Fréttablaðið - 26.02.2009, Síða 62
38 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. lappi, 6. í röð, 8. mál, 9. stefna, 11.
950, 12. heimting, 14. úðadæla, 16.
berist til, 17. löng, 18. for, 20. rykkorn,
21. krukka.
LÓÐRÉTT
1. fituskán, 3. bardagi, 4. mýrakalda,
5. angan, 7. fugl, 10. skítur, 13. fram-
koma, 15. innyfla, 16. hryggur, 19.
ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sami, 6. rs, 8. tal, 9. átt,
11. lm, 12. krafa, 14. úðari, 16. bt, 17.
síð, 18. aur, 20. ar, 21. krús.
LÓÐRÉTT: 1. brák, 3. at, 4. malaría,
5. ilm, 7. strútur, 10. tað, 13. fas, 15.
iðra, 16. bak, 19. rú.
MORGUNMATURINN
„Ég fæ mér svart kaffi og
iðulega fæ ég mér ristað brauð
með osti og sultu. Þegar ég
hef tíma geri ég ferskan safa í
safapressu.“
Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona.
Víða verður haldið upp á afmæli
bjórsins næsta laugardag, meðal
annars á Selfossi, nánar tiltekið í
Hvíta húsinu. Öllu verður tjaldað til
en þar leika Stuðmenn fyrir dansi
og kemur Valgeir Guðjónsson
fram með sínum fornu félögum.
Auk þeirra spilar kvennasveitin
Elektra en þetta mun
verða í fyrsta skipti
sem þær koma fram
opinberlega eftir
að þær hurfu inn í
bílskúr til að æfa fyrir
Eurovision-forkeppn-
ina þar sem þær
höfðu reyndar
ekki erindi sem
erfiði.
Í vikunni var tekið fyrir mál Ívars
Arnar Þórhallssonar á hendur Séð
og heyrt, en hann segir tímaritið
hafa tekið ófrjálsri hendi myndir af
vefsvæði hans og notað í fréttina
„Hommi á Barnalandi“. Blaðamað-
urinn Tobba Marinós-
dóttir furðar sig mjög á
þessu því nýverið sendi
Ívar Arnar henni
myndir til birting-
ar í Séð og heyrt
án endurgjalds
og hringdi
sérstaklega
til að ítreka
það góða
boð.
Fyrsti gestur nýrra umsjónarmanna
sjónvarpsþáttarins Mér finnst …,
þeirra Láru Ómarsdóttur, Katr-
ínar Bessadóttur og Bergljótar
Davíðsdóttur var sjónvarpsstjarnan
Egill Helgason sem algerlega sló í
gegn meðal kvennanna sem göptu
upp í gullinhærða hrokkinkollinn
og skjásjarmörinn þegar hann
sagði þeim frá bóhemlífi
sínu á yngri árum.
Spennandi verður að
vita hver verður svo
gestur þeirra næst
en þátturinn er á
dagskrá á mánu-
dögum og
föstudögum.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Haraldur Örn er leiðangurs-
stjóri. Lagt verður af stað 1.
maí á toppinn,“ segir Már Más-
son, uppýsingafulltrúi Íslands-
banka.
Íslandsbankafólk stefnir
nú að því að klífa hæsta tind
landsins, Hvannadalshnjúk,
sem er 2.110 metrar á hæð yfir
sjávarmáli. Hópurinn verður í
góðum höndum því fyrir hópn-
um fer einhver mesti fjalla-
garpur Íslands, Haraldur Örn
Ólafsson pólfari. Reyndar þarf
bankinn ekki að leita langt yfir
skammt því Haraldur Örn er
starfsmaður bankans og starf-
ar í lögfræðideild. Gert er ráð
fyrir því að gangan taki um 12
til 15 tíma þannig að þetta er
enginn barnaleikur – hækk-
unin er tvo þúsund metrar. En
þetta vex bankamönnum ekki í
augum því 70 til 80 manns hafa
skráð sig í ferðina miklu.
Fréttablaðið hefur fyrir því
heimildir að Sveppi, skemmti-
krafturinn góðkunni, verði með
í för. Aðspurður hvers vegna
bankinn sé að drösla honum
sérstaklega á tindinn segir
Már það svo að hann sé maki
eins starfsmannsins. „Ég geri
fastlega ráð fyrir því að hann
fylgi sinni spúsu á toppinn. En
klukkan fjögur að morgni verð-
ur lagt af stað,“ segir Már.
Sveppi er þekktur fyrir
ýmislegt en háskalegar fjall-
göngur eru ekki eitt af því.
Aðspurður hvort þetta sé
ekki óðs manns æði og
hvort hann treysti sér á
tindinn segir skemmti-
krafturinn fjallbrattur
og þenur út kassann:
„Það verður bara að
koma í ljós.“
- jbg
Sveppi og pólfarinn klífa Hvannadalshnjúk
„Jú, það er mikil tilhlökkun í mannskapnum. Enda
bara þrír dagar til stefnu,“ segir Björn Ingi Hrafns-
son en á laugardaginn verður fréttavefsíðan press-
an.is opnuð, sem hann stýrir. Björn Ingi
segir að auk hans muni Steingrím-
ur Sævarr Ólafsson, fyrrverandi
fréttastjóri á Stöð 2, Marta María
Jónasdóttir, fyrrum ritstjóri Föstu-
dags, fylgirits Fréttablaðsins og
Henrý Þór Baldursson skrípó-
bloggari sjá um vefinn.
Björn Ingi segir að erlendir
vefir svo sem Washington
Post og fréttavefur Mic-
rosoft Slate.com séu
meðal annarra fyrir-
myndir en skrifin muni
bæði helgast fréttum
af því sem er að ger-
ast hverju sinni sem og
þeirra eigin rannsókn-
arblaðamennsku. Einnig
verði þar að finna mikið
af efni sem tengist líðandi
stundu, lífsstíl, tísku og
dægurmálum og mun Marta María sjá um þau skrif
að miklum hluta.
„Okkur munu svo fylgja fjölmargir pressupennar,
þekkt fólk úr þjóðlífinu, sem skrifa um það sem hæst
ber hverju sinni.“
Björn Ingi segir að Pressan muni hafa
aðsetur á 17. hæð í Turninum í Kópa-
vogi en vill að öðru leyti ekki játa né
neita orðrómi þess efnis að Róbert
Wessman sé sá sem fjármagni vefinn.
„Ég ætla ekki að tjá mig um eignar-
aðildina fyrr en daginn sem Pressan
verður opnuð en þá verður það
heldur ekkert leyndarmál og
mikilvægt að það komi strax
fram. Það eru fleiri en einn
aðili sem standa okkur
að baki. Yfirbygging-
in verður hins vegar
ekki mikil, enda er
það lykilatriðið við
þessar aðstæður.
Við reynum að
fara varlega í
þetta.“ - jma
Björn Ingi á 17. hæð Turnsins
SVEPPI Frægur fyrir flest
annað en fjallgöngur.
HARALDUR PÓLFARI Mun leiða
hóp bankafólks á tind Hvanna-
dalshnjúks – 2.110 metra yfir
sjávarmáli.
ÞEGAR STÓRT ER SPURT Stein-
grímur Sævarr Ólafsson mun
rifja upp gamla takta frá því
hann rak vinsæla bloggsíðu
fyrir nokkrum árum. Kven-
legt yfirbragð verður einnig
á síðunni í formi tísku- og
lífsstílsumfjöllunar. BJÖRN INGI HRAFNSSON
„Þetta verður rosa spennandi verk-
efni af því að við ætlum að skoða
Bandaríkin eins og enginn hefur
séð þau áður,“ segir Ingólfur Júlí-
usson ljósmyndari.
Hann verður þátttakandi í nýjum
ferðaþætti sem verður tekinn upp
í Bandaríkjunum á næstunni. Um
einn prufuþátt verður að ræða þar
sem Ingólfur og tveir þáttastjórn-
endur skoða landið frá nýstárlegu
sjónarhorni.
Ingólfur kynntist öðrum þátta-
stjórnandanum, Seanie Blue, á
Íslandi. „Við urðum góðir vinir og
svo bauð hann mér þetta. Ég hef
aldrei komið til Bandaríkjanna
og ég held að honum hafi fund-
ist skrítið að mig hafi aldrei lang-
að þangað og fannst að ég gæti
ekki haft neina skoðun á landinu
án þess að skoða það dálítið vel.“
Í þættinum mun Ingólfur tjá sig
um það sem fyrir augu ber ásamt
Seanie og samstarfskonu hans,
Sandie Black. Einnig ætlar hann
að festa mannlífið á filmu með
myndavél sinni.
Seanie og Sandie hafa vakið
mikla athygli fyrir þætti sína á
netstöðinni BadTV sem átta millj-
ónir manna hafa séð og vonast þau
til að prufuþátturinn fái það mikla
athygli að hann verði keyptur til
stórra sjónvarpsstöðva. Fari svo
verða fleiri þættir gerðir og þeir
sýndir um gjörvöll Bandaríkin og
hugsanlega víðar. Í þeim myndi
Ingólfur og föruneyti ferðast um
fleiri ríki Bandaríkjanna og einn-
ig út fyrir landsteinana.
Ingólfur flýgur vestur um haf
19. mars og verður þar í um þrjár
vikur. Ferðast hann frá New York
til Hollywood í gegnum miðríki
Bandaríkjanna með þeim Seanie
og Sandie og skoðar mannlífið með
augum hins íslenska víkings. Tekið
verður hús á íslenska kántríkapp-
anum Gis í Nashville, heimkynni
Elvis Presley, Graceland, verða
skoðuð, litið verður til Las Vegas
og handritshöfundur kvikmyndar-
innar Monster´s Ball verður heim-
sóttur.
Ingólfur er með fleiri járn í eld-
inum því hann tekur í næsta mán-
uði þátt í listasýningu í Miami
ásamt kollegum sínum, Einari
Jónssyni og Jakobi Fannari Sig-
urðssyni, og myndlistarmönn-
unum Tómasi Ponzi og Raffaellu
Sigurðardóttur. Þar mun Ingólf-
ur sýna hluta af þeim myndum
sem hann tók af mótmælunum á
Íslandi fyrir Reuters-fréttastof-
una sem hafa birst víða um heim
að undanförnu, meðal annars í
New York Times, Stern og Aften-
posten. Mynd hans af Steingrími
J. Sigfússyni fjármálaráðherra að
stíga upp í gamla Volvo-bílinn sinn
var valin ein af 24 myndum mán-
aðarins á Reuters-vefnum, sem er
vitaskuld mikill heiður fyrir þenn-
an færa ljósmyndara. „Það kitlar
mig að fá faglega viðurkenningu,“
segir hann. freyr@frettabladid.is
INGÓLFUR JÚLÍUSSON: TEKUR ÞÁTT Í NÝSTÁRLEGUM SJÓNVARPSÞÆTTI
BANDARÍKIN MEÐ AUGUM
ÍSLENSKS LJÓSMYNDARA
ÍSLENSKUR VÍKINGUR SKOÐAR BANDARÍKIN Ingólfur Júlíusson tekur þátt í nýjum
ferðaþætti þar sem brugðið verður upp nýrri hlið á Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Svía.
2 Darren Fletcher.
3 Dikta.