Tíminn - 09.02.1990, Page 4

Tíminn - 09.02.1990, Page 4
4 Tíminn FRÉTTAYFIRUT WASHINGTON — Banda- ríkjamenn sögðust óttast að hryðjuverkamenn á vegum ír- ana myndu gera atlögu að Bandaríkjamönnum er nálgað- ist byltingarafmælið í íran á sunnudag. Hafa Bandaríkja- mönnum borist hótanir sem þeir taka alvarlega. BEIRÚT — Stríðandi fylking- ar kristinna manna í Líbanon undirrituðu friðarsamkomulag eftir viku langa blóðuga bar- daga. Leiðtogar hinna stríð- andi fylkinga þeir Michel Aoun hershöfðingi og Samir Geagea leiðtogi vognaðra sveita krist- inna náðu saman eftir að þeim barst njósn af stórauknum víg- búnaði og liðssafnaði sveita múslíma kringum Beirút. Búa kristnir menn sig nú undir að snúa saman bökum á ný til að berjast gegn múslímum, reyn- ist þess þörf. Kristnir menn notuðu tímann til að grafa hina föllnu. MOSKVA — Almenningur í Sovétríkjunum bíður nú í of- væni eftir ítarlegri upþlýsingum frá miðstjórnarfundi sovéska kommúnistaflokksins þar sem ákveðið var að afnema valda- einokun kommúnistaflokksins og undirbúa fjölflokkakerfi f Sovétríkjunum. Vitað er að Mikhaíl Gorbatsjof fékk sam- þykktar róttækar umbætur, en ekki er enn vitað hverjar þær nákvæmlega eru. Umbóta- sinnar kvarta um að harðlínu- menn skuli enn halda stöðum sínum. HÖFÐABORG - Hvítir öfgamenn hafa hótað að myrða Nelson Mandela leið- toga Afríska þjóðarráðsins ef hann verður leystur úr haldi. Frá þessu skýrði lögreglumála- ráðherra Suður-Afríku, Adriian Vlok. STOKKHÓLMUR - Sví- ar sendu 56 búlgarska Tyrki aftur heim frá Svíþjóð. Svíar telja að ástandið f Búlgaríu sé oroið Tyrkjum nægilega hag- stætt til að þeir þurfi ekki að flýja land. Föstudagur 9. febrúar 1990 ÍÍl ÚTLOND ||!||||||||||||[l|l||||||||||M^ ........................................III........ Vel fór á með Shévardnadze og Baker í Moskvu í gær, en þeir stígi skref í átt til afvopnunar. James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Eduard Shév- ardnadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna funda í Moskvu: Enn tekin skref í afvopnunarátt Eduard Shévardnadze utanríkísráðherra Sovétríkjanna og James Bakcr utanríkisráðherra Bandaríkjanna stigu skref í átt til afvopnunar fyrir hönd ríkja sinna, en þeir ræddust við á þremur fundum í Moskvu í gær. Þeir munu hafa rutt úr vegi ein- hverjum þeim atriðum sem staðið hafa í veginum fyrir fækkun lang- drægra kjarnavopna á þriggja klukkustundalöngum fundi í gær- morgun. Þá munu þeir hafa nálgast samkomulag í fækkun hefðbundinna vopna og efnavopna, ef marka má fréttir Tass fréttastofunnar af við- ræðum tvímenninganna. Ekki er ljóst hverjar niðurstöður fundar- haldanna í gærkveldi voru. Baker kom til Moskvu í fyrradag og er gert ráð fyrir að hann ræði við Shévardnadze í fjóra daga um af- vopnun, samskipti risaveldanna auk Útgöngubann hefur nú verið sett í Karachi næst stærstu borg Pakist- ans og næsta nágrenni, en þar hafa að minnsta kosti fjörutíu og átta manns fallið í átökum lögreglu og ákafra mótmælenda síðustu þrjá daga. Allsherjarverkfall hafði lamað borgina og mannfallið í skotbardög- um mótmælenda og öryggissveita jókst með hverri klukkustund. Má þess sem þeir félagarnir undirbúa leiðtogafund George Bush Banda- ríkjaforseta og Mikhaíls Gorbatsjofs forseta Sovétríkjanna. Þeir munu hittast að máli í Washington í júní- mánuði ef áætlanir standast. Á Möltufundi þeirra Bush og Gorbatsjofs urðu þeir ásáttir um að ná afvopnunarsamningum eða í það minnsta samningsdrögum, bæði hvað varðaði hefðbundin vopn og langdræg kjarnavopn, fyrir leiðtoga- fundinn í júní. Hingað til hefur strandað á nokkrum atriðum varð- andi vopnaeftirlit með langdrægum kjarnaflaugum. Ríkt hefur ágrein- telja nokkuð víst að enn fleiri eigi eftir að liggja í valnum, slík er harka stjórnarandstæðinga sem ráðast ótrauðir með skotvopnum og sprengjukasti á lögreglustöðvar í borginni. Flestir hinna föllnu eru meðlimir Mohajir þjóðarhreyfingarinnar sem boðaði allsherjarverkfallið sem nú ríkir í borginni. Telur Mohajir að ingur um hvernig telja skuli kjarna- flaugar sem skotið er frá flugvélum. Um það atriði virðast þeir Baker og Shévardnadze vera að ná samkomu- lagi. Krafa Bandaríkjamanna hefur verið sú að telja hámark tíu kjarna- flugskeyti á hverja flugvél áður en skorið verður niður, en Sovétmenn hafa viljað telja alla flutningsgetu flugvélanna. Nú virðast Bandaríkja- menn hafa slegið af kröfum sínum í því efni. Þá kom Baker á framfæri hug- myndum Bush um enn meiri fækkun í hefðbundnum herafla Bandaríkja- manna og Sovétmanna í Mið-Evr- ópu en áður hafði verið rætt um í afvopnunarviðræðunum í Vín. Ráðherrarnir tveir munu ræða hugsanlega sameiningu þýsku ríkj- anna á fundum sínum í dag. stuðningsmenn Benazir Bhutto í Al- þýðuflokki Pakistans hafi rænt átta- tíu virkum félögum í Mohajir. Hófst verkfallið eftir að tímafrestur sá sem Mohajir gaf til að félagarnir yrðu leystir úr haldi, rann út. Reyndar hafa meðlimir Alþýðu- flokksins sakað Mohajir um að hafa rænt rúmlega hundrað félögum Al- þýðuflokksins. Tyrkland: 67kolanámu- menn farast Talið er vís að sextíu og sjö manns hafi farist í námuslysi í Tyrklandi í fyrradag. Röð sprenginga varð í kolanámu nærri bænum Merzifon og fylltist náman af eitruðu gasi. Sprengingar mátti heyra fram eftir nóttu. Slysið vakti mikla reiði meðal námaverkamanna og fjölskyldna þeirra og þurfti vopnaða öryggislög- reglumenn til að halda mótmælend- um frá höfuðstöðvum námafélags- ins. -Það er engin von um að finna menn á lífi. Karbonmonoxíðgasið sem fyllti námuna drepur á tveimur sekúndum, sagði Nurdogan Kaya héraðsstjóri í Amasya héraði þar sem náman er. Björgunarsveitir reyndu í gær að loka loftinntökum í námuna til að kæfa eldana sem logað hafa í iðrum jarðar svo hægt sé að sækja lík námaverkamannanna. Námuslysið er það versta sem orðið hefur í Tyrklandi frá því árið 1983 þegar hundrað og þrír náma- menn grófust í kolanámu í bænum Zonguldag við Svartahaf. „Við viljum morðingjana“ og „Látum forstjórana borga fyrir þetta“ kölluðu námaverkamenn og skyldmenni þeirra er fórust eftir að ljóst var að engin von var um björgun. Námaslys eru tiltölulega tíð í Tyrklandi, síðast fórust fjórir kola- námumenn í Svartahafsbænum Am- asra 31. janúar. Blökkumennfá að finna ilm Óeirðalögregla beitti táragasi og kylfum gegn nokkrum tugum blökkumanna sem mótmæltu keppn- isferð ensks krikketliðs um Suður- Afríku. Keppnisferðin er brot á alþjóðlegu samskiptabanni við suð- ur-afríska íþróttamenn vegna að- skilnaðarstefnunnar í landinu. Hafa nokkrum sinnum áður brotist út átök milli lögreglu og blökkumanna vegna keppnisferðalags krikketliðs- ins undanfarna daga, en fyrsti leikur- inn var ekki leikinn fyrr en í gær. Barsmíðin hófst í blökkumanna- hverfinu Alexandra eftir að ungir blökkumenn höfðu pantað 30 leigu- bíla til að komast á Wandersleik- vanginn þar sem leikur Englendinga og Suður-Afríkumanna fór fram. En í stað leigubílanna komu lög- reglumenn sem tvístruðu blökku- mannahópnum með táragasi og barsmíðum. Mótmælendurnir höfðu áður beð- ið um leyfi að mæta á völlinn og halda uppi friðsamlegum mótmæl- um, en slíkt leyfi fékkst ekki, Lögreglan segist hafa gripið inní málin þegar þeir fréttu að 2000 skólabörn væru á leiðinni á völlinn með mótmælaspjöld. Hefðu lög- reglumenn komið á staðinn og skýrt fólkinu frá því að mótmælin væru ólögleg, en hópurinn hefði því engu skeytt. Því hefði verið gripið til reyksprengju og þá hefðu ungmenn- in haldið friðsamlega heim. Útgöngubann sett á í næst stærstu borg Pakistans vegna átaka mótmælenda og lögreglu: 48fallniríKarachi Vopnahlé náðist milli hersveita kristinna í Líbanon, en blikur á lofti: Múslímar undirbúa bardaga Vopnaðar sveitir múslíma í Líb- anon hafa nú aukið viðbúnað á framvarðalínum sínum og búa sig undir bardaga við hersveitir Michel Aoun hershöfðingja. Því bendir allt til þess að múslímar hyggist ganga á lagið eftir að Aoun hefur gengið í skrokk á vopnuðum sveitum trú- bræðra sinna í Líbönsku hersveitun- um og freista þess að vinna fullnað- arsigur á kristnum mönnum í Beirút og nágrenni. Það eru hersveitir Framsækna sós- íalistaflokks Drúza, Kommúnista- flokks Líbanon og Sýrlenska þjóð- lega sósíalistaflokksins sem hafa her- væðst í fjöllunum suðaustur af Beir- út. Hins vegar virðast sýrlenskar hersveitir ekkert ætla að láta á sér bæra. Vopnahlé náðist í innbyrðis bar- dögum kristinna manna í Beirút og nágrenni í fyrrinótt eftir vikulanga blóðuga bardaga þar sem á fjórða hundrað manns hafa fallið. Lítið sem ekkert var barist í gær, en hersveitir Aouns hafa náð stórum svæðum af vopnuðum sveitum aðal- andstæðings síns Samirs Geagea. Ekki er ljóst hvort vopnaðar sveit- ir múslíma muni leggja í bardaga við her Aouns, en vitað er að Elias Hrawi, hinn kristni forseti Líbanons hefur fullan hug á að ganga milli bols og höfuðs á Michel Aoun, sem neitaó iiefur aó vióurkenna Hrawi sem forseta. Hrawi nýtur hins vegar stuðnings múslíma og Sýrlendinga. Hann hefur yfir að ráða 15 þúsund hermönnum úr fastaher Líbanons, mestmegnis múslímum, en Aoun hefur einnig um 15 þúsund kristna hermenn. Talið er að Hrawi muni ekki láta til skarar skríða gegn Aoun nema að hann njóti fulls stuðnings og hjálpar Sýrlendinga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.