Fréttablaðið - 26.02.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Í dag er fimmtudagurinn
26. febrúar, 57. dagur ársins.
8.45 13.41 18.37
8.35 13.25 18.17
Alltaf stal villingurinn í bekkn-um athyglinni. Í ofanálag var
honum svo hrósað í hástert ef hann
slysaðist til að haga sér einu sinni
vel. Enginn tók eftir meðaljóninum
sem hagaði sér skikkanlega allan
tímann. Ég óttast að í aðgerða-
pakkanum sem bjarga á heimil-
unum í kreppunni verði meðalj-
óninn enn útundan. Að þeir taki
mestan skellinn sem spiluðu ekki
rassinn úr buxunum, höfðu enga
kaupréttarsamninga og standa
þokkalega í skilum. Splæstu
kannski í mesta lagi í 20 tommu
flatskjá.
FRAMSÓKN viðraði um daginn
hugmyndir um að húseignalán
allra yrðu afskrifuð um 20 pró-
sent. Ég geri mér enga grein fyrir
hversu raunhæf slík aðgerð yrði
en óneitanlega hljómaði hún vel
í eyrum meðaljónsins. Viðskipta-
ráðherra leist hins vegar ekkert á
þetta og sagði í frétt á Vísi.is hinn
24. febrúar að „ef öll lán væru
afskrifuð um 20 prósent væri verið
að rýra mjög eignir bankanna og
kostnaðurinn við það væri mun
meiri en hægt væri að réttlæta“.
Mér finnst hins vegar ekkert hægt
að réttlæta þær byrðar sem á að
leggja á almenning vegna fram-
göngu gömlu bankanna!
VIÐSKIPTARÁÐHERRA sagðist
jafnframt í sömu frétt sjá fyrir sér
„allmörg úrræði sem tækju tillit til
stöðu hvers og eins en væru þó með
almennum reglum. Í einhverjum
tilvikum þurfi að afskrifa, stund-
um verði hægt að lengja í lánum og
hugsanlega má beita vaxtabótum í
þessu sambandi. Að lokum ítrekaði
Gylfi að kraftar ríkisins verði að
beinast að þeim sem mest þurfa á
aðstoðinni að halda.“
HVERNIG á að meta hverjir fái
skuldir sínar afskrifaðar? Eru það
þeir sem myntkörfulánin eru að
sliga, eða þeir sem verðtryggingin
er að sliga? Verður miðað við eitt-
hvert lágmark milljóna sem við-
komandi skuldar eða verður miðað
við hvort fyrirvinna heimilisins,
hafi misst vinnuna eða „bara“
þurft að taka á sig launalækkun?
Verður miðað við hversu mörg
börn eru á heimilinu og tekið tillit
til mismunandi rekstrarkostnaðar
við ungbörn eða unglinga?
NÚ vil ég ekki gera lítið úr vand-
ræðum fjölda fólks. Ég geri mér
fulla grein fyrir því að margir
standa frammi fyrir gjaldþroti.
Mér finnst hins vegar ósanngjarnt
ef einhverjir verða látnir róa þann
þunga róður sem fram undan er
einsamlir og taka á sig álögur af
völdum annarra, meðan aðrir fái
skuldir sínar afskrifaðar. Hvers á
hinn íslenski meðaljón að gjalda?
Hvað um
meðaljóninn?
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322
dömu & herra
bolir 990,-
skyrtur 1.990,-
flíspeysur 2.990,-
softshell 4.990,-
kvartbuxur 2.990,-
buxur 2.990,-
zip off buxur 4.490,-
isotex jakkar 4.990,-
isotex kápur 5.990,-
regnbuxur 1.490,-
regnjakkar 1.990,-
gönguskór 5.990,-
bakpokar 2.990,-
sokkar 990,-
ofl. ofl.
barnafatnaður
bolir 990,-
flíspeysur 1.990,-
softshell 3.990,-
kvartbuxur 1.990,-
zip off buxur 2.990,-
regnbuxur 990,-
regnjakkar 1.490,-
gönguskór 5.490,-
bakpokar 1.990,-
ofl. ofl.
OKKAR FRAMLAG
NÝJAR VÖRUR VOR/SUMAR 09
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
LAUGARD. 11 – 16
www.utivistogsport.is
MARKAÐSHORNIÐ
VETUR 08/09
barnaúlpur 2.990,-
flíspeysur 1.990,-
dömuúlpur 2.990,-
softshell 1.990,-
skíðajakkar 4.990,-
ofl. ofl.