Fréttablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 46
22 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
ER 37 ÁRA Í DAG.
„Það er allt of mikið af
vargi í borginni núna og
borgarbúar eru farnir að
tala um fljúgandi rottu-
gang. Ég veit ekki um neina
borg í heiminum sem myndi
ekki ráðast gegn slíku.“
Gísli Marteinn talar hér um
máva í Reykjavík sem hann
taldi mikla meinsemd. Gísli
Marteinn er einna helst
þekktur fyrir störf sín í sjón-
varpi og borgarstjórn. Hann
stundar nú nám í Háskólanum
í Edinborg samhliða starfi.
Í tilefni af áttræðisafmæli teiknimyndasöguhetjunnar
Tinna standa Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlista-
skólinn í Reykjavík fyrir myndasögusamkeppni á vormán-
uðum. „Tinni varð áttræður tíunda janúar síðastliðinn en
reyndar er ég búin að uppgötva að fleiri myndasöguhetj-
ur eiga stórafmæli á þessu ári. Batman verður sjötugur og
Ástríkur verður fimmtugur, en Tinni er elstur og flottast-
ur,“ segir Úlfhildur Dagsdóttir, verkefnastýra hjá Borgar-
bókasafni Reykjavíkur, og hlær.
Keppnin er hugsuð fyrir fólk á aldrinum 10 til 20 plús
og útskýrir Úlfhildur það þannig að þeim sem eru eitthvað
eldri en 20 ára sé ekki meinaður aðgangur. „Við höfum að-
allega hugsað keppnina fyrir ungt fólk og erum að stíla inn
á grunn- og framhaldsskóla. Hins vegar vitum við að marg-
ir hafa alist upp með Tinna og vildum því ekki útiloka þá
sem væru orðnir aðeins eldri en tvítugir,“ segir Úlfhildur og
brosir. Skilafrestur er til 2. maí en í tengslum við samkeppn-
ina verður haldin sýning á þeim verkum sem hljóta viður-
kenningu, auk valinna verka annarra þátttakenda. „Sýn-
ingin verður hér á Reykjavíkurtorgi, á fyrstu hæð Borgar-
bókasafnsins, og opnar sú sýning 6. júní. Þá verða jafnframt
tilkynnt úrslit og afhent verðlaun sem eru myndasögunám-
skeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur en viðurkenningar
verða í formi Tinnabóka,“ segir hún.
Þema samkeppninnar er „Dularfullur atburður“ og er
það hugsað til heiðurs hinni áttræðu myndasöguhetju sem
fæst við lausnir á dularfullum atburðum í ævintýrum sínum.
hrefna@frettabladid.is
MYNDASÖGUSAMKEPPNI: TINNI 80 ÁRA
Til heiðurs Tinna
HETJUR HALDA HÁTÍÐ Myndasöguhetjan Tinni verður áttræður á þessu
ári og í tilefni af því halda Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlista-
skóli Reykjavíkur myndasögusamkeppni á vordögum. Úlfhildur Dags-
dóttir hefur meðal annarra veg og vanda af skipulagningu keppninnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eldgos hófst í Heklu á þessum degi
fyrir níu árum og stóð í um það bil ell-
efu daga. Hefur fjallið ekki gosið síðan
en síðast var aðeins hægt að spá fyrir
um gosið um fimmtán mínútum áður
en það hófst.
Hekla er eitt virkasta og þekktasta
eldfjall Íslands. Fjallið er á sunnanverðu
landinu í Rangárvallasýslu, sést víða að
og er auðþekkjanlegt með breiðar axlir
og háan toppgíg. Hekla er frekar ungt
eldfjall og er stærstur hluti þess tal-
inn vera yngri en sjö þúsund ára. Fjallið
stendur á frekar þykkri jarðskorpu þar
sem Suðurlandsbrotabeltið og Suður-
landsgosbeltið mætast og er því mikil virkni í jarðskorpunni.
Fjallið sker sig frá öðrum íslenskum eldfjöllum að því leyti að
kvikuhólf þess er mun dýpra en í öðrum fjöllum landsins, eða á
um ellefu kílómetra dýpi í jarðskorpunni.
ÞETTA GERÐIST: 26. FEBRÚAR 2000
Eldgos hefst í Heklu
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórður Þorvarðsson
fv. deildarstjóri á Landspítalanum,
Skálaheiði 9, Kópavogi,
lést laugardaginn 21. febrúar á hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð, Kópavogi. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 4. mars kl. 15.00.
Halla S. Nikulásdóttir
Skúli Eggert Þórðarson Dagmar Elín Sigurðardóttir
Nikulás Þórðarson Elísabet Berta Bjarnadóttir
Guðrún Þórðardóttir Randver Þorláksson
Elísabet Þórðardóttir Einar Gunnarsson
Kjartan Þór Þórðarson Ásbjörg Geirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinbjörn Guðbjarnason
fyrrv. útibússtjóri, Vesturvangi 22,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 27. febrúar kl. 15.
Sigríður Magnúsdóttir
Magnús Sveinbjörnsson Ingibjörg Steina
Eggertsdóttir
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson Dagbjört Lára Helgadóttir
Vilhjálmur Davíð
Sveinbjörnsson Elísa Kristinsdóttir
Viðar Freyr Sveinbjörnsson Eva Hauksdóttir
afabörn og langafabörn.
Móðir okkar,
Herdís Pálsdóttir
frá Fornhaga,
lést að Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, hinn17. febrú-
ar. Jarðarförin fer fram frá Möðruvöllum í Hörgárdal
föstudaginn 27. febrúar kl. 14.00.
Brynhildur Ingólfsdóttir
Arnheiður Ingólfsdóttir
Gunnfríður Ingólfsdóttir
Guðmundur Ingólfsson
Sesselja Ingólfsdóttir
Okkar ástkæra
Margrét Guðmundsdóttir
fyrrverandi matráðskona,
Arahólum 4, Reykjavík,
sem andaðist miðvikudaginn 18. febrúar á hjúkrun-
arheimilinu Skógarbæ, verður jarðsungin frá Fella- og
Hólakirkju föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00.
Ingibjörg Sigvaldadóttir
Þórunn Magnúsdóttir
Kristján Gissurarson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Garðar Steindórsson
Vesturtúni 50, Álftanesi,
sem andaðist að heimili sínu þriðjudaginn 17. febrúar,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00.
Jóhanna Guðrún Halldórsdóttir
Kristín Garðarsdóttir Björn Þórisson
Bryndís Garðarsdóttir Gísli Vagn Jónsson
Áslaug Garðarsdóttir Páll Hafnfjörð Hafsteinsson
afabörn, langafabarn
Sverrir Steindórsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Katrín Valgerður
Ásgrímsdóttir
frá Seyðisfirði,
lést á Landspítalanum mánudaginn 23. febrúar.
Ásgrímur Grétar Jörundsson Ósk María Ólafsdóttir
Guðlaugur Jörundsson
Sunneva Jörundsdóttir Jakob Sæmundsson
Sigríður Vala Jörundsdóttir Bessi Húnfjörð Jóhannesson
Jósep Valur Guðlaugsson
ömmubörn og langömmubarn.
Móðursystir okkar,
Hallfríður Hulda
Sigurðardóttir
Þórufelli 14, Reykjavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar miðviku-
daginn 18. febrúar. Útför hennar verður gerð frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 28. febrúar kl. 14.00.
Sigrún Ólafsdóttir, Arnar Ólafsson og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Karitas Ottesen
fyrrum húsfreyja í Efstadal í Laugardal,
lést á Kumbaravogi mánudaginn 23. febrúar.
Jarðsungið verður frá Skálholti laugardaginn
28. febrúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Miðdals-
kirkjugarði.
Sigurður Sigurðsson Lilja Dóra Eyþórsdóttir
Gunnhildur Sigurðardóttir Gestur Sæmundsson
Snæbjörn Sigurðasson Björg Ingvarsdóttir
Jórunn Sigurðardóttir Halldór Rúnar Vilbergsson
Ásmundur Sigurðsson Elva Gunnlausdóttir
Ása Björk Sigurðardóttir Egill Þór Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
Ingólfur Sigurðsson
bakarameistari, Berjarima 47,
sem lést fimmtudaginn 19. febrúar sl., verður jarðsung-
inn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. febrúar kl.
13.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent
á minningarsjóð krabbameinslækningadeildar 11E,
Landspítala, s. 543 1159.
Birna Bjarnadóttir
Þóranna Erla Sigurjónsdóttir
Laufey Sif Ingólfsdóttir Carl Andreas Sveinsson
Bjarni Grétar Ingólfsson Elísabet Ýrr Jónsdóttir
Kamilla Sif Carlsdóttir
Sigurjón Sigurðsson
Erlingur Sigurðsson
Sigurður Sævar Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Torfi Kristinn Jónsson
Mosabarði 6, Hafnarfirði,
lést á Vífilsstöðum 19. febrúar. Útför hans verður gerð
frá Jósepskirkju í Hafnarfirði föstudaginn 27. febrúar
kl 13.00.
Þórdís Hansen
Ólafur Árni Torfason Helena Högnadóttir
Jón Marías Torfason Viktoría Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.