
paprikusalati, smjörbaunasalati og
byggsalati með tómat.
Marentza Poulsen og Dóra Svavarsdóttir kenna fólki að undirbúa og halda veislur á
námskeiði í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gómsæt sætkartöflubaka.
Glaðlegt
paprikusalat.
Fjöld
i fl ott
ra
ferm
ingar
tilboð
a á
www
.hobb
yroom
.is
Velkomin á glersalurinn.is
Glersalurinn er einn glæsilegasti veislusalur á
landinu, salurinn er bjartur, hátt til lofts og stórar
svalir allan hringinn og fallegt útsýni. Öll aðstaða
er eins og best gerist með góðum hljómburði,
píanó, skjávarpa og fullkomnu hjóðkerfi.
Glersalurinn - Salavegi 2 - 201 Kópavogi - Sími: 586 9006
GSM: 862 0713 - freyja@glersalurinn.is
Tilvalið fyrir fermingarveislur